Flýtilyklar
Október 2011
Ágætu félagar.
Nú er haustið komið með allri sinni litardýrð og Félag húsbílaeigenda hefur lokið skipulögðum ferðum sumarsins.
Síðasta ferðin var Árshátíð félagsins sem haldin var í sal Menntaskólans í Borgarnesi, Hjálmakletti, þetta er flottur salur og góð aðstaða þarna til að halda árshátíð en það komu 204 manns. Við notuðum föstudagskvöldið til að hita okkur upp fyrir árshátíðina á laugardaginn og skemmtum okkur saman við brandara og spiluðum lög á plötum og nokkrir hljóðfæraleikarar komu upp í hús og spiluðu þeir Gulli nr. 200, Snorri nr. 450. Óli nr. 717 og Tryggvi nr. 40, kæru vinir, innilegt þakklæti fyrir spilamennskuna.
Á laugardeginum var spiluð félagsvist á 12 borðum og margir tóku þátt í gátukeppninni og voru vegleg verðlaun í boði, meira að segja mjög vegleg skammarverðlaun, fyrir félagsvistina.
Árshátíðin byrjaði með fordrykk kl. 19.00 og maturinn var frá Gæðakokkum í Borgarnesi, maturinn var góður en eitthvað fór úrskeiðis með forréttinn það var því miður ekki nógu mikið fyrir alla, og fór töluverður tími í það að útvega meiri forrétt, sennilega hefur margt spilað þarna inn í, kokkurinn ekki verið með nógu mikið eða við félagar góðir hrúgað of miklu á diskana okkar en þetta var jú forréttur og maður borðar sig ekki saddann af forrétt, en hverju er um að kenna veit ég ekki en það var nóg til af kjötinu og held ég að allir hafi nú fengið fylli sína, en þegar svona kemur fyrir er ekki um neitt annað að velja en að gera gott úr hlutunum, maður á alltaf að líta á björtu hliðarnar.
Ung stúlka Jóhanna María Þorvaldsdóttir, sem er að læra söng, söng nokkur lög fyrir okkur og var undirleikari hennar var Zsuzsanna, við þökkum þeim stöllum kærlega fyrir þeirra framlag.
Skemmtinefndin tók svo öll völd á sviðinu og var með frábær skemmtiatriði, hverju atriðinu betra og lá salurinn í hlátri allan tímann, Andri á Flandri tekinn fyrir, hundarnir fengu sína athygli, nokkrir félagar fengu sinn skerf og söngatriðin frábær. Veitt voru Gedduverðlaun Félags Húsbílaeigenda 2011. Þessi verðlaun eru heiðursviðurkenningar til þeirra félaga sem hafa skarað fram úr í spunaverkum og gjörningum í ár. Þetta vakti mikla kátínu viðstaddra og var verðlauna afhendingin alveg ekta.
Kuppaspilsmeistaratign ársins: María á Græjunni nr. 162
Hetjutenór ársins: Sævar á Hrannó, nr. 421
Gagnrýnandi ársins: Kristín nr. 770
Djammarar ársins: Gugga og Viðar á Ullmax, nr. 75
Risverðlaun ársins: Sibba á Dalakofanum, nr. 377
Blíðasta kona félagsins. Konan sú hlaut einróma lof fyrir viðskiptaþáttaröð sína: "Ég væri nú löngu komin á hausinn ef ég hefði ekki fengið að borga í blíðu" Vigdís á Trausta, nr. 515
Hnyttnustu setningu sumarsins átti: Óli á Skagaþjarkinum, nr. 501
Já skemmtinefndin tók vel eftir því hvað félagarnir aðhöfðust í sumar. Lokaatriðið, sem var myndband var ekki hægt að sýna vegna tæknierfiðleika í húsinu og var skemmtinefndin mjög leið yfir því enda búin að leggja sig þvílíkt fram með þetta atriði, sem og önnur, en við eigum þetta bara til góða kæru félagar, en það voru tækin í húsinu sem klikkuðu og vorum við ekki látin vita af því, svo það var lítið hægt að gera í þeim efnum. Kæra skemmtinefnd hjartans þakkir fyrir alla ykkar vinnu fyrir félagið, þið hittuð sko í mark, frábær samvinna hjá ykkur, hafið hjartans þökk fyrir. Ég vil einnig þakka öllum í Stjórn féalgsins og í ferðanefnd fyrir alla ykkar vinnu í ferðum sumarsins, og einnig fá makar ykkar mikið þakklæti, þið hafið öll skilað ómetanlegu starfi fyrir félagið, hafið þökk fyrir.
Hljómsveitin Kopar lék svo fyrir dansi til tæplega 03.30 um nóttina. Það getur verið erfitt að velja hljómsveit fyrir svona stóran hóp eins og okkar félag, við erum ólík eins og við erum mörg, einum líkar þetta öðrum eitthvað annað, og sú varð raunin með þessa hljómsveit, sumir voru mjög óánægðir með hana öðrum fannst hún bara fín og svo þarna allt á milli, en við vorum komin til að skemmta okkur og flestir létu þetta ekki hafa áhrif á sig, það er stundum svo erfitt að fara hinn gullna meðalveg, því miður, þá er þetta að vera sveigjanlegur og jákvæður “mottóið” sem gildir. En ég segi þetta var frábær árshátíð, ég þakka öllum þeim félögum sem komu og ég vil nota tækifærið og þakka öllum þeim sem komu upp í hús og hjálpuðu að stóla upp og ganga frá á sunnudeginum, hjartans þökk fyrir hjálpina. Þar með lauk ferðasumri félagsins, þetta sumar hefur verið mjög gott og ferðirnar allar tekist mjög vel, við í stjórn, ferðanefnd og skemmtinefnd viljum þakka öllum þeim sem hafa komið í ferðir félagsins fyrir samveruna og vonum að allir hafi átt gott og gleðilegt sumar í þessum góða félagsskap.
Nú er komið að Aðalfundi féalgsins þann 15.okt. n.k. fundurinn verður í Hásölum í Hafnarfjarðarkirkju og hefst kl. 14.00 . Boðið verður upp á kaffiveitingar að fundi loknum.
Stjórn félagsins gerir tillögu að breytingum á einstaka liðum á lögum félagsins og fylgja þau með þessu fréttabréfi, og endilega takið blöðin með ykkur á fundinn, við munum ekki ljósrita lögin til að dreifa þeim á fundinum, hér er verið að laga nokkur atriði að nútímanum, og laga orðaval, þau sem hafa farið í gegnum lögin eru Björn Þorbjörnsson nr. 10 og einn af stofnendum félagsins, Elinbjörg Magnúsdóttir, nr. 215, Reynir Gunnarsson, varaformaður félagsins, nr. 16 og Soffía Ólafsdóttir, formaður félagsins, nr. 24 einnig nutum við leiðsagnar Magnúsar Norðdahl hdl.
Nokkrir aðilar hverfa úr stjórn núna og eru það Reynir varaformaður nr. 16 Guðbjörg gjaldkeri, nr. 75, Benedikta varamaður, nr. 60. Úr ferðanefnd fara Sævar nr. 421 og Oddný nr. 484. Allir aðilar í skemmtinefndinni hætta þau Elín og Daði nr. 39, Dóra og Einar nr. 392, og Silli og Úlla nr. 400. Öllu þessu ágæta fólki vil ég þakka frábært starf á liðnum árum og góða samvinnu, það er mjög mikilvægt að fá til starfa fólk sem er tilbúið að vinna fyrir félagið og gefa af sínum tíma, við höfum notið þess að starfa með ykkur og ég vona að þið hafið haft gagn og gaman að þessu líka.
Eftirtaldir aðilar hafa gefið kost á sér í Stjórn félagsins það er Anna Pálína Magnúsdóttir nr. 595, Katrín Baldvinsdóttir, nr. 468, Hlíðar Sæmundsson, nr. 2 Ragna Helgadóttir nr. 202 og Páll Þorsteinsson nr. 377.
Í ferðanefndina gefa kost á sér Hrafnhildur Sigurðardóttir, nr. 698, Árni Óskarsson nr. 65, Ásgeir Hjálmarsson nr. 712 og Anna M. Hálfdánardóttir nr. 165.
Í skemmtinefndina gefa kost á sér Sigurbjörg Einarsdóttir nr. 377, Sólborg Þorláksdóttir nr. 16, Rebekka Reynisdóttir, nr. 791
Sem skoðunarmenn reikninga bjóða sig fram Erla Skarphéðinsdóttir, nr. 568, Hjördís Þorsteinsdóttir, nr. 337 og Björn Þorbjörnsson, nr. 10.
Nýir félagar hafa bæst í hópinn, við bjóðum þá alla hjartanlega velkomna í Félag húsbílaeigenda og vonum að þau megi eiga góðar stundir í þessum frábæra félagsskap.
33. Runólfur Ísaksson, Seltjarnarnesi.
218. Sigurlaug Guðmundsdóttir og Frímann Ottósson, Reykjanesbæ.
234. Ragnar Björnsson, Kópavogi.
276. Jón Bjarni Hrólfsson og Rakel Theodóra Heiðarsdóttir, Reykjanesbæ.
291. Sigurður Jón Grímsson og Rósa Sveinsdóttir, Mosfellsbæ.
297. Linda Hrönn Eggertsdóttir og Guðmundur Örn Guðmundsson, Hafnarfirði.
298. Guðrún Ósk Barðardóttir, Hafnarfirði.
316. Björgvin Garðarsson og Sigríður Helga Einarsdóttir, Hveragerði.
364. Jón Jónsson og Kristlaug Björg Sigurðardóttir, Eskifirði.
365. Ólafur Óskarsson og Fanney Valgarðsdóttir, Mosfellsbæ.
367. Sigurbjörn Sveinbjörnsson og Sigurlín Sigurðardóttir, Hvolsvöllur.
381. Örn Harðarson og Halla H. Hallgrímsdóttir, Mosfellsbæ.
382. Hjörtur Númason og Hafdís Gunnarsdóttir, Hólmavík.
431. Birna S. Bjarnadðóttir og Grímur Berthelsen, Garði.
432. Ragnheiður Hjálmarsdóttir og Rögnvaldur Einarsson, Akranes.
443. Vilmundur Árnason og Anna Skaftadóttir, Reykjanesbæ.
452. Sigríður G. Pálsdóttir og Helgi Magnússon, Hafnarfirði.
469. Andrés Þorgeir Garðarsson og Hugrún Halldórsdóttir, Reykjavík.
488. Svavar Guðmundsson og Elísabet Magnúsdóttir, Reykjavík.
503. Olgeir Helgi Ragnarsson og Theodóra Þorsteinsdóttir, Borgarnes.
800. Karl Sigurðsson og Þorbjörg Unnur Magnúsdóttir, Akranes.
Leiðindaatvik átti sér stað á árshátíðinni okkar sem ég er miður mín út af og ég skil ekki hvað fólki gengur til. Einn aðili úr félaginu veittist að saklausri konu og jós yfir hana svívirðingum, þetta er með öllu ófyrirgefanlegt, það hefur enginn rétt á því að niðurlægja aðra manneskju og fólk sem það gerir á ekkert heima í okkar félagi. Þetta er félag þar sem við komum saman í ferðum vítt og breitt um landið til að kynnast landinu okkar og dásemdum þess og njóta samvista við þá mörgu félaga sem eru í þessum félagsskap með gleði og vináttu í huga og þar sem við tökum tillit til hvors annarrs.
Þeir aðilar sem ekki voru búnir að greiða árgjaldið fyrir 1.okt. s.l. hafa nú dottið út af félagsskrá félagsins, ég vil biðja alla þá sem hafa selt bílana sína eða eru hættir í félaginu, eða hafa ekki greitt félagsgjaldið fyrir 1.okt. að afmá merki og númer af bílum sínum en þetta er samkvæmt 5.grein laga í Félagi húsbílaeigenda.
CO2 losun - Lækkun bifreiðagjalda
Fyrirtækið Tækniþjónusta Íslands býður öllum þjónustu sína með því að senda út upplýsingar um hvern og einn bíl og kostar það okkur hvern og einn 1.250,-- kr. til að athuga hvort lækkun verði á þessu gjaldi sem bíllinn hefur fengið á þessu ári. Þetta þarf að gera við hvern bíl fyrir sig, því verður hver og einn að hafa samband við Tækniþjónustu Íslands og þeir athuga hjá samstarfsaðila sínum í Evrópu hvort til séu gögn yfir viðkomandi bíl. Það er um að gera að nýta sér þessa þjónustu hjá Tækniþjónustu Íslands og freista þess að ná niður kostnaði á bifreiðagjöldunum. Netfangið er: info@co2skraning.is
Ágætu félagar, við í stjórn, ferða-og skemmtinefnd þökkum ykkur öllum samfylgdina í sumar, með ósk um að þið hafið notið þess að ferðast með félaginu, vonandi sjáumst við sem flest á Aðalfundinum en nú fer í hönd skemmtilegur tími, eins og jólaundirbúningurinn með ljósadýrð og skemmtilegum samverustundum með fjölskyldunni, njótið alls hins besta og við hittumst svo hress á nýju ári, og þið fylgist með á heimasíðu okkar husbill.is
F.h. Stjórnar, ferða-og skemmtinefndar,
Soffía G. Ólafsdóttir, formaður.
Fundarboð - Aðalfundur
Aðalfundur Félags húsbílaeigenda verður haldinn 15 okt. n.k. kl. 14.00, í Hásölum í Hafnarfjarðarkirkju. Venjuleg aðalfundarstörf, kaffiveitingar að fundi loknum.. Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna.
Eftirtaldir aðilar gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins:, er Anna Pálína Magnúsdóttir nr. 595, Katrín Baldvinsdóttir, nr. 468 Hlíðar Sæmundsson nr. 2, Ragna Helgadóttir, nr. 202, Páll Þorsteinsson nr. 377, einn gefur svar næstu daga.
Í ferðanefnd bjóða sig fram: Hrafnhildur Sigurðardóttir, nr. 698, Árni Óskarsson nr. 65, Anna M. Hálfdánardóttir nr. 165, Ásgeir M. Hjálmarsson nr. 712,
Í skemmtinefnd félagsins bjóða sig fram:Sigurbjörg Einarsdóttir nr. 377, Sólborg Þorláksdóttir nr. 16, Rebekka Reynisdóttir, nr. 791
Sem skoðunarmenn reikninga bjóða sig fram Erla Skarphéðinsdóttir nr. 568, Hjördís Þorsteinsdóttir nr. 337, Björn Þorbjörnsson nr. 10.
Dagskrá aðalfundar:
1. Formaður setur fundinn og gerir tillögur um fundarstjóra.
2. Fundarstjóri gerir tillögu um fundarritara og kynnir dagskrá fundarins.
3. Formaður flytur skýrslu stjórnar.
4. Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins.
5. Umræður um skýrslu formanns og reikninga félagsins
6. Ákvörðun félagsgjalda.
7. Lagabreytingar.
8. Kosningar í stjórn og nefndir.
9. Önnur mál.
1. grein.
Nafn félagsins:
Félagið heitir Félag húsbílaeigenda. Heimili þess og varnarþing er það sama og formanns á hverjum tíma. Félagssvæði þess er allt Ísland. (óbreytt)
2. grein. (Óbreytt)
Markmið félagsins eru:
a) Að ferðast um landið í skipulögðum ferðum.
b) Að standa vörð um hagsmuni húsbílaeigenda.
c) Að efla kynni þeirra á milli.
d) Að stuðla að landkynningu innan félagsins og góðri umgengni um landið.
e) Að efla samstöðu og kynni milli annarra sambærilegra félaga.
3. grein.
Starfsár og félagsgjöld:
a) Starfs- og reikningsár (Starfsár) félagsins er á milli aðalfunda. ( Leiðrétt orðaval)
a) verður þá: Starfs-og reikningsár félagsins er á milli aðalfunda
b) Aðalfund skal halda fyrir 1.nóvember ár hvert. Aðalfund skal boða með minnst viku fyrirvara. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað(bætt inn í í b. lið)
c) Árlegt félagsgjald, með gjalddaga 15. mars, skal ákveða á aðalfundi ár hvert. (Orðinu Árlegt bætt inn)
c) verður þá: Árlegt félagsgjald, með gjalddaga 15. mars. skal ákveða á aðalfundi ár hvert
4. grein
Félagsmenn, réttindi og skyldur
Félagar geta þeir orðið sem eiga þar til gerða húsbíla með föstum innréttingum eða bíla með þar til gerðu húsi. Hafa þeir málfrelsi, tillögurétt, atkvæðisrétt og kjörgengi á fundum félagsins.
Félagsmenn og samferðamenn í boði þeirra sem taka þátt í starfsemi félagsins, í ferðum og afþreyingu eru á eigin ábyrgð og áhættu. (Bætt inn í greinina)
Nýir félagar fá við inngöngu afhent númer og merki félagsins til álímingar á bíla sína.
Hjón og sambýlisfólk eru bæði fullgildir félagar. Þeir félagar sem eiga ekki húsbíla tímabundið,(í allt að 3 ár), halda öllum réttindum í félaginu. (árafjölda bætt inn)
Almennan félagsfund skal boða eftir því sem stjórninni þykir ástæða til og ef a.m.k. 5% félagsmanna(tuttugu félagar) óska þess skriflega og tilgreina fundarefni. (fellt út að aðeins tuttugu félagar geti óskað eftir fundi en bætt inn prósentutölu í staðinn)
Innan 14 daga frá því að ósk félagsmanna kemur fram skal stjórn boða til almenns félagsfundar.
Félagsfundir skulu boðaðir með viku fyrirvara og dagskrárefni tilgreint.
Þessi kafli í 4.greininni mun þá líta út svona:
Almennan félagsfund skal boða eftir því sem stjórninni þykir ástæða til.
Einnig geta 5% félagsmanna óskað þess skriflega að haldinn sé almennur félagsfundur og skulu þeir þá tilgreina fundarefni. Innan 14
daga, frá því að sú ósk félagsmanna kemur fram, skal stjórn boða til almenns félagsfundar.
Félagsfundir skulu boðaðir með viku fyrirvara og dagskrárefni tilgreint. (bætt í 4.grein)
5. grein.
Félagsmenn í Félagi húsbílaeigenda eru skuldbundnir til að:
a) Fylgja lögum félagsins og fundarsamþykktum þess.
b) Greiða félagsgjaldið á tilsettum tíma
c) Fjarlægja merki félagsins úr bílum við sölu þeirra.
d) Tilkynna stjórn um breytingar á högum svo sem nýtt heimilisfang, símanúmer og ef skipt (breytt) er um bíl. (skipt í stað breytt - orðalag)
e) Tilkynna stjórn ef viðkomandi ætlar að hætta í félaginu.
6. grein.
Stjórn félagsins getur vikið félagsmanni úr félaginu ef hann:
a) (Á einhvern hátt) (fellt út) Vinnur gegn hagsmunum félagsins. (fella út 3 fyrstu orðin í lið a)
b) Gerist brotlegur við lög félagsins.
c) Hefur ekki greitt félagsgjald, (yfirstandandi árs fyrir 1. október.) fyrir 1. maí, ár hvert. (breyttur gjalddagi og yfirstandi árs fellt út)
7. grein.
Stjórn félagsins og nefndir:
Stjórn félagsins skal skipuð 5 félögum og 2 til vara sem kosnir eru á aðalfundi. Embætti stjórnar eru: formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari, og vararitari. Komi fram fleiri en ein tillaga, skal kjósa leynilega. Stjórn, utan formanns,(þessum orðum bætt inn) skiptir með sér verkum. Varamenn skulu boðaðir á stjórnarfundi. Hafa þeir málfrelsi og tillögurétt á stjórnarfundum en ekki atkvæðisrétt þegar stjórnin er fullskipuð. Varamenn hafa atkvæðisrétt þegar þeir sitja fund sem staðgenglar stjórnarmanna.
8. grein.
Fastar nefndir félagsins skulu vera:
Skemmtinefnd og ferðanefnd. Þær skulu starfa í eitt ár í senn. Aðalfundur eða stjórn félagsins geta skipað aðrar nefndir til ákveðinna verkefna tímabundið ( breytt orðaval) í stuttan tíma. Stjórn félagsins skal afhenda þeim skipunarbréf þar sem skilgreint er (fram kemur) verkefni (starfsvettvangur) þeirra. (breytt orðalag)
9. grein.
Kosning skal vera sem hér segir:
a) Formaður skal kosinn sérstaklega og skal hann kosinn til tveggja ára í senn.
b) Fjórir félagar skulu kosnir sem meðstjórnendur, þ.e.: tveir ár hvert, til 2ja ára í senn. (bætt inn)
c) Tveir félagar skulu kosnir sem varamenn í stjórn, einn ár hvert, til 2ja ára í senn.(bætt inn)
d) Fjórir félagar að minnstakosti skulu kosnir í skemmtinefnd til 1 árs í senn.(bætt inn)
e) Fjórir félagar skulu kosnir í ferðanefnd til 1 árs í senn. (bætt inn) Að auki situr í henni einn stjórnarmaður.
f) Tvo félaga skal kjósa, sem ár hvert skal kjósa tvöfélagslega skoðunarmenn reikninga og einn til vara, til 1 árs í senn.
Aðrir en formaður skulu kosnir til í senn. (fellur út)
Ákæði til bráðabirgða:
Á aðalfundi félagsins 2011 skulu 2 félagar kjörnir sem meðstjórnendur til 2 ára og 2 félagar sem meðstjórnendur til 1 árs. 1 félagi skal kjörinn sem varamaður til 2 ára og 1 til 1 árs.
10. grein.
Dagskrá aðalfundar skal vera:
1. Formaður setur fundinn og tilnefnir gerir tillögu um fundarstjóra og ritara
fundarins.(fellt út)
Greinin verður þá: Formaður setur fundinn og gerir tillögur um
fundarstjóra.
2. Fundarstjóri gerir tillögu um fundarritara og(bætt inn í)kynnir dagskrá fundarins.
3. Formaður flytur skýrslu stjórnar.
4. Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins.
5. Umræður um skýrslu formanns og reikninga félagsins
6. Hlé.(Fellt út) (laga númerin hér.)
6. Ákvörðun félagsgjalda.
7. Lagabreytingar.
8. Kosningar í stjórn og nefndir.
9. Önnur mál.
11. grein
Starfssvið stjórnar og nefnda, fundarsköp:(fella út þetta orð)
a) Formaður er fulltrúi og ábyrgðarmaður félagsins út á við.
Formaður undirritar bréf í nafni félagsins, hafi ekki öðrum verið gefið umboð til þess. Formaður boðar fundi félagsins, stýrir stjórnarfundunum og semur fyrir þá dagskrá. Formanni er heimilt að skipa fundarstjóra á fundum félagsins enda ber hann ábyrgð á fundarstjórn. Formaður hefur eftirlit með starfsemi félagsins og hann hefur eftirlit með því að fylgt sé lögum þess og samþykktum í öllum greinum. Stjórn ber sameiginlega ábyrgð á félagskrá. Stjórn sér um innheimtu félagsgjalda.
b) varaformaður gegnir störfum formansins í forföllum hans.
c) Ritari annast bókanir fundargerðar í fundargerðarbók. Skal þar getið þeirra mála er fram koma á hverjum fundi og niðurstöður þeirra. Skylt er að bóka nöfn ræðumanna og afstöðu þeirra til viðkomandi mála. Ekki er heimilt að neita mönnum um bókanir á fundum félagsins. Heimilt er að hljóðrita það sem fram kemur á fundunum enda liggi fyrir samþykki fundarins. Ritari ber ábyrgð á að fært sé af hljóðsnældu i fundarbók að fundi loknum. Stjórnarmenn skulu skrifa nöfn sín undir fundargerð.
d) vararitari gegnir sömu störfum og ritari í forföllum hans og aðstoðar ritara sé þess óskað.
e) Gjaldkeri hefur yfirumsjón með öllum fjárreiðum félagsins og skili stjórn yfirliti um fjárreiður þess sé þess óskað. Bókanir skulu ávalt vera til í fundargerðarbók fyrir útgerðum félagsins.
f) Meirihluti stjórnar skuldbindur félagið. Heimilt er stjórn félagsins að veita gjaldkera þess prókúru á reikninga félagsins. (f. liður nýr)
12. grein
Starfssvið skemmtinefndar
Formaður félagsins skal boða til fyrsta fundar skemmti-nefndar og stýra honum.
Nefndin skiptir meðsér verkum þ.e. formaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnendur.(þessi liður felldur út)
Skemmtinefnd skipuleggur skemmtanahald á vegum félagsins í samráði við stjórn.
13. grein
Starfssvið ferðanefndar
Formaður félagsins skal boða til fyrsta fundar ferðanefndar og stýra honum. Nefndin skiptir með sér verkum þ.e. formaður, ritari, gjaldkeri og einn meðstjórnandi og að auki einn úr stjórn.
Ferðanefnd skipuleggur ferðir sem efnt er til á vegum félagsins, kannar aðstöðu til gistingar og útvegar fararstjórn.
14. grein
Kosningar og atkvæðagreiðsla
Heimilt er að greiða atkvæði með handauppréttingu komi ekki fram gagntillaga. Einfaldur meirihluti félagsmanna á fundum gildir í kosningum. Stjórn félagsins metur vafaatriði.
15. grein
Skrifstofa félagsins, fréttabréf:
Stjórn félagsins rekur skrifstofu og annast daglegan rekstur félagsin. Opnunartími skal vera eftir þörfum að mati stjórnar.
Nefndir skulu hafa aðgang að skrifstofunni til fundarhalda í samráði viðstjórn.(fella út þessa línu) Fréttabréf félagsins skulu gefin úr eftir þörfum að mati stjórnar.
16. grein
Lagabreytingar:
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða til. Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn minnst 15 dögum fyrir aðalfund, skriflega og undirritaðar. Tillögum um lagabreytingar skal geta í aðalfundarboði.
17. grein
Félagið lagt niður:
Greinin er í lögunum svona: Félagið er lagt niður ef ¾ greiddra atkvæða á aðalfundi samþykkja þess efnis. Skulu þá eignir þess og sjóðir renna til uppbyggingar þjónustu við húsbílafólk um allt land.
Lagt er til að greinin verði endurbætt til muna og hljóði þannig:
Með tillögu um að leggja félagið niður skal fara með eins og tillögu til lagabreytinga og skal tillögunnar getið sérstaklega í aðalfundarboði. Samþykki aðalfundur með 2/3 hluta greiddra atkvæða að félagið skuli lagt niður, skal þegar í stað efnt til skriflegrar allsherjaratkvæðagreiðslu meðal allra félagsmanna. Staðfesti 3/4 þeirra félagsmanna sem þátt taka í atkvæðagreiðslunni niðurlagningu félagsins telst slík tillaga endanlega samþykkt. Stjórn félagsins skal þá þegar í stað loka reikningum félagsins, undirbúa slit þess og boða slitafund innan 30 daga frá því að talningu atkvæða lauk. Fundinn skal boða með sama hætti og aðalfund. Stjórn skal leggja fyrir fundinn tillögu sína um ráðstöfun á eignum félagsins en þeim skal varið til styrktar viðurkenndu mannúðar eða velferðarstarfi hér á landi.