Flýtilyklar
Ferðafundur - Ræða
Ferðafundurinn 2011 - Ræða formanns
Ágætu félagar ég býð ykkur hjartanlega velkomin á ferðafundinn hér suðrí Garði (gaman að sjá hvað er vel mætt). Þessi skóli er mér kær en ég fór í skóla á sjöunda árinu og því eru það rúm 60 ár þegar ég steig hér fyrst inn í skólann og var hér í átta ár eða til 15.ára aldurs en þá þurfti maður að fara annað til að klára gagnfræðaprófið. Skólinn minn hefur mikið breyst og var ekki þessi fíni salur sem við erum nú stödd í núna, en þetta var útileiksvæðið okkar og hér var maður oft í “kilo ” eða “hornabolta”. Ágætu félagar ég segi þennan ferðafund settan.
Ég hef hér tillögu um fundarstjóra hana Elinbjörgu Magnúsdóttur félaga okkar nr. 215 á bíl sem heitir Hvalurinn, er fundurinn samþykkur því.
Þá bið ég þig Ella mín að taka hér við fundarstjórn, gjörðu svo vel.
Kæru félagar ég vil biðja ykkur að rísa úr sætum og minnast látinna félaga okkar, þakka ykkur fyrir.
Nú er daginn farinn að lengja og senn verður vorið komið og ég heyrði veðurfræðing segja núna í vikunni að sumarið kæmi á sunnudaginn ég vona það svo sannarlega. Margir hafa verið að ditta að bílum sínum í vetur og fara svona öðru hvoru að klappa þeim og strjúka og bíða óþreyjufullir eftir þvi að hleypa gæðingunum út, en aðrir nýta þessi farartæki mjög vel yfir vetrarmánuðina og mér er sagt að það sé svo rómantískt og spennandi að vera í bílunum svona í svartasta skammdeginu, horfa á stjörnurnar og sjá norðurljósin dansa á himninum og þá er nú gott að vera hér út á Garðskaga og þetta nýttu sér nokkrir í nótt og sennilega bætist við hópinn í kvöld, gaman að þessu að nýta bílana svona vel, ekki vantar hlýjuna í þessa eðalvagna og væsir ekki um neinn mann.
Stjórn og nefndir hafa verið að vinna að undirbún-ingi sumarsins frá því í haust og er sú vinna að skila sér þar sem búið er að undirbúa ferðirnar í sumar og félagatalið er komið í höfn.
Við í stjórninni erum mjög ánægð með félagatalið það var valinn fjólublár litur á kápuna og mér skylst að þetta sé aðal litur fermingarbarnanna í ár og félags-og afláttarskírteinið ber lit af bókinni líka og nú létum við prenta skírteini á hvern og einn meðlim sem skráður er í félagið sem sagt hjón fá hvort sitt skírteini. Ýmsar nýungar eru í bókinni s.s. nokkrar blaðsíður um þekkta hviðustaði á fjölförnum þjóðvegum landsins, ferðaveðurspá, vindhviður og aðrir veðurþættir sem áhrif hafa á umferð. Sjóvá menn voru svo elskulegir að leyfa okkur að notast við þetta efni en forvarnardeild Sjóvá hefur tekið þetta saman og er með þetta inn á sinni heimasíðu, gott að hafa þetta í félagatalinu og handhægt fyrir okkur að lesa ef við lendum í slæmum veðrum í sumar að lesa sig til, ekki ana út í neina vitleysu.
Eins fengum við að birta skyndihjálparbækling frá Rauða krossinum “Getur þú hjálpað….þegar á reynir. Þarna eru nokkur góð ráð s.s. hjartahnoð, blástursaðferð og fleira sem gott er að vita og hafa við höndina og félagatalið er svo sannarlega vettvangur fyrir þetta. Einnig settum við inn reglur um hundahald og annarra dýra í ferðum félagsins, og reglur um almannarétt og útivist “Göngum vel um landið okkar”. Þetta tvennt höfðum við heyrt hjá ýmsum félögum okkar að þyrfti að vera til staðar í svona stóru félagi og vonandi verðið þið ánægð með þessa fræðslumola.
Einnig settum við inn nöfn bílanna okkar í stafrófs-röð og á þetta svo sannarlega þarna heima og gaman að sjá hvað margir bílar eru með nöfn og ég vil nota þetta tækifæri og hvetja ykkur endilega að setja nöfn á bílana ykkar, það er bara skemmtilegt og það mætti alveg fá svo einhvern til að skíra bílinn í ferðum hjá okkur búa til smá stemmingu eins og var hér einu sinni, bara gaman að því, ég man eftir tveimur “prestum” innan gæsalappa og höfðu þeir nóg að gera hér einu sinni en það var Jón á Eldvagninum nr. 151, hann gengur nú undir nafninum Jón prestur…. og Steingrímur Guðni nr. 156 Tjaldur-inn heitir bíllinn hans. Einnig vil ég hvetja ykkur félagar góðir að vera með bílana ykkar merkta númerunum sem þið fáið úthlutað og merki félagsins.
Á næstöftustu síðu í félagatalinu er efnisyfirlitið og það var sett þarna inn til að þið sæjuð á hvaða bls. það helsta efni væri sem við erum með í bókinni, yfirleitt er þetta nú fremst í bókunum en við ákváðum að hafa þetta aftast.
Margir auglýsa hjá okkur og er þetta rit okkar alltaf að festa sig betur og betur í sessi því félagatalið nær til ansi margra og það sem þetta rit hefur fram yfir mörg önnur blöð að þessu er ekki hent og er því auglýsingagildið mjög gott. Við erum enn að vinna í því að fá tilboð og afslætti hjá ýmsum fyrirtækjum og mun það allt fara inn á heimsíðuna okkar husbill.is einnig fara auglýsingarnar inn á sér link sem mun heita auglýsingar í félagatali 2011.
Við munum afhenda þeim félögum sem hafa greitt árgjaldið fyrir 2011 félagatalið hér á eftir þegar “drekkutíminn” er kominn eins og krakkarnir segja, við erum með þetta í númeraröð svo endilega segið númerið ykkar þegar þið komið að ná í bókina á eftir, þá gengur þetta vel fyrir sig. En það er eitt sem við tókum eftir í gærkvöldi þegar við vorum að pakka bókinni að þau númer eftir 283 og hafa tvo aðila í áhöfn bíls, bara annað nafnið kom á skírteini og það var nafnið sem var á undan í félagaskránni, þarna hefur verið einhver mistök í prentun og þeir sem lenda í þessu núna fá kortið sent heim en þetta verður lagað strax eftir helgina, svona gerast hlutirnir stundum en þá er bara að brosa, þetta skilar sér.
Félag húsbílaeigenda er aðili að Samút sem eru samtök útivistarfélaga, félagið er m.a. einn af stofnfélögum þessa félags, aðildarfélag nr. 3 en það var stofnað 1998 og var það hún Sigríður Arna eða Ditta okkar nr. 280 sem hafði veg og vanda að því fyrir félagið á þeim tíma en þá var hún formaður félagsins okkar. Við höfum lítið sinnt þessu held ég eftir að hún hætti formennsku og ekki hef ég sinnt þessu og þá meina ég að fara á fund hjá Samút. Ég var svo heppin núna í vikunni að til mín hringdi maður að nafni Hafliði Sigtryggur Magnússon nr. 520 í félaginu okkar og hann tjáði mér að hann hefði áhuga á að vera fulltrúi félagsins þarna inn og það var vel þegið og nú mun hann upplýsa okkur hvað það helsta er að gerast þarna en þessi samtök 1
Svo ég vitna í stefnuskrá samtakanna þá t.d.
Standa þau vörð um almannarétt til útivistar og ferðalaga um landið
2. Leitast við að tryggja tilvist lítt- eða ósnortinna svæða nálægt þéttbýliskjörnum til útivistar og
náttúruskoðunar.
3. Stada vörð um óbyggðir Íslands og leitast við að tryggja að komandi kynslóðir hafi möguleika á að njóta útivistar og
náttúruskoðunar á lítt- eða ósnortnum svæðum þar.
4. Stuðla að góðri umgengni þeirra sem ferðast um landið.
5. Vera umræðugrundvöllur um hagsmunamál aðildarfélaganna og samræmingaraðili í samskiptum við stjórnvöld og aðra m.a.
hvað varðar tilnefningu fulltrúa í nefndir, ráð og starfshópa er snerta hagsmuni útivistarfólks.
6. Stuðla að auknu öryggi útivistarfólks.
7. Stuðla að opinberri og málefnalegri umræðu um framangreind stefnumið.
Hafliði er ekki hér í dag því miður ég hefði gjarnan vilja hitta hann, en hann gekk í félagið á s.l. ári hann tjáði mér að hann væri að fara á fjöll núna á fimmtudaginn, greinilega mikill útivistarmaður gott að vera búin að fá hann í lið með okkur.
Ég sagði í fréttabréfi sem fór til ykkar í febrúar s.l. „Það er ekki ráð nema í tíma sé tekið“ og afhverju sagði ég þetta jú eftir tvö ár er afmælisár félagsins félagið okkar verður 30. ára eða 27. ágúst 2013. Og eins og allir vita þá gerast hlutirnir ekki að sjálfu sér. Svona viðburður þarf góðan undirbúning og er t.d. verið að huga að útgáfu blaðs þar sem saga félagsins í 30. ár væri reifuð ásamt góðum ferðasögum og viðtölum við félaga. Í þetta allt þarf fólk sem er tilbúið að vinna fyrir félagið. Ég hafði samband við hana Dittu nr. 280 en hún stýrði útgáfu blaðs sem gefið var út á 15. ára afmæli félagsins Ditta tók vel í beiðni mína að taka að sér að stýra þessu verkefni og við erum afskaplega ánægð með það og nú auglýsi ég hér eftir aðilum í þetta verk, með henni og til að vinna með stjórn og nefndum sem sitja núna og kemur til með að sitja á afmælisárinu. Það þarf góða penna til verksins, afla auglýsinga, og margt, margt fleira svo þetta geti orðið að veruleika og því veitir ekkert af tímanum.
Einnig höfum við í huga að skipa afmælisnefnd sem ynni með stjórninni að hugmyndum um hvernig afmælishátíðin yrði, skipuleggja frá A-Ö það er margt sem þarf að huga að hjá stóru félagi, og sú stjórn sem situr núna situr nú kannski ekki eftir tvö ár.
Ég vil biðja þá sem hafa áhuga á því að gefa sig í þessa vinnu að hafa samband við Dittu því hún mun stýra útgáfu afmælisblaðsins og ég mun stýra allavega fyrst um sinn því sem lítur að afmælishófinu.
Kæru félagar höfum það hugfast að þeir sem gefa kost á sér í störf fyrir félagið eru að gera þetta í sjálfboðavinnu, og eyða þar með dýrmætum frítíma, sínum og sinnar fjölskyldu, í þágu félagsmanna allra. Það skyldi því aldrei álitið sjálfsagt.
Ég fer nú að ljúka máli mínu ágæta fólk en vil segja þetta að lokum verið dugleg að taka þátt í starfi félagsins eigum ánægjulegar stundir saman við leik, söng, spil, dans og spjall, og nú er sumarið framundan með öll sín gæði. Vonandi verður það bjart og hlýtt og endurnýjar þrek okkar og krafta á lífi og sál. Við skulum njóta þess að vera til og anda að okkur ilmi jarðarinnar og hlusta á söng fuglanna og heyra þytinn í laufinu. Brosum á móti sólinni með gleði í huga. Og í lokin eitt vináttu ljóð
Vinátta hún færir frið,
Friður bætir mannkynið.
Öðrum sýnum ást og trú,
og eflum vináttuna nú.
Þakka ykkur fyrir kæru vinir.