Flýtilyklar
Aðalfundurinn
Aðalfundur Félags húsbílaeigenda haldinn að Hásölum í Hafnarfjarðarkirkju 15. okt. 2011
Kæru félagar, ég býð ykkur hjartanlega velkomin á aðalfund Félags húsbílaeigenda 2011 og segi þennan fund settan.
Ég vil byrja á því að tilnefna fundarstjóra fyrir þennan fund og sting upp á Elínbjörgu Magnúsdóttur félaga okkar nr. 215, er fundurinn samþykkur því? Gjörðu svo vel Elínbjörg.
Kæru félagar áður en við höldum áfram vil ég byrja á því að biðja ykkur um að rísa úr sætum og minnast látinna félaga með nokkra mínútu þögn. Takk fyrir.
Já kæru félagar lífið er hverfult og margt hefur breyst á einu ári bæði hjá mér og mörgum öðrum, ég hef verið að fóta mig á þessu ári og læra að lifa lífinu án þess að hafa mér við hlið minn trausta eiginmann, maður þurfti að taka oft á honum stóra sínum til að láta hlutina ganga og bara það að keyra húsbílinn minn vafðist fyrst fyrir mér en þá hugsaði ég til þeirra kvenna sem eru í félaginu og keyra sjálfar og hafa gert og ekkert mál, þá hlyti ég að geta gert þetta líka, og hvatningin frá ykkur félagar góðir var mér mikill styrkur svo og minni góðu fjölskyldu, því ekki vildi ég hætta að ferðast með ykkur, en svona er lífið ég fékk þetta verkefni til að takast á við og ég reyni það eftir bestu getu og ég vil þakka ykkur fyrir ykkar umbyrðarlyndi við mig.
Starfið hjá félaginu er nú nokkuð fastmótað, fljótlega eftir árshátíðina á síðasta hausti hittust nefndir og skiptu með sér verkum.
Ferðanefnd fór fljótlega að skipuleggja ferðir fyrir sumarið 2011 en það er í mörg horn að líta í þeim efnum, ákveða hvert á að fara, hvað skal skoða og kanna aðstöðu ýmissa staða. Það liggur mikil vinna í þessari skipulagningu og ferðanefndin skipti með sér verkum þannig að ákveðnir aðilar sáu um vissar ferðir frá A-Ö og held ég þetta hafi komið ágætlega út. En allt svona starf kostar skipulagningu og samvinnu aðila svo allt gangi upp. Þau héldu fundi út í Garði og Keflavík og svo héldu þau fund í hverri ferð og þá oftast í bíl Sævars Hrannó.
Í ferðum félagsins mæðir einnig mikið á ferðanefndinni þar sem þau sjá um að rukka alla sem koma á staðinn þegar gjald er tekið, en fyrir hverja ferð í sumar var það ítrekað inn á heimasíðunni og einnig í fréttabréfunum að fólk væri með peninga til reiðu það flýtir ótrúlega mikið fyrir og þannig unnum við öll saman og tóku félagarnir tillit til þessa. Að vera með posa er of dýrt fyrir félagið þar sem hann er notaður það lítið og við ætlum að minnka þennan kostnað sem liggur í því að vera með posa, og beinum því til ykkar að vera með reiðufé í ferðum félagsins, við borgum vissa leigu á hverjum mánuði fyrir posann og erum svo að nota hann aðeins í tveimur ferðum félagsins, hvítasunnuferðinni og Stóru ferðinni.
Í skemmtinefndinni þetta árið voru þrenn hjón og hafa þau verið metnaðarfull í sínu starfi, þau hafa flutt okkur gamansögur, brandara, samið söng um félagana, spilað, sungið og farið með leikþætti svo eitthvað sé nefnt og slóu eftirminnilega í gegn á árshátíðinni í fyrra og einnig núna. En þau skemmtu okkur ekki bara á árshátíðunum, heldur einnig í öðrum ferðum félagsins og þá sérstaklega þegar við vorum með hús á leigu, alltaf fjör. Einnig hafa þau séð um félagsvistina og bingóið. Og í fyrra í Stóru ferðinni var prufað útibingó sem tókst mjög vel og var það einnig í Stóru ferðinn nú í ár og skapaðist skemmtileg stemming í kringum þetta. Þau hafa verið mjög dugleg að safna vinningum sem þau hafa fengið hjá mörgum fyrirtækjum, alveg frábærir vinningar, sem hafa verið notaðir einmitt í bingóinu, félagsvistinni og ýmsum öðrum uppákomum sem þau hafa skapað. Kubbaspilið hefur komið gríðarlega sterkt inn og hafa margir spreytt sig á því og skapast mikil stemming í hópnum. Þau tóku upp á því að veita svokölluð Gedduverðlaun Félags húsbílaeigenda 2011 á árshátíðinn. Þessi verðlaun eru eins og fram kom í kynningu á árshátíðinni, heiðursviðurkenningar til þeirra félaga sem hafa skarað fram úr í spunaverkum og gjörningum þetta árið. . Þetta vakti mikla kátínu viðstaddra og var verðlauna afhendingin sko alveg ekta. Þetta voru 7 viðurkenningar. (vera með viðurkenninguna hennar Kristínar)
Kubbaspilsmeistaratign ársins: María á Græjunni nr. 162
Hetjutenór ársins: Sævar á Hrannó, nr. 421
Gagnrýnandi ársins: Kristín nr. 770
Djammarar ársins: Gugga og Viðar á Ullmax, nr. 75
Risverðlaun ársins: Sibba á Dalakofanum, nr. 377?? Ha, umm hvað þýðir þetta?Blíðasta kona félagsins. Konan sú hlaut
einróma lof fyrir viðskiptaþáttaröð sína: "Ég væri nú löngu komin á hausinn ef ég hefði ekki fengið að
borga í blíðu" Vigdís á Trausta, nr. 515, ég hef greinilega ekki alveg verið að fylgjast með í sumar????
Hnyttnustu setningu sumarsins átti: Óli á Skagaþjarkinum, nr. 501.
Já það fór ekkert fram hjá vökulum augum skemmtinefndarinnar.
Kæra ferða-og skemmtinefnd hjartans þakklæti til ykkar fyrir alla ykkar vinnu fyrir félagið, það er ómetanlegt að fá til starfa fólk sem er tilbúið að gefa af sér og vinna fyrir félagið og ég vona svo sannarlega að þið hafið notið þess og eigið góðar minningar í farteskinu.
Í ferðum félagsins í sumar eins og endranær hafa félagar sem kunna á hljóðfæri spilað fyrir okkur þegar þeir hafa getað og vil ég þakka þeim kærlega fyrir að gleðja okkur með hljóðfæraleik sínum, við vonum að við eigum eftir að njóta ykkar framlags lengi og vel.
Nú Stjórnin var líka á fullu og fór á fullt eftir áramót og var það félagatalið sem tók mikið af okkar tíma við skiptum með okkur að safna auglýsingum, senda út tölvupósta og voru þeir ófáir, við fengum hann Sigga á Sponna nr. 447 til liðs við okkur, en hann var með í stjórn á s.l. ári og þekkir þetta vel og er mjög góður í auglýsingasöfnun, auglýsingasöfnunin gekk bara nokkuð vel. Við í stjórninni erum mjög ánægð með félagatalið það var valinn fjólublár litur á kápuna og afláttarskírteinið ber lit af bókinni líka og nú létum við prenta skírteini á hvern og einn meðlim sem skráður er í félagið, sem sagt hjón fá hvort sitt skírteini. Ýmsar nýungar eru í bókinni s.s. nokkrar blaðsíður um þekkta vindhviðustaði á fjölförnum þjóðvegum landsins, ferðaveðurspá, og aðrir veðurþættir sem áhrif hafa á umferð. Sjóvá menn voru svo elskulegir að leyfa okkur að notast við þetta efni en forvarnardeild Sjóvá hefur tekið þetta saman og er með þetta inn á sinni heimasíðu, gott að hafa þetta í félagatalinu og handhægt fyrir okkur að lesa ef við lendum í slæmum veðrum.
Eins fengum við að birta skyndihjálparbækling frá Rauða krossinum “Getur þú hjálpað….þegar á reynir. Þarna eru nokkur góð ráð s.s. hjartahnoð, blástursaðferð og fleira sem gott er að vita og hafa við höndina og félagatalið er svo sannarlega vettvangur fyrir þetta. Einnig settum við inn reglur um hundahald og annarra dýra í ferðum félagsins, og reglur um almannarétt og útivist “Göngum vel um landið okkar”. Þetta tvennt höfðum við heyrt hjá ýmsum félögum okkar að þyrfti að vera til staðar í svona stóru félagi og vonandi hafið þið verið ánægð með þessa fræðslumola.
Einnig settum við inn nöfn bílanna okkar í stafrófsröð og á þetta svo sannarlega þarna heima og gaman að sjá hvað margir bílar eru með nöfn og ég vil nota þetta tækifæri og hvetja ykkur endilega að setja nöfn á bílana ykkar, það er bara skemmtilegt og það mætti alveg fá svo einhvern til að skíra bílinn í ferðum hjá okkur búa til smá stemmingu eins og var hér einu sinni, bara gaman að því,. Vill ekki einhver taka að sér presthlutverkið......
Margir auglýsa hjá okkur og er þetta rit okkar alltaf að festa sig betur og betur í sessi því félagatalið nær til ansi margra og það sem þetta rit hefur fram yfir mörg önnur blöð að þessu er ekki hent og er því auglýsingagildið mjög gott. Ágæta stjórnarfólk takk kærlega fyrir alla ykkar vinnu.
Ferðafundur var haldinn í sal Gerðaskóla Garði 26.mars s.l.Á fundinn komu um 200 manns. Þarna var ferðaáætlun sumarsins kynnt og eins og þið munið sem voruð á fundinum þá kom Jóhann Sævar Kristbergsson eldvarnareftirlitsmaður frá Brunavörnum Suðurnesja og talaði um brunavarnir á tjaldstæðum og tók skýrt fram að hafa þyrfti góðar flóttaleiðir og í því sambandi þyrfti að passa vel upp á að bílar, hjólhýsi og aðrir vagnar væru ekki svo þétt lagðir að ekki færi illa ef eitthvað kæmi upp á. Hann sýndi ágætis skýringarmyndir. Hér er um þarfa ábendingu að ræða sem við öll skulum hafa í huga, og mér fannst fólk aðeins hugað að þessu í sumar í ferðunum okkar, og það er vel, gott að fá aðila á ferðafundinn til að tala um gagnlega hluti sem koma okkur öllum til góða.
Guðlaugur í Fjarorku leiddi okkur í allan sannleika um græna orku og voru margir sem spjölluðu við hann eftir fundinn. þó nokkrir félagar voru á bílunum sínum og gistu út við Garðskaga.
Ferðir á vegum félagsins í sumar voru 8 talsins og tel ég þar með óvissuferðina sem farin var 5. mars um Borgarfjörðinn og veðrið þennan dag var ekki glæsilegt hávaða rok og rigning en í þessa ferð fóru um 100 manns á tveimur rútum og var komið við í Vírnetsverksmiðjunni í Borgarnesi, Geitabúið að Háafelli í Hvítársíðu skoðað og komið við í Ferjukoti safnið þar skoðað og endað í kaffiveislu að Hótel Brú fyrir utan Borgarnes. Þessi ferð tókst mjög vel og ferðalangar ánægðir með daginn.
Ég tel einnig Skoðunardaginn 6. - 8. maí með í þessum ferðum en margir dvöldu tvær nætur í bílunum sínum fyrra kvöldið fyrir utan Frumherja og seinni nóttina á tjaldstæðinu við Víðistaðatún, þetta er fallegur staður, góðar gönguleiðir og stutt í miðbæinn, það þarf ekki alltaf að fara langt. 70 bílar voru skoðaðir og Frumherja fólk tók mjög vel á móti okkur með morgunverði á laugardagsmorgun, kaffi og vínarbrauðum um tíu leytið og svo grillaðar pylsur um hádegið. Margir kíktu við til að hitta félagana þó þeir væru ekki að láta skoða bílana sína og var góð stemming þarna og hljóðfæraleikarar félagsins sáu um stemminguna þarna. Auk þess var sýnikennsla í brunavörnum og myndband frá VÍS um hvað skeður um alla lausamuni þegar verður árekstur. Frumherji sendu öllum félögum í Félagi húsbílaeigenda boðsbréf að koma þennan dag en tilboðið hjá þeim stóð einnig til 1.júlí á öllum stöðum Frumherja um allt land og einnig veittu þeir 20% afslátt á skoðun á einkabílum félaganna gegn framvísun gilds félagsskírteinis, þetta tilboð hentar okkar félögum mjög vel, því þeir eru svo víða um landið.
Margir mundu segja að fyrsta ferðin okkar hefði verið að Úlfljótsvatni þann 27.-29.maí, Úlfljótsvatn er svo sannarlega 5 stjörnu tjaldstæði með hinum ýmsu þrautum fyrir börn og fullorðna og voru þrautirnar svo sannarlega nýttar, frábært að vera með krakka þarna, margir fóru með veiðistöngina niður að vatni og héldu sig þar í góðan tíma og á hinum ýmsu stöðum og reyndu við fiskinn, en því miður án lítils árangurs, aðeins 1 fiskur kom á land, sem stækkaði helling eftir að hann náðist, en hann endaði í 1 pundi! Hægt að fara í góða göngutúra meðfram vatninu upp að Stóra Krosinum svo eitthvað sé talið og við höfðum Strýtuna til afnota þar sem við komum saman bæði kvöldin, dregið var úr númerum bílanna sem mættu og fengu nokkrir félagar glæsilega vinninga, spilað á hljóðfæri, sungið og nokkur spor tekin.
Fastur punktur í ferðunum okkar er Hvítasunnuferðin um hvítasunnuna hvort sem hún er snemma eða seint, í ár var hvítasunnan seint eða 10.-13.júní, nokkrir félagar komu seinnipartinn á fimmtudeginum ekki viðraði nú vel þennan dag en það snjóaði um kvöldið, en það rættist úr veðriðinu um helgina og þessi helgi tókst mjög vel dansleikir bæði á föstudags-og laugardagskvöldinu, mikið fjör, félagsvistin á sínum stað spilað var á 13 borðum og 100 manns spiluðu bingó, hvítasunnukaffið á sunnudeginum, borðið svignaði af kræsingunum, í kaffi komu 300 manns og var hleypt inn í hollum. Flugvél kom á laugardeginum og henti niður karamellum yfir svæðið og krakkar og fullorðnir hlupu um móana og nældu sér í karamellur misjafnlega mikið og krakkarnir björguðu sér sko komu með regnhlífar snéru þeim öfugt og vonuðust til að ákkúrat þar kæmi himnasendingin en þetta dreifðist vel um svæðið, við höfðum öll voða gaman að þessu börn og fullorðnir, það var félagi í flugsveit Mosfellsbæj-ar sem annaðist þessa skemmtun fyrir okkur. Skemmtinefndin steig á stokk og kitlaði hláturtaugar okkar svo um munaði. Það komu 153 bílar þessa helgi. Ég má til að geta þess að félagi nr. 40 Tryggvi var 50.ára og hann ætlaði sko ekki að sleppa ferð með félaginu svo hann bauð ættingjum og sínum nánu félögum að koma að Hlöðum þar yrði hann með veisluna sína og það voru orð að sönnu og margir nutu gæðanna af hans veisluborði þetta kvöldið.
Einu sinni verður allt fyrst segir máltækið og það sannaðist hjá okkur en ferð sem átti að fara 24.-26. júní í T-bæ í Selvogi var blásin af, ekki af því að við í stjórn, og nefndum nenntum ekki að fara heldur atvikaðist það bara þannig að þegar til kom þá var fólk því miður upptekið við annað, s.s. vegna fjölskylduaðstæðna, vinnu og ég sat ein uppi sem hefði komist en ég bara treysti mér ekki, ég er búin að biðjast afsökunar á þessu áður og geri það bara aftur, öll mistök gefa okkur tækifæri til að læra eitthvað nýtt.
Eins og hvítasunnan er fastur punktur í ferðum okkar félags þá er Stóra ferðin líka fastur punktur, alltaf farin í júlí, og nú var það Snæfellsnes-Töfrar Íslands, landslagið á Snæfellsnesi er fjölbreytt og töfrandi, nesið er mjótt og um 90 km langt, prýtt háum og á tíðum hrikalegum fjallgarði sem mótast hefur við eldgos og jökulsrof . Yst á Snæfellsnesi trjónir hinn dulmagnaði Snæfellsjökull , eitthvert formfegursta fjall landsins. Í hugum margra er hann ein af sjö helstu örkustöðvum jarðar og frá honum stafar mikil orka. Margir hafa sótt í orku jökulsins og það gerðum við líka félagar góðir í þessari ferð! Þjóðgarðurinn í Snæfellsnesi er eini þjóðgarður landsins sem nær að sjó og geymir minjar um langa og merkilega útgerðasögu.
Við byrjuðum á Akranesi, komum við á Snorrastöðum, Arnarstapa þar sem náttúran er svo falleg en mikið varð ég fyrir vonbrigðum með tjaldstæðið, salernisaðstaðan þarna er afskaplega bágborin og vart ferðamönnum bjóðandi,við komum við á Hellissandi en þar er mjög flott tjaldstæði nýlegt og heimamönnum til sóma, Grundarfjörður skartaði sínu fegursta og þar héldu félagarnir t.d markað utan dyra og einhverjir heimamenn kíktu í heimsókn. Fólk hafði bara sína hentisemi um komu- og brottfaratíma, fólk skoðaði það sem hver og einn hafði áhuga á. En félagið bauð upp á skoðun í Vatnshellir en þetta er hraunhellir í suðurhlíðum Purkhólahrauns. Hellirinn er talinn vera 5-8000 ára gamall og er 200 m langur. þar inni er hátt til lofts og vítt til veggja og þangað niður er aðeins farið undir leiðsögn. Sjötíu manns fóru í hellirinn. Mér fannst alveg magnað að fara þarna niður ég hvet alla þá sem fara á Snæfellsnesið að skoða þennan helli, þetta er alveg magnað. Einnig var boðið upp á heimsókn í Bjarnarhöfn og skelltu sér margir í hákarl og harðfisk til Hildibrandar og hann segir skemmtilega frá. Þessi vikuferð endaði svo í Árbliki í Dölunum en þar vorum við í tvær nætur, og náðum vel saman við spjall, leik söng og dans, hver og einn eldaði fyrir sig og skemmtinefnd var með frábær atriði og danshljómsveit Friðjóns hélt uppi fjörinu til rúmlega þrjú um nóttina. Í Stóru ferðinni kynnist maður félögunum vel, við erum í nánu sambandi í heila viku og erum orðin í lok ferðar eins og ein stór fjölskylda.
Ferðin að Garðskaga helgina 19.-21.ágúst tókst mjög vel veðrið lék við okkur það var bongó blíða alla helgina, fólk sat utan við bíla sína langt fram á kvöld við spjall og hljóðfæraleikarar sem á staðnum voru sátu úti og spiluðu af fingrum fram og kunni fólk vel að meta þessa snillinga og tóku vel undir í söng. Ásgeir fór með okkur í fræðandi ferð í vissan radíus frá vitanum létt ganga fyrir flesta og ég sem er nú uppalin á þessum bletti var margs vísari og ég hélt ég vissi allt um þetta svæði. Margir fóru upp í vitann og nutu útsýnisins. Skellt var upp kaffihlaðborði með muffins, kleinum og jólakökum Formaður skemmtinefndar hann Sævar átti afmæli var 55.ára og hann skellti upp veislu hann hafði boðið ættingjum sínum og vinum í afmælið en þar sem hann var í ferð með húsbílafélaginu þá urðu þau bara að koma þangað og svo nutum við félagarnir gestrisni hans í leiðinn enda var mikil traffík í kringum bílinn hans.
Brosandi fólk, kátt og skemmtilegt yfirgaf svo svæðið á sunudeginum, með góðar minningar í farteskinu.
9. - 11. sept. var farið að Faxa í Biskupstungum tjaldsvæðið við Faxa er nýlegt tjaldsvæði í hinni sögufrægu sveit Biskupstungum, á bökkum Tungufljóts við fossinn Faxa og Tungnaréttir. Tjaldsvæðið er á rólegum stað í fallegu umhverfi, en samt í alfaraleið og stutt í alla þjónustu. Falleg fjallasýn og gönguleiðir. Það voru í kringum 60-70 bílar, það blés svoldið en félagar létu það ekki hafa áhrif á sig og höfðu bara gaman saman en þegar þessi ferð var ákveðin átti að rétta þessa helgi en bændur höfðu frestað réttunum um viku, svo við gátum ekkert við því gert en héldum okkar striki.
Lokaferð sumarsins og jafnframt árshátíðin var svo helgina 23. - 25. sept. í sal Menntaskólans í Borgarnesi. þetta er flottur salur og góð aðstaða þarna til að halda árshátíð en það komu 204 manns. Við notuðum föstudagskvöldið til að hita okkur upp fyrir árshátíðina á laugardaginn og skemmtum okkur saman við brandara og spiluðum lög á plötum og nokkrir hljóðfæraleikarar komu upp í hús og spiluðu þeir Gulli nr. 200, Snorri nr. 450. Óli nr. 717 og Tryggvi nr. 40, Á laugardeginum var spiluð félagsvist á 12 borðum.
Það var hátíðleiki yfir salnum þegar opnað var með fordrykk kl. sjö, borðin skreytt með blómum sem týnd voru úti í náttúrunni. Skemmtinefndin var með ríflega klukkutíma prófgramm og fór á kostum, salurinn lá í hlátri allan tímann, og á endanum held ég að allir hafi fengið nóg að borða eða ég vona það, en það að ekki skuli allir hafa fengið eitthvað af forréttinum var ósættanlegt, en ég ætla svo sem ekki að fara að tala neitt meira um þetta hér en ég talaði við Magnús hjá Gæðakokkum um þetta en þetta er búið og gert.
Skemmtunin endaði svo með dansleik þar sem hljómsveitin Kopar sá um dansmúsikina og voru ekki allir á eitt sáttir með hana en það getur stundum verið erfitt að ná hinum hreina sanna danstakti svo öllum líki en þrátt fyrir allt þá skemmti fólk sér vel og var ánægt með að hafa árshátíðina og lokaferðina saman allavega heyrðist mér það á flest öllum sem voru þarna þessa helgi.
Þar sem ég sat í gær, 14. okt. og var að hripa þessar línur á blað þá tek ég bókina mína góðu sem heitir Vegur til farsældar og ég skrifa á hverjum degi “comment” úr þessari bók inn á vinabókina (örðu nafni facebókina) þar stendur.
Vondur siður: Að vera tortrygginn, neikvæður, vantrúaður og gagnrýninn á allt og alla. Góður siður: Að hugsa jákvætt, að sjá það góða í öllu, að gefast aldrei upp, að tala vingjarnleg orð.
Eins og talað til mín, já það er gott að rýna til gagns.
Já þetta er spurningin er Lokaferð og árshátíð komin til að vera, þarna skiptist reyndar fólk í hópa, sumir vilja fá sína Lokaferð og aðrir bara sína árshátíð á Hóteli, en nú verður það nýrrar stjórnar, ferða-og skemmtinefndar að ráða fram úr því fyrir næsta ár, og svo líka hvað finnst ykkur félagar góðir við erum að hlusta eftir röddum ykkar og þar er heimasíðan okkar kjörinn staður til að tjá sig á “mitt svæði”t.d. sem er lokað og aðeins fyrir þá félaga sem eru virkir ég hvet ykkur til að nota þennan miðil miklu meira en hefur verið gert. Þið þurfið líka að vera miklu duglegri að taka þátt í skoðunarkönnunum sem við setjum inn á heimasíðuna, við höfum aðallega verið að nota þetta til að kanna hvort þið komið í ferðirnar t.d. núna var spurt komið þið á aðalfundinn aðeins 20 hafa svarað, tökum okkur öll saman og nýtum miðilinn okkar.
Eitt vil ég minnast á en það eru börnin, börn eru alltaf velkomin í ferðirnar okkarþað hefur ekkert breyst, en mér
finnst hafa fækkað að börn séu í ferðum en það er ekki við okkur að sakast í þeim efnum. Sú hefð hefur verið
að fermingarárið hafa krakkarnir mátt vera inni á böllunum þar sem við höfum verið að skemmta okkur en þau yngri eiga að fara
í bílana,ekki seinna en kl. 12.00 á miðnætti, flestir hafa virt þetta.
Er ástæða að endurskoða þetta? Að við höfum aldurinn ja 16 eða 18 ára? Mér finnst persónulega fyrirkomulagið eins og
verið hefur alveg ágætt og það er jú forráðamenn barnanna sem eiga að hugsa sjálf um sín börn hvað þau vilja gera en
það er líka allt í lagi að við veltum þessu fyrir okkur skoða allar hliðar málsins og einmitt góður grundvöllur að tjá
sig inn á heimasíðunni.
Það kom upp umræða er Lokaferðin/árshátíðin var til umræðu að verið væri að útiloka börn þar það var ekki gert en það þurfti að greiða fyrir þau matinn eins og fyrir fullorðna, frá 12 ára aldri greiddu þau fullt gjald en áttu að lúta þeim reglum sem við höfum haft í ferðum okkar hingað til.
Við fengum nokkra umfjöllun í fréttamiðlum þetta árið Nilli kom í heimsókn að Hlöðum og gaf sig á tal við nokkra félaga og ég held hann hafi helst leitað eftir þeim félögum sem tóku í nefið, nei ég segi svona en hann var að myndast við að taka í nösina og gekk hálfskrikkjótt en það var gaman að þessum klippum. Ung stúlka sem er jafngömul félaginu hafði samband við mig þegar við vorum í Stóru ferðinni og hafði við mig viðtal og Mæja á Græjunni sendi henni myndir og þetta kom í laugardagsblaðinu 17. júli og svo var hópur sem komst í Sjónvarpið Ísland í dag á Stöð 2 ekki á hverjum degi sem fólk kemst í sjónvarpið og þau stóðu sig að sjálfsögðu með prýði bara eins og þau hefðu ekki gert neitt annað, voruð þið búin að æfa ykkur, jákvæð umfjöllun er bara af hinu góða.
Í félaginu núna eru 674 virkir félagar, það gengu 60 ný númer í félagið sem eru 112 manns. 44 númer hafa dottið út, fólk sem ekki hefur greitt árgjaldið fyrir 1. okt. og svo hefur fólk farið úr félaginu af ýmsum ástæðum s.s. fólk hefur selt bílana sína, hefur misst heilsuna eða maka og teystir sér ekki til að halda áfram og svo bara vegna aldurs, en við skulum öll hvetja þá sem við þekkjum og eiga húsbíla að koma í þennan góða félagsskap. Það eru ýmis tilboð sem hægt er að nýta sér og svo bara að ferðast með félaginu er gaman og maður kynnist svo mörgum og hittir jafnvel gamla kunningja aftur og endurnýjar kunningsskapinn.
Stjórnin hélt 8 fundi sem haldnir voru á mínu heimili, fyrir Stóru ferðina hittust stjórn, ferða-og skemmtinefnd á A-Hansen til að fara yfir alla þætti ferðarinnar og svo héldum við fund í Árblíki í lok Stóru –ferðar, öll saman.
Stjórnin leggur fram breytingar á nokkrum liðum í lögum félagsins núna á þessum fundi, sumt eru nú bara orðabreytingar (orðaval) en nokkrir liðir fá breytingu til nútímans, þið hafið öll átt að hafa fengið þetta inn um póstlúguna ykkar og einnig inn á netföngin ykkar þau sem eru með netföng. En ég er búin að fá þó nokkra pósta til baka þar sem sagt er að viðkomandi sé fluttur eða óþekktur það er nauðsynlegt að tilkynna til okkar þegar fólk skiptir um heimilisfang, skiptir um bíl, breytir símanúmeri svo eitthvað sé nefnt svo þetta sé líka rétt í félagaskránni, einnig er svoldið um það að fólk hefur breytt um netföng þá þurfum við líka að vita það. Þið sendið bara tölvupóst á husbill@husbill.is eða hringið í síma 896-5057.
Úr stjórn hverfa að þessu sinni Reynir Gunnarsson nr. 16 sem hefur verið varaformaður s.l. tvö ár Benedikta Benidiktsdóttir, nr. 60 varamaður og Guðbjörg Bjarnadóttir nr. 75 sem hefur gengt gjaldkerastafinu s.l. tvö ár,
Úr ferðanefnd hverfa Sævar Gunnlaugssonnr. 421 hann var formaður ferðanefndar s.l. ár og Oddný Jónsdóttir nr. 484
Skemmtinefndin kveður öll, þau Elín og Daði nr. 39 Halldóra og Einar nr. 392 og Úlfhildur og Sigvaldi nr. 400 öllu þessu yndislega fólki vil ég þakka innilega fyrir gott samstarf og ykkar óeigingjarna starf og mökum ykkar líka því þeir fara ekki varhluta af þessu starfi, þau hafa oft fengið yfir sig skammir því miður og þetta á ekki að eiga sér stað þó fólk sé ekki alveg sátt þá á að taka tillit til aðstæðna og ekki hlaupa strax upp á háa C-ið það er reynt að leysa öll mál, við erum öll mannleg og getur orðið á en það eru líka takmörk fyrir öllu en ég vona ágæta fólk að þrátt fyrir allt þá hafið þið öll haft gagn og gaman af því að taka þátt í þessum stjórnunarstörfum fyrir félagið og þetta gefi ykkur gott vegarnesti út í lífið, maður tekur alltaf einhverja reynslu með sér sem nýtist manni einhversstaðar annarsstaðar, hjartans þökk fyrir ykkar framlag. það er búið að tala við ansi marga félaga til að ná fólki í stjórn og nefndir, það verður að segjast eins og er að fólk bíður ekkert eftir því að komast í þessi störf allavega ekki þegar ég er að tala við það, ég hef nú fengið fleiri til að hjálpa mér í þessu en þetta hefst allt að lokum, að sjálfsögðu, ekki annað í boði.
Í stjórn gefa kost á sér Páll Þorsteinsson nr. 377, Hlíðar Sæmundsson,nr. 2 Ragna Helgadóttir,nr. 202 Anna Pála Mágnúsdóttir,nr. 595 Katrín Baldvinsdóttir, nr. 468 og Absalon Poulsen, nr. 390.
Í ferðanefnd gefa kost á sér Anna M. Hálfdánardóttir, nr. 165, Ásgeir M. Hjálmarsson, nr. 712, Hrafnhildur Ó. Sigurðardóttir, nr. 698 og Áni Óskarsson, nr. 65.
Í skemmtinefnd gefa kost á sér, Sigurbjörg Einarsdóttir, nr. 377, Sólborg Þorláksdóttir, nr. 16, Rebekka R. Reynisdóttir, nr.
791
Eftirtaldir aðilar gefa kost á sér sem skoðunarmenn reikninga. Erla Skarphéðinsdóttir, nr. 568, Hjördís Þorsteinsdóttir, nr. 337
og B jörn Þorbjörnsson, nr. 10.
Ég er mjög ánægð að sjá hvað nýir félagar hafa verið duglegir að skella sér í ferðir með okkur ég vona innilega að þeim finnist þau vera velkomin í félagið og að við í stjórn og nefndum hafi tekið vel á móti þeim, ég hef reyndar heyrt að nýir félagar finnast þeir vera svoldið svona afskekktir fyrst um sinn og þarna getum við bætt okkur og ég svo sannarlega og það væri vel þegið að fá ráð hvernig tökum við á móti nýju fólki þegar það kemur í sína fyrstu ferð.
Við settum á borðin hjá ykkur blað sem við köllum viðhorfskönnun Félags húsbílaeigenda 2011 nokkrar spurningar þar sem þið veljið svarmöguleika sem gefnir eru og ef þið hafið eitthvað annað fram að færa að skrifa það undir „annað“ á þessu blaði. Það er alltaf gott að fá leiðbeiningar og hvernig þið upplifið ykkur í félagsskapnum. Setjið svo blöðin í kassasem er frammi í anddyri. Endilega takið þátt.
Talsvert hefur verið um það að haft hafi verið samband við mig vegna þeirra hækkunar sem hafa orðið á bifreiðagjöldum á þessu ári sem stafa af skatti sem settur var á húsbíla og flutningabíla svo kölluð CO2 losun (vegna mengunar útblásturs).
Fyrirtækið Tækniþjónusta Íslands býður öllum þjónustu sína með því að senda út upplýsingar um hvern og einn bíl og kostar það okkur 1.250,-- kr. til að athuga hvort lækkun verði á þessu gjaldi sem bíllinn hefur fengið á þessu ári. Þetta þarf að gera við hvern bíl fyrir sig, því verður hver og einn að hafa samband við Tækniþjónustu Íslands og þeir athuga hjá samstarfsaðila sínum í Evrópu hvort til séu gögn yfir viðkomandi bíl. Það er um að gera að nýta sér þessa þjónustu hjá Tækniþjónustu Íslands og freista þess að ná niður kostnaði á bifreiðagjöldunum.
Þeta er inni á heimasíðunni okkar og ef þið teljið ykkur geta lækkað bifreiðagjöldin er um að gera að fá ráð hjá Tækniþjónustunni, ég er að hugsa um að reuna þetta þetta kostar þá ekki nema þessar 1.250kr ef ekkert fæst út úr þessu.
Afmælishátíð félagsins verður 2013 og eins og hefur komið fram áður þá er ritnefnd komin af stað og stjórn ákvað á fundi fyrir nokkru að setja rúmar 1.500.000,--þús sem eru eyrnamerktar afmælinu. Ný stjórn mun svo skipa aðila í afmælisnefnd því það er ekki ráð nema í tíma sé tekið, tíminn er svo fljótur að líða.
Ég hef oft sagt það áður að við í þessum félasskap erum þverskurður af þjóðfélaginu með mismunadi væntingar og þrár en eigum eitt sameiginlegt að eiga húsbíl og höfum gaman að ferðast um landið okkar og hitta félagana en þetta krefst umburðarlyndis og tillitssemi sem hvert og eitt okkar verður að hafa í garð félaganna.
Nú fer í hönd síðasta ár mitt sem formaður þessa félags ég hef unnið af samviksusemi og gert eins vel og ég hef getað og mun gera það þetta síðasta ár en ég hef líka verið með yndislegu fólki í stjórn og nefndum sem ég þakka af heilum hug, og ykkur félagar góðir þakka ég samveruna og er svo þakklát fyrir hvað ég hef kynnst mörgu frábæru fólki í ferðum félagsins.
Þá vil ég sérstaklega þakka öllum þeim fjölmörgu hljómlistamönnum sem komið hafa fram á skemmtunum hjá félaginu og ég þakka ykkur hvað þið hafið gefið mikið af ykkur, það eru ekki mörg félög sem státa af svona glæsilegu tónlistafólki, ég vona svo sannarlega að við fáum að njóta krafta ykkar áfram, ágæta fólk.
Ykkur sem hafið verið með mér í stjórn þakka ég frábært samstarf, ferðanefnd og skemmtinefnd, þakka ykkur fyrir vel unnin störf þið hafið staðið ykkur frábærlega vel. Og síðan en ekki síst vil ég þakka honum Þorsteini netstjóra hjartanlega fyrir alla hjálpina hann er mín stoð og stytta í tölvumálunum og sér algjörlega um allt sem fer á heimasíðuna okkar, ásamt öllum auglýsingunum og bara ef ég lendi í vandræðum þá leysir hann úr því.
Skoðunarmenn reikninga takk fyrir samvinnuna.
Ágætu félagar komið með ábendingar til stjórnar og nefnda það er alltaf gott að heyra álit sem flestra, þó ekki sé alltaf hægt að uppfylla allar óskir, en þá er bara að skoða hlutina og velta þeim fyrir sér.
Höldum áfram að vinna vel fyrir félagið okkar, eflum það og styrkjum.
Takk fyrir gott fólk.
Soffía G. Ólafsdóttir, formaður