|
Skýrsla formanns árið 2009
Ágætu félagar, ég vil byrja á því að biðja ykkur um að rísa úr sætum og minnast látinna
félaga....Þakka ykkur fyrir.
Ég hefði nú viljað sjá hér fleiri í dag en það er víst ekkert við því að gera. Nú er tæpt ár
síðan ég tók við formennsku í félaginu og hefur þetta ár verið mér lærdómsríkt og ljúft. Fyrsta verk mitt
var að setja Árshátíðina sem var haldin á Grand Hótel 8.nóv. á síðasta ári og man ég að ég kom nokkrum
sinnum upp í pontu og þótti Gísla Einarssyni skemmtanastjóra þetta farið að vera helst til of mikið og bað guð að hjálpa ykkur
ef ég ætlaði alltaf að vera upp í pontu.... þarna mættu 100 manns, árshátíðin tókst mjög vel en það hefðu
fleiri félagar mátt taka þátt í þeim gleðskap.
Nú eftir hálfan mánuð þá er Árshátíðin okkar að Hótel Örk og nú þegar eru komin um 100 manns en við
viljum fá fleiri og það er verið að selja á Árshátíðna núna í hléinu við þurfum að fjölmenna á
þessa skemmtun sem verður hin flottasta, við munum koma saman í kjallaranum á föstudeginum og syngja saman því ég á svo sannarlega von
á að einhverjir hljóðfæraleikarar verði á staðnum og geti spilað fyrir okkur. Á laugardaginn byrjar skemmtunin með fordrykk kl. 19.00
í boði félagsins, í sal sem þeir kalla Ölgerðis bar. Kiddi Rót verður skemmtanastjóri og þeir Sævar Helgi og
Þórhallur Þórhallsson (Litli Laddi) verða með skemmtilegar uppákomur. Dans á Rósum sjá svo um að allir dansi svo um munar til kl.
02.00 eftir miðnætti. Happdrætti verður á sínum stað og er fjöldi góðra vinninga, og nú er um að gera að skrá sig í
hléinu.
Á síðastliðnu ári slepptum við jólafundinum og það voru ekki allir sáttir við það, en nú í nóvember
verðum við með jólafund og sköpum góða jóla-stemmingu.
Fljótlega eftir áramótin var farið að vinna í félagatalinu, við töluðum við Litlaprent náðum góðum samningum við
þá og voru þeir mjög liprir og þægilegir að eiga við. Stjórnin skipti með sér verkum þannig að hver og einn tók að
sér að tala við nokkur fyrirtæki og leita eftir auglýsingum og gekk þetta vonum framar miðað við ástandið í
þjóðfélaginu á þessum tíma, auglýsingarnar hafa skilað sér mjög vel. Góugleði var haldin 21.feb. í
Húnabúð og var góð mæting, að deginum til var haldinn markaður þar sem bæði Félagið og félagsmenn voru með sölu
á sínum vörum og allir þáðu kaffi, kleinur og vöfflur í boði félagsins, einnig var spiluð félagsvist svo um kvöldið var
dansleikur og sá hljómsveitin "Bara tveir" um tónlistina og félagarnir dönsuðu mikið og skemmtu sér vel. Konan sem sér um salinn í
Húnabúð hafði á orði hvað þetta væri skemmtilegur hópur og dansaði mikið. Á miðnætti fengu allar konur rós, sem
kom skemmtilega á óvart.
Skoðunardagurinn var hjá Aðalskoðun í Hafnarfirði og var hann 25.apríl og hafa aldrei komið eins margir bílar í skoðun eins og núna
í ár eða vel yfir 100 bílar, þetta gekk samt ótrúlega vel fyrir sig, þó manni hafi nú ekkert litist á röðina sem
myndaðist, þeir hjá Aðalskoðun höfðu auglýst að skoðunin stæði yfir frá kl. 8.30 til 12.00 en ég held að þeir hafi
verið að til kl. 2.00 allir fengu kaffi og kleinur og eiga þeir starfsmenn hjá Aðalskoðun sem voru við vinnu þennan dag, þakkir skildar fyrir hvað vel
þeir tóku á móti okkur. Ferðafundurinn var haldinn í þessum sal 14.mars s.l. og var vel mætt eða um 200 manns og voru ferðir sumarsins
kynntar og samþykktar og var talað um að þetta væru kreppuferðir, því þær náðu hér á Suðurlandið austast til
Hvolsvallar og svo vestur að Arnarstapa þetta voru 7 ferðir, eins og á fyrra ári.
Fyrsta ferðin var að Félagsgarði í Kjós, við höfðum búist við að margir kæmu í þessa ferð eða vel yfir 100
bílar en það komu um 85 bílar, enda megum við okkur lítils gagnvart veðrinu og einmitt þessa helgi blés hann allduglega það
náði víst 37 hnútum á sekúndu sem er bara fárviðri á Kjalarnesinu en Sigurjón fór þetta og fann ekki fyrir þessu, en
bílar eins og ég á, hafa ekkert að gera út í svona veður eða eins og einhver kallaði þá "pappakassarnir" enda eigum við ekki að
fara út í svona veður því ef eitthvað kæmi fyrir þá erum við ekki einu sinni tryggð í svona fárviðri, en við
verðum hver og einn að meta aðstæður hverju sinni því við erum jú á okkar eigin ábyrgð. Eitthvað var betra veðrið ef
farið var Kjósarskarðið en það eru margir sem muna þessa ferð og þegar komið var á leiðarenda voru sumir ansi gráir, guggnir og
þreyttir, og einhverjir héngu í topplúgunum alla leið svo þær færu ekki út í buskann, aðrir biðu veðrið af sér
til laugardags og var það vel, Kári var líka að stríða okkur þegar Arnarstapaferðin var, þó það hafi kannski ekki verið
alveg eins hvasst í vindhviðunum en stuttu áður höfðu 3 húsbílar fokið út af veginum þarna fyrir vestan svo Hr. Kári vindur
hafði mikil áhrif á mætingu í þessar tvær ferðir, og ég get alveg sagt ykkur það að hjartað í mér er ansi
lítið þegar hann blæs svona hressilega.En sem betur fer kom ekkert fyrir hjá okkar félögum og er maður þakklátur fyrir það.
Hvítasunnuferðin var á sínum stað, og mættu 120 bílar. Þessi ferð er alltaf jafn vinsæl og margt gert þá helgi sér til
skemmtunar og var gönguferðin í hellirinn og söngurinn þar minnistætt, allavega fyrir mig. Veiðiferðin að Hítarvatni var í
júní þangað komu ekki nema um 25 bílar, sem var alltof lítið, þessi ferð var gjaldfrí, en ég held að margir hafi haldið
að vegurinn þangað væri mjög vondur en svo var nú ekki, það var nú ekki mikil veiði en einhverjir settu samt í hann en veðrið var
gott og þeir sem mættu þarna áttu notalega stund saman. Það má vera að skrif inn á Gestabókinni okkar um að fólk ætti
frekar að fara á aðra staði hafi haft eitthvað að segja en það er nú ekki gott þegar einhver er að skrifa á móti ferðunum okkar
inn á okkar vef, fólk sem ekki er jafnvel í félaginu, þetta hefur komið fyrir í að minnsta kosti tvisvar sem ég man eftir á þessu
ári, eitthvað til skoðunar fyrir okkur í stjórninni.
Stóra ferðin tókst vel og voru 60-70 bílar sem voru á ferðinni alla vikuna , en fólk kom og fór svona eins og gengur en í lokin í
Þykkvabænum voru 117 bílar. Veðrið lék við okkur allan tímann og þó þetta væri nú bara um Suðurlandið
þá var þarna margt sem maður skoðaði í fyrsta sinn og þessi hópur náði mjög vel saman, mikið sungið, spilað, og
dansað. Það var einn staður í þessari ferð sem afar fáir höfðu heimsótt en það var tjaldstæðið sem kallast
Grandavör en staðurinn heitir Hallgeirsey í Landeyjunum, þetta var eins og vin í eyðimörkinni, þessi staður heillaði mig algjörlega,
þarna var boðið upp á trukkaferð og þeir sem voru með fjórhjól með sér fóru rúnt um fjöruna, alveg yndislegt, og svo var
dansað um kvöldið og sungið. Það er búið að koma þarna upp nokkrum bátum og innrétta í þeim bar, bekkir og dansgólf
komið fyrir þarna bara frábært. Í Þykkvabænum var okkur boðið að skoða kartöflu-verksmiðjuna og þar var vel tekið á
móti okkur með snakki, öli og gosi, því miður lentu svo bændur þar stuttu seinna að fá næturfrost í garðana hjá
sér og urðu fyrir miklu tjóni, því miður.
Stokkseyri tók vel á móti okkur þar er margt hægt að gera og nýtti fólk sér það sem staðurinn hafði upp á að
bjóða hver eftir sínu höfði og fengum við að fara inn í tjald sem þeir eru með á stað sem kallað er Töfragarðurinn og
þar var spilað og sungið en þetta var heldur langt frá tjaldstæðinu svo það var ekki farið þangað seinna kvöldið, enda
veðrið gott og hljóðfæraleikararnir spiluðu bara úti og fólk hafði gaman að, ekki skemmdi það að einn félagi okkar átti
afmæli og henni munaði ekki um að búa til súpu og ég held að það hafi bara allir fengið eitthvað, Benný mín takk fyrir
það, gaman þegar félagarnir koma svona á óvart. Lokaferðin var haldin fyrir þremur vikum í Sandgerði og mættu 140 bílar og var
þröngt lagt á planinu fyrir utan Samkomuhúsið, en það var bara allt í lagi einhverjir voru á tjaldstæðinu sem er hið
glæsilegasta.Boðið var upp á kjötsúpu í hádeginu á laugardag og borðuðu um 260 manns. Farið var með rútum í
kynnisferð um hluta svæðisins eða í Hvalsneskirkju og í Reykjanesvirkjun, margt, margt fleira var gert sem ég ætla ekki að tíunda hér en
það sem ég hef heyrt var að fólk var mjög ánægt með þessa síðustu ferð sumarsins og þá erum við
ánægð sem erum í stjórn og nefndum félagsins.
Ég er bara mjög ánægð með ferðir sumarsins og ferðanefnd stóð vel að undirbúningi ferðanna og í Stóru ferðinni var
útbúið flott ferðalýsing um þá staði sem við heimsóttum og hvað væri að sjá og gera á hverjum stað, hafið
kærar þakkir fyrir ferðanefnd og ég held að hún Vigdís mín á Trausta hafi aðeins komið þarna að, þakka ykkur öllum
kærlega fyrir. Ég hefði viljað sjá fleiri félaga mæta í ferðirnar en það er margt sem glepur fyrir eins og
bæjarhátíðir hér og þar og margar mjög veglegar og auðvitað velur fólk, það er bara af því góða en
mér fannst mjög ánægjulegt hvað nýir félagar voru duglegir að koma í ferðir og ég vona svo sannarlega að þeir hafi notið
þess að vera í okkar félagsskap, við reynum eftir bestu getu að taka vel á móti nýliðum. Félagsvistin hefur fest sig í sessi og
markaðurinn þegar við erum með hús.
Stjórnin hefur haldið 10 fundi, þar sem lagt var á ráðin með fréttabréfin, félagatalið, ferðirnar, og að allt væri til
reiðu þegar að ferðunum kæmi og vorum við í sambandi við ferðanefnd og skemmtinefnd eins og við töldum þurfa, þessir fundir hafa allir
verið haldnir á mínu heimili. 5 fréttabréf hafa verið send út og eru þau prentuð og brotin hjá Grágás hér í
Reykjanesbæ, mjög lipur og góð þjónusta hjá þeim. Þetta er fækkun á fréttabréfum, því við viljum nota
heimasíðuna okkar meira og einnig viljum við ná niður kostnaði við sendingu á fréttabréfunum, bæði póstgjaldi og prentun.,
því biðla ég enn og aftur til ykkar að senda mér netföngin ykkar og er hér listi ég bið ykkur um að skrifa nöfnin ykkar á
hann númer á bílnum og svo netfangið, því við viljum í framtíðinni að þið lesið fréttabréfin inni á
síðunni okkar og þeir sem vilja eiga fréttabréfin, geta þá sjálfir prentað þau út úr tölvunni sinni, þetta
væri mikill sparnaður fyrir félagið, við getum alltaf gert eitthvað annað skemmtilegt fyrir peninginn sem sparast á þessu.
Við í stjórninni vorum sammála því strax á fyrstu fundum okkar að hafa gjald á hverri ferð mjög sanngjarnt fyrir félagana, og
ein ferð var gjaldfrí það var Veiðiferðin eins og ég minntist á áðan, enda eru allar ferðir sumarsins í mínus, en það
er allt í lagi það er alveg til fyrir þessu og félagarnir eiga þá bara að njóta þess. Keypt var lokuð kerra fyrir vörurnar sem
félagið á og er að selja. Þetta er mikill munur, en áður fyrr þurfti alltaf að vera selflytja þetta á milli húsa og svo í
nokkra bíla og þið getið ímyndað ykkur hvað þetta hefur tekið á, það er bara ekki fyrir mig að bera þunga kassa eða
töskur á milli staða.
Leitað var eftir nafni hjá félögunum á kerruna og bárust 35 nöfn frá 14 félögum og valdi Stjórnin nafnið
Vöruskjólið og er kerran nr. 1 í félaginu og er búið að merkja hana í bak og fyrir Það var félagi nr. 740 Kristín
Hlíf Andrésdóttir sem sendi þetta nafn Um síðustu áramót féllu út 70 númer þeirra aðila sem ekki höfðu
borgað fyrir árið 2008. Nú eru í félaginu 714 númer, 38 númer hafa ekki greitt árgjaldið fyrir 2009 og tel ég nokkuð
víst að þeir munu ekki greiða fyrir áramót, (þeir eru ekki inni í heildartölunni) ég hef sent þeim bréf og ekki fengið
viðbrögð við því. En í ár gengu 123 manns í félagið sem þýða 68 númer. Í öllum ferðum
félagsins í sumar hafa félagar okkar sem kunna á hljóðfæri verið duglegir að spila fyrir okkur, ég vil þakka þeim
fjölmörgu sem hafa komið fram og skemmt okkur, innilega fyrir ykkar framlag það er alveg ómetanlegt fyrir svona félagsskap að hafa svona frábæra
hljóðfæraleikara, hjartans þökk.
Ég vil líka þakka þeim börnum sem hafa skemmt okkur hjartanlega fyrir og vil hvetja þau til að gera meira af þessu, það er svo skemmtilegt
að koma með vel æft skemmtiatriði og sýna okkur eins og stelpurnar gerðu í Þykkvabænum og foreldrar, afar, ömmur hvetjið krakkana í
þessu. Ég vil hvetja ykkur til að nota spjallið á heimasíðunni okkar meira en hefur verið gert, einnig Gestabókina, mér þótti
gaman að fara þarna inn í vikunni og sjá hvað félagarnir hafa gist margar nætur í bílunum sínum það var að
sjálfsögðu misjafnt en sá sem var með flestar næturnar var yfir 70 nætur ég er viss um að einhverjir hafa gist fleiri nætur það
á bara eftir að koma fram. Þarna er hægt að segja ferðasögur og frá skemmtilegum stöðum og vera með líflega og skemmtilega
frásagnir og skiptast á skoðunum en við skulum láta allt niðurrif eiga sig, það er nóg af því annarsstaðar, verum uppbyggileg og
málefnaleg. Nú í ár verður mikil breyting á stjórninni en úr henni eru að hverfa 4 aðilar sem hafa verið í 4 ár
það eru þau Tryggvi varaformaður, Valdi gjaldkeri, Árni ritari og Valdís varamaður, einnig eru að hverfa úr ferðanefndinni miklir jaxlar sem hafa
sinnt áður störfum fyrir félagið, en hafa verið núna í ferðanefndinni í 2 ár, það eru þeir Sigurjón, Sævar
(hennar Dittu) Jón Gunnar, og Steini Sævar og úr skemmtinefndinni Kristín og Valtýr sem hafa verið í eitt ár og Lauga og Sævar sem hafa
verið í 2 ár. Þetta fólk hefur gefið félaginu mikið af tíma sínum og sinnt starfi sínu eins vel og þau hafa getað, fyrir
það ber að þakka, og ekki síður mökum þeirra því alltaf reynir þetta á þá líka, kæru félagar
hjartans þakkir fyrir vel unnin störf.
En sem betur fer hefur fólk gefið kost á sér til setu í stjórn og nefndir og það munum við velja hér á eftir. Hver er tilgangur
félagsins og hvað viljum við fá út úr þessum félagsskap, í lögum félagsins segir Tilgangurinn er að ferðast um landið
í skipulögðum ferðum, standa vörð um hagsmuni húsbílaeigenda, efla kynni milli þeirra, að stuðla að landkynningu innan félagsins og
góðri umgengi um landið og efla samstöðu og kynni milli annarra sambærilegra félaga , svo eitthvað sé nefnt, þetta erum við að vinna
í og vinnum saman að og við megum ekki missa sjónar af því, ég held að við viljum öll að félagið okkar stækki og
blómstri og að það sé til fyrirmyndar en félagið er ekkert annað en félagarnir sem í því er og því fylgir mikil
ábyrgð á herðum okkar allra að við komum vel fram í hvívetna, bæði gagnvart félögum okkar, sem eru að ferðast með okkur
í langan eða stuttan tíma, umhverfinu okkar, að við missum okkur ekki í argi og þrasi við félagana.
Ég hef verið að vinna með formönnum Flakkaranna og Húsvagnafélagsins en við höfum skipt með okkur verkum, þannig að leita til
tjaldstæða eftir tilboðum fyrir okkar félaga og okkur hefur miðað aðeins í þessu verkefni, og einnig að leita eftir tilboðum hjá
fyrirtækjum en þetta er mjög tímafrekt, og því miður þá gefst nú ekki tími í allt sem mann myndi langa til að gera,
því þetta er jú sjálfboðavinna sem við erum í, við sem höfum tekið að okkur vera í stjórn og nefndum, og það
ætti að virða við það fólk sem er tilbúið að gefa svona mikið af sínum tíma í þágu annarra.
Ég hef stundum sagt að félagið okkar sé þverskurður af þjóðfélaginu, í félaginu er fólk í flestum
atvinnugreinum og stéttum þjóðfélagsins, við höfum öll okkar væntingar og þrár, eigum ýmiss áhugamál, við erum
eins ólík eins og við erum mörg en við eigum allavega eitt sameiginlegt áhugamál, það er Húsbíll, og við sem erum hér
höfum valið þetta félag, Félag Húsbílaeigenda til að vera í. Félagið okkar er orðið stórt félag og eins og gefur
að skilja þá eru kannski ekki allir sammála um allt en þá þarf að virða sjónarmið hvors annars, við getum alveg ímyndað
okkur að við séum eins og eitt byggðarlag, í einu litlu byggðarlagi þá eru ekki allir alltaf sammála en við verðum alltaf að hafa
í huga og hafa að leiðarljósi að koma vel fram hvort annað, virða hvort annað. Ef ágreiningur kemur upp á milli manna, þá verða
viðkomendur að leysa það, það er enginn betur til þess fallinn. Ég rakst á eftirfarandi á "Fésinu" og langar að deila
því með ykkur, alltaf gott að fá heilræði:
Aldrei skaltu að leiðum lesti, leita í fari annars manns.
Aðeins kafa ennþá dýpra eftir bestu kostum hans.
Við viljum öll að í félaginu okkar ríki góður andi og gott viðmót það getur enginn skapað nema við Félagarnir sem erum
í félaginu og mér hefur alltaf fundist ríkja gott andrúmsloft í þessu félagi en því miður eru ekki allir því
sammála núna, en þá er ekkert annað fyrir okkur öll en að bretta upp ermar og snúa þessu við. Við gerum þetta félag
það besta og skemmtilegasta í sameiningu.
Í lokin vil ég deila með ykkur eftirfarandi ljóði.
Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,
Sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar
Svo oft leyndist strengur í brjósti sem brast,
Við biturt andsvar, gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
Sem aldrei verður tekið til baka.
Ágætu félagar ég vil þakka ykkur fyrir samstarfið á þessu ári, og vona að þið hafið öll notið þeirra
ferða sem þið hafið farið í eða funda sem þið hafið mætt á hjá félaginu, ég vil einnig hvetja ykkur að koma
með ábendingar til okkar í Stjórn og nefndum það er alltaf gott að heyra álit sem flestra, þó svo við getum ekki alltaf uppfyllt allt
sem þið óskið eftir, þá skoðum við hlutina og veltum þeim fyrir okkur. Höldum áfram að vinna vel fyrir félagið okkar, eflum
það og styrkjum.
Takk fyrir gott fólk.
Soffía G. Ólafsdóttir, formaður

Prenta út
skýrsluna |
|
|
|
Smelltu á myndina af prentaranum hér til hliðar, til að prenta út fréttabréfið beint af vefsíðunni. |
|