Flýtilyklar
Fréttabréf v/ Stóru ferðarinnar
Ágætu félagar.
Áður en ég byrja á því að segja ykkur frá Stóru-ferðinni þá vil ég tilkynna ykkur um að Orkan hefur gert samning
við okkur og og hefur hækkað afsláttin sem þeir gefa félögum í Félagi húsbílaeigenda í - 5 kr. afsláttur hjá
Orkunni og -7 kr. afsláttur hjá Skeljungi. Auk þess fær félagið 1 kr. til sín sem við höfum verið að gefa í ýmsa
vinninga í ferðum félagsins.
Tilboðið er inni á heimasíðunni okkar og leiðbeiningar um hvernig sækja skuli um Orkulykilinn.
Í tilefni Stóru-ferðarinnar sem verður frá 9.júlí- 17.júlí, þá býður Orkan og Skeljungur meðlimum í Félagi húsbílaeigenda tilboð dagana 9.júlí og 15.júlí sérkjör -10 kr. þetta tilboð gildir um allt land þessa tvo daga á öllum bensínstöðvum Skeljungs og Orkunnar. Til að nýta sér þetta tilboð og – 5kr hjá Orkunni og -7 kr. hjá Skeljungi afsláttin þá er um að gera að sækja um Orkulykilinn sem fyrst (sjá leiðbeiningar á heimasíðu okkar undir tilboð)
Nú er ekki nema 12 dagar í Stóru- ferðina en hún hefst laugardaginn 9. júlí.
Það hefur mikið verið rætt um það við okkur í stjórn og nefndum að við nýttum okkur tjaldstæðin sem bjóða upp á Útilegukortið og er það gert í þessari ferð.
Við gistum á Akranesi-Hellissandi og Grundarfirði en þessir staðir bjóða upp á Útilegukortið, þar sem það er þá gerir hver og einn upp við staðarhaldara á hverjum stað. Fyrir þá sem ekki eru með Útilegukortið þá er verðið sem hér segir:
Akranes 1.000,--kr. nóttin pr. bíl
Hellissandur 1.600,-- kr. nóttin pr. bíl
Grundarfjörður 1.600,-- kr. nóttin pr. bíl
Það er ekki spurning að vera með Útilegukortið því þeir eru með svo marga staði um allt land, fljótt að borga sig.
Verð í Stóru-ferðina er sem hér segir: (Endilega verið með pening og ákkúrat fyrir ferðinni það flýtir svo afgreiðslu fyrir ferðanefndinni.)
Félagsmenn greiða 8.000,--kr. pr. bíl (miðað við tvo í bíl) og það sem er innifalið í þessu verði er gisting að Snorrastöðum, gisting að Arnarstapa (tvær nætur) skoðunarferð í Vatnshellir og verður farið þangað með rútu, heimsókn í Bjarnarhöfn til Hildibrands, gisting í tvær nætur í Árblik, félagsvist á föstudeginum, skemmtinefnd sér um skemmtiatriðin á laugardagskvöldinu og svo er dansleikur til kl. 02.00.
Þeir félagar sem koma á föstudeginum í Árblik greiða. 5.000,--kr. (miðað við tvo í bíl) innifalið er, gisting í tvær nætur, félagsvist á föstudeginum, skemmtinefnd sér um skemmtiatriðin á laugardagskvöldinu og svo er dansleikur til kl. 02.00.
Gestir greiða: 12.000,--kr. (miðað við tvo í bíl) og það sem er innifalið í þessu verði er gisting að Snorrastöðum, gisting að Arnarstapa (tvær nætur) skoðunarferð í Vatnshellir og verður farið þangað með rútu, heimsókn í Bjarnarhöfn til Hildibrands, gisting í tvær nætur í Árblik, félagsvist á föstudeginum, skemmtinefnd sér um skemmtiatriðin á laugardagskvöldinu og svo er dansleikur til kl. 02.00.
Þeir gestir sem koma á föstudeginum í Árblik greiða 8.000,--kr. (miðað við tvo í bíl) innifalið er, gisting í tvær nætur, félagsvist á föstudeginum, skemmtinefnd sér um skemmtiatriðin á laugardagskvöldinu og svo er dansleikur til kl. 02.00.
Þegar við förum frá Arnarstapa að Hellissandi þá langar okkur svo að biðja alla að stoppa í Hólahólum í Beruvík til að taka mynd af öllum þeim bílum sem eru í þessari ferð og þessi mynd mun fara í afmælisblaðið 2013 en til eru fyrir tvær myndir sem hafa verið teknar á þessum stað. Ferðanefnd og stjórnarmenn munu leiðbeina um röðun á bílunum. Við ræðum nánar um tímann á Arnarstapa.
Ferðanefnd mun afhenda öllum leiðarlýsingu á ferðinni um leið og hver og einn greiðir og einnig fær fólk barmmerki sem á að bera á sér alla ferðina og mjög mikið atriði að allir séu með merkið á laugardagskvöldinu, en við munum vera með dyraverði við húsið, og eru þeir ekki félagsmenn. Við viljum hvetja alla þá sem verða í þessari ferð að taka þátt í henni á einn eða annan hátt, munið "maður er manns gaman" Við gerum þessa ferð að ferð ársins, öll saman.
Dagskráin fylgir hér með.
Föstudagur 8. júlí:
Hattadagur - Félagsmenn safnast saman á tjaldstæðinu á Akranesi.
Laugardagur 9. júlí (dagur 1) Kl. 21:00 Akranes tjaldstæðið - Formaður setur ferðina og ferðatilhögun kynnt
Sunnudagur 10. júlí (dagur 2) - Akranes – Snorrastaðir við Eldborg
Mánudagur 11. júlí (dagur 3) - Snorrastaðir við Eldborg – Arnarstapi
Þriðjudagur 12. júlí (dagur 4) - Arnarstapi: Ferð í Vatnshelli. Ferðatilhögun kynnt við setningu ferðar
Kl. 21.00 Útibingó og fyrri fjöldasöngur.
Miðvikudagur 13. júlí. (dagur 5) - Arnarstapi – Hellissandur
Kl. 16:00 Ferðafélagar safnast saman í Berudal í Hólahólum fyrir myndatöku af öllum bílunum
Fimmtudagur 14. júlí (dagur 6) Hellissandur - Grundarfjörður
Kl. 20.00 – 22.00 Útimarkaður á tjaldstæði, Húsbílar opnir gestum til sýnis.
Föstudagur 15. júlí (dagur 7) Hattadagur - Grundarfjörður – Stykkishólmur – Árblik, skammt frá Kvennabrekku. Kl. 13.00
– 15.00 Hákarlasafnið í Bjarnarhöfn - opið félagsmönnum. Boðið upp á hákarlasmakk og rúgbrauð. Einnig fræðsla
um hákarlaveiðar og verkun. Kirkjan verður opin fyrir okkur og endilega kíkið á hana. Árblik er félagsheimili og tjaldstæði.
Kl. 21.00 Skemmti,- og leikdagskrá í boði skemmtinefndar og seinni fjöldasöngur.
Laugardagur 16. júlí (dagur 8) Árblik í Dölum
Kl. 13.00 Félagsvist
Kl. 18.00 - Hver sér um mat fyrir sig og sína. Gaman væri að borða saman inni í félagsheimilinu og gera góðan anda betri og dást af
hattadýrðinni.
Kl. 21.00 - Skemmtidagskrá í boði skemmtinefndar, veitt verðlaun og síðan dansleikur með danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar. Þema
kvöldins: Hattar / húfur og annar höfuðbúnaður.
Dómnefnd og glæsileg verðlaun fyrir flottasta hattinn.
Hin árlega Hvítasunnuferð okkar var þetta árið 10. -13. júní, hvítasunnan seint þetta árið, nokkrir komu á fimmtudeginum og var veðrið þá heldur kalsalegt.
En það rættist úr veðrinu og í allt komu 153 bílar, 300 manns voru í hátíðarkaffinu, 110 spiluðu Bingó og spiluð var félagsvist á 13 borðum.
Það var margt um að vera eins og alltaf um þessa helgi og vonandi hafa allir notið þess að eiga góða stund með félögum og vinum. Föstudagskvöldið var hattadagur að venju og komu margir með ýmiss höfuðföt, formaður byrjaði á því að setja skemmtunina og svo spiluðu félagarnir Gulli nr. 200,Snorri nr. 450, Guðni nr. 159, Steini Sævar nr. 49,Daði nr. 39, félagsmenn tóku vel undir í söng. Skemmtinefnd var með skemmtiatriði , Hermann Ingi spilaði undir dansleik og var mikið stuð. Á laugardeginum voru hestar á svæðinu og var teymt undir börnum., markaðurinn á sínum stað og mikið selt, og svo kl. 16.00 kom flugvél og dreyfði yfir mannskapinn karamellum og var mikill handagangur í öskjunni allir að ná sér í karamellur stórir og smáir, gaman að þessu, karamellurnar voru frá Góu og Freyju, flugklúbbur Mosfellsbæjar sá um dreifinguna á flugvélinni, um kvöldið var svo dansleikur þar sem Grænir vinir léku fyrir dansi til kl. 02.00 eftir miðnætti. Á sunnudeginum var mikið um að vera félagsvist, bingó og hvítasunnukaffið, kaffihlaðborðið svignaði undir kræsingunum og nóg handa öllum. Um kvöldið var svo afhending fyrir gátukeppnina og félagsvistina, spilað var af geisladiskum eftir að skemmtinefnd hafði lokið sínum störfum.
Ég vil þakka öllum þeim sem hjálpuðu okkur í stjórn og nefndum með því að stóla upp og taka til eftir kvöldin það er ómetanlegt að fá svona hjálp en þessi helgi er mikil vinnuhelgi fyrir þá sem eru í stjórn og nefndum. Einnig þakka ég öllum þeim hljóðfæraleikurum sem komu fram og spiluðu það er ómetanlegt að hafa góða hljóðfæraleikar innan sinna raða og sem vilja skemmta sér og öðrum með fallegum tónum, takk kærlega fyrir.
Kæru félagar í stjórn, ferða-og skemmtinefnd, takk kærlega fyrir alla ykkar vinnu fyrir félagið.
Nokkrir nýir félagar hafa bæst í hópinn frá síðasta fréttabréfi, við bjóðum þá alla hjartanlega velkomna í Félag húsbílaeigenda og vonum að þau megi eiga góðar stundir í þessum frábæra félagsskap.
234 - Ragnar Björnsson, Kópavogi.
276 - Jón Bjarni Hrólfsson og Rakel Theodóra Heiðarsdóttir, Reykjanesbæ.
291 - Sigurðu Jón Grímsson og Rósa Sveinsdóttir, Mosfellsbæ.
298 - Guðrún Ósk Barðardóttir, Hafnarfjörður.
800 - Karl Sigurðsson og Þorbjörg Unnur Magnúsdóttir, Akranesi.
Enn eru nokkrir félagar sem ekki hafa greitt árgjaldið ég vil hvetja ykkur um að gera skil sem fyrst svo þið getið notið þeirra kjara sem félagið hefur fengið hjá ýmsum fyrirtækjum, einnig til að þið njótið þeirra ferða sem félagið býður upp á, þeir sem ekki hafa greitt félagsgjald fyrir 2011 greiða þá eins og gestir, ef þið eruð hætt í félaginu að láta mig vita svo ég geti þá fellt ykkur út sendið tölvupóst á husbill@husbill.is .
Munið, þið sem eru hætt í félaginu að taka númer og félagsmerki af bílunum ykkar, einnig ef þið seljið bílana ykkar þá skal taka öll merki félagsins af.
Einnig vil ég benda þeim sem komnir eru með netföng sendið mér breytingar með það, margir þurfa einnig að skoða hvort pósthólfin þeirra séu full því ég er að fá oft til baka póst eins og hann fari ekki í gegn eða þá að sumir eru komnir með ný netföng endilega verið vakandi yfir þessu svo þið fáið póst þegar við erum að senda til ykkar.
Við vonumst svo til að sjá ykkur sem flest í Stóru-ferðinni um Snæfellsnes.
Það sem þú átt í vasanum er ekki mikilsvert, eingöngu það sem þú átt í hjarta þínu.
Góða ferð kæru félagar hvert sem þið farið um landið.
F.h. Stjórnar, ferða-og skemmtinefndar
Soffía G. Ólafsdóttir, formaður