Deila og Bókamerkja

Félag húsbílaeigenda - husbill.is

CO2 losun - Lækkun bifreiðagjalda Ágætu félagar. Talsvert hefur verið um það að haft hafi verið samband við  mig vegna þeirra hækkunar sem hafa orðið

Fréttir

Ágætu félagar.

Talsvert hefur verið um það að haft hafi verið samband við  mig vegna þeirra hækkunar sem hafa orðið á bifreiðagjöldum á þessu ári sem stafa af skatti  sem settur var á húsbíla og flutningabíla svo kölluð CO2 losun (vegna mengunar útblásturs).

Fyrirtækið  Tækniþjónusta Íslands  býður öllum þjónustu sína með því að senda út upplýsingar um hvern og einn bíl og kostar það okkur 1.250,-- kr. til að athuga hvort lækkun verði á þessu gjaldi sem bíllinn hefur fengið á þessu ári. Þetta þarf að gera við hvern bíl fyrir sig, því verður hver og einn að hafa samband við Tækniþjónustu Íslands og þeir athuga hjá samstarfsaðila sínum í Evrópu hvort til séu gögn yfir viðkomandi bíl. Það er um að gera að nýta sér þessa þjónustu hjá Tækniþjónustu Íslands og freista þess að ná niður kostnaði á bifreiðagjöldunum. Lesið vel leiðbeiningarna hér fyrir neðan og farið inn á heimasíðu þeirra og þar getið þið skráð ykkur eftir að þið hafið aflað þeirra gagna sem til þarf.

Með von um að sem flestir geti lækkað hjá sér bifreiðagjöldin. 

Með kveðju, Soffía

Hérna eru leiðbeiningarnar og eins getið þið farið á leiðbeingasíðuna undir linknum:
FÉLAGIÐ - GAGNLEGAR UPPLÝSINGAR - nú eða farið beint á vef  Tækniþjónustu Íslands




Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.

Skrifa athugasemd






captcha

Töfraljós - Ilmkertagerð
Stefna

Mynd augnabliksins

42.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf