Helstu fréttir ársins 2009
[ 8. desember 2009 ]- Ágætu félagar
Stjórn og nefndir eru lítillega farin að huga að næsta sumri og eftir áramótin verður farið á fullt að skipuleggja starfið og vinna
að félagatalinu og safna auglýsingum. En það tekur sinn tíma og við viljum beina því að ykkur félagar góðir að ef
þið vitið um einhverja sem vilja auglýsa í félagatalinu okkar að hafa samband við okkur í stjórninni og láta okkur vita, svo við
getum haft samband við viðkomandi.
Við viljum benda ykkur á að Félagið er með ýmsar góðar vörur sem eru fínar í jólapakkann, s.s. jakka með merki
félagsins, polo-boli á dömur og herra, lítil handklæði, öryggislykil, áfengismæli, spilin góðu einföld og tvöföld,
könnur og glös, þið getið hringt í formanninn í síma 896-5057 og við gætum mælt okkur mót og við gætum komið
þessu til ykkar, endilega hikið ekki við það að hafa samband.
Þeir félagar sem ekki hafa enn greitt félagsgjaldið fyrir árið 2009, detta út af skrá hjá félaginu nú um áramótin
og missa þar af leiðandi númerin sín. Það er ánægjulegt að segja frá því að það eru alltaf að koma ein og ein
umsók til félagsins nú á haustdögum, fólk sem vill vera í Félaginu okkar. Það er líka eitthvað um að fólk segir
sig úr félaginu vegna ýmissa aðstæðna s.s. fólk hefur selt bílinn sinn, vegna heilsubrest, hefur misst maka sinn, fær sér
hjólhýsi, sumarbústað eða bara eitthvað annað, ástæðurnar eru margbreytilegar, þetta er ekkert meira en hefur verið undanfarin
ár.
Við í stjórn og nefndum vonum, félagar góðir, að þið finnið í Félaginu okkar eitthvað við ykkar hæfi og getið
ferðast með okkur í náinni framtíð, og munið að félagið er ekkert annað en félagarnir sem í félaginu eru. Leggið ykkar
af mörkum til að gera þetta félag skemmtilegt og gott.
Ferðanefnd og skemmtinefnd hefur komið saman og eru þau þegar farin að leggja drög að ferðum félagsins, það fæst ekkert enn gefið upp
hvert verður farið en hér skal komið á framfæri nokkrum atriðum.
Takið þessar dagsetningar frá og setjið inn í minnisbókina ykkar:
Óvissuferð verður farin 27. feb. 2010 og eins og gefur að skilja þá er ekki gefið upp hvert verður farið því þetta er
óvissuferð, en þetta er ferð fyrir alla aldurshópa, engin erfið ganga eða þess háttar en það verður farið með rútu.
Þetta verður auglýst nánar þegar nær dregur og það þarf að skrá sig í þessa ferð því það
þarf að panta rútu og því verðum við að vita fjöldann, fylgist vel með á heimasíðunni, en við munum gefa út
fréttabréf fyrir þessa ferð. Við vonum að það verði góð þáttaka í þessa ferð, það er verið að
reyna að brydda upp á einhverju nýju.
Ferðafundurinn verður haldinn 20. mars 2010 kl. 14.00 í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ.
Stóra ferðin byrjar 10. júlí-17. júlí 2010. Nú er hægt að miða sumarfríið út frá
þessu….
Aðalfundur félagsins verður haldinn 9. okt. 2010, fundarstaður auglýstur síðar.
Árshátíðin verður haldin 15. - 17. okt 2010 á Hótel Hvolsvelli , það er gert ráð fyrir tveimur nóttum fyrir
okkur, því það eru margir sem vilja mæta á föstudeginum 15. okt.
Nú er aðventan komin með öllum sínum ljósum, skrauti, og jafnvel svolitlu stressi sem fylgir oft þessum árstíma þegar allir eru að
undirbúa jólin, hver á sinn hátt, en þetta er líka tími fjölskyldunnar þar sem hún kemur saman og vinnur að undirbúningi
jólanna á margvíslegann hátt, svo sem að skreyta, baka, föndra, hlýða á jólatónlist og fara á tónleika, við
vonum góðir félagar að þið njótið vel jólaaðventunnar.
Þann 21.nóv.s.l. var jólafundurinn okkar haldinn í Húnabúð og byrjaði hann með Markaði kl. 13.30 þar sem þó nokkrir
félagar okkar komu og seldu sínar vörur ásamt félaginu, það voru látnar rúlla myndir frá sumrinu, sem Reynir Gunnarsson,
varaformaður félagsins á og hafði tekið saman.
Boðið var upp á kaffiveitingar, sem samanstóð af vöfflum, kleinum og piparkökum, við í stjórninni höfðum búist við
töluvert af fólki og urðum fyrir vonbrigðum hvað komu fáir en það voru svona um 90-100 manns sem litu inn , þar af leiðandi var heilmikill afgangur,
en við færðum Samhjálp það sem gekk af og kom það sér vel á þeim stað.
Ekki voru margir sem tóku þátt í Félagsvistinni en það var spilað á 5 borðum.
Kl. 22.00 byrjaði dansleikur og spilaði Mummi Hermanns og það var sama sagan þar að það voru ekki margir af félögunum sem létu sjá sig
og var þetta svona eins og gott "party", sennilega er svo mikið um að vera hjá öllum og marg sem er í boði á þessum tíma, og ekki er
hægt að vera allsstaðar. En þeir sem mættu nutu þess að hitta félagana og eiga stund með þeim.
Ég vil benda á að það væri tilvalið að fá í jólagjöf gjafakort á Hótel Hvolsvöll sem hægt væri
að nýta t.d. á árshátíðina hjá Félaginu, það er oft að aðstandendur okkar eru í vandræðum með
jólagjöf handa fólki sem á allt, vildi aðeins benda á þetta. Kæru félagar, stjórn félagsins, ferðanefnd og skemmtinefnd
sendir öllum félögum í Félagi Húsbílaeigenda, bestu óskir um gleðileg jól, gott og farsælt komandi ferðaár, og við
þökkum ykkur öllum fyrir skemmtilegar samverustundir. Megi þið öll njóta helgi jólanna.
Með bestu kveðju, f.h. stjórnar, ferðanefndar og skemmtinefndar,
Soffía G. Ólafsdóttir, formaður
[ UPPFÆRT 20. nóvember 2009 ]- ****** Jólafundurinn *******
Jólafundurinn í Húnabúð, Skeifunni 11 (á morgun laugardag 21. nóv.) hefst með markaði kl. 13.30. Húsbílafélagið
verður með sínar vörur þar til sölu. Margt góðra muna til jólagjafa, s.s. grillsvuntur, öryggislyklar, polobolir merktir félaginu fyrir
dömur og herra, einnig úlpur. Lækkað verð á afmæliskönnum,glösum og staupum. Erum komin með áfengismælir sem er tilvalið að
eiga í húsbílnum, upplagt að stinga í jólapakkann.... og bón og sápu til að gera bílinn tilbúinn fyrir næsta sumar,
einmitt að dunda sér við þvott og bón eftir áramótin,
Nokkrir félagar verða með sínar vörur til sölu og kennir þar margra grasa og tilvalið í jólapakkann handa einhverjum. Félagar
látið það berast til vina og kunningja að það sé opinn markaður hjá okkur á morgun allir velkomnir og um að gera að láta
þetta berast. Börn eru velkomin í fylgd foreldra sinna að deginum til, nú sem endranær.
Kl. 15.00 er svo kaffi með meðlæti og félagsvist þar á eftir, eftir félagsvist er smáhlé.
Húsið opnar svo aftur kl. 21.00.
Kl. 22.00 byrjar svo ballið en þá byrjar Mummi Hermanns að spila fyrir dansleik sem stendur til kl. 02.00 eftir miðnætti. Miðaverð, pr. einstakling, er kr.
1,500.-
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Stjórn og nefndir Félags Húsbílaeigenda
[ 4. nóvember 2009 ]- Fyrsti fundur nýrrar stjórnar
Fyrsti fundur stjórnar var haldinn þ. 27. okt. s.l. komið var saman til að skipta með sér verkum (sjá umfjöllun um aðalfundinn) og einnig komu
þeir aðilar sem kosnir voru í ferðanefnd og skemmtinefnd og voru lagðar línurnar fyrir næsta ár að nokkru leyti.
Óvissuferð - 27. febrúar 2010 verður farin óvissuferð.
Ferðafundurinn verður haldinn þann2 0. mars 2010.
Aðalfundurinn fer fram þann 9. okt. 2010
Árshátíðin verður síðan haldin þann 23. okt. 2010. Stjórn, ferðanefnd og skemmtinefnd voru sammála um það að halda
árshátíðina á hóteli og er skemmtinefndin þegar farin að vinna í því að fá tilboð frá nokkrum
stöðum.
Það er verið að vinna í því að athuga með hús fyrir ferðafundinn og einnig aðalfundinn og kemur þetta allt inn á netið
tímanlega. Með óvissuferðina þá verður að skrá sig í hana fyrirfram og mun verða sett inn á netið hvernig við berum okkur
að því þegar nær dregur, en þetta er óvissuferð og verður öllum fær og verður bara skemmtileg og fræðandi, það er
það eina sem ég get sagt.
Svo bið ég ykkur um að fylgjast vel með á heimasíðunni okkar og bið ykkur um að segja þeim sem þið þekkið og vitið að
eru ekki með aðgang að tölvu frá þessum viðburðum, en við sendum eftir áramótin fréttabréf á þá sem ekki eru
með netföng.
Nú getið þið sett inn í dagatalið ykkar þessar dagsetningar.
Bestu kveðjur, stjórn og nefndir.
[ 4. nóvember 2009 ]- Lokaítrekun vegna ógreiddra árgjalda
Ágætu félagar. Ennþá eru einhverjir sem ekki hafa greitt árgjaldið fyrir árið 2009. Skv. Lögum félagsins skal það greitt
fyrir 1.okt. ár hvert. Við viljum gefa þeim sem ennþá hafa ekki greitt félagsgjaldið í ár, tækifæri á því að
greiða það fyrir 20.nóv. n.k. Ef ekki verður greitt fyrir þennan tíma verður litið svo á, að viðkomandi sé hættur í
félaginu, þá missir hann númerið sitt og ber viðkomandi að taka númerin af bílnum sínum ásamt merki félagsins.
Eins viljum við árétta við þá aðila sem hafa selt bílinn sinn eða hætta í félaginu, að muna eftir því að
taka númerin og merki félagsins af bílunum, ef það er ekki gert getur þetta valdið óþarfa misskilningi og vandræðum.
Með vinsemd og virðingu f.h. stjórnar Soffía G. Ólafsdóttir, formaður.
[ 4. nóvember 2009 ]- Stiklur af Árshátiðinni
Árshátíðin var haldin að Hótel Örk þann 17. okt. 2009. Það voru þó nokkuð margir sem komu strax á föstudeginum
eða 71. Þessi hópur náði vel saman og komum við saman á neðstu hæðinni og spilaði Snorri Jónsson nr. 450 á harmonikku og
fólk tók lagið og við fengum okkur snúning og svo var bara verið að ræða málin á léttum nótum, afskaplega afslappandi og
notalegt.
Á laugardeginum tók fólk því rólega læddi sér jafnvel aftur undir sæng eftir morgunverðinn svo þegar líða tók
á daginn fóru þessir sem eru með mestu fótboltadelluna á stað þar sem var verið að sýna leikina í beinni og horfðu spenntir
á sína menn.
Kl. 19.00 mætti fólk prúðbúið í fordrykkinn og náði fólk þar ágætlega saman, þar til gengið var inn í
hátíðarsalinn en við vorum 108 sem mættum í kvöldverðinn. Formaður setti skemmtunina og kynnti veislustjórann Kidda Rót, sem tók
þar með við keflinu, og sá hann ásamt tveimur ungum uppistöndurum um skemmtiatriðin á þessu kvöldi.
Happdrættið var á sínum stað og margt góðra muna og gekk það mjög vel fyrir sig. Maturinn var mjög góður. Hljómsveitin
Dans á rósum, sá um fjörið til kl. 2.00 eftir miðnætti og var mikið dansað og sungið með hljómsveitinni sem var mjög
góð.
Ég vil þakka öllum sem komu á árshátíðina fyrir góða skemmtun og ég vona að allir hafi skemmt sér hið besta.
Bestu
kveðjur, Soffía Ólafsdóttir, formaður
[ 4. nóvember 2009 ]- Stiklur vegna Aðalfundar
Jæja ágætu félagar nú er kominn tími til að láta aðeins heyra í sér og skal hér stiklað á því sem
liðið er.
Aðalfundur félagsins var haldinn 3.okt. s.l. í sal Fjölbrautarskóla Suðurnesja á fundinn mættu liðlega 100 manns sem mér fannst heldur
lítið í svona stóru félagi, en hvað veldur er ekki gott að segja.
1. Setning fundar: Formaður Soffía Ólafsdóttir nr. 24 bauð fundarmenn velkomna og setti fundinn, Hún tilnefndi fundarstjóra Árna Árnason
frá J.C. I. og samþykkti fundurinn hann. Fundarritari var tilnefndur Árni Reynisson nr. 722.
2. Fundarboð og dagskrá: Fundarstjóri athugaði hvort löglega hefði verið boðað til fundarins, ekki komu athugasemdir um það. Beðið var um
samþykki fundarins fyrir því hann yrði tekinn upp á band og var það samþykkt. Því næst var lesin upp dagskrá fundarins og
farið yfir fundarsköp og fólk beðið um að virða þau.
3. Skýrsla formanns ( [sjá skýrslu formanns ] í held
sinni)
4. Lagðir fram reikningar: Ragna Helgadóttir nr. 202 las upp reikningana í fjarveru gjaldkerans Ástvaldar Jóhannssonar
5. Umræður um skýrslu og reikninga: Þorsteinn nr. 298 spurði um húsaleigu í reikningum félagsins. Soffía svaraði því, að
þetta er það sem formaður fær greitt fyrir húsnæði undir tölvu, fundi og það dót sem fylgir félaginu. Ekki komu fleiri
spurningar. Því næst var skýrsla formanns og reikningar félagsins bornir undir atkvæði og samþykktir með öllum greiddum
atkvæðum.
6. Kaffihlé: Fundi fram haldið kl. 15.05
7. Ákvörðun félagsgjalda: Guðbjörg Bjarnadóttir nr. 75 lagði til að árgjald yrði óbreytt, var það samþykkt.
8. Kosning í stjórn og nefndi: Eins og fram kom í fundarboði sem sent var öllum félagsmönnum fyrir Aðalfundinn var mikil breyting á
stjórnum og nefndum og voru tillögur um fólk í allar þær stöður, ekkert mótframboð kom og því voru þessir aðilar allir
sjálfkjörnir. Ný stjórn hefur komið saman og skipt með sér verkum og verður því þannig skipuð næsta árið.
Formaður: Soffía G. Ólafdóttir nr. 24 (Hún var kosin í fyrra og er formaður kosin til tveggja ára í senn).
Varaformaður: Reynir Gunnarsson nr. 786
Gjaldkeri: Guðbjörg Bjarnadóttir nr. 75
Ritari: Ragna Helgadóttir nr. 202
Vararitari: Benedikta Benediktsdóttir nr. 633, Varamaður Sigurður Vilmundarson nr. 447, Varamaður: Hlíðar Sæmundsson nr. 663
Ferðanefnd: Páll Þorsteinsson nr. 377, Anna Margrét Hálfdánardóttir nr. 165, Sigurdór Már Stefánsson nr. 293, Sævar
Gunnlaugsson nr. 421
Skemmtinefnd: Daði Þór Einarsson og Elín Íris Jónasdóttir nr. 39, Einar V. Guðnason og Halldóra M. Gunnarsdðóttir nr. 392
Skoðunarmenn reikninga: Erla Skarphéðinsdóttir nr. 568, Hjördís Þorsteinsdóttir nr. 337, Björn Þorbjörnsson nr. 10
9. Lagabreytingar: Engar tillögur voru um lagabreytingar
10. Önnur mál: Agnes Jónsdóttir spurði hvort ekki væri æskilegt að félagið ætti áfengismæli til að koma í veg
fyrir ölvunarakstur. Málinu vísað til stjórnar sem tekur ákvörðun um málið.
Jóhanna Haraldsdóttir, kvað sér hljóðs og fannst henni það ekki vera félagsins að eiga svona mælir, og að stjórnin gæti
ekki verið að gæta félaganna, hver og einn bæri ábyrgð á sjálfum sér.
Fyrirspurn kom úr sal um hjartastuðtæki og var bent á að auglýst hafi verið eftir fólki á sínum tíma sem vildi gefa kost á
sér að sjá um slíkt tæki, en enginn hefur boðið sig fram.
Rætt var um að hætta útsendingu fréttabréfa og hafa það einungis í tölvupósti en þeir sem að eiga ekki tölvur eða
hafa ekki aðgang að slíkum tækjum fengju það áfram sent til sín.
Soffía tók til máls og þakkaði þeim sem voru að hætta í stjórn og nefnum, afhenti þeim borðfána frá
félaginu fyrir vel unnin störf.
Þakkað fyrir góðan fund og var fundi slitið kl. 15.35
[ 5. október 2009 ]- Árshátíðin
Ágætu félagar! Ennþá er laust á árshátíðina, nokkur herbergi eru eftir og einnig á árshátíðina
sjálfa á laugardagskvöldinu.
Dagskrá föstudaginn 16. okt.
Fólk verður sennilega að koma á öllum tíma þennan dag, en mér skilst á þeim á Hótelinu að þeir bjóði upp
á tilboðs seðil (kvöldverð) í Árgerði á föstudagskvöldið, en hver og einn hefur það eins og hann vill.
Dagskrá föstudagskvöldið:
Á föstudagskvöldinu þá höfum við afnot á sal við sundlaugarsvæðið niðri í kjallara, fyrir þá sem koma á
föstudeginum, þar getum við spjallað saman,sungið og dansað, þeir sem ætla að gista í bílum sínum eða eru í
sumarbústað einhversstaðar í grenndinni eru velkomnir að koma í kjallarann, endilega látið sjá ykkur.
Svo minni ég á tilboðið frá Tjaldstæðinu í Hveragerði sem hann Ólafur setti inn á Gestabókina ef þið viljið
nýta ykkur það.
Dagskrá laugardaginn 17. okt.
Skemmtunin hefst kl. 19.00 með fordrykk í boði félagsins á Ölgerðis-bar. Fólk getur valið um rauðvín, hvítvín, bjór
eða gos og er miðaða við 2 glös á mann.
Kvöldverður hefst kl. 19.30. Matseðill: Villisveppasúpa, Lambalæri og ís í eftirrétt. Skemmtanastjóri er Kiddi Rót. Sævar Helgi og
Þórhallur Þórhallsson (Litli Laddi) eru með uppistand, sagðir mjög góðir. Happdrætti, mjög góðir vinningar. Dans á
Rósum sjá um að allir dansi fram á rauða nótt eða til 02-00 eftir miðnætti.
Kæru félagar á ekki að mæta á þessa flottu Árshátíð, láttu þig ekki vanta. Félagar athugið að
þið getið tekið með ykkur gesti, hafið samband við formann félagsins í síma 896-5057 eða sendið tölvupóst husbill@husbill.is
Bestu kveðjur, f.h. stjórnar og skemmtinefndar, Soffía Ólafsdóttir, formaður
[ 24. september 2009 ]- Lokaferðin í Sandgerði - Ágætu félagar!
Sandgerði skartaði sínu fegursta þegar húsbílar tóku að streyma til Sandgerðis á föstudeginum 18.sept. í þessari
lokaferð komu 140 bílar og lögðu flestir upp við Samkomuhúsið og var þar þétt lagt. Eftir að skemmtunin var sett var spiluð
félagsvist á 14 borðum. Hljóðfæraleikararnir okkar létu ekki sitt eftir liggja og komu með hljóðfærin sín upp í hús
og spiluðu af mikilli innlifun og við hin stigum dans og sungum eins og við gátum. Svona leið kvöldið vel fram yfir miðnætti. Ég vil þakka
hljóðfæraleikurunum innilega fyrir þeirra framlag það er gott að eiga svona góða félaga sem alltaf eru tilbúnir að gefa af
sér. Það er hverju félagi mikils virði.
Laugardagurinn rann upp og um hádegið bauð félagið upp á kjötsúpu sem meðlimir í stjórninni sáu um að útbúa og
var einnig boðið upp á osta, kex og snittubrauð, það voru um 260 manns sem gæddu sér á súpunni og ég held að flestum hafi
líkað hún mjög vel, það brann smá við í einum pottinum en þegar það uppgötvaðist var það skilið frá en
þetta getur alltaf hent þegar svona mikið er soðið en okkur þótti það mjög leitt þeir sem urðu fyrir því.
Markaðurinn var á sama tíma og þar var margt góðra muna til sölu og margir að selja, einnig var verið að selja miða á
Árshátíðina sem verður á Hótel Örk 17.okt. n.k. og gekk það bara vel, og vil ég hvetja ykkur ágætu félagar
endilega að mæta á Árshátíðina en hún verður hin glæsilegasta, við munum setja inn dagskrána innan tíðar. Áfram
með laugardaginn, kl. 16.00 þá var farið í skoðunarferð í boði Félagsins og í þessa ferð fóru 117 manns, en þegar
svona er ákveðið þá rennur maður afskaplega blint í sjóinn með hvað margir mæta í ferðina og hvað margir vilja fara í
skoðunarferð, en við vorum búin að fá tvær rútur sem tóku 88 manns í sæti og fleiri rútur var ekki hægt að fá
það var víst svo mikið um að vera á Suður- nesjum þessa helgi að allar rútur á svæðinu voru í notkun, svo það
voru góð ráð dýr en leiðsögumennirnir og annar rútubílstjórinn sem var jafnframt eigandi bílanna redduðu þessu snarlega,
fóru með hópana í Hvalsneskirkju og á meðan Reynir leiðsögumaður sagði þeim sögu kirkjunnar og talaði um Hallgrím
Pétursson var náð í þá sem eftir voru og var Helga Ingimundardóttir leiðsögumaður með þeirri rútu, eftir að hafa
dvalið í kirkjunni var farið Ósabotnaleiðin og farið sem leið lá í Reykjanesvirkjun en virkjunin opnaði fyrir almenning í júní
2008 og er mjög gaman að koma þarna inn og sjá hvernig þetta virkar allt saman, og hvað þetta er sett upp á skemmtilegan hátt, starfsmaður
frá Hitaveitunni tók á móti okkur og talaði mikið um orku jarðar, mér heyrðist á þeim sem fóru í þessa ferð
að þeim hefði fundist þetta mjög gaman og fræðandi. Fólk gerði ýmislegt yfir daginn, skoðuðu Sandgerði til að mynda og svo var
spjallað við félagana.
