Flýtilyklar
September 2011
Kæru félagar.
Nú er komið að næst síðustu ferð
félagsins í ár en hún er að Faxa í Biskupstungum 9.-11.sept.
Tjaldsvæðið við Faxa er nýlegt tjaldsvæði
í hinni sögufrægu sveit Biskupstungum, á bökkum Tungufljóts við fossinn Faxa og Tungnaréttir. Tjaldsvæðið er á
rólegum stað í fallegu umhverfi, en samt í alfaraleið og stutt í alla þjónustu. Falleg fjallasýn og gönguleiðir.
Svæðið er um 100 km frá Reykjavík, 50 km frá Selfossi . Keyrt er á bundnu slitlagi alla leið. Í Tungufljót hefur
verið sleppt laxaseiðum í nokkur ár og þar er hægt að fá veiðileyfi. Við tjaldsvæðið er hægt að fá
Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun og blómadropa eða bara njóta veðurblíðunnar í sveitasælunni.
Við vonum að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir og
við fáum gott veður alla helgina og vonandi getum við farið í ýmisskonar spil s.s. kubbaspilið, krikket, svo eitthvað sé nefnt og gaman væri
ef þið félagar góðir eruð með einhver útispil sem ekki eru algeng að koma þeim út og fá fólk í lið, hafa
gaman saman.
Staðarhaldari svæðisins rukkar gjald fyrir helgina og
þeir sem eru með Útilegukortið framvísa sínu korti en þeir sem ekki eru með útilegukortið er boðin gisting pr. nótt á
700,--kr. á mann. Ef fólk vill rafmagn þá er greitt 500,--kr. pr. nótt fyrir bílinn, einnig þeir sem eru með Útilegukortið. Vonandi
sjáumst við sem flest á Faxa.
Lokaferðin er árshátíð félagsins sem haldin
er helgina 23.-25.sept. n.k. í Menntaskóla Borgarfjarðar, Borgarnesi, í sal skólans Hjálmakletti. Dagskráin er sem hér segir:
Föstudagur 23. september:
Skemmtinefndin þarf afnot af sal skólans frá kl. 17.00
– 19.00 fyrir æfingar og undirbúning v/árshátíðar.
Er fólk kemur á staðinn fá þeir sem hafa
skráð sig á árshátíðina barmmerki sem jafnframt er aðgöngumiði að helginni, vinsamlegast hafið merkið á ykkur svo
dyraverðirnir sjái að þið séuð búin að borga.
Einnig fá allir gátublað það þriðja
í röðinni í sumar.
Kl. 20.00 þá notum við félagsmenn salinn, og
er um að gera að leika sér saman , t.d. á hljóðfæri, syngja, eða taka í spil, setja plötu á fóninn
og fá sér snúning, nú eða bara spjalla um daginn og veðrið.
Munið að föstudagar eru hattadagar....
Laugardagur 24. september:
Gátublaðinu skilað í þar til gerðan kassa
í anddyri skólans, skilafrestur til kl. 17.00.
Kl. 13.00 verður spiluð félagsvist í sal
skólans
Kl. 15.00 – 17.00 Skólinn lokaður vegna æfinga
skemmtinefndar.
Kl. 17.00 Stjórn og nefndarfólk skreytir salinn, dekkar
borð og gerir tilbúið fyrir kvöldið.
Kl. 19.00 Húsið opnar með fordrykk.
Kl. 20.00—03.00 Borðhald, skemmtidagskrá og dansleikur
með hljómsveitinni Kopar.
Veitt verða verðlaun fyrir gátulausnir, félagsvistina
og bílahappdrætti.
Boðið er upp á þriggja rétta hlaðborð,sem
samanstendur af:
Forréttarhlaðborð
Reyktur lax m/shantilysósa, Grafinn lax
m/sinnepssósu
Sjávarréttapate m/shantilysósu Hreindýrapate m
/cumberlandsósu
Brauðbar og smjör
Steikarahlaðborð:
Grillsteikt lambasteik—Grísaofnsteik--Gratineraðar
kartöflur
Grænmeti – Villijurtasósa--Ferskt salat.
Eftirréttur:
Fromace alla fine.
Nú þegar hafa 60 manns skráð sig á
árshátíðina og vil ég beina því til þeirra sem ætla að koma, endilega drífa sig í því að skrá
sig, en skráningu þarf að vera lokið fyrir 18.sept. n.k. Það kostar 3.500,--kr. pr mann 12. ára og eldri, yngri greiða 1.750,--kr.
Nú er um að gera að fjölmenna á
árshátíðina, skemmtinefndin er á fullu að æfa fyrir árshátíðina og verður gaman að fylgjast með hvað hefur rekið
á fjörur þeirra úr ferðum félagsins í sumar.
Við mætum svo félagar góðir í okkar
fínasta pússi, samkvæmisklæðnaði, því þetta verður flott árshátíð.
Aðalfundur félagsins verður 15.okt. n.k. í
Hásölum í Hafnarfjarðarkirkju.
Ennþá vantar fólk í stjórn og nefndir,
það vantar 4 í stjórn félagsins, það vantar í skemmtinefndina, og í ferðanefnd, ég vil hvetja ykkur félagar góðir
að gefa kost á ykkur til starfa fyrir félagið þetta er áskorun sem er þroskandi, krefjandi en skemmtilegt og maður kynnist félögunum miklu
betur. Þeir sem starfa í stjórn og nefndum fá smá umbun fyrir sín störf s.s. borga ekki árgjaldið og eru fríir í ferðum
félagsins. Endilega íhugið það að koma til starfa, hafið samband við formann Soffíu í síma 896-5057 eða sendið
tölvupóst á husbill@husbill.is
Ógreidd félagsgjöld 2011, enn eru nokkrir sem ekki hafa
greitt félagsgjald fyrir árið 2011, þeir hafa ennþá tíma eða til 1.okt. n.k. eftir það missa þeir númerið sem
þeir eru með og ég vil einnig minna þá aðila sem hafa hætt í félaginu að þeir eiga að taka númerin og félagsmerkin af
bílunum sínum skv. lögum félgsins.
Ferðin að Garðskaga helgina 19.-21.ágúst
tókst mjög vel veðrið lék við okkur það var bongó blíða alla helgina, fólk sat utan við bíla sína langt fram
á kvöld við spjall og hljóðfæraleikarar sem á staðnum voru sátu úti og spiluðu af fingrum fram og kunni fólk vel að meta
þessa snillinga og tóku vel undir í söng. Ásgeir fór með okkur í fræðandi ferð í vissan radíus frá vitanum
létt ganga fyrir flesta og ég sem er nú uppalin á þessum bletti var margs vísari og ég hélt ég vissi allt um þetta svæði.
Margir fóru upp í vitann og nutu útsýnisins. Skellt var upp kaffihlaðborði með muffins, kleinum og jólakökum en þetta var afgangur
frá Hvítasunnunni , svo nú er kistan mín orðin tóm. Formaður skemmtinefndar hann Sævar átti afmæli var 55.ára og hann
skellti upp veislu og það var mikil traffík í kringum bílinn hans, takk fyrir veisluna Sævar. Brosandi fólk, kátt og skemmtilegt yfirgaf
svo svæðið á sunudeginum, með góðar minningar í farteskinu, takk fyrir skemmtilega helgi, góðir félagar.
Ábending: Ég fékk ábendingu um að minna
fólk á, að alls ekki tæma affallstankana á bílunum sínum þar sem þeir hafa komið sér fyrir á tjaldstæðunum, ef
affallsvatnið hefur staðið lengi í tankinum þá myndast oft mikil lykt sem er ansi hvimleið og ekki skemmtilegt fyrir þá sem koma á
eftir á staðinn lenda í vatnselginum og vondri lykt. Höfum þetta í huga og göngum vel um hvar sem við komum.
Kæru félagar, hlökkum til að sjá ykkur um
helgina og á árshátíðinni.
Hallar sumri hausta tekur
húmið tekur völd.
Hljóðar nætur huga vekur
hamingjunnar kvöld.
Kvöldsins roði kveikir bál
kyrrðin landið vefur.
Lífgar andann litar sál
lífsins neista gefur.
(Geir Thorsteinsson)
F.h. stjórnar og nefnda, Soffía G.
Ólafsdóttir, formaður
Nýtt efni
Á næstunni
3.03.2012
24.03.2012
5.05.2012
11.05.2012
25.05.2012