Deila og Bókamerkja

Félag húsbílaeigenda - husbill.is

Fréttir, fróðleikur, kannanir og afþreying ásamt myndum úr ferðum félagsins. Einnig sölusíða með húsbíla og annað húsbílatengt.

Febrúar 2011

Ágætu félagar. Stjórn og nefndir  óska ykkur öllum gleðilegs árs með þakklæti fyrir liðið ár og kærri ósk um gott og gleðiríkt ferðaár.

Aðalfundur félagsins var haldinn 9. okt. s.l. í veislusal knattspyrnufélags Vals að Hlíðarenda. 100 manns mættu á fundinn.  Fundurinn endaði á kaffihlaðborði frá Múlakaffi, girnilegu hlaðborði en þar sem við í stjórn héldum að þar sem fundurinn var í Reykjavík myndi koma í kringum 200 manns og það þarf að panta fyrirfram kaffið og meðlætið, þá var allt of mikið pantað og leiðir þetta hugann að því að fólk verði að skrá sig á fundinn og í ferðir þar sem við erum með kaffi og meðlæti til að hafa einjhverja tölu til að byggja á.

Stjórn og nefndir hafa skipt með sér verkum, sem hér segir.
Í stjórn félagsins: Formaður,  Soffía G. Ólafsdóttir nr. 24 -
Varaform: Reynir Gunnarsson nr. 16 - Gjaldkeri, Guðbjörg Bjarnadóttir nr. 75 - Ritari: Ragna Helgadóttir nr. 202 - Vararitari: Benedikta Benediktsdóttir nr. 60, - Varamaður: Hlíðar Sæmundsson nr. 2. - Varamaður: Páll Þorsteinsson nr. 377.

Í ferðanefnd: Formaður Sævar Gunnlaugsson nr. 421
Anna M. Hálfdánardóttir nr. 165, Oddný Jónsdóttir nr. 484,
Ásgeir M. Hjálmarsson nr. 712

Í  skemmtinefnd: Elín Íris Jónasdóttir & Daði Þór Einarsson nr. 39, Halldóra M. Gunnarsdóttir & Einar V. Guðnason nr. 392, Úlfhildur Geirsdóttir & Sigvaldi Haraldsson nr. 400

Skoðunarmenn reikninga: Erla Skarphéðinsdóttir. Nr. 568, Hjördís Þorsteinsd. nr.337. 
Varamaður, Björn Þorbjörnsson nr. 10

Árshátíðin var haldin 16. okt. 2010 að Hótel Hvolsvelli, margir voru tvær nætur, Skemmtinefndin hafði veg og vanda að árshátíðinni, sá um að velja staðinn og  þau sáu um allan undirbúning sem tókst mjög vel. Þau sáu um skemmtiatriðin og var þetta alveg frábært hjá þeim í revíustíl, frumsamið efni , mikið sungið og tekin skemmtileg atvik úr ferðum sumarsins, formaðurinn tekinn t.d. fyrir í sínum skæra útigalla, þeir finnast nú varla flottari…  Óli hótelstjóri og hans fólk tók vel á móti okkur og var maturinn mjög góður og þjónustan til fyrirmyndar. Það var einróma álit þeirra sem mættu á þessa árshátíð en það voru 100 manns,  að hún hefði verið mjög skemmtileg og heimatilbúnu skemmtiatriðin klikka ekki. Árshátíðargestir voru hlæjandi í marga daga, ekki amalegt. Skemmtinefnd hafið þökk fyrir ykkar vinnu.
   
Félagatalið: Þessa dagana er verið að vinna að félagatalinu,  tölvupóstar sendir í fyrirtæki og hringt til að fá auglýsingar og er enginn óhultur fyrir okkur. Þetta gengur alveg sæmilega en það þarf að hafa fyrir þessu og vonandi verður afraksturinn góður.

Við stefnum að því að félagatalið verði tilbúið þegar ferðafundurinn verður þ. 26. mars n.k. í Miðgarði í Gerðaskóla kl. 14.00 og þá höfum við hugsað okkur að afhenda öllum þeim sem hafa greitt árgjaldið 2011,  félagatalið í lok fundar. Ef þið, félagar góðir, viljið auglýsa, eða einhverjir sem þið þekkið,þá vinsamlegast hafið samband við formann.

Árgjaldið var ákveðið á aðalfundi og er það kr. 4.000,- þ.e það sama og hefur  verið í nokkur ár. Við hvetjum ykkur til að greiða árgjaldið með því að leggja beint inn á reikning félagsins sem er: 1193-26-6812 kt. 681290-1099 fyrir 11. mars n.k.  eftir það verður sendur út gíróseðill og bætist við hann kr. 300,- sem er seðilgjald en það er gjald sem bankinn tekur fyrir að innheimta fyrir okkur. Nú þegar hafa margir greitt og er það vel.

Ferðasumar 2011: Ferðanefnd fór strax í haust að vinna að ferðum sumarsins og eru komnar dagsetningar á allar ferðir sumarsins og má sjá það inn á heimasíðunni okkar www.husbill.is
 
Óvissuferð: Fyrsta ferðin er rútuferð, þ. 5. mars n.k. Við þurfum að vita hversu margir ætla að koma,  því þarf að tilkynna þátttöku eigi síðar en 28.  feb.
Ath! Þeir sem ekki skrá sig, komast ekki í ferðina.

Við byrjum á því að “pikka” fólk upp í sem hér segir:
Keflavík, mæting kl. 10.00  við 88 húsið, Hafnargötu 88, Garðmenn og Sandgerðingar koma þangað
Grindavíkurafleggjari kl. 10.15,
Vogaafleggjari kl.10.20.
Hafnarfjörður - við Þjóðkirkjuna Strandgötu í Hafnarfirði kl.10.50.
Reykjavík / Suðurland: þar mætir fólk við Grand-hótel  kl. 11.20 á bílastæðinu þar sem Blómaval var og þangað koma Sunnlendingarnir líka nema það verði svo margt að þá er hugmynd að taka aðra rútu sem kemur frá Selfossi og tæki þá Sunnlendingana en þetta vitum við ekki fyrr en skránig er komin eitthvað vel á leið.
Mosfellingar og þeir sem eru þar í grennd mæti á  planið hjá KFC  kl. 11.50
Akurnesingar mæta á planið við Hvalfjarðargöngin  kl. 12.30 og
Borgfirðingar og aðrir að vestan mæti við Borgarfjarðarbrúna, við gatnamótin þar  kl. 12.50
 
Við erum að reyna að ná til sem allra, allra, flestra með því að koma svona víða við.Þetta verður mjög skemmtileg og fræðandi ferð og við hvetjum ykkur að taka þátt og sendið skráningu á husbill@husbill.is  eða hringið í Soffíu 896-5057 eða Sævar 898-5920 og tilkynnið þáttöku og á hvaða stöðum  þið ætlið að vera. Fylgist svo vel með á heimasíðunni ef áfangastöðum verður eitthvað breytt. Gjald í þessa ferð er kr. 3.000,- pr. mann og greiðir félagið ferðina vel niður. Endað er með kaffihlaðborði einhversstaðar er það eina sem við fáum að vita.
Nú þegar hafa skráð sig 50 manns.

Ferðafundur 26. mars í sal Gerðaskóla,  í  Garði.
Skoðunardagur hjá Frumherja 7. maí. 
1.  ferð sumarsins 27. - 29. Maí
2. Ferð - 10. - 13. júní Hvítasunnuferð að Hlöðum á Hvalfjarðarströnd
3. Ferð - 24. - 26. júní    
4. Ferð -  Stóra ferð 9. - 17. júlí.
5.ferð - 19. - 21. ágúst
6.ferð - 9. - 11. sept.
7.ferð - 23. - 25. sept.  
Aðalfundur félagsins 15. okt.

Ferða-og skemmtinefnd eru að hnýta alla lausa enda í sambandi við þessar ferðir og verður allt tilbúið á ferðafundinum, þegar allt verður upplýst.

Á döfinni - Einhversstaðar stendur „Það er ekki ráð nema í  tíma sé tekið“ og á ég  þá við að stjórnin er farin að huga að þrítugsafmæli félagsins sem er eftir tvo ár eða 27. ágúst 2013. Svona viðburður þarf góðan undirbúning og er t.d. verið að huga að útgáfu blaðs þar sem saga félagsins í 30. ár væri reifuð ásamt  góðum ferðasögum og viðtölum við félaga. Í þetta allt þarf fólk sem er tilbúið að vinna fyrir félagið og auglýsi ég hér eftir aðilum í þetta verk, til að vinna með stjórn og nefndum sem sitja núna og kemur til með að sitja á afmælisárinu.
 
Country-dans: Það hafa nokkrir félagar verið að spyrja hvort Dóra og Einar yrðu með country-kennslu eins og á s.l. ári, því er til að svara að þau eru tilbúin ef áhugi er á því og vil ég biðja þá sem hafa áhuga að setja sig í samband við þau hjón Einar og Dóru með því að hringja í þau 893-6850  eða senda tölvupóst doragunnars@gmail.com.

Eru allar upplýsingar um ykkur réttar í félagatalinu á s.l. ári?,  nú fer hver að verða síðastur að koma með breytingar í félagtalið 2011.

Netföng: Hafið þið nokkuð gleymt að senda mér netföngin ykkar, ef svo er endilega drífið í því að senda mér tölvupóst á  husbill@husbill.is 
Svo vil ég minna ykkur á heimasíðuna okkar husbill.is og endilega takið þátt í spjallinu á „mínu svæði“ eða á gestabókinni, ef þið lendið í vandræðum með að komast inn þá er hann Steini netstjóri tilbúinn að leiðbeina ykkur. Þið getið sent tölvupóst á hann netstjori@husbill.is

Nýir félagar: Nokkrir nýir félagar hafa gengið í félagið frá áramótum. Við bjóðum þá hjartanlega velkomna og vonum að þau eigi eftir að eiga góðar stundir með félaginu.

118. Ragnar A. Magnússon og Jóhanna E. Ólafsdóttir, Selfoss.
122. Jón Ó. Vilhjálmsson og Ester Jónsdóttir, Selfoss. 
145. Aldís Stefánsdóttir og Aðalsteinn Jónsson, Hellissandi.
220. Leifur Georgsson og Kristín E. Kristjánsdóttir, Vogum.
330. Sigurður Arnþórsson og Björg Ólafsdóttir, Hafnarfjörður.
709. Þorsteinn E. Þorsteinsson og Auður E. Helgadóttir, Garður.
769. Edda Andersdóttir og Óli Björn Gunnarsson, Kópavogi.


Kæru félagar, nú er daginn tekið að lengja og fyrr en varir er komið vor. Margir félaga okkar eru duglegir að nota bílana sína yfir vetrarmánuðina og er örugglega viss sjarmi yfir því. Við hin bíðum vorsins með óþreyju.

Stjórn og nefndir hlakkar til að hitta ykkur sem flest í óvissuferðinni, á ferðafundinum og í ferðum sumarsins. Þangað til, hafið það sem best  og við vonum að sumarið verði sem best ferðasumar fyrir alla.

Með bestu kveðjum, Soffía G. Ólafsdóttir, formaður

Fyrir þau ykkar sem viljið eiga fréttabréfið í hefðbundnu A-5 broti á pappír, þá getið þið vistað á tölvuna ykkar pdf skjölin hér neðan við(með því að hægri smella á linkinn og velja "Save target as" og síðan prentað út fréttabréfið. Passar á eitt A-4 blað(landscape) síðan snýrðu blaðinu við í prentaranum og prentar seinni hlutann á bakhliðina. Svo er bara að miðjubrjóta blaðið:-)

 

Vista útforminn   - Vista innopnuna

 

Töfraljós - Ilmkertagerð
Stefna

Mynd augnabliksins

2009_stora_092.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf