Flýtilyklar
Febrúar 2010
Ágætu félagar
Við í stjórn og nefndum óskum ykkur öllum gleðilegs árs og vonum að nýja árið verði okkur öllum gott ferðaár.
Nú er kominn tími á fréttabréf, daginn er smám saman tekinn að lengja og við í stjórn og nefndum komin á fullt með að skipuleggja árið og vinna í félagatalinu og fyrr en varir verður komið að fyrstu ferðinni, já tíminn líður hratt. Þar sem ekkert fréttabréf hefur komið út síðan ný stjórn tók við á Aðalfundi félagsins 3. okt. s.l. þá birti ég hér nöfn þeirra aðila sem hafa tekið að sér setu í stjórn og nefndum félagsins fyrir árið 2009-2010, og er þetta aðallega fyrir þá sem ekki hafa tölvuaðgang.
Stjórn:
Formaður: Soffía G. Ólafdóttir nr. 24
Varaformaður: Reynir Gunnarsson nr. 786
Gjaldkeri: Guðbjörg Bjarnadóttir nr. 75
Ritari: Ragna Helgadóttir nr. 202
Vararitari: Benedikta Benediktsdóttir nr. 633
Varamaður Sigurður Vilmundarson nr. 447,
Varamaður: Hlíðar Sæmundsson nr. 663
Ferðanefnd:
Formaður: Páll Þorsteinsson nr. 377,
Anna Margrét Hálfdánardóttir nr. 165,
Sigurdór Már Stefánsson nr. 293,
Sævar Gunnlaugsson nr. 421
Skemmtinefnd:
Daði Þór Einarsson og Elín Íris Jónasdóttir nr. 39,
Einar V. Guðnason og Halldóra M. Gunnarsdóttir nr. 392
Skoðunarmenn reikninga:
Erla Skarphéðinsdóttir nr. 568, Hjördís Þorsteinsdóttir nr. 337, Björn Þorbjörnsson nr. 10
Umsjón vefsíðu:
Þorsteinn Gunnarsson og Helga Auðunsdóttir nr. 298
Árgjaldið, félagatalið og félagsskírteinin
Ágætu félagar við viljum beina því til ykkar að
þið greiðið árgjaldið, sem er kr. 4000.- beint inn á reikning félagsins: 542-26-276 | kt.: 681290 - 1099.
Þetta er ódýrasta leiðin bæði fyrir félagið og ykkur, látið kennitölu ykkar koma fram þegar greitt er, þannig sjáum
við hver er að greiða. Þeir sem ekki hafa greitt fyrir 10. mars n.k. fá senda greiðsluseðla og mun þá bætast á hann 250.-kr. kostnaður.
Það er sá kostnaður sem félagið þarf að greiða fyrir hvern greiddan greiðsluseðil.
Nú er stjórnin að fara að vinna að félagatalinu og við erum að byrja að safna auglýsingum í ritið, og við vonum svo sannarlega að okkur takist þar vel til. Áætlað er að félagatalið komi út í mars og þá fá allir félagar, sem hafa greitt árgjaldið fyrir 2010, sent félagatalið og félagsskírteinið í pósti.
Ferðir og fundir hjá félaginu sem nú þegar er búið að ákveða:
Óvissuferð verður 27.feb. n.k.
Þetta er rútuferð á vegum félagsins. Það kostar 2.500 kr. pr. mann í þessa ferð, innifalið er rútan, kaffi og gott
meðlæti.
Rútan er frá Selfossi og byrjar þar af leiðandi þar.
Kl. 11.00 Selfoss-Fossnesti
Kl. 11.10 Hveragerði- N1 planið
Kl. 12.30 Reykjavík-Hús verslunarinnar (á planinu þar)
Kl. 12.45 Hafnarfjörður-Hafnarfjarðarkirkja
Kl. 13.15 stoppað við hringtorgið sem liggur til Grindavíkur
(Grindvíkingar komi upp á hringtorgið á Reykjanesbraut)
Kl. 13.30 Reykjanesbær-planið við 88-húsið.
Þetta eru staðirnir sem fólk er pikkað upp í rútuna.
Akurnesingar-Borgnesingar og fólk vestar, ásamt fólki af Kjalarnesinu og Mosfellsbæ sem hafa áhuga á að koma í óvissuferðina komi
á planið hjá Húsi Verslunarinnar. Félagar úr Garðinum og Sandgerði komi á planið við 88-húsið í Reykjanesbæ. Ef
einhverjir úr Vogunum á Vatnsleysuströnd vilja koma í Óvissuferðina þá væri hægt að pikka þá upp við hringtorgið
sem liggur niður í Voga, það væri þá rétt áður en fólkið frá Grindavík er pikkað upp í rútuna.
Áætlað er að henni ljúki um kl. 18.00
Og til þess að ferðanefndin panti nú passlega margar rútur, þá endilega látið vita af þátttöku sem allra, allra fyrst. Það getið þið gert með því að láta vita í gestabókinni... eða með því að hringja í síma félagsins: 896 - 5057.
Ég vil eindregið hvetja ykkur til að koma í þessa ferð, þetta er fyrir alla aldurshópa (engin ganga) og er áhugaverð og spennandi, ferðanefndin er búin að leggja sig mjög fram um að gera þetta að skemmtilegri ferð. Það eru búnir að skrá sig yfir 30 manns, koma svo félagar.
Ferðafundur verður 20.mars n.k. í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ kl. 14.00
Þar verður upplýst á hvaða staði verður farið og verður spennandi að sjá það, ferðanefndin er búin að vera að vinna
í að skipuleggja sumarið síðan í haust og er að leita tilboða, í tjaldstæði,hús og í allt sem fylgir þessu öllu
saman, og vinnur ferðanefnd og skemmtinefnd náið saman að þessum málum. Það er búið að ákveða hvaða helgar þetta eru og
sést það hér fyrir neðan. Þetta eru 6 ferðir fyrir utan óvissuferðina.
Skoðunardagur Húsbílaeigenda verður 24.apríl n.k. hjá Frumherja Hesthálsi 6-8, Reykjavík.
Tekið var tilboði Frumherja og ætla þeir að gera þetta að mjög skemmtilegum degi og boðið er upp á nýlagað kaffi og nýbökuð vínarbrauð um morguninn og grillaður pylsur og gos um hádegið. Gjaldið er 5.200,--kr. óháð stærð ökutækis. Boðið verður upp á sömu kjör fyrir félagsmenn á landsbyggðinni. Allir geta látið skoða, endastafur númers skiptir ekki máli. Þeir sem koma í skoðun þurfa að vera búnir að greiða árgjaldið fyrir 2010 og sýna félagsskírteinið sitt. Sjá nánar á blaði sem fylgir hér með. Við hvetjum fólk til að mæta og gera þetta að skemmtilegum húsbíladegi og gaman væri að fá hljóðfæraleikara félagsins til að spila og ef félagarnir væru tilbúnir að sýna bílana sína, öðrum félögum, gestum og gangandi.
Ferðir sumarsins
Dagsetningarnar eru:
Ótilgreind 7. maí - 9. maí
Ótilgreind 21. maí - 24. maí
Ótilgreind: 17. júní - 20. júní(athugið þarna er verið að gera langa helgi, 17. júní er á fimmtudegi)
Stóra ferðin er svo frá 9. júlí - 18. júlí
Ótilgreind: 20. ágúst - 22. ágúst
Lokaferð: 24. - 26. sept.
Setjið þessar dagsetningar inn á dagatalið ykkar.
Aðalfundur félagsins verður haldinn 9.okt. n.k. fundarstaður auglýstur síðar.
Árshátíðin verður 15.-17.okt.n.k. að Hótel Hvolsvelli
Frá Skemmtinefnd Félags húsbílaeigenda.
Skemmtinefndin hefur fundað með stjórn og ferðanefnd félagsins. Haldið verður námskeið í línudans í mars og ef næg
þátttaka fæst verður e.t.v. haldið annað námskeið í apríl. Í fyrstu ferð sumarsins verður hefðbundin dagskrá eins og
undanfarin ár.
Í ferðum félagsins verður spiluð félagsvist eins og vanalega. Til mikils er að vinna því sá félagsmaður sem hefur hæstu
stigagjöf eftir sumarið hlýtur glæsileg verðlaun: Miða fyrir tvo á árshátíð félagsins. ( gisting eina nótt og miði
á árshátíðina fyrir tvo ) Skemmtinefndin leggur árherslu á að yngri kynslóðin fái að njóta sín í
skipulögðum ferðum félagsins. Þar sem hús er tekið á leigu verður gert ráð fyrir að krakkarnir geti verið með sína
dagskrá á ákveðnum tímum, nánar auglýst hverju sinni. Þar geta þau leikið tónlist, dansað, sungið, farið í
leiki og annað sem þau hafa fram að færa. Þetta skal gert í samráði við skemmtinefnd. Leikir, ratleikir og fl. verða í boði og eru
foreldrar, afar og ömmur hvött til að taka þátt í dagskrá sem er ætluð yngri kynslóðinni í hverri ferð fyrir sig.
Í Hvítasunnuferðinni verður m.a. dansleikur með hljómsveitinni "Blek og byttur" hljóðfæraleikarar húsbílafélagsins leika með hljómsveitinni fyrsta klukkutímann.
Árshátíð félagsins verður 15. -17.október n.k. á Hótel Hvolsvelli. Mikið verður lagt upp úr vönduðum heimatilbúnum skemmtiatriðum. Engin verður óhultur fyrir nefndinni í skemmtidagskránni og eru félagsmenn hvattir til að fylgjast grannt með félögum í sumar til þess eins að gera grín að þeim á árshátíðinni : Allt í góðu þó að sjálfsögðu!
Ég hef verið að setja inn í "mailgrúbbuna" netföng allra þeirra sem hafa skráð sig með netföng, en það eru enn í kringum 180 manns sem ekki eru með netföng, svo ég vil beina því til ykkar sem hafa fengið netföng nýlega að senda til mín hið snarasta og eins ef það eru einhverjar breytingar sem þurfa að fara í Félagatalið endilega sendið það fyrir 20. feb. n.k. á netfang félagsins: husbill@husbill.is Skoðið Félagatalið frá því í fyrra er allt þar rétt?
Nýir félagar.
Nokkrir nýir félagar hafa gengið í félagið frá því í haust og á síðustu dögum, við bjóðum
þá velkomna í félagið okkar og vonum að þeir eigi eftir að eiga góðar stundir með okkur.
33.Gísli Lárusson og Guðrún Þórarinsdóttir, Kópavogi.
74. Sævar Þórarinsson og Edda Axelsdóttir, Grindavík.
105. Jón Hafliðason og Erna Hannesdóttir, Reykjavík.
128. Hilmar Árnason og Guðrún Anna Jónasdóttir, Hornafirði.
132. Þorbjörn Helgi Stefánsson og María Moritz Sigurðardóttir, Kópavogi.
166 Sigurður Á. Guðbjörnsson og Sigríður A. Guðmundsdóttir, Hvammstanga.
177.Kolbrún Guðveigsdóttir, Reykjanesbæ.
295. Atli Gunnarsson og Sigrún Þórarinsdóttir, Hella.
463. Sindri Arnfjörð og Ása Erlingsdóttir, Borgarbyggð.
524. Jón Aðalsteinn Hinriksson og Anna Viðarsdóttir, Reykjavík.
555. Jóna Bryndís Gestsdóttir og Gunnar Vilmundarson, Laugarvatni.
776. Borghildur Flórentsdóttir og Björgvin Hofs Gunnarsson, Reykjavík.
Ég vil benda ykkur á að skrifa í Gestabókina eða fara inn á Húsbílaspjallið, koma með góða ferðasögu, brandara, eða hvað annað sem ykkur dettur í hug, uppbyggjandi og skemmtilegt.
Getraunin er komin inn þar sem maður getur spreytt sig hversu vel maður þekkir landið sitt og puzzlið er komið á sinn stað, ágætis
afþreying. Svo er alltaf gott að fara inn á heimasíðuna okkar til að skoða fréttir frá stjórn og nefndum. Einnig á eftir að koma
meira inn á tilboðssíðuna við erum að vinna í því að fá tilboð hér og þar, og auglýsingasíðan þar
er alltaf eitthvað að koma inn. Ágætu félagar þá hef ég þetta ekki lengra að sinni, við í stjórn og nefndum vonumst til
að sjá ykkur sem flest á fundum og ferðum félagsins í vor og sumar, og að sjálfsögðu vonumst við til að veðrið leiki við
okkur og að við náum að mynda góð og sterk tengsl við félaga okkar og kynnumst nýju fólki í ferðunum og munið að orð eru
til alls fyrst, þannig kynnumst við.
BROSIÐ.
Bros er eins á öllum tungumálum.
Bros hefur mátt, bros skiptir máli, bros gefur orku, bros læknar,
Bros er það sem allir þrá, bros er kærleiksgefandi, dreifðu kærleik, brostu
(Júlíus Júlíusson) Bros-stysta fjarlægðin milli tveggja einstaklinga

Tilboð frá Frumherja.
Skoðunardagur húsbílaeigenda 24.apríl 2010.
ATH. Einungis húsbílar félagsmanna
skoðaðir þennan dag.
" Planið verður autt fyrir félagsmenn og ef á þarf að halda, möguleiki á aðstöðu hjá Nóa og Síríus.
" Boðið verður upp á sælgæti frá Nóa og Síríus fyrir félagsmenn, í boði Frumherja.
" Strax um morguninn er boðið upp á rjúkandi heitt, nýlagað kaffi og nýbökuð vínarbrauð.
" Grillaðar pylsur og gos í boði Frumherja.
" Boðið upp á góða aðstöðu innandyra (gott ef það er nú rigning).
" Allir félagsmenn fá sent boðskort frá Frumherja.
" Boðið verður upp á skoðun á sömu kjörum fyrir félagsmenn á landsbyggðinni.
" Verð fyrir skoðun er kr. 5.200,-- óháð stærð ökutækis.
" Það verða 9 skoðunarmenn og 2 til 3 aðstoðarmenn. Einnig verður starffólk í afgreiðslu og í veitingum.
" Skoðað verður frá kl.9.00 -13.00 og lengur ef þess er þörf.
" Endastafur númers skiptir ekki máli, allir geta látið skoða. (nýjar reglur)
" Þeir sem koma í skoðun hvort sem það er í Reykjavík eða á landsbyggðinni, þurfa að vera búnir að greiða
árgjaldið fyrir árið 2010 og sýna sitt félagsskírteini.
Eins og þið sjáið ágætu félagar á þessu tilboði þá vilja Frumherjamenn gera þennan dag skemmtilegan fyrir okkur húsbílafólk og því væri gaman að við fjölmenntum, takið börnin með ykkur. Og það væri mjög gaman að við sýndum hvert öðru bílana okkar, hafa svona opið hús.... Svo langar mig að biðja hljóðfæraleikarana okkar að koma með hljóðfærin sín og taka lagið á meðan við fáum okkur kaffi og með því, gera þetta að okkar degi. Sýnum samstöðu, höfum gaman saman.
Fyrir hönd stjórnar, ferða,- og skemmtinefndar.
Soffía G. Ólafsdóttir, formaður