Deila og Bókamerkja

Félag húsbílaeigenda - husbill.is

Fréttir, fróðleikur, kannanir og afþreying ásamt myndum úr ferðum félagsins. Einnig sölusíða með húsbíla og annað húsbílatengt.

Apríl 2010

Ágætu félagar.
Þá er nú kominn tími á nýtt fréttabréf. Það er ýmislegt á döfinni hjá okkur þó það komist þó ekki í hálfkvisti við það sem nú gerist í iðrun jarðar. Já það hefur ýmislegt gerst á Íslandi síðan síðasta fréttabréf leit dagsins ljós.
Almættið var orðið dauðleitt á þessu Icesave-máli og tók til sinna ráða og kom með eldgos á Fimmvörðuhálsi. Upphófst í framhaldinu heljar mikill ferðamannastraumur austur fyrir fjall, að líta á dýrðina. Má því segja að margar fallegar myndirnar hafi maður séð, frá þessu eldgosi, fyrir vikið.

Svo varð smá hlé, meðan kynnt var skýrsla rannsóknarnefndarinnar, en síðan tók almættið völdin aftur í sínar hendur með kröftugu gosi undir Eyjafjallajökli.  Og er það gos öllu alvarlegra fyrir bændur og búalið austur í sveitum. Þá hefur það haft verulega röskun á flugi í för með sér, um gervalla Evrópu.

Eins og staðan er í dag sér ekki fyrir endann á þessu og því vitum við enn ekkert hver áhrif þetta kemur til með að hafa hér á Íslandi, eins og með ferðalög í sumar, samanber okkar ferð austur á land. En þetta á allt eftir að koma í ljós, koma tímar koma ráð. Við sjáum ekki fram í tímann, svo við höldum okkur bara við þá áætlun sem við höfum nú þegar gert.

Félagsgjald 2010 - Ennþá eru þó nokkuð margir sem ekki hafa greitt árgjaldið, en þann 20. apríl leggjast dráttarvextir á kröfuna og þá frá gjalddaga, sem var 20. mars.
Hvet ég alla þá sem ætla að vera áfram í félaginu að greiða hið fyrsta.
ATH! ÞEIR SEM EKKI HAFA GREITT FÉLAGSGJALDIÐ GREIÐA Í FERÐIR SEM GESTIR...
Einnig, ef félagsgjaldið er ekki greitt, þá missir fólk númerin sín og getur auk þess ekki nýtt sér þá afslætti sem félagsmönnum bjóðast hjá hinum ýmsu fyrirtækjum.

Ætli hinsvegar einhver að hætta í félaginu, þá vinsamlegast látið vita í síma:
896-5057 eða með tölvupósti á:  husbill@husbill.is

Skoðunardagurinn -  í boði Frumherja, rennur upp n.k. laugardag, 24. apríl.
Nú þegar hafa allir félagar fengið boðsbréf, þar sem ykkur er boðið að koma með bílinn í skoðun og er sama verð á alla húsbíla, óháð stærð eða kr. 5.200. Hefst skoðun kl. 9.00 og er verið að þar til allir hafa fengið skoðun.

Boðið upp á rjúkandi kaffi eða kakó og nýbökuð vínarbrauð og, þegar nær dregur hádegi, grillaðar pylsur og gos.
Þetta fer fram á skoðunarstöð Frumherja upp á Hestálsi 6-8, og munið ágætu félagar að hafa félagsskírteinið 2010 með ykkur og sýnið það í afgreiðslunni. Lifandi tónlist verður á staðnum.

Það er von okkar í stjórn og nefndum að þið fjölmennið á skoðunardaginn og að við höfum gaman saman og gerum þennan dag að skemmtilegri samveru¬stund. Fyrir þá félaga sem búa út á landi þá geta þeir farið í næstu skoðunarstöð Frumherja og gildir þetta tilboð þar til 1. júlí 2010.

Línudanskennsla - Skemmtinefnd verður með línudanskennslu í Leikhúsi Mosfellsbæjar þann 27. apríl nk. kl. 20.30. Áætlað er að kennslan taki ca. 1,5 klst. og ef næg þátttaka fæst, er áætlað að endurtaka leikinn viku síðar þ.e þann 4. maí.

Fyrsta ferð sumarsins að Félagsgarði  í Kjós helgina 7. – 9. maí
Föstudagskvöldið:
Hittingur - Hittumst upp í húsi í kringum kl. 21.00 allir þeir sem geta og vilja koma með hljóðfærin, stilla saman strengi til kl. 23.30.

Laugardagur 8. maí:
Ratleikur eða annað fyrir alla fjölskylduna, mæting við Félagsheimilið.
Kjötsúpa – Eggert, eigandi Lykilbíla  á Akranesi, ætlar að bjóða öllum í kjötsúpu um hádegisbilið, og kunnum við  honum bestu þakkir fyrir.
Félagsvist
Tónlist
- Yngri kynslóðin getur spilað sína tónlist í Félagsheimilinu og rætt málin.
Og svo vonum við að þeir sem kunni, komi með hljóðfæri sín og spili fyrir dansi...
Verð pr. félagsmann, 18 ára og eldri, er kr. 1.000, -
Fyrir gesti, 18 ára og eldri, kr. 1.500,- fyrir alla helgina.

Hvítasunnuhelgin, 21. - 24. maí, Hlaðir Hvalfjarðarströnd
Föstudagur 21. maí:
Blað með fyrripörtum afhent við skráningu inn á svæðið. (eitt blað á bíl) - Félagsvist

Laugardagur 22. maí:
Hestbak - Möguleiki fyrir yngri kynslóðina að fara á hestbak.  Útileikir
Markaður í Félagsheimilinu
Tónlist - Yngri kynslóðin getur spilað sína tónlist í félagsheimilinu og rætt málin.

Dansleikur: Hljómsveitin “Blek og byttur” leika fyrir dansi og “Félagsmenn” leika með í upphafi dansleiks.

Sunnudagur 23.maí: (Hvítasunnudagur)
Fyrripörtum, með seinni pörtum, á að skila í kassa í anddyri félagsheimilisins

Bingó, Hvítasunnukaffi, Úrslit úr fyrripartasamkeppni kunngjörð.
Hljómsveitin “Félagsmenn” leika fyrir dansi. Danslög leikin af hljómplötum

Þetta sem ykkur er sýnt hér er beinagrind af dagskrá og getur eitthvað breyst. Dagskrá með tímasetningu verður svo afhent öllum við komuna á föstudeginum.
Verð pr. félagsmann, 18 ára og eldri, kr. 2.000,- 
Fyrir gesti, 18 ára og eldri, kr. 3.000,- fyrir alla helgina.

Við viljum benda öllum félögum á að verðin miðast við að búið sé að greiða árgjaldið fyrir 2010. Viljum enn og aftur benda á að þeir sem ekki hafa greitt árgjaldið borga eins og gestir.

Nýir félagar:
Eftirtaldir aðilar hafa bæst í hóp okkar ágæta félags og bjóðum við þá hjartanlega velkomna. Vonum við að þau muni eiga góðar stundir í félaginu.
  34. Erlendur Daníelsson og Gréta Jónsdóttir, Selfoss
110. Lilja Birkisdóttir og Torfi Guðmundsson, Akranes.
153. Haraldur Alexandersson og Ásta Kristjánsdóttir, Seltjarnarnesi.
173. Sævar Gunnarsson og Kristbjörg Bjarnadóttir, Selfoss.
203. Eðvarð Lárus Árnason og Árdís Maggý Björnsdóttir, Akranes.
207. Þórarinn Hreiðarsson, Kópavogur
208. Stefán Bjarnason og Margrét Sigurðardóttir, Reykjanesbær.
209. Magnús D. Ingólfsson og Hlíf Pálsdóttir, Kópavogur.
282. Hjalti Már Hjaltason og Guðrún Guðmundsdóttir, Ísafjörður.
299. Tómas Þórir Jónsson, Flúðir.
325. Sæmundur Torfason, Sveitarfélagið Garður
400. Sigvaldi Haraldsson og Úlfhildur Geirsdóttir, Mosfellsbær
409. Magnús Halldórsson og Svanhildur Guðbrandsdóttir, Mosfellsbæ.
444. Hilmar Ágústsson og Bryndís Ólafsdóttir, Hafnarfjörður.
457. Steinberg Þórarinsson, Reykjavík.
481. Bjarni Kristmundsson og Nongluck Vongsasom, Vestmannaeyjar.
520. Sigtryggur Magnússon og Svanhildur Agnarsdóttir, Reykjavík.
600. Kristín Guðnadóttir og Heimir Tryggvason, Ísafjörður.
880. Hálfdán Ágúst Jónsson, Kirkjubæjarklaustur.

Nú er nýja síðan okkar búin að vera í loftinu um mánuð og ég vona að þið séuð búin að venjast nýju útliti. Endilega nýtið ykkur að fara inn á ”Mitt svæði”. Vil ég einnig hvetja ykkur til að setja þarna inn mynd af ykkur og/eða bílnum og endilega verið dugleg að nota þennan miðil, jafnt athugasemdakerfið, spjallið sem og gestabókina.

Við munum, þegar nær dregur ferðum, setja inn könnun um hvort þið ætlið að koma í viðkomandi ferðir, svona til að sjá hvað við megum búast við mörgum, svo endilega takið þátt í þessu.

Netstjórinn er mjög duglegur að setja þarna inn efni sem skiptir okkur máli, eins og núna síðast um gosið og það að vernda bílana okkar, svo það er gott að fara þarna inn á hverjum degi.

Ég vil, enn og aftur, hvetja alla þá sem eru með netföng, en hafa gleymt að senda okkur þau, að drífa nú í því. Koma nú með netföngin...

Kæru vinir, ég vona að þið hafið það öll sem best og þessum miklu hamförum fari að linna, en í þessum skrifuðu orðum er allt flug lokað,  gríðarlegt öskufall fyrir austan og þjóðvegur 1 lokaður. Við getum ekkert gert annað en beðið almættið að vernda land  okkar þjóð fyrir frekari skakkaföllum.

Bestu sumar-, og ferðakveðjur til ykkar allra
f.h. stjórnar og nefnda,
Soffía G. Ólafsdóttir, formaður

Fyrir þau ykkar sem viljið eiga fréttabréfið í hefðbundnu A-5 broti á pappír, þá getið þið vistað á tölvuna ykkar pdf skjölin hér neðan við(með því að hægri smella á linkinn og velja "Save target as" og síðan prentað út fréttabréfið. Passar á eitt A-4 blað(landscape) síðan snýrðu blaðinu við í prentaranum og prentar seinni hlutann á bakhliðina. Svo er bara að miðjubrjóta blaðið:-)

Vista framhlið   - Vista bakhlið

 

Töfraljós - Ilmkertagerð
Stefna

Mynd augnabliksins

225.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf