Flýtilyklar
Skýrsla formanns 2010
Ávarp formanns
Ágætu félagar velkomin á aðalfund Félags húsbílaeigenda 2010, ég segi þennan aðalfund settan.
Ég vil byrja á því að tilnefna fundarstjóra fyrir þennan fund og sting upp á Elínbjörgu Magnúsdóttur félaga okkar nr. 215, er fundurinn samþykkur því? Gjörðu svo vel Elínbjörg.
Ágætu félagar, hjartanlega velkomin á þennan fund og gaman að sjá hvað vel er mætt., ég vil byrja á því að biðja ykkur um að rísa úr sætum og minnast látinna félaga með mínútu þögn. Takk fyrir.
Starfið frá síðasta aðalfundi hefur verið líflegt og blómlegt, fljótlega eftir aðalfund hittust stjórnir og nefndir og skipulögðu starfið framundan, fólk skipti með sér verkum og þegar það lá fyrir fór hver nefnd að vinna sína vinnu.
Ferðanefnd fór í þá miklu vinnu að finna út hvert ætti að halda nú í sumar og það liggur mikil vinna í því að tala við staðarhaldara á hverjum stað, fá tilboð, bóka hús, athuga hvaða staði er hægt að skoða á þeirri leið sem farin er eins og t.d. í Stóru ferðinni, það er í mörg horn að líta og þar sem fundarmenn búa ekki allir á sama stað þá þurfa þeir að koma sér saman hvar á að hittast og sumir þurfa að keyra þó nokkrar vegalengdir til að hitta félagana, en allt hefst þetta nú með sameiginlegu átaki og skipulagningu. En þó sé búið að skipuleggja ferðirnar og ákveða hvert halda skal þá er vinnan ekki búin því það er nóg fyrir ferðanefnd að gera í ferðum að rukka alla sem koma og afhenda doppur og merki þegar þau eru notuð, þessvegna er það svo mikilvægt að allir leggist á eitt og geri þetta starf þeirra sem verið er að vinna í sjálfboðavinnu léttara og séu t.d. alltaf með peninga tilbúna ákkúrat fyrir ferðunum og ef vill svo til að enginn er við innkeyrslurnar þegar komið er á staðinn að hafa upp á ferðanefndinni og greiða að sjálfsdáðum, það léttir undir.
Skemmtinefndin þau skipulögðu sitt starf og hafa þau verið með metnaðarfulla dagkrá í ferðum okkar þetta árið, þau buðu upp á Country- dans, og fengu sal í Mosfellsbæ og þangað komu þó nokkrir félagar og lærðu sporin og hafa svo verið að rifja þetta upp á ferðum okkar í sumar, þetta var mjög vinsælt og kannski verður þetta endurtekið, mér hefur heyrst á nokkrum félögum að það sé vilji til að læra meira. Skemmtinefndi hefur verið mjög dugleg að safna vinningum fyrir félagið sem þau hafa verið að gefa í ferðum í sumar og þar komið með margar nýjungar s.s. að draga út númer þeirra bíla sem mæta í ferðir, fengu flugvél til að henda út karamellum um hvítasunnuna, farið í leiki, eins og kubbaleikinn og voru þar mörg lið og mikill ákafi og mikil keppni í gangi. Ég er ekki enn búin að jafna mig að hafa tapað. Svo var farið í ratleik og veitt hafa verið vegleg verðlaun fyrir allt þetta og meira til, vegna þess að þau hafa fengið svo góðar móttökur hjá fjölda fyrirtækja og logo þessara fyrirtækja hafa verið sett í dagskrána sem hefur farið á heimasíðu okkar og við viljum endilega beina því til ykkar ágætu félagar að versla við þessi fyrirtæki ef þið getið og eins ef þið komið í þessi fyrirtæki að láta í ljós ánægju með vinningana sem gefnir hafa verið til félagsins þó svo maður hafi ekki verið svo heppin að fá vinning, þetta er frábært framtak. Svo hefur félagsvistin aldeilis fest sig í sessi og var sú nýjung að hafa vegleg verðlaun fyrir þá sem hæstir væru yfir allt sumarið.
Stjórnin hefur haldið 11 fundi, fundirnir eru haldnir á heimili mínu, einn fund héldum við í Súfistanum í Hafnarfirði með öllum nefndum, hittumst þar á miðri leið og skipulögðum Hvítasunnuhelgina.
Sigurður Vilmundsson stjórnarmaður var tengiliður stjórnar við ferðanefnd.
Farið var fljótlega eftir áramótin í auglýsingasöfnun í félagatalið sem gekk bara vonum framar, farið var í fyrirtæki, stjórnin skipti með sér auglýsingasöfnninni og fóru nokkrir stjórnarmenn t.d. í heimsókn til fyrirtækja einnig voru sendir tölvupóstar og ég gæti trúað að ég hafi sent um 70-80 tölvupósta til hinna ýmsu fyrirtækja og stofnana og það voru mörg neiin sem maður fékk en þetta hefst ekkert nema að reyna og kynna þá í leiðinni okkar starfsemi, við erum með mjög góðan auglýsingamiðill sem og auglýsingarnar ná til margra enda um 1300-1400 manns í þessu félagi og þessi bók er í bílunum okkar allt sumarið og ég veit að félagarnir varðveita hana mjög vel, því flöggum við mikið þegar við erum að selja auglýsingu í bókina.
Gefin hafa verið út 6 fréttabréf á þessu ári og allir sem eru komnir með netföng fá þau send á netföngin sín en ennþá eru 159 manns sem ekki eru með netföng og haf þau fengið fréttabréfin send heim til sín. Ég tók mig til fyrir nokkru og eyddi tveimur hálfum dögum í það að hringja í fólk sem ekki voru með netföng og það voru mjög margir sem hafa gleymt að tilkynna þetta til okkar en það var voða gaman að spjalla við félagana ekki leiðinlegt, endilega félagar góðir ef þið eruð með netföng þá sendið til stjórnar. Þetta sparar mikinn kostnað fyrir félagið. Þar sem þetta eru orðnir svona fáir þá prentum við þetta sjálf á ljósritunarvélinni okkar og netstjórinn hann Steini setur þetta upp fyrir okkur.
Eins og þið heyrið hér á þessari upptalningu þá er mikið starf sem unnið er hjá félaginu, þetta er stórt félag, og ég hef áhyggjur af því hvað fáir gefa kost á sér í störf fyrir félagið, það hefur enginn hringt í mig og sagt , heyrðu ég er tilbúin/nn til að fara í þessa nefnd eða stjórn, við höfum verið að hringja í aðila og fá þá til að gefa kost á sér og þá er þetta oft bara sjálfsagt mál, þetta er bara kannske feimni, en ég bið ykkur um að íhuga það að þótt þetta sé vinna þá er þetta skemmtilegt og gaman að taka þátt og byggja upp skemmtilegann félagsskap og ef einhver vandamál koma upp þá leysum við það, það er ekki vandamál, bara verkefni við erum jú fulloðið fólk og búin að takast á við margt í lífinu og höfum öll einhverja reynslu, sem við getum miðlað til hvors annars.
Úr félaginu hafa farið í kringum 71 númer og á þessu ári hafa 67 númer gegnið í félagið og eru á bak við þá tölu 120 aðilar. Þannig að núna eru 687 virk númer í félaginu, á s.l. ári voru þeir 704 hafa fækkað á milli ára um 17 em þetta er svona svipuð tala á hverju ári sem fara út og koma inn, en við skulum hvetja þá sem við þekkjum að ganga í félagið. Það er svo margt sem félagið okkar hefur upp á að bjóða, þetta er skemmtilegur félagsskapur með skemmtilegu fólki og svo eru ýmiss tilboð sem félagið fær sem félagarnir geta nýtt sér. Verið dugleg að auglýsa félagið okkar.
Stjórnin lét skrá félagsmerkið okkar hjá Einkastofunni þannig að nú er merkið eign Félagsins og það eitt má nota merkið, þessi skráning gildir í 10 ár og þá þarf að endurnýja leyfið, lesa það sem er aftan á.
Ég hvet alla félagsmenn um að hafa bílana sína vel merkta með númeri bílsins og félagsmerki og gaman væri að sem flestir væru með nön á bílunum.
Í dag erum við með aðalfundinn í Reykjavík en það hefur ekki verið haldinn fundur á þessu svæði ansi lengi enda
höfum við fengið athugasemdir um það, sem er bara allt í lagi, en það stafar nú af því að það er mjög erfitt
að fá hús hér fyrir stóran hóp eins og okkur sem kostar ekki fúlgu fjár, það er svo margfalt dýrara það er
þrefalt til fjórfalt dýrara t.d. hér í dag en salurinn í Fjölbrautarskóla Suðurnesja svo ég taki smá viðmið og
þar fyrir utan verðum við svo að kaupa veitingarnar út, þannig að ef þið vitið um góða sali á Reykjavíkur-svæðinu
sem eru ekki svona dýrir væri gott að láta stjórn vita af því, en það er gott að hafa þetta eins og verið hefur að dreifa
fundunum vera ekki alltaf með þá á sama stað,hafið augun opin fyrir félagið.
Ferðir félagsins.
Jólafundur var haldinn 21.nóv. að Húnabúð, þar sem var opið hús og markaður að deginum til og boðið upp
á vöfflur og kleinur, myndasýning frá ferðum sumarsins, því miður komu frekar fáir og það var svo
mikið eftir af bakkelsinu að við gáfum það til Samhjálpar sem voru mjög þakklát fyrir. En þeir sem mættu voru
ánægðir með að hitta félagana og spjalla og um kvöldið var dansleikur og var þetta eins og gott afmælispartý, því
miður alltof fáir.
Fyrsta ferðin á þessu ári var Óvissuferð sem farin var 20.feb. veðrið leit ekki allt of vel út snjókoma kvöldið áður en lagaðist með morgninum svo haldið var í hann, byrjaði ferðin á Selfossi og voru það milli 50-60 manns sem komu í þessa ferð, en hann Sigurdór sem er í ferðanefnd hann keyrði rútuna sem var fengin hjá ÞÁ-bílum og svo var fólk pikkað upp á hinum ýmsu stöðum og lá leiðin á Suðurnesin, farið var í DUUS-safnið, víkingasafnið, farið upp Keflavíkurflugvöll Ásbrú og ýmislegt skoðað í Reykjanesbæ, Sævar var leiðsögumaður, endað var svo í Grindavík og þá tók Sigurður Grindjáni við og ferðin enduð í kaffihlaðborði í Salthúsinu. Sigurdór, Sævar og Sigurður þetta tókst mjög vel hjá ykkur og hafið þökk fyrir. Fólk kom alla leið úr Kolbeinsstaðahrepp og Akranesi vestan megin frá og frá Hellu og Selfossi austan megin og svo héðan af þéttbýlinu, þetta var mjög skemmtilegur dagur.
Skoðunardagur félagsins hefur verið haldinn í mörg ár og hefur Aðalskoðun hf.séð um að þjónusta félagið, og höfum við átt við þau mjög góð viðskipti og fengið góða þjónustu. Nú var leitað tilboða hjá Aðalskoðun og Frumherja, tilboðið frá Frumherja var mjög gott og barst fyrir þann tíma sem beðið hafði verið um og þeir buðu okkur að hafa skoðunardaginn 24.apríl að Hesthásli 6-8 í Reykjavík en þar er mjög gott aðgengi, og buðu þeir upp á kaffi og vínarbrauð strax um morguninn og grilluðu svo pulsur þegar nær dróg hádegi. Það kostaði 5.200 kr. á bíl óháð stærð og gilti þetta tilboð til 1.júlí á öllum stöðvum Frumherja. Með því að taka þessu tilboði þá var félagið að þjóna þeim félögum sem búa út á landi því skoðunarstöðvar Frumherja eru á mörgum stöðum á landsbyggðinni og mæltist þetta vel fyrir hjá flestum okkar félögum, hvort sem þeir búa á Stór Reykjavíkur svæðinu eða landsbyggðinni. Það komu að mig minnir eitthvað í kringum 75 bílar í skoðun þennan dag, ég leitaði til nokkurra hljómlistamanna sem eru í félaginu og bað þá um hvort þeir gætu spilað fyrir okkur og var það auðsótt mál og skapaðist þarna mjög góð stemming og var létt yfir fólki og starfsfólk Frumherja var mjög ánægt með þennan dag og allir þeir félagar sem komu, það kíktu margir við þó þeir væru ekki að láta skoða bílinn, gaman að því.
Ferðir sumarsins voru 6 talsins, fyrsta ferðin var að Félagsgarði í Kjós. Það komu um 130 bílar og var veðrið okkur afskaplega hliðstætt. Föstudagskvöldið leið með spjalli, söng og tónlist, fólk gladdist við að hitta vini sína og svo kynnist maður alltaf nýju fólki og gaman að sjá hversu nýir félagar voru duglegir að mæta. Í þessari ferð gengu tvenn hjón í félagið. Laugardagurinn hófst með ratleik fyrir alla fjölskylduna og tóku margir þátt. Mikið pælt og hugsað og endaði þetta með samvinnu allra.
Í hádeginu á laugardeginum bauð Eggert, á Lykilbílum á Akranesi, uppá ljúffengu kjötsúpu sem rann ljúft niður. Skemmtilegt framtak hjá Eggerti, og kunnum við honum beztu þakkir. Síðan var spiluð félagsvist á 9 borðum. Um kvöldið var verðlaunaafhending fyrir ratleikinn og eins fyrir hvort tveggja félagsvistina og mætingu á svæðið. Frábærir vinningar. Svo spiluðu félagsmenn fyrir dansi og þökkum við hjartanlega fyrir þeirra framlag. Það er frábært að eiga svona hæfileikaríkt fólk í félaginu. Endað var á að spila svo tónlist af diskum, Það var svo gott veður á sunnudaginn að fólk hreinlega ætlaði ekki að fást heim.
Hvítasunnuhelgin, 21. - 24. maí Fyrstu gestirnir komu á fimmtudeginum, en þessa helgi komu 170 bílar og veðrið allan tímann bongóblíða. Á föstudagskvöldinu setti varaformaður félagsins skemmtunina og nokkur ungmenni spiluðu á hljóðfæri og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Stefán G. Óskarsson hélt svo uppi stuðinu til kl. 1.00 eftir miðnætti en hann spilaði á skemmtara, mikið fjör, mikið gaman.
Á laugardeginum kom flugvél sem lét rigna niður karamellum og var víst handagangur í öskjunni. Hestar voru á svæðinu fyrir yngstu kynslóðina og nutu þess margir, markaður á sínum stað og unga fólkið fékk síðan afnot að húsinu til að vera með uppákomu fyrir sig. Um kvöldið léku svo “Blek og byttur” fyrir dansi og fyrsta klukkutímann komu spilarar úr Félagi húsbílaeigenda og spiluðu með þeim.
Sunnudagurinn rann svo upp með sömu veðurblíðunni. Spiluð var félagsvist og var spilað á 17 borðum, frábær þátttaka og það þrátt fyrir að veðrið væri svona gott. Eftir spilavistina var komið að hvítasunnukaffinu, borðið svignaði af kræsingum, rjómatertum, brauðtertum, kleinum og muffins og okkur telst til að þar hafi drukkið 400-500 manns og sem betur fer var nóg handa öllum en það er greinilegt að það hafa komið margir gestir sem notið hafa veitinganna hjá okkur.
Eftir kaffið var hið vinsæla Bingó og var þar margt góðra vinninga.
Þegar fólkið mætti á svæðið fengu allir fyrri part og áttu að skila botnum fyrir vissan tíma þessi leikur hefur yfirleitt verið í Stóru-ferðinni, þarna braut skemmtinefndin heðfðina og fór vel á því, því hvítasunnuferðin er alltaf svo vel sótt, enda var þátttakan góð. Það voru veitt þrenn verðlaun fyrir mismunandi botna og Sigurður Árnason nr. 357 fékk tvenn veðlaun enda góður hagyrðingur og Ómar Skarphéðinsson nr. 428 fékk verðlaun fyrir sinn botn.
Kvöldið endaði svo á því að hljómsveitin “félagsmenn” lék fyrir dansi og félagarnir svifu í dansinn og svo var endað á því að spila tónlist af plötum til kl. 01.00 eftir miðnætti. Þessi helgi tókst mjög vel.
En eitt langar mig til að tala um hér, ég hef reyndar sett þetta í fréttabréf, það var farið í rjómaterturnar og brauðterturnar á laugardagskvöldinu en þær voru geymdar í kæli í eldhúsinu það voru sneiddar vænar sneiðar af þremur rjómatertunum og einnig tekið vænar sneiðar af tveimur brauðtertunum. Mér finnst það með ólíkindum að einhverjum skuli detta í hug að fara inn í eldhús og eyðileggja svona fyrir félögum sínum, okkur sem voru í forsvari fyrir þessu féllust alveg hendur og við vorum mjög sár yfir þessu, en við vitum ekki hver gerði þetta en kannski hefur einhver séð til viðkomandi og segir okkur þá frá því seinna.
Nú eins og allir vita þá byrjaði gos í Eyjafjallajökli um miðjan apríl og olli miklum usla ekki bara í sínu nánasta umhverfi heldur út um allan heim og við vorum mjög uggandi yfir ferðunum okkar í sumar og þá sérstaklega hugsaði maður til þeirra staða sem næstir vour gossvæðinu en 18. - 20. júní var Hallgeirsey heimsótt og var veðrið svona þokkalegt og við sluppum við alla ösku því vindáttin var það hagstæð. . Á staðinn komu um 50-60 bílar og undi fólk sér við ýmislegt á sínum forsendum, m.a. fór staðarhaldari með fólk í trukkatúr um fjöruna, nokkrir fjórhjólamenn þeystust á sínum fákum um sandana og alla leið inn í Þórsmörk, hlustað var á dansmúsik á pallinum og spjallað við félagana.Það að komu svona fáir held ég að hafi verið ótti við öskufall og lái þeim hver sem vill.
Stóra ferðin var svo 10-18.júlí um Austurlandið og byrjað í Freysnesi, í þessari ferð voru 58 bílar, og var sá háttur hafður á að hver og einn réð sínum brottfaratíma og engin leiðsögn var á milli staða en við fengum góðan leiðarvísir í upphafi ferðar. Okkur er ekki stætt á því að vera í langri halarófu vegna öryggis á vegunum það er orðin það mikil umferð á okkar þjóðvegum. Við fengum góða leiðsögn heimamanna eins og á Breiðdalsvík og einnig í rútuferðinni frá Reyðarfirði til Eskifjarðar og Norðfjarðar, og við komum við í bakaleiðinni í Randulfssjóhúsum við Mjóeyri þar sem boðið var upp á harðfisk, mjög gaman að koma í þessi hús. Og einnig komum við í Álverið og vorum leidd um allan sannleika um það og nutum þar góðrar veitinga. Á Reyðarfirði þar sem við stöppuðum í tvo daga þá var haldið útibíngó sem var mjög skemmtilegt og markaður, og var þetta bara á milli bílanna okkar og skapaðist skemmtileg stemming. Það var spilað og sungið, farið í leiki og sá skemmtinefndin um að halda okkur við efnið. Þessari viku lauk í grenjandi rigningu í Hjaltalundi í Hjaltastaðaþinghá þar sem hver grillaði fyrir sig, svo mættu allir prúðbúnir með hatta á skemmtunina kl. níu um kvöldið og var gaman að sjá hvað mikil sköpunargleði var í hattagerðinni. Það voru veitt verðlaun Jói vindhani eins og hann kallar sig gjarnan sjálfur, á Lobba-koti nr. 500 fékk verðlaun en hann var með heklaða hanahúfu og Ólöf á Dögginni nr. 532 var með heimagerða húfu, þetta var bara skemmtilegt. En skemmtinefndin sótti um inngöngu í Hattavinafélag Húsavíkur og komust þar inn og nú erum við meðlimir þar og nú skulu allir föstudagar þegar ferðir eru hjá okkur vera hattadagar og eins og Daði segir „heimskur er hattlaus maður“
Helgina 20. - 22. ágúst var ferð að Logalandi í Borgarfirði. Þangað komu um 90 bílar. Þetta var gjaldfrí ferð. Það blés töluvert á okkur en hélst þurrt, Á föstudagskvöldinu var komið saman upp í félagsheimili og sungið saman úr söngbókinni og svo spiluðu félagarnir Gulli og Snorri fyrir dansi. Spilað var til kl. 1.00 eftir miðnætti. Á laugardeginum var farið í kubbakeppni og tóku margir þátt í þessum skemmtilega leik en eitt lið stóð uppi sem sigurvegarar og kölluðu þau sig “nýliðana” og voru margir í því liði gestir félaga okkar. Þetta var hörkukeppni og skemmtileg.
Á eftir þessari keppni bauð félagið upp á kaffi og kökur og svo var félagsvist á eftir og var spilað á 16 borðum, um kvöldið var svo verðlaunaafhending, sungið og spilað og voru það Daði og Tryggvi sem spiluðu undir á gítara og einnig spilaði Daði á lítinn saxófón, sagðir voru brandarar, og margt, margt fleira. Spiluð músik af plötum og svo enduðu harmonikkuleikarnir Gulli, nr. 200, Snorri nr. 450 og Steini nr. 59 ballið með því að þenja nikkurnar til kl. 2.00 eftir miðnætti. Góð ferð.
Í þessari ferð og einnig í hvítasunnuferðinni þá gistu félagar í herbergi í félagsheimilunum og þeir urðu fyrir því að það var farið í herbergin hjá þeim og frá þeim tekið vín, það er miður að svona hafi gerst en segir okkur að læsa t.d. bílunum okkar þegar við erum ekki í þeim.
Lokaferðin var haldin 24. - 26. sept. að Borg í Grímsnesi. 130 bílar mættu á svæðið þrátt fyrir leiðinda veður, rok og rigningu. Á föstudagskvöldinu mættu hljómlistarmenn félagsins upp í hús með hljóðfærin sín og spiluðu af fingrum fram, fram yfir miðnætti.
Á laugardeginum byrjaði dagurinn með kjötsúpu í boði félagsins en félagi okkar nr. 727 Stefán Sigurðsson, (Stebbi á Vitanum Sandgerði) kom með súpuna frá Sandgerði en hann byrjaði daginn kl. 6.00 um morguninn til að laga þessa dýrindis súpu. Henni voru gerð góð skil, enda mjög góð.
Kl. 13.00 var svo félagsvist og var spilað á 14 borðum og var til mikils að vinna.
Markaðurinn tók svo við kl. 15.00 og var fjöldi söluborða,
Kl. 21.00 um kvöldið byrjaði svo skemmtidagskrá sem var í höndum skemmtinefndar og var gaman að sjá að húsið fylltist og ég held við höfum verið komin með alla stóla sem til voru í húsinu og tóku allir góðan þátt í skemmtuninni og er alveg frábært hvað skemmtinefndin hefur náð vel til fólksins enda hafa þau lagt sig vel fram og undirbúið sig vel fyrir ferðirnar. Þau voru með frumsamið efni sem þau hafa samið og sungu fyrir okkur, alveg frábært. Leikþáttur þar sem félagsmenn tóku þátt í og Siggi Hannesar spilaði undir. Margir vinningar runnu út og þau sem voru hlutskörpust í félagsvistinni yfir sumarið var Kári Hartmannsson nr. 511 og Brynhildur Bjarnadóttir nr. 91 en þau hlutu gistingu fyrir 1 og miða á árshátíðina 16. okt. n.k.
Í lok skemmtidagskrárinnar steig á stokk félagi okkar Lárus Skúlason nr. 930 og söng sig inn í hjörtu viðstaddra með gömlum
slögurum s.s. Elvis Presley lagi og Platters, gaman þegar félagarnir troða svona óvænt upp. Ég hvet ykkur félagar sem lumið á svona
hæfileikum að gefa ykkur fram.
Kl. 23.00 hófst dansleikurinn sem Labbi í Mánum og sonur hans sáu um og héldu þeir uppi fjörinu til kl. 02.00 eftir miðnætti. Þar með
lauk þessari frábæru helgi og þó úti blési Kári og ringdi all hressilega þá tók enginn eftir því,
því það var svo gaman hjá okkur.
Ég vil minna ykkur öll á Árshátíðina sem er n.k. laugardag að Hótel Hvolsvelli, eins og þið hafið séð á heimasíðunni þá er veglegt veisluborð á laugardeginum kvöldið byrjar með fordrykk kl. 19.00 í boði félagsins og skemmtinefndin er á fullu að æfa fyrir hátðina og verður það spennandi að sjá. Við hvetjum ykku að mæta og munum við selja miða hér í kaffihléinu og eftir fund, koma svo gott fólk það er ennþá til miðar bæði í gistingu og mat og svo megið þið koma á bílnum ykkar ef þið viljið það.
Eins og þið heyrið af þessari upptalningu hjá mér þá er mikil dagskrá í ferðunum yfirleitt og mikið um að vera en þetta er hægt af því að það fólk sem gefur kost á sér í stjórn og nefndir er svo duglegt að vinna í ferðunum, Það að starfa í stjórn og nefndum í jafnstóru félagi og okkar, er allt annað en auðvelt verk. Og það að gera jafn stórum hóp og okkar til hæfis er alger ógjörningur. Í félaginu er fólk á öllum aldri með ólíkar skoðanir, væntingar og þrár. Ekki veit ég félagar góðir, hvort þið gerið ykkur grein fyrir því hvað það liggur mikil vinna að baki því að halda uppi svona félagsskap, allavega ættu þeir sem eru búnir að vera í stjórn og nefndum að vita það. Höfum það hugfast að þeir sem gefa kost á sér í þessi störf fyrir félagið eru að gera þetta í sjálfboðavinnu, og eyða þar með dýrmætum frítíma, sínum og sinnar fjölskyldu, í þágu félagsmanna allra. Það skyldi því aldrei álitið sjálfsagt.
Við vitum að það verða aldrei allir ánægðir með allt sem framkvæmt er og það hefur komið fyrir að hreitt hafi verið í nefndarmenn ónotum. Og af því skapast óþarfa leiðindi sem við eigum ekki að láta líðast. En öll erum við jú mannleg og breisk. Okkur getur því öllum orðið á. Þetta þurfum við því að laga, hvert og eitt okkar.
Stjórn og nefndir sem kosnar eru hverju sinni, reyna að koma með ýmsar hugmyndir og brydda upp á einhverju nýju. Þannig verður jú fjölbreytnin í félagsskapnum. Stjórn og nefndir eiga, hverju sinni, að hafa óbundnar hendur um það hvernig þær vilja haga starfseminni, enda væri óþarfi að kjósa nýja stjórn á hverju ári ef hún ætti alltaf að endurtaka blint, það sem stjórnir fyrri ára hafa gert.
Ég vona að það nýja fólk sem hefur verið að koma í félagið finni að það er velkomið, það hefur oft verið talað um klíkur í ferðum en ég er ekki sammála því, ég vil frekar tala um hópa, og er það bara ekki af hinu góða og bara eðlilegt. Þetta er svona svipað og kjarnafjölskyldur innan stórfjölskyldunnar, þegar við ferðumst saman þá er það stórfjölskyldan að ferðast saman. Það hefur verið gaman að sjá þegar veðrið er gott og fólk situr fyrir utan bílana konurnar að prjóna og karlarnir ditta að bílunum og tjatta á sinn hátt, allt í einu er kominn stór grúbba í prjóna klúbbinn og handavinnan skoðuð hjá hvort öðru, svona myndast tengslin og fyrr en varir tilheyrir maður einhverjum hóp. Ég tel að okkur hafi tekist vel upp að vera opið félag, þar sem nýir félagar eru velkomnir og þeir ýmist falla inn í hópa sem fyrir eru eða það myndast nýir hópar í kringum þá.
En við sem eldri erum í félaginu og höfum verið þar lengi verðum alltaf að hafa í huga að taka vel á móti nýjum félögum og láta þá finna að þeir eru hjartanlega velkomnir, jafnt inn í félagið, sem og inn í okkar litlu hópa.
Mér hefur þótt afskaplega vænt um hvað nýir félagar hafa verið duglegir að koma með okkur bæði s.l. ár og í sumar.
Ég er búin að vera formaður í þessu félagi núna í tvö ár, ótrúlegt hvað þetta er fljótt að líða, þetta hefur verið mjög lærdómsríkt fyrir mig og ég hef kynnst mörgu góðu fólki það hefur stundum tekið á en það sem stendur upp úr er bara skemmtilegt og maður er að komast vel inn í ýmsa hluti, ég er tilbúin að gefa kost á mér aftur í næstu tvö árin , og það er út af því að ég hef verið svo heppin að hafa gott fólk með mér í stjórn og nefndum, fyrir það þakka ég af einlægni.
Ágætu félagar, ég vil nota tækifærið og þakka öllum félögum í Félagi húsbílaeigenda fyrir ánæguleg kynni og ég vil sérstaklega þakka öllum þeim fjölmörgu hljómlistamönnum sem komið hafa fram á skemmtunum hjá félaginu og ég þakka ykkur hvað þið hafið gefið mikið af ykkur, það eru ekki mörg félög sem státa af svona glæsilegu tónlistafólki, ég vona svo sannarlega að við fáum að njóta krafta ykkar áfram, ágæta fólk.
Ykkur sem hafið verið með mér í stjórn þakka ég frábært samstarf, ferðanefnd og skemmtinefnd, þakka ykkur fyrir vel unnin störf þið hafið staðið ykkur frábærlega vel. Og síðan en ekki síst vil ég þakka honum Þorsteini netstjóra hjartanlega fyrir alla hjálpina hann er mín stoð og stytta í tölvumálunum og sér algjörlega um allt sem fer á heimasíðuna okkar, ásamt öllum auglýsingunum og bara ef ég lendi í vandræðum þá leysir hann úr því.
Skoðunarmenn reikninga takk fyrir samvinnuna.
Ágætu félagar komið með ábendingar til stjórnar og nefnda það er alltaf gott að heyra álit sem flestra, þó ekki sé alltaf hægt að uppfylla allar óskir, en þá er bara að skoða hlutina og velta þeim fyrir sér.
Höldum áfram að vinna vel fyrir félagið okkar, eflum það og styrkjum.
Takk fyrir gott fólk.
Soffía G. Ólafsdóttir, formaður