Klukkan 22.00 um kvöldið þá byrjaði Mummi Hermanns að spila fyrir dansi og hann hélt uppi stuðinu til kl. 02.00 eftir miðnætti og það var
bara mikið stuð og mikið gaman, en hann var með mikið og gott lagaval þannig að allir hljóta að hafa fengið sitt. Eftir að Mummi hætti a spila
var sett á country-lög og þeir hörðustu héldu áfram í hálftíma eða svo en þá fóru flestir í sína
bíla, enda tími kominn á að kíkja á koddann, eftir góða helgi. Við í stjórninni vonum að allir hafi átt góða
og yndislega helgi, með þessari ferð lauk hinum hefðbundnu ferðum sem skipulagðar eru af félaginu. Við þökkum þeim fjölmörgu sem
ferðast hafa með okkur í sumar og vonum að þið hafið notið þess öll og haft gaman að. Þó ferðunum á vegum félagsins
sé lokið þá er eitt og annað á döfinni hjá félaginu sjá félagatalið og fylgist einnig með á síðu
félagsins. Okkar bestu kveðjur til ykkar allra.
F.h. stjórnar og nefnda Soffía G. Ólafsdóttir, formaður Félags Húsbílaeigenda
[ 11. september 2009 ]- Fréttabréf - Aðalfundur - Ágætu félagar!
Fréttabréfið er klárt og hefur verið sent félagsmönnum í pósti ásamt fundarboðinu á aðalfundinn.
Þá er það einnig komið hér á vefinn og geta menn lesið það, prentað út og/eða vistað það á tölvur
sínar með því að fara inna á hlekkinnn "Fréttabréf" hér vinstra megin í linkunum og/eða með því að fara beint
inná slóðina með því að [ smella hér ]
Aðalfundur félagsins verður haldinn þann 3. okt. nk. í Fjölbrautarskóla Suðurnesja í Reykjanesbæ, og hefst hann kl. 14:00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf, kaffiveitingar. Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna. Það verður nokkur breyting á stjórn og
nefndum núna en eftirtaldir aðilar ætla að hætta. Úr stjórn fara: Árni Reynisson, Sigtryggur Hafsteinsson, Ástvaldur Jóhannesson og
Valdís Fanndal.
Þeir sem hætta í ferðanefnd eru: Sigurjón Hannesson, Jón Gunnar Harðarson, Sævar Siggeirsson og Steini Sævar Þorsteinsson.
Þeir sem eru í skemmtinefnd núna hætta einnig, þau: Guðný Garðarsdóttir Sævar Sigurðsson, Kristín Hreiðarsdóttir og
Valtýr Gunnlaugsson.
Stjórn félagsins; Ragna Helgadóttir nr. 202 og Sigurður Vilmundsson nr. 447 gefa kost á sér áfram í stjórnina.
Eftirtaldir aðilar (nýtt fólk) bjóða sig fram til setu í stjórn félagsins Guðbjörg Bjarnadóttir nr. 75, Benedikta
Benediktsdóttir nr. 633, Hlíðar Sæmundsson nr. 663 , Reynir Gunnarsson nr. 786
Ferðanefnd félagsins: Páll Þorsteinsson nr. 377, sem setið hefur í ferðanefnd gefur kost á sér áfram.
Eftirtaldir aðilar (nýtt fólk) bjóða sig fram til setu í ferðanefnd Sævar Gunnlaugsson nr. 421 Anna M. Hálfdánardóttir nr. 165,
Sigurdór Már Stefánsson nr. 293.
Skemmtinefnd félagsins; Eftirtaldir aðilar bjóða sig fram til setu í skemmtinefnd Halldóra M.Gunnarsdóttir og Einar V. Guðnason nr. 392, Elín
Íris Jónasdóttir og Daði Þór Einarsson nr. 39
Skoðunarmenn reikninga; Erla Skarphéðinsdóttir nr 568, Hjördís Þorsteinsdóttir nr. 337 og varamaður Björn Þorbjörnsson nr. 10
þau gefa öll kost á sér áfram.
Ágætu félagar, ef einhverjir aðrir vilja gefa sig fram í stjórn-ferðanefnd-skemmtinefnd eða sem skoðunarmenn reikninga, þá sendið
tillögur þess efnis til formanns félagsins Soffíu Ólafsdóttur, Vatnsholti 7a, 230 Reykjanesbæ eða á netfang félagsins husbill@husbill.is fyrir 19. sept. n.k.
[ 5. september 2009 ]- Árshátíðin - Ágætu félagar. Nú líður senn að
árshátíðinni en hún verður haldin að Hótel Örk, Hveragerði 17. okt. n.k. Við hvetjum ykkur að koma á
árshátíðina og að við eigum saman góða helgi og dekrum aðeins við okkur með því að gista á Hótelinu.
Verðið á hjón, ein nótt með morgunmat og þriggja rétta máltíð, sem samanstendur af Villisveppasúpu, Lambalæri og ís
í eftirrétt, svo verða nokkur skemmtiatriði og dansleikur þetta allt á kr.20.000,-- fyrir einstakling kostar það 12.500,-- kr. en ef einhver vill bara
koma í borðhaldið og skemmtunina þá er verðið 7.000,-- kr. pr. mann (14.000,-- á hjón)
Ég hvet ykkur ágætu félagar að hugsa nú hratt og bóka ykkur með því að senda tölvupóst á husbill(att)husbill.is
eða hringja í síma 896-5057, þið getið lagt peninginn inn á reikning félagsins 0542-26-276 kt. 681290-1099 merkja við
árshátíð og einnig láta kennitölu ykkar koma fram, við þurfum að skila inn nafnalista 4 vikum fyrir árshátíðina. Í
lokaferðinni sem er í Sandgerði 18.-20.sept. n.k. munum við einnig selja í ferðina. Við létum taka frá 80 herbergi á laugardeginum og 30
herbergi á föstudeginum, þess vegna er mjög gott að fá sem fyrst pöntun frá ykkur ágætu félagar.
Dagskráin er ekki alveg tilbúin en þetta er að smella saman, hljómsveitin sem spilar hjá okkur heitir Dans á Rósum og er hún sögð
mjög góð, Kiddi Rót verður veislustjóri, og svo er verið að skoða önnur skemmtiatriði og þegar það liggur fyrir verður
það sett inn á netið. Happdrættið verður á sínum stað og eru margir góðir vinningar í boði og er til að mynda vinningur
frá Hótel Örk að verðmæti tæpar 20.þús. króna.
Ef einhver vill gista 2 nætur (koma á föstudeginum) þá kostar aukanóttin fyrir tvo 6.000,-- kr. og fyrir einstakling 4.000,--kr. hver og einn greiðir
aukanóttina beint til hótelsins.
Enn og aftur þá hvet ég ykkur ágætu félagar að koma á árshátíðina og að við eigum saman góða helgi,
því fyrr sem þið bókið ykkur því betra, ef við þyrftum að bæta við herbergjum.
Bestu kveðjur til ykkar allra, f.h. Stjórnar og nefnda Soffía Ólafsdóttir, formaður
[ 4. september 2009 ]- Kerran skírð - Ágætu félagar. Kerran hefur hlotið nafn, Vöruskjólið skal
hún heita og er númer 1 í félaginu okkar.
Það voru 14 aðilar sem sendu inn 35 nöfn á kerruna.
Á stjórnarfundi síðastliðinn þriðjudag völdum við nafnið Vöruskjólið. Það var félagi nr. 740, Kristín
Hlíf Andrésdóttir sem var með þessa tillögu.
Við viljum þakka ykkur öllum sem senduð inn tillögur kærlega fyrir þátttökuna. Bestu kveðjur, f.h. stjórnar, Soffía
Ólafsdóttir, formaður
[ 25. ágúst 2009 ]- Berjaferðin Kæru félagar þá er komið að "Berjaferðinni" sem er að Arnarstapa á Snæfellsnesi dagana 28.-30.ágúst n.k eða eftir 5 daga. Við munum gista
á tjaldstæðinu að Arnarstapa. Verðið er 500,-- kr. pr. nótt fyrir félagsmenn eða 2.000,-- kr. miðað við tvo í bíl,
báða dagana (helgin) (1.000,--kr. ef bara einn er í bíl). Fyrir gesti okkar þá er nóttin 750,--kr. pr. mann eða 3.000,-- kr. miðað við tvo
í bíl, báða dagana (helgin) (1.500 kr. ef bara einn í bíl) Rafmagn kostar 500,-- kr. fyrir sólarhringinn. Það er öllum frjálst
hvað þeir gera í þessari ferð, týna ber, skoða sig um eða bara halda til í bílunum og spjalla við félagana, hver og einn hefur
þetta eftir sýnu höfði. Það er margt að skoða þarna í nágrenninu og vil ég benda á nokkra staði en ég veit að
fólk þekkir sig þarna mjög vel.
Arnarstapi er lítið útgerðarpláss undir Stapafelli á milli Breiðuvíkur
og Hellna. Norðan í fellinu er sönghellir. Þar em Bárður Snæfellsás er sagður hafa búið. Vitinn er frá 1941. Þar var
verslunarstaður á einokunartímanum. Fuglalíf meðfram ströndinni og gjárnar sem brimið hefur skapað er mjög áhugavert. Þegar brimar,
gýs sjórinn upp úr gjánum (Hundagjá, Miðgjá og Músarhola). Vestan við gjárnar, á bak við minnismerkið um Bárð
Snæfellsás (Ragnar Kjartansson) er Gatklettur.
Hellnar er lítið sjávarpláss vestan Arnarstapa og þar er lítill veitingastaður
það er mjög gaman að koma þangað. Á Hellnum var fyrrum einhver stærsta verstöð á Snæfellsnesi, nokkur grasbýli og 32
þurrabúðir. Meðfram ströndinni eru fallegar bergmyndanir og hellir, sem heitir Baðstofa. Hann er kunnur fyrir birtu-og litbrigði við vissar
aðstæður.Einnig er þar Gvendarbrunnur (sem einnig hefur verið kallaður Maríulind á síðustu árum) bergvatnslind sem sprettur undan
hraunjaðrinum í túni Skjaldartraðar. Þar hafa sumir, sem vita lengra en nef þeirra nær, séð heilagri guðsmóður bregða fyrir.
Á Hellnum er gestastofa þjóðgarðsins með mjög áhugaverðar sýningu um atvinnulíf fyrri tíma, jarðfræði,
gróðurfar og dýralíf þjóðgarðsins.
Djúpalónssandur-Dritvík: Djúpalónssandur er malarvík með hraungjá í botni á milli Einarslóns og Dritvíkur. Þar
var löngum stór verstöð fyrrum. Eitt íveruhúsa sjómanna hefur verið endurhlaðið, en er að hruni komið á ný.
Aflraunasteinarnir, fullsterkur (154 kg) Hálfsterkur (54 kg) og Amlóði (23 kg.) liggja fyrir neðan stall við stíginn niður frá
bílastæðinu. Hraunmyndanir s.s. Gatklettur fyrir ofan aflraunasteinana og Draugahellir, eru sérstakir og fallegir. Öldum saman var Dritvík einhver
fjölmennasta og aflasælasta verstöð landsins. Oft réru þar 60-70 bátar og fjöldi vermanna var þá 300-400. Talið er, að
útgerð hafi hafist í Dritvík á 16.öld en var farin að dragast saman á 19.öld.
Hólahólar: Hólahólar eru gömul gígaþyrping á vestaverðu Snæfellsnesi, steinsnar frá þjóðveginum. Hægt er
að aka á jafnsléttu inn á sléttan og gróinn botn gígsins Berudals. Margir telja hólana vera mikla álfabyggð.
Lóndrangar: Lóndrangar eru tveir klettar sem tróna við ströndina skammt austan Malarrifs og vestan Þúfubjargs í Breiðuvíkurhreppi á
sunnanverðu Snæfellsnesi. Frá veginum eru aðeins 10 mínútna gangur að þeim.
Um Lóndranga yrkja má
eru þeir Snæfells prýði,
yst við tanga út við sjá
aldan stranga lemur þá.
Þið sjáið af þessu að það er ýmislegt að skoða á Snæfellsnesinu, þetta sem ég tel þarna upp er bara smá
brot. Nú er bara að biðja um gott veður og vonandi hittumst við sem flest og eigum saman góða helgi. Bestu kveðjur, fyrir hönd stjórnar og
ferðanefnda, Soffía Ólafsdóttir, formaður
[ 21. ágúst 2009 ]- Samantekt frá Stokkseyri - Ágætu félagar. Þið sem voruð á Stokkseyri um
síðustu helgi takk fyrir samveruna. Þetta var góð helgi og veðrið bara gott. Það voru í kringum 90 bílar þegar mest var. Á
föstudagskvöldinu kom hópur fólks saman í tjaldinu í Töfragarðinum og þöndu þar nikkurnar heiðursmennirnir Snorri, nr. 450
Guðni nr. 159 og Steini nr. 59, nokkur hópur fylgdi uppeftir og þöndu raddböndin. Leiðin var vörðuð með friðarljósum en þetta var
töluvert labb og þegar myrkrið var komið og rigning líka var ansi dimmt og var fólk hálf óöruggt með að labba þarna heim í
þýfðum móanum en heim komust allir á endanum.
Á laugardeginum var hið besta veður og fóru einhverjir í kajak-ferð, aðrir fóru í söfnin og í Draugahúsið, þar sem
margir fengu smá hroll og sumir krakkarnir urðu þó nokkuð hrædd en létu sig þó hafa það að fara í gegnum allar
þrautirnar og urðu mjög stolt á eftir, Veiðisafnið er alveg stórkostlegt ