Flýtilyklar
Október 2010
Fundarboð - Aðalfundur
Aðalfundur Félags húsbílaeigenda verður haldinn 9. okt. n.k. kl. 14.00, í veislusal
Knattspyrnufélagsins Vals, að Hlíðarenda. Venjuleg aðalfundarstörf, kaffiveitingar. Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna.
Eftirtaldir aðilar gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins:
Soffía G. Ólafsdóttir nr. 24, gefur kost á sér til formanns í félaginu næstu 2 ár, aðrir sem gefa kost á sér í
stjórn eru; Reynir Gunnarsson nr. 786, Guðbjörg Bjarnadóttir nr. 75, Benedikta Benediktsdóttir nr. 60, Hlíðar Sæmundsson nr. 2, Ragna
Helgadóttir, nr. 202, og Páll Þorsteinsson nr. 377.
Í ferðanefnd bjóða sig fram: Anna M. Hálfdánardóttir nr. 165, Sævar Gunnlaugsson nr. 421, Ásgeir M. Hjálmarsson nr. 712, og okkur vantar einn aðila í viðbót.
Í skemmtinefnd félagsins bjóða sig fram: (að því tilskildu að það fáist með þeim ein hjón í
viðbót)
Elín Íris Jónasdóttir og Daði Þór Einarsson nr. 39 og Halldóra M. Gunnarsdóttir og Einar V. Guðnason nr. 392.
Sem skoðunarmenn reikninga bjóða sig fram Erla Skarphéðinsdóttir nr. 568, Hjördís Þorsteinsdóttir nr. 337 og Björn Þorbjörnsson nr. 10.
Ágætu félagar nú reiðir á að fá fólk í ferðanefnd og skemmtinefnd, svo við getum starfað á fullu eins og undanfarin ár. Endilega gefið ykkur fram við formann félagsins, Soffíu G. Ólafsdóttur í síma 896-5057 eða á husbill@husbill.is
============================================================================
Ágætu félagar!
Lokaferðin var haldin um s.l. helgi, þ.e.: 24. - 26. sept. að Borg í Grímsnesi. 130 bílar mættu á svæðið þrátt fyrir leiðindaveður, rok og rigningu. Á föstudagskvöldinu mættu hljómlistarmenn félagsins upp í hús með hljóðfærin sín og spiluðu af fingrum fram, fram yfir miðnætti. Það er frábært hvað þetta fólk er duglegt að spila og skemmta okkur. Við þurfum að finna nafn á þessa hljómsveit, komið með tillögur gott fólk, sendið á netfang félgsins husbill@husbill.is. Ég vil þakka hljóðfæraleikurunum kærlega fyrir þeirra framlag.
Á laugardeginum byrjaði dagurinn með kjötsúpu í boði félagsins en félagi okkar nr. 727 Stefán Sigurðsson, (Stebbi á Vitanum
Sandgerði) kom með súpuna frá Sandgerði en hann byrjaði daginn kl. 6.00 um morguninn til að laga þessa dýrindis súpu. Henni voru gerð
góð skil, enda mjög góð. Ég vil þakka Vitahjón-unum kærlega fyrir þeirra framlag.
Kl. 13.00 var svo félagsvist og var spilað á 14 borðum og var til mikils að vinna.
Markaðurinn tók svo við kl. 15.00 og var fjöldi söluborða, og margt á boðstólum s.s. kökur, bón og þvottaefni, margskonar
prjónavörur og flott skart. Já, það er hagleiksfólk í félaginu og félögunum margt til lista lagt.
Ungviðið var svo með salinn í tvo klukkutíma og skemmtu hvert öðru.
Kl. 21.00 um kvöldið byrjaði svo skemmtidagskrá sem var í höndum skemmtinefndar og var gaman að sjá að húsið fylltist og ég held
við höfum verið komin með alla stóla sem til voru í húsinu og tóku allir góðan þátt í skemmtuninni og er alveg
frábært hvað skemmtinefndin hefur náð vel til fólksins enda hafa þau lagt sig vel fram og undirbúið sig vel fyrir ferðirnar. Þau voru
með frumsamið efni sem þau hafa samið og sungu fyrir okkur, alveg frábært. Margir vinningar runnu út og þau sem voru hlutskörpust í
félagsvistinni yfir sumarið var Kári Hartmannsson nr. 511 og Brynhildur Bjarnadóttir nr. 91 en þau hlutu gistingu fyrir 1 og miða á
árshátíðina 16. okt. n.k.
Í lok skemmtidagskrárinnar steig á stokk félagi okkar Lárus Skúlason nr. 930 og söng sig inn í hjörtu viðstaddra með gömlum
slögurum s.s. Elvis Presley lagi og Platters, gaman þegar félagarnir troða svona óvænt upp. Ég hvet ykkur félagar sem lumið á svona
hæfileikum að gefa ykkur fram.
Kl. 23.00 hófst dansleikurinn sem Labbi í Mánum og sonur hans sáu um og héldu þeir uppi fjörinu til kl. 02.00 eftir miðnætti. Þar með
lauk þessari frábæru helgi og þó úti blési Kári og ringdi all hressilega þá tók enginn eftir því,
því það var svo gaman hjá okkur.
Ég vil þakka öllu því frábæra fólki sem hefur verið með mér í stjórn og nefndum þetta árið fyrir
frábært starf og ósérhlífni. Það er mikil vinna sem þetta fólk hefur lagt á sig og allt í sjálfboðavinnu sem ber
að þakka, því ef enginn gefur kost á sér að vinna fyrir félagið þá er ekki hægt að halda úti svona fjölbreyttu
starfi eins og hefur verið gert í fjölmörg ár. Við viljum þakka öllum þeim sem hjálpuðu okkur við að “stóla upp”
og ganga frá í félagsheimilinu kærlega fyrir hjálpina, það er gott að eiga ykkur að J.
Árshátíðin er 16. okt. n.k. að Hótel Hvolsvelli og við höfum tækifæri á að mæta á föstudeginum 15. okt. Bókun á árshátíðina hefur gengið nokkuð vel en það er ekki orðið uppselt og því er um að gera að drífa sig í að panta. Verðin eru eftirfarandi: Hjón, 2 nætur 25.800 kr.; hjón 1 nótt 19.800 kr.; einstaklingur 2 nætur 15.400 kr.; einstaklingur 1 nótt 11.400 kr. Innifalið í þessum verðum er: Fordrykkur, (fólk getur valið um hvítvín, rauðvín eða bjór - 2 glös); kvöldverður og skemmtunin á laugardagskvöldinu, ásamt morgunverði á laugardeginum og sunnudeginum. Þeir sem koma eingöngu í kvöldverðinn og skemmtunina á laugardeginum greiða kr. 5.000,- pr. mann.
Hann Óli hótelhaldari segir að við þurfum ekki að yfirgefa herbergin á sunnudeginum fyrr en kl. 14.00 og morgunmaturinn á laugardeginum er frá kl. 9.00 - 11.00 og á sunnudeginum frá kl. 10.00 - 12.00. Þeir sem vilja koma á sínum bílum mega gista fyrir utan hótelið og það kostar ekkert og býður Óli þeim sem það gera að koma í morgunverð fyrir kr. 1.450 pr. mann. Það verður einhver skemmtun á hótelinu á föstudagskvöldinu og þá verða þau með tilboð á mat og einnig drykkjum. Svo er Gallery Pizza í næstu götu og bensínstöðvarnar svo það ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Skemmtinefndin er á fullu að undirbúa dagskrána og verður þar vandað til verka eins og hún hefur sannað okkur í sumar. Hljómsveit hússins mun svo sjá um að við getum tekið snúninginn. Þetta verður bara gaman og hvetjum við ykkur, ágætu félagar, til að mæta á árshátíðina. Þetta er síðasta skemmtun félagsins á þessu ári og þegar við hittumst svo næst verður komið árið 2011. Já tíminn líður.
Þó ferðum sé lokið í bili þá verður nóg að gera hjá stjórn og nefndum við að undirbúa árið 2011. Vinna í félagatalinu mun hefjast sem fyrst. Auglýsingaöflunin tekur sinn tíma og ég hvet ykkur félagar sem þurfið að auglýsa að nýta ykkur þennan miðil því félagatalið er mikið notað og endilega segið ykkar vinum og kunningjum frá þessu frábæra hefti. Við höfum verið mjög heppin með að fá auglýsingar síðastliðin ár og vonandi verður framhald þar á. Ferðanefnd mun svo fara á fullt við að skipuleggja ferðir sumarsins því þar er í mörg horn að líta og skemmtinefndin mun fara í að safna saman ýmsu efni.
Eins og kemur fram á heimasíðu okkar þá hafa einhverjir gleymt að greiða fyrir fimmtudaginn að Borg. Hér er um að ræða 13-15 bíla og þar af voru fjórir á planinu við félagsheimilið. Hlutaðeigandi eru endilega hvattir til að hafa samband við starfsfók sundlaugarinnar – S.486-4402
Þetta sumar er búið að vera mjög lærdómsríkt og skemmtilegt. Ég vil þakka öllum þeim sem komið hafa í ferðir með félaginu í sumar og það hefur verið mjög gaman að sjá hvað nýir félagar hafa verið duglegir að koma í ferðir og vonandi hafa þeir haft ánægju af því.
Ég bið ykkur öllum guðs blessunar og óska þess að þið njótið þess að vera til.
F.h. Stjórnar, ferðanefndar og skemmtinefndar, Soffía G. Ólafsdóttir, formaður.
Viðbót:

Eftirtaldir styrkja hátíðina með ýmiskonar verðlaunum:

Ath! Með því að hægrismella á linkana hér neðan og vista þessi tvö .pdf skjöl(veljið Save Target As), getið
þið síðan prentað út fréttabréfið í hefðbundnu formati. Þið prentið framhliðina á A-4 blað(Stillt á
Landscape) og snúið síðan blaðinu við í prenataranum og prentið innmatinn á bakið. Síðan er bara að brjóta blaðið
saman í miðjunni og þá er komið eitt stykki fréttabréf uppá gamla mátann:-)
Vista
Útforminn
Vista
Innforminn