Deila og Bókamerkja

Félag húsbílaeigenda - husbill.is

Fréttir, fróðleikur, kannanir og afþreying ásamt myndum úr ferðum félagsins. Einnig sölusíða með húsbíla og annað húsbílatengt.

September 2009

Ágætu félagar

Nú er haustið komið með allri sinni litadýrð og skipulögðum ferðum hjá félaginu er að ljúka, aðeins ein ferð eftir sem er Lokaferð helgina 18. - 20. sept n.k. í Sandgerði.

Berjaferðin að Arnarstapa var helgina 29. - 31. ágúst s.l. Í þá ferð mættu aðeins 19 bílar, um þessa helgi voru víða um land ýmsar hátíðir og hefur það ugglaust haft eitthvað að segja og eins það að veðurspáin var ekki alveg nógu góð fyrir vestan, spáði dáldið hvössu og það geta oft verið leiðinda vindhviður á vissum stöðum þarna fyrir vestan. En þeir sem mættu fóru flestir í berjatínslu í Búðarhrauninu og einhverjir komu við á Kaldármelum og tíndu ber allt upp í 20-30kg. og eru núna búin að safta og sulta og eiga góðan vetrarforða. Á laugardeginum fóru einhverjir fyrir jökul og komu við í Djúpalónssandi og var þar sól og logn, en þegar komið var til Ólafsvíkur var rok, svona getur veðrið verið.

Lokaferð 18. - 20. sept. Sandgerði. Við verðum með Samkomuhúsið í Sandgerði til afnota og er hægt að gista á planinu við samkomuhúsið. Einnig er góður grasbali fyrir ofan Samkomuhúsið sem hægt er að vera á, en þar er ekki hægt að fá rafmagn, þarna komast margir bílar, en tjaldstæðið í Sandgerði er svona 200-300metra frá Samkomuhúsinu, þar er mjög góð aðstaða, rafmagn og góð salernisaðstaða. Skemmtunin verður sett kl. 20.00 föstudaginn 18. sept. og strax á eftir verður spiluð félagsvist, veitt verða verðlaun fyrir þá sem eru hæstir í kvenna,- og karlaflokki og þeir lægstu í sama flokki fá skammarverðlaun.
Við biðjum svo alla þá sem spila á hljóðfæri að koma upp í hús með hljóðfærin sín, svo við hin getum sungið með og dansað, undir ljúfum tónum ykkar, kæru hljóðfæraleikarar.

Á laugardeginum kl. 12.30 býður félagið öllum í kjötsúpu í Samkomuhúsinu og á sama tíma verður Markaður, félagið verður með sínar vörur til sölu og ykkur, félagar góðir, er boðið að koma með ykkar vörur til sölu. Kl. 16.00 förum við í Skoðunarferð og höfum fengið Reynir Sveinsson, leiðsögumann til að fara með ykkur í Hvalsneskirkju, hann mun segja sögu kirkjunnar og við skoðum hana, förum svo Ósabotnaleið og að Reykjanesvirkjun og þar tekur á móti okkur starfsmaður Hitaveitu Suðurnesja og segir okkur frá virkjuninni. Áætlum að þetta taki um 2 klukkutíma. Eftir þessa ferð er svo frjáls tími og þá er tilvalið að kíkja í Galleríin í Sandgerði og Fræðasetrið ef það er opið, en hver og einn hefur það eins og hann vill. Dansleikurinn byrjar kl. 22.00 til kl. 02.00 eftir miðnætti, ég vil biðja forráðamenn barna að sjá til þess að börn undir 14 ára aldri verði ekki inni í Samkomuhúsinu eftir kl. 24.00. Bið ykkur að virða þessa reglu. Verð fyrir þessa helgi er kr. 1.000,- miðað við tvo í bíl, (eða kr. 500,- pr.mann) allir fá merki um leið og þeir borga og vil ég biðja ykkur að bera þessi merki alla helgina, það verður dyravarsla á laugardeginum þegar dansleikurinn er og verða þá allir að sýna merkið sitt.

Árshátíðin verður 17. okt. n.k. að Hótel Örk, við hvetjum ykkur að koma á árshátíðina og að við eigum saman góða helgi og dekrum aðeins við okkur með því að gista á Hótelinu. Verðið á hjón, ein nótt með morgunmat og þriggja rétta máltíð, sem samanstendur af Villisveppasúpu, Lambalæri og ís í eftirrétt, veislustjóri er Kiddi Rót. Skemmtiatriði og dansleikur, þetta allt á kr. 20.000,-. Fyrir einstakling kostar það kr. 12.500,- en ef einhver vill bara koma í borðhaldið og skemmtunina þá er verðið kr. 7.000,- pr. mann (kr. 14.000,- á hjón). Ef einhver vill gista 2 nætur (koma á föstudeginum) þá kostar aukanóttin fyrir tvo kr. 6.000,- og fyrir einstakling kr. 4.000,-. Hver og einn greiðir aukanóttina beint til hótelsins. Happadrætti verður og margt góðra vinninga. Kl. 19.00 verður boðið upp á fordrykk og borðhald hefst 19.30

Dagskráin er ekki alveg tilbúin hjá okkur ennþá en fylgist með inni á heimasíðunni okkar, um leið og hún liggur fyrir verður hún sett þar inn. Endilega hringið í síma 896-5057 eða sendið okkur tölvupóst til að panta á árshátíðina, og í Lokaferðinni í Sandgerði munum við taka við greiðslu og pöntunum á árshátíðina og einnig getið þið lagt inn á reikning félagsins 0542-26-276 kt. 681290-1099 og merkið þetta Árshátíð og setjið kennitölu ykkar við.

Það má ekki leggja Húsbílum á planinu hjá Hótelinu, þannig að ef einhverjir ætla að koma á Húsbílunum sínum, verður að vera með þá á öðrum stað.

Enn og aftur þá hvet ég ykkur ágætu félagar að koma á árshátíðina og að við eigum saman góða helgi, því fyrr sem þið bókið ykkur því betra, ef við þyrftum að bæta við herbergjum.

Kerran skírð; og hefur hlotið nafnið , Vöruskjólið númer 1 í félaginu okkar.
Það voru 14 aðilar sem sendu inn 35 nöfn á kerruna.
Á stjórnarfundi 1.sept.s.l. völdum við nafnið Vöruskjólið. Það var félagi nr. 740, Kristín Hlíf Andrésdóttir sem var með þessa tillögu. Við viljum þakka ykkur öllum sem senduð inn tillögur kærlega fyrir þátttökuna.

Nýir félagar; alltaf bætast við nýir félagar og er það ánægjuefni að fólk vill koma í okkar félagsskap og við bjóðum nýja félaga innilega velkomna í félagið okkar og vonum að þau eigi eftir að eiga ánægjulegar samverustundir með okkur. Eftirtaldir aðilar hafa bæst í hópinn frá því síðasta fréttabréf var gefið út eða 26 aðilar (14 númer).
206. Guðrún Ósk Barðadóttir. Reykjanesbæ.
221. Garðar Jóhannesson og Hrafnhildur Hallgrímsdóttir, Reykjavík
241. Þórður Ársælsson og J. Valdís Ingimundardóttir, Akranes.
265. Haukur Einarsson og Sóley Rut Ísleifsdóttir, Reykjavík.
287. Gunnsteinn Sigurðsson og Jytta Jensen, Bolungavík.
410. Lárus Óskarsson, Hornafjörður
445. Iðunn Árnadóttir og Páll Gústafsson. Reykjavík.
448. Guðmann Kristjánsson og Hildur Dögg Guðmundsdóttir, Hafnarfjörður.
485. Ólafur S. Kristmundsson og Elísabet Guðlaugsdóttir, Vogum Vatnsleysuströnd.
510. Halla Björg Baldursdóttir og Magnús Páll Albertsson, Hafnarfjörður.
560. Stefán H. Kristjánsson og Palma Rasmussen, Kópavogi.
508. Mikael Jónsson og Lilja G. Waage, Seyðisfjörður
703. Anton Hafþór Pálsson og Brimhildur Jónsdóttir, Reykjanesbæ
766. Jóhannes Jóhannesson og Kristín Elísabet Möller, Borgarnes.
Alls hafa því 123 manns gengið í félagið á þessu ári eða 68 félagsnúmer.

Jólafundurinn; verður 21. nóv.n.k. og verður hann í Húnabúð, þið getið tekið frá þennan dag en dagskrá þess fundar verður sett inn á heimasíðuna og bið ég ykkur um að fylgjast þar með.

Félagatal; við munum strax eftir áramót fara að vinna í félagatalinu og bið ég þau ykkar sem hafið verið að skipta um bíla eða breyta heimilisfangi eða öðru að senda tölvupóst svo allar upplýsingar um ykkur verði réttar í félagatalinu 2010. Einnig höfum við verið að biðja fólk að senda okkur netföng en það eru ansi margir sem ekki eru með netföng skráð hjá sér, endilega sendið mér netföngin ykkar.

Ef þið félagar góðir viljið auglýsa í félagatalinu á næsta ári þá hafið samband.

Ef engar aðrar tillögur að stjórn og nefndum berast, þá verður Þetta síðasta fréttabréfið á þessu ári, allar upplýsingar sem við viljum koma áleiðis til ykkar fara inn á heimasíðuna okkar www.husbill.is þau ykkar sem ekki eruð með tölvu, biðjið börnin ykkar, barnabörnin eða vini að fara inn á síðuna okkar annað slagið og fylgjast með fyrir ykkur.

Ég vil þakka ykkur öllum sem hafið verið í ferðum í sumar ánægjuleg kynni og gott viðmót, öllu því góða fólki sem er að hverfa úr stjórn og nefndum þakka ég vel unnin störf í þágu félagsins, einnig þakka ég mökum þessa fólks fyrir frábæra aðstoð, þið hafið öll unnið vel og gefið mikið af ykkur fyrir fólkið í félaginu sem er ómetanlegt, því ekkert verður til af sjálfu sér. Einnig vil ég nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu hljóðfæra-leikurum sem komið hafa fram í ferðum félagsins og leyft okkur að njóta góðrar tónlistar, þetta er ómetanlegt og ég vona svo sannarlega að við fáum að njóta ykkar áfram í framtíðinni. Guð blessi ykkur öll, njótum þess að vera saman og gefa hvort öðru gleði og kærleika.

Sjáumst sem flest í Lokaferðinni, Aðalfundinum, Árshátíðinni og Jólafundinum

Með hjartans kveðju heilsa ég þér,heilla vinan kæra,
og þetta litla ljóð frá mér, langar mig að færa.


f.h. stjórna og nefnda
             Soffía G. Ólafsdóttir, formaður


Prenta út
      Smelltu á myndina af prentaranum hér til hliðar, til að prenta út fréttabréfið beint af vefsíðunni.
Töfraljós - Ilmkertagerð
Stefna

Mynd augnabliksins

gardskagi_19.-21.__g_st_028.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf