Deila og Bókamerkja

Félag húsbílaeigenda - husbill.is

Fréttir, fróðleikur, kannanir og afþreying ásamt myndum úr ferðum félagsins. Einnig sölusíða með húsbíla og annað húsbílatengt.

Febrúar 2012

Ágætu félagar.

Þessa dagana er snjórinn að láta í minni pokann fyrir rigningu og hita en það hefur nánast verið snjór síðan í lok nóvember 2011. En mikið var oft fallegt þegar mjöllin lá eins og hvít breiða yfir öllu. Það var eins og að horfa á fallegt jólakort. Svo nú er bara spurningin hvort við fáum vorveður næstu vikur og mánuði en svo mikið er víst að nú er daginn farið að lengja og fyrr en varir verður komið vor og eflaust er mörgum farið að hlakka til útiverunnar.

Aðalfundur félagsins var haldinn laugardaginn 15.okt. s.l. að Hásölum í Hafnarfjarðarkirkju. Á föstudagskvöldinu komu 15-20 bílar saman á tjaldstæðinu við IKEA. Það blés vel á okkur þar og ringdi en Elín og Daði nr. 39 buðu upp á kjötsúpu sem hlýjaði heldur betur. Frábær súpa hjá þeim hjónum og þakka ég þeim innilega fyrir góðgerðirnar. Eftir fundinn færði fólk sig á tjaldstæðið á Vífilsstaðartúni og var mikið betra veður þann sólarhringinn og undi fólk sér þar vel. Hjá flestum var þetta síðasta útileguhelgin á þessu hausti.

Á aðalfundinn komu um 140 manns. Fundurinn gekk vel fyrir sig en á fundinum lágu fyrir tillögur frá stjórn um breytingar á einstaka liðum á lögum félagsins. Hér var verið að uppfæra nokkur atriði að nútímanum og laga orðaval. Allar breytingar voru bornar upp lið fyrir lið og samþykkti meirihluti fundarmanna alla þá liði sem breytingartillögur voru gerðar við og þær má má nú sjá á heimasíðu félagsins. Formaður las skýrslu stjórnar og kom víða við og er hana að finna á heimasíðunni. Reikningar voru lesnir upp og samþykktir.

Eftirtaldir aðilar gáfu kost á sér í stjórn félagsins: Anna Pálína Magnúsdóttir nr. 595; Katrín Baldvinsdóttir, nr. 468; Hlíðar Sæmundsson, nr. 2; Ragna Helgadóttir nr. 202; Absalon Poulsen nr. 390 og Páll Þorsteinsson nr. 377.

Í ferðanefndina gáfu kost á sér: Hrafnhildur Sigurðardóttir, nr. 698; Árni Óskarsson nr. 65; Ásgeir Hjálmarsson nr. 712 og Anna M. Hálfdánardóttir nr. 165.

Í skemmtinefndina gáfu kost á sér: Sigurbjörg Einarsdóttir nr. 377; Sólborg Þorláksdóttir nr. 16 og Rebekka Reynisdóttir, nr. 791.

Sem skoðunarmenn reikninga buðu sig fram: Erla Skarphéðinsdóttir, nr. 568; Hjördís Þorsteinsdóttir, nr. 337 og Björn Þorbjörnsson, nr. 10.

Engin mótframboð komu fram á fundinum svo allt þetta ágæta fólk var sjálfkjörið og ég býð þau hjartanlega velkomin til starfa. Fljótlega eftir aðalfundinn var komið saman og skift með sér verkum.

Stjórnin er þannig skipuð: Soffía G. Ólafsdóttir, nr. 24 formaður; Páll Þorsteinsson nr. 377 varaformaður; Anna Pálína Magnúsdóttir nr. 595, gjaldkeri; Ragna Helgadóttir nr. 202 ritari; Katrín Baldvinsdóttir nr. 468 vararitari. Meðstjórnendur eru Hlíðar Sæmundsson nr. 2 og Absalon Poulsen nr. 390.

Ferðanefnd er þannig skipuð: Anna M. Hálfdánardóttir nr. 165 formaður. Nefndarmenn eru: Ásgeir M. Hjálmarsson nr. 712; Árni Óskarsson nr. 65; Hrafnhildur Sigurðardóttir nr. 698. Absalon Poulsen er fulltrúi stjórnar í ferðanefnd.

Skemmtinefnd er þannig skipuð: Sigurbjörg Einarsdóttir nr. 377, Sólborg Þorláksdóttir nr.16, Rebekka Rós Reynisdóttir nr. 791.

Á aðalfundinum var borin upp tillaga að hækka félagsgjöldin um 500 kr. og voru nokkrir á móti því og töldu að félagið ætti næga peninga. Rökin hjá stjórn fyrir hækkuninni voru þau að á næsta ári er félagið 30. ára og er vilji fyrir að halda upp á þessi tímamót og því hafa verið lagðar til hliðar 1.500.000,-kr. sem eru eyrnamerktar afmælinu. Félagið þarf að vera ágætlega stöndugt til að geta ráðist í áhugaverð verkefni en þess má geta að undanfarin tvo ár hefur tekist að afla umtalsverðra tekna með auglýsingaöflun í félagatalið og er það helsta ástæða þess að húsbílafélagið stendur ágætlega fjárhagslega. Þess má geta að félagið greiddi með öllum ferðum á s.l. ári og eins og sjá má í reikningum telur sú upphæð tæpar 2.millj.kr. Þannig að þegar fullyrðingar heyrast eins og þær sem heyra mátti á aðalfundi að stjórnin gerði ekkert fyrir félagana og að félagsmönnum stæði ekki einu sinni til boða matur eins og “í Stóru-ferðinni” verður maður rasandi hissa! Því eins og flestir vita að þá er fólki gjarnan boðið upp á kaffi og með því  eins og á hvítasunnunni og á fundum félagsins og margir hafa haft á orði að þetta séu eins og fermingarveislur og þurfi kannski ekki að vera svona mikið í lagt. En sem betur fer eru þeir mun fleiri sem eru ánægðir með það sem við höfum verið að gera og það yljar okkur stjórnarmönnum  um hjartarætur. En sem sagt tillagan um hækkun félagsgjalda var felld!

Já, stjórnir og nefndir eru og hafa verið á fullu að vinna að verkefnum fyrir komandi sumar. Ferðanefndin fór strax á fullt að ákveða dagsetningar og finna staði til að heimsækja á sumri komandi og er þetta allt að smella saman og dagsetningarnar komnar inn á heimasíðuna en þær eru eftirfarandi: ÓVISSUFERÐ FÉLAGS HÚSBÍLAEIGENDA verður laugardaginn 3.mars n.k. Mæting við Hús Verslunarinnar kl. 10.30. Þangað koma allir og fara í rútu. Ferðanefnd bendir fólki á að fá sér vel að borða áður en farið er af stað að heiman og hafa jafnvel með sér smá nesti, en ferðin endar með kaffiveitingum í kringum kl. 17.00 og komið aftur að Húsi verslunarinnar um kl. 18.30.

Verð pr. mann er kr. 5.000,-- (félagið greiðir töluvert niður ferðina og það er ansi mikið inn í þessari ferð: Rútan, komið við á fjórum stöðum þar sem ýmislegt er skoðað og endað á fimmta staðnum og þar eru bornar fram kaffiveitingar).

Nú verður fólk að skrá sig sem fyrst og skal hafa samband við Önnu M., formann ferðanefndar í síma 567-2821 gsm. 848-9241 eða senda á hana tölvupóst halfdana@simnet.is

eða Pál Þorsteinsson, varaformann félagsins í síma 565-4752 eða gsm. 864-1823 eftir kl. 17.00 alla virka daga. Um helgar er hægt að ná í Pál allan daginn.

Anna mun svo setja inn á gestabókina öðru hvoru hvað margir hafa skráð sig.

Ef ykkur vantar einhverjar upplýsingar þá hafið samband við Önnu formann ferðanefndar því hún ein veit eitthvað um þessa ferð….svo mikil leynd yfir þessu…. bara spennandi… en það er takmarkað sem hún getur sagt ykkur. Já, þetta verður bara gaman og koma svo og skrá sig!

Hafið gjaldið tilbúið við komuna í rútuna, þá gengur þetta svo vel fyrir sig.

Ferðafundur laugardag 24. mars í Karlakórshúsinu á Selfossi, Gagnheiði 40, fundurinn byrjar kl. 14.00. Kaffiveitingar.

Skoðunardagurinn hjá FrumherjaHesthálsi 6-8, laugardaginn 05. maí 2012.

Helgarferð 11.-13. maí

Hvítasunnuferðin 25. - 28.

Helgarferð 15.-17.júní

Stóraferðin 14. - 22. júlí

Helgarferð 17. - 19. ágúst

Helgarferð7.—9.sept.

Lokaferðin - Árshátíðin 28. -30.  september

Aðafundur félagsins verður í október. Dagsetning og staður óákveðin.

Afmælishátíð í ágúst 2013. Á stjórnarfundi þann 14.jan. s.l. var kosin afmælisnefnd sem mun sjá um allt er viðkemur afmæli félagsins á næsta ári en félagið verður 30.ára, 27.ágúst 2013. Eftirtaldir eru í afmælisnefndinni: Soffía G. Ólafsdóttir nr. 24; Sigurdór Már Stefánsson nr. 37; Elín Íris Jónasdóttir og Daði Þór Einarsson nr. 39. Nefndin mun koma saman fljótlega og skifta með sér verkum og byrja undirbúning afmælisins. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Eitt af því sem á að gera á afmælisárinu er að gefa út veglegt afmælisblað og hefur hún Sigríður Arna Arnþórsdóttir nr. 280 , tekið að sér að ritstýra blaðinu og með henni hafa eftirtaldir gefið kost á sér: Soffía  G. Ólafsdóttir, formaður Félags húsbílaeigenda, nr. 24. Ritnefnd:

Kristján Guðmannsson, nr. 35 mun taka saman sögu félagsins                       

María Guðmundsdóttir, nr. 162 veður ljósmyndari blaðsins               

Sigurbjörg Einarsdóttir, nr. 377 í ritnefnd                   

Hjördís Alfreðsdóttir, nr. 49, ritnefnd/auglýsingar      

Ásgerður Ásta Magnúsdóttir,nr. 501, ritnefnd

Gerður Einarsdóttir, nr. 305 auglýsingar,  Ölver Skúlason, nr. 63, ritnefnd, 

Nefndin hefur komið saman tvisvar sinnum og erum við að safna efni og tala við fólk, hvort það lumi ekki á góðum ferðasögum, skondnum atvikum. Góðir félagar, endilega ef þið hafið eitthvað í pokahorninu þá setjið ykkur í samband við hana Dittu (Sigríði) á 280 einnig ef þið eigið góða/góðar ljósmyndir frá fyrstu árunum, allt efni vel þegið.Svo verðum við líka að fá auglýsingar í blaðið, komið með ábendingar. Saman gerum við þetta að flottu afmælisblaði og flottu afmæli .

Nýir félagar: Nokkrir nýir félagar hafa bæst í hópinn, við bjóðum þá alla hjartanlega velkomna í Félag húsbílaeigenda og vonum að þeir megi eiga góðar stundir í þessum frábæra félagsskap.

76. Sigurbjarni Þórmundsson og Linda María Jónsdóttir, Kópavogi

124. Vignir Arason, Þorláksshöfn.

143. Þorsteinn Sigurðsson og Laufey V. Hjaltalín, Stykkishólmi.

152. Þorvaldur Þ. Eyjólfsson og Ólöf Jónsdóttir, Reykjavík.

168. Tryggvi Konráðsson, Reykholti.

232. Bjarni Jóhannesson og Ásta Jóhannsdóttir, Kópavogi.

301. Lovísa Ósk Skarphéðinsdóttir  og Jónas Óskarsson, Reykjanesbæ.

Ágætu félagar. Við í stjórn, ferða-og skemmtinefnd hlökkum öll til sumarsins. Við vonum að þið mætið vel í ferðir sumarsins og að við munum öll eiga ánægjulegar stundir saman. Leggjumst á eitt með að gera ferðirnar eftirminnilegar og skemmtilegar og munið að skrifa niður skemmtileg atvik í ferðunum og koma áleiðis til skemmtinefndar svo hægt verði að gera góðan annál á árshátíðinni!

Ég kveð ykkur með þessu fallega ljóði eftir Huldu „Við lindina“

Gleði, frelsi, friður, ró
faðmar allt í grænum mó,
þar sem tæra lindin ljósa
líður hægt á milli rósa,
streymir áfram út í sjó, –
andi minn þar finnur ró.

Þegar ég er þreytt og ein,
þín ég vitja, lindin hrein,
leggst við bakka lága þína,
læt svo hverfa harma mína;
bylgja þín í blárri ró
ber þá út á víðan sjó.

Með bestu kveðju.

F.h. Stjórnar, ferða-og skemmtinefndar Soffía G. Ólafsdóttir, formaður.

Töfraljós - Ilmkertagerð
Stefna

Mynd augnabliksins

2009_stora_064.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf