Flýtilyklar
Apríl 2011
Ágætu félagar.
Nú er páskahelgin liðin og vonandi hafa allir haft það notalegt um þessa helgi, veðrið minnti á sig en einhverjir fóru samt í útilegu og nutu samvistar við vini og félaga og nú er komið að því að við félagar í Félagi húsbílaeigenda förum að hittast í skipulögðum ferðum.
Óvissuferð var farin 5. mars s.l. í Borgarfjörðinn um 100 manns fóru þessa ferð og var farið á tveimur rútum. Leiðsögumenn voru þeir Björn Þorbjörnsson nr. 10 og Björn Hermannsson nr. 29, heimamenn frá Borgarnesi og sögðu þeir okkur sögur af mönnum af þessu slóðum enda af nógu að taka. Við heimsóttum Vírnetverksmiðjuna í Borgarnesi og vorum leidd um fyrirtækið og sáum hvernig naglar og þakplötur urðu til, mjög fróðlegt. Farið að Ferjukoti og safnið þar skoðað og mjög áhugavert að sjá þarna gamla muni og koma inn á heimilið á Ferjukoti. Þarna svifu góðir andar og húsið er stórt að innan, lætur ekki mikið yfir sér að utan. þarna var okkur sögð saga staðarins af afkomendum ábúanna sem þarna áttu heima forðum. Svo var farið með okkur í geitabúið að Háafelli í Hvítársíðu í Borgarfirði og var gaman að sjá allar geiturnar en þarna eru um 116 geitur. Við enduðum svo í þessari fínu kaffiveislu að Hótel Brú fyrir utan Borgarnes. Í byrjun ferðar fengu allir getraun “22 bæjarnöfn í Borgarfirði” og var mikil samvinna meðal félaganna við að leysa gátuna en við fengum svo svörin í kaffinu. Í lokin voru dregnir út nokkrir vinningar sem félagið átti m.a. úttektir hjá Orkunni en þetta er uppsafnaður ágóði þar sem félagið fær 1 kr. af hverjum lítra sem félagarnir kaupa hjá Orkunni og eru þessi innleggskort fengin einu sinni á ári og gefin í ýmsum tilefnum hjá félaginu s.s. í bingó, félagsvist eða happdrætti á vegum félagsins. Þessi ferð heppnaðist í alla staði mjög vel þrátt fyrir mikið rok og rigningu og þakka ég ferðanefnd og leiðsögumönnum fyrir góða skipulagningu og bílstjórunum fyrir örugga keyrslu.

Félagsgjöldin: Ég vil minna alla þá sem ekki hafa þegar greitt félagsgjaldið að gera það hið fyrsta svo hægt sé að senda ykkur félagatalið , félags-og afsláttarskírteinin. Gjalddagi gíróseðlanna var 15.apríl og eindagi 5.maí n.k. en eftir það bætist við dráttarvextir frá gjalddaga.
Skoðunardagur er laugardaginn 7.maí hjá Frumherja að Hesthálsi 6-8 í Reykjavík. Það má segja að þetta sé fyrsta ferðin okkar og við hvetjum alla þá sem þurfa að láta skoða bílana sína að mæta með bílinn í skoðun á laugardeginum og þeir sem hafa tök á því að koma á föstudagskvöldinu og gista á planinu hjá Frumherja. Einnig hvetjum við þá sem ekki þurfa að láta skoða að koma því það er svo margt í gangi á laugardeginum sem er fróðlegt og skemmtilegt. Á laugardagsmorguninn býður Frumherji öllum þeim sem gista á planinu upp á morgunverð kl. 8.00. Þeir ætla síðan að byrja að skoða bílana kl. 9.00 og verða þeir með nægan mannskap svo þetta ætti að ganga vel fyrir sig. Áætlað er að skoðun ljúki kl. 14.00. Boðið verður upp á kaffi, heitt kakó og vínarbrauð og um hádegisbilið verða grillaðar pylsur og gos.
Kl 11-14 fer fram slökkvitækjakynning í boði Eldvarnarmiðstöðvarinnar og Pitstop verður með kynningu á dekkjum og sinni þjónustu. Sýnikennsla verður í brunavörnum, og á slökkvitækjum.
Boðið verður upp á lifandi tónlist sem hljóðfæraleikarar úr félaginu munu sjá um. Forvarnarfulltrúi frá VÍS kemur og talar um forvarnir við okkur.
Eins og þið sjáið á þessari upptalningu þá verður boðið upp á margt á skoðunardeginum og því um að gera að fjölmenna,njóta og fræðast og hitta félagana eftir langan vetur. Við viljum biðja þá sem ætla að gista að skrá sig svo að Frumherji verði með nógan morgunmat. Hafið samband við Soffíu í síma 896-5057 eða Sævar í síma 898-5920 eða sendið tölvupóst á husbill@husbill.is
Aðeins verða húsbílar skoðaðir þennan dag og er verðið 5.200 kr. óháð stærð og vinsamlegast sýnið félagsskírteinið ykkar 2011. Allir félagar í Félagi húsbílaeigenda fá boðsbréf frá Frumherja og gildir þetta tilboð (verðið) á öllum skoðunarstöðum Frumherja um allt land til 1.júlí n.k.
Eftir skoðun ætlum við svo að hittast kát og glöð á nýskoðuðum bílum á tjaldsvæðinu á Víðilsstaðatúni í Hafnarfirði, verð 750 kr pr mann ásamt rafmagni. Vonandi sjá sem flestir sér færi á því að koma þessa helgi og gera góða útilegu úr þessum Skoðunardegi.
Úlfljótsvatn helgin 27.-29.maí
Hér er um 5 stjörnu tjaldstæði að ræða þar sem margskonar afþreying er í boði. Ýmsar þrautabrautir, hægt að veiða, góðar gönguleiðir svo eitthvað sé nefnt og því er um að gera að börnin verði með í þessari ferð. Svo verðum við með STRÝTUNA og þar er hægt að vera inni við og gera eitthvað skemmtilegt.
Verð fyrir þessa helgi er 1.500 kr. pr. mann (18. ára og eldri). Innifalið er tjaldstæðið,veiði, leiktækin og rafmagn. Gestir borga 2.000 kr. pr. mann (18.ára og eldri). Það er hægt að sigla á bátum en það kostar eitthvað og þarf hver og einn að greiða sjálfur fyrir það og börn eru algjörlega á ábyrgð foreldranna eða forráðamanna sinna.
Þá hef ég lokið við að telja upp ferðirnar sem farnar verða í maí og vonandi komist þið sem flest kæru félagar.
Þið sjáið allt um ferðirnar inni á heimasíðu félagsins husbill.is þar sem stendur “fréttir”. þar er ferðaáætlun 2011 og einnig undir “ferðaáætlunin komin inn” og þar fylgja myndir með textanum. Þar er einnig hægt að sjá tilboð frá fyrirtækjum og allar auglýsingarnar sem eru í félagatalinu. Á sölusíðunni eru ýmsar auglýsingar allt frá smáhlutum upp í húsbíla. Endilega nýtið ykkur heimasíðuna okkar.
Á ferðafundinum minntist ég á að árið 2013 verður félagið okkar 30.ára og sagði “að ekki væri ráð nema í tíma sé tekið”. Já tvö ár eru í það en ekki veitir af góðum tíma ef við ætlum að gera þessum tímamótum góð skil.
Sigríður Arna (Ditta) nr. 280 hefur tekið að sér að stýra ritstörfum vegna blaðs í tilefni afmælisins. Við auglýstum eftir fólki á ferðafundinum og voru nokkrir sem gáfu kost á sér að starfa að undirbúningi afmælisins. Ég vil biðja þá sem komu að máli við Dittu á ferðafundinum og vilduð starfa að afmælisundirbúningnum að senda henni tölvupóst sigarna@gmail.com. Einnig hafði samband við hana kona sem langar að skrifa ferðasögu en Ditta man bara ekki nafnið á henni, endilega kona góð hafðu samband við Dittu sími 699-8121 eða með tölvupósti.
Ég mun stýra skipulagningunni á afmælinu sjálfu og nú langar mig til að beina því til ykkar félagar góðir sem viljið taka þátt í undirbúningum að hafa samband við mig husbill@husbill.is eða í síma 896-5057 og við munum svo koma saman einhvertíma í sumar og ráða ráðum okkar – “orð eru til alls fyrst”.
Heimasíðan okkar husbill.is inn á þessari síðu er alltaf að bætast við efni og nú er Netstjórinn hann Þorsteinn nr. 69 búinn að setja allar aulýsingarnar sem eru í félagatalinu þarna inn undir ”sölusíða” ”auglýsendur” ef þið viljið skoða auglýsingarnar þá klikkið þið á þær og þá kemur hún upp stækkuð.Skoðið einnig tilboðssíðuna alltaf að koma tilboð. Einnig mun netstjóri setja inn á næstunni link fyrir efni sem við fáum frá öðrum húsbílasamtökum aðallega frá Norðurlöndunum og þá getið þið lesið það efni sem verið er að senda og haft samband við hin ýmsu félög ef þið eruð t.d. að ferðast erlendis á húsbílnum ykkar. Félagar úr okkar félagi eru velkomnir að komna inn í ferðir hjá húsbílafélögum á norðurlöndunum. Það eru örugglega einhverjir sem vilja fylgjast með hvað félagar erlendis eru að gera og margir sem lesa og tala erlent tungumál. Við reynum að gera þetta aðgengilegt á síðunni okkar.
Nýir félagar hafa bæst í hópinn, við bjóðum þá alla hjartanlega velkomna í Félag húsbílaeigenda og vonum að þau megi eiga góðar stundir í þessum frábæra félagsskap.
38. Gunnhildur Björgólfsdóttir, Akureyri.
77. Guðríður Helgadóttir og Sigurður G. Sigurðsson, Reykjanesbæ.
103. Gylfi Þór Helgason og Jóna Pálína Brynjólfsdóttir, Reykjavík.
117. Haukur Sævar Halldórsson og Ásta Guðfinna Kristinsdóttir, Kópavogi.
129. Böðvar Jóhannsson og Elsa Ingvarsdóttir, Akranes.
180. Einar Jes Ágústsson og Birna Guðlaug Ástvaldsdóttir, Hafnarfjörður.
207. Ármann Snjólfsson, Reykjanesbæ.
228. Bára Andersdóttir og Þór J. Vigfússon, Reykjavík.
345. Ragnar F. Jónsson og María Einarsdóttir, Reykjanesbæ.
417. Snorri Einarsson, Hornafjörður.
472. Kristján Valtýsson, Reykjanesbæ.
473. Einar Sveinsson og Kolbrún Kristinsdóttir, Sandgerði.
607. Sæmundur Friðriksson, Hafnarfjörður.
677. Eðvarð Júlíusson og Elín P. Alexandersdóttir, Grindavík.
Ágætu félagar við í stjórn, ferðanefnd og skemmtinefnd hlökkum öll til sumarsins, við vonum að þið mætið vel í ferðir sumarsins og við eigumn öll ánægjulegar stundir saman og leggjumst á eitt að gera ferðirnar eftirminni-legar og skemmtilegar og munið að skrifa niður skemmtileg atvik í ferðunum og komið því áleiðis til skemmtinefndar svo hægt verði að gera góðan annál á árshátíðinni.
Nú bíðum við eftir sólinni og sumrinu og kveð ég ykkur með vísu eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Allir bíða eftir sól
úti er hríðar mugga
til að þíða byggð og ból
bæta, prýða og hugga.
Hittumst hress og kát á Skoðunardaginn 7.maí n.k.
F.h. Stjórnar, ferða-og skemmtinefndar,
Soffía G. Ólafsdóttir, formaður