Deila og Bókamerkja

Félag húsbílaeigenda - husbill.is

Fréttir, fróðleikur, kannanir og afþreying ásamt myndum úr ferðum félagsins. Einnig sölusíða með húsbíla og annað húsbílatengt.

Júní 2011

Ágætu félagar.
Sumarið er komið, ekki ber á öðru allt farið að grænka og blómin spretta, krakkarnir hendast upp í loftið á trampolínunum út um allan bæ og við félagar góðir erum farin  að þeysast um vegi landsins og nýta okkur aðstöðu tjaldstæða vítt og breytt um landið og hittast í skipulögðum ferðum félagsins, kynnast nýjum félögum og skerpa tengslin við gömlu félagana, já mikið er gaman að vera komin af stað aftur og vonandi njótum við öll þess sem íslenskt sumar hefur upp á að bjóða.


Það má segja að Skoðunardagurinn 7.maí og gistingin á  tjaldstæðinu á Víðistaðatúni í Hafnarfirði,hafi verið fyrsta ferð sumarsins, þessi helgi var mjög góð og veðrið lék við okkur. Það voru 27 bílar sem gistu fyrir utan Frumherja á föstudagskvöldið  og tóku starfsmenn  Frumherja vel á móti okkur með  góðum morgunverði á laugardagsmorguninn  og seinna um morguninn var boðið upp á  nýbökuð vínarbrauð, kaffi og kakó og grillað svo í mannskapinn þegar nær dró hádegi, nóg að gera hjá starfsmönnunum, það komu margir við í stöðinni þó þeir væru ekki að láta skoða bílinn sinn en 70 bílar voru skoðaðir þennan dag. Létt var  yfir öllum enda sáu nokkrir hljóðfæraleikarar félagsins um að spila góða tónlist, og trallað var aðeins með. Sýnikennsla í brunavörnum fyrst inni og svo utandyra og myndband um hvað gerist við árekstur ef við erum með lausa hluti í bílnum. þetta allt mjög fróðlegt. Tjaldstæðið á Víðistaðatúni í Hafnarfirði er mjög skemmtilegt, þar er góð aðstaða, fallegar gönguleiðir, en kyrrlátt, þó í borg sé. Þarna skemmtu félagar sér og sungu við  undirleik þeirra Gulla, Sigga,  Óla og Tryggva  á laugardagskvöldinu.   Ég vil þakka starfsmönnum Frumherja fyrir góðar móttökur og þjónustu og kæru hljóðfæraleikarar, hjartans þökk fyrir ykkar framlag þennan dag, þetta var góð byrjun á sumrinu.


Ég vil minna alla á sem ekki eru búnir að skoða bílana sína að þið hafið öll fengið boðsbréf frá Frumherja um að koma með húsbílinn í skoðun fyrir 5.200,-kr. á hvaða afgreiðslustöð sem er á landinu og gildir þetta tilboð til 1.júlí n.k. svo það er um að gera að nýta sér þetta tilboð. Einnig veitir Frumherji félögum í Félagi húsbílaeigenda 20% afslátt á skoðun á einkabílnum, gegn framvísun félagsskírteinis.
Önnur ferð sumarsins er afstaðin , og tókst mjög vel. Úlfljótsvatn er svo sannarlega 5 stjörnu tjaldstæði með hinum ýmsu þrautum fyrir börn og fullorðna og voru þrautirnar svo sannarlega nýttar, margir fóru með veiðistöngina niður að vatni og héldu sig þar í góðan tíma og á hinum ýmsu stöðum og  reyndu við fiskinn, en því miður án árangurs,  aðeins 1 fiskur kom á land, sem stækkaði helling eftir að hann náðist, en hann endaði í 1 pundi!


Fólk fór í göngutúra en þarna eru margir góðir göngustígar, einhverjir fóru að „STÓRA KROSSINUM“ en Gunnar Eyjólfsson leikari  og skátahöfðingi átti veg og vanda að þessi kross var reistur og komið fyrir þarna og er hann helgaður íslenskri æsku í umsjón íslenskra skáta og fer vel á að hann sé reistur þarna. Þetta er níu metra hár kross og helgaður af Jóhannesi Páli páfa er hann heimsótti Ísland í júní 1989.  Það komu 106 bílar eða 168 fullorðnir og um 30 börn.

Bæði á föstudagskvöldið og laugardagskvöldið komum við saman í Strýtunni og hljóðfæraleikararnir okkar spiluðu og félagarnir tóku undir í söng og tóku einnig sporið. Vil ég þakka hljóðfæraleikurunum kærlega fyrir þeirra framtak  Veitt voru verðlaun fyrir stærsta fiskinn sem kom á land og var það eins og áður sagði aðeins 1 fiskur og var það Benný nr. 60 sem veiddi hann en hún dreif sig niður að vatni um leið og hún kom á svæðið á föstudaginn í blankskóm og míni-pilsi og virðist það hafa hrifið fiskinn vel, þetta ættu fleiri að leika eftir. Hún  fékk inneign hjá Orkunni og fyrir 5 á Subway. Númer allra bíla sem komu á svæðið var sett í einn pott og dregið þar úr 3 númer og fengu þessir aðilar veglega vinninga, úttekt hjá Orkunni,  miða frá Subway og WC-hreinsibrúsa. Við dreifðumst vel um svæðið enda stórt og gott, það fór vel um alla og maður sá hvað allir voru ánægðir að hitta sína góðu vini og kynnast öðrum.  Margir nýir félagar voru að koma í sína fyrstu ferð og einnig var fólk að ganga í félagið núna um helgina, hjartanlega velkomin í þennan góða félagsskap.
Ég vil þakka ykkur öllum fyrir frábæra helgi  að Úlfljótsvatni.


Ferð sem átti að fara að T-bæ í Selvogi 24.-26.júní n.k.  fellur því miður niður vegna óviðráðanlegrar ástæðna, Okkur þykir það mjög leitt að svona fór en því miður er ekkert við því að gera. Við vonum svo sannarlega að þetta komi sér ekki illa við nokkurn mann en þetta er Jónsmessuhelgin og því margt um að vera út um allt land og eflaust félagarnir víða á ferðinni og óskum við ykkur öllum skemmtilegrar Jónsmessuhelgi.
Nú er undirbúningur fyrir Hvítasunnunaferðina að Hlöðum á Hvalfjarðarströnd  10.-13.júní í fullum gangi og fylgir hér dagskráin með og er hún einnig að finna á heimasíðunni.
Verð: Félagsmenn 18.ára og eldri 3.000 kr.pr.mann; gestir 18.ára og eldri 4.000kr. pr.mann. Þeir aðilar sem ekki hafa greitt árgjaldið greiða eins og gestir. Sama verð hvenær sem komið er um helgina. Vinsamlegast verið með greiðsluna tilbúna í seðlum.


Föstudagur 10 júní:
Við komuna að Hlöðum fá félagsmenn afhenta miða í Hvítasunnukaffið og blað með þremur gátum.  í “Stóru ferðinni” og “Lokaferðinni” verður einnig gátukeppni. Sá sem er með allar gáturnar réttar í þessum ferðum fær glæsileg verðlaun afhent á Árshátíðinni.
17:00   *Stilla upp í Félagsheimilinu fyrir kvöldskemmtun*
21.00-01:00 Hátíðin sett og félagssöngurinn sunginn. Skemmtidagskrá í boði skemmtinefndar. Dansfætur hitaðir upp með hóplínudansi. Hafið með ykkur söngbækurnar. Hljómsveit Hermanns Inga leikur fyrir dansi.
Laugardagur 11. júní:
12:00  *Félagsheimilið opnað fyrir markaðsundirbúning*
13:00     Hestamenn úr Borgarnesi mæta fyrir neðan Félgasheimilið og teyma undir börnum.
13.00–15.00 Markaður í Félagsheimilinu
15:00  *Stilla upp fyrir kvöldskemmtun*
16:00    Horfðu til himinns………………………………
17:00–19:00 Yngri kynslóðin getur spilað sína tónlist í Félagsheimilinu og rætt málin. Vinsamlegast athugið að börnin eiga að skemmta sér sjálf og eru á ábyrgð forráðamanna. Nefndarmenn eru ekki þarna á staðnum með dagskrá eða eftirlit.
22.00–02:00 Hljómsveitin “Grænir vinir” leika fyrir dansi.
Sunnudagur 12. júní: (Hvítasunnudagur)
Gátum skilað í kassa í anddyri  Félagsheimilisins fyrir klukkan 13.00
12:30  Forsala á Bingó- spjöldum   *Stilla upp fyrir félagsvist*
13:00   Félagsvist   *Eftir félagsvist: Stilla upp fyrir kaffið*
15:00   Hvítasunnukaffi í boði félagsins,(munið að vera með kaffimiðana ykkar)
16:30   Bingó, margir góðir vinningar. *Eftir bingó: Stilla upp fyrir ball*
21.00   Verðlauna afhending fyrir  gátukeppni og félagsvist.
21:15  Félagsmenn hvattir til að koma með hljóðfærin sín og spila saman.
23:00   Danslög leikin af hljómplötum.


Foreldrar/forráðamenn barna sjái til þess að börn undir 14. ára aldri
verði ekki í félagsheimilinu nema til kl.24.00.


Það eru vinsamleg tilmæli frá ábúendum á Ferstiklu að ekki sé farið yfir neðan þjóðveginn til göngutúra (ekki niður að sjó) vegna þess að þar er viðkvæmt friðað æðarvarp. Allir göngtúrar liggja upp að fjalli !
Munið eftir könnuninni á heimasíðunni, gott að geta séð nokkurn veginn fjöldann sem kemur.
Við hittumst kát og hress að Hlöðum.


Nýir félagar hafa bæst í hópinn, við bjóðum þá alla hjartanlega velkomna í Félag húsbílaeigenda og vonum að þau megi eiga góðar stundir í þessum frábæra félagsskap.
 72. Guðlaugur Bragi Gíslason og Elín Hrönn Jónsdóttir, Hveragerði.
111. Jónatan Ingimarsson og Erla Vigdís Óskarsdóttir, Garði
148. Þorbjörn Sigvaldason og Kristín Garðarsdóttir, Flúðir.
183. Brynjólfur Wíum, Kópavogi.
187. Magnús Samúelsson og Sigríður Gunnsteinsdóttir, Ísafjörður.
192. Óli Árni Vilhjálmsson og Ólafía Skarphéðinsdóttir, Mosfellsbæ.
204. Benedikt Guðmundsson og Guðbjörg Þórðardóttir, Seltjarnarnesi.
205. Helgi Ingólfsson og Helga Sigfúsdóttir, Hvammstanga.
206. Valur Steingrímsson og Regína Úlfarsdóttir, Reykjavík.
214. Eysteinn Stefánsson og Sjörn Traustadóttir, Kópavogur.
223. Símon Aðalsteinsson og Þuríður Jóhannsdóttir, Borgarnes.
239. Hjörtur Sigurðsson og Erna Björnsdóttir, Reykjanesbæ.
249. Guðmundur H. Jónasson og Bergþóra Sigurjónsdóttir, Reykjavík
254.  Baldur Þór Sigurðsson og Arna Þöll Bjarnadóttir, Hvolsvöllur.
284. Kristinn Símon Jósepsson og Margrét Guðný Sölvadóttir, Selfoss.
306. Þórður Gunnar Sigurðsson og Úrsúla M. Kristjánsdóttir, Grindavík.
336. Þór Kristjánsson og Elfa Guðbjartsdóttir, Hellissandi.
474. Jón Árni Hjartarson og Guðný Björg Þorvaldsdóttir, Reykjavík.
601. Viggó Helgi Viggósson og Lilja Karen Steinþórsdóttir, Reykjavík.
737. Sigurgeir Árnason og Hanna Björk Þrastardóttir, Hafnarfjörður.
Ritnefnd afmælisblaðsins er komin af stað og er farin að huga að efni í blaðið sem á að koma úr á afmælisárinu 2013, ef þið hafið gott efni í blaðið þá komið því til ritsjórans sem er Sigríður Arna Arnþórsdóttir (Ditta) nr. 280. Enn vantar fólk sem vill starfa í afmælis-nefndinni, endilega hafið samband við Soffíu formann nr. 24.
Munið svo öll Stóru ferðina sem farin verður  9.-17.júlí um Snæfellsnesið, fylgist vel með á heimasíðunni okkar, setjum þangað inn allar nýjustu fréttir.
Munið svo að skrifa niður hjá ykkur skemmtileg atvik í ferðum og komið því til skemmtinefndar.


Ágætu félagar, hittumst hress í ferðum félagsins í sumar.
Kærleikur er ljósið sem býr í hjarta þínu.
F.h. Stjórnar, ferða-og skemmtinefnd
Soffía G. Ólafsdóttir, formaður.

 

 


Töfraljós - Ilmkertagerð
Stefna

Mynd augnabliksins

84.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf