Á heimasíðu okkar www.CO2skraning.is eru allar leiðbeiningar hvernig á að bera sig að til að kanna hvort hægt verði að lækka bifreiðagjöldin.
1. Skref er að senda okkur fastnúmer og mynd af gerðarplötu bílsins ( það er plata sem er oftast í hurðarfölsum og er með verksmiðjunúmeri og þyngdum bílsiins ).
Síða þarf upplýsingar um hvort bíllinn er beinskiptur eða sjálfskiptur. Við þurfum einnig að vita hvort hann er framdrifin – afturhjóladrifin eða 4x4 ( sídrif ).
Þetta fyrsta skref kostar aðeins 1.250 kr. með vsk.
Þegar við höfum þetta sendum við fyrirspurn út til
samstarfsaðilla okkar í Evrópu og könnum hvort þeir eiga gögn yfir bílinn.
Það kemur fyrir að bílaframleiðandinn hefur fengið undanþágu
frá því að þurfa CO2 losunar tölur vegna lítils upplags. Ef svo er getum við
ekki fengið gögn.
Í þeim tilfellum sem gögn fást er yfirleitt talsverður munur á þeim gjöldum sem greidd eru í dag og þeim gjöldum sem greidd verða eftir leiðréttingu. Það er algengt að gjöld lækki um 20 til 40 þúsund á ári. Ef bíleigandi hefur ofgreitt fæst endurgreiðsla frá Tollstjóra frá síðustu áramótum.
2. Skref er gert eftir að það liggur fyrir hvort breytingin er hagstæð. Vottuð gögn um CO2 losunar tölur kosta hjá okkur 20.000 krónur með vsk. Eftir að við greiðum fyrir gögnin erlendis þá senda samstarfsaðillar okkar gögnin rafrænt til Umferðarstofu sem breytir skráningunni.
Nokkrum dögum seinna leiðréttast gjöldin hjá Tollstjóra en við það getur myndast inneign.
Bíllinn verður síðan með leiðrétt gjöld í framtíðinni.
Kveðja,
Viktor Urbancic - info@co2skraning.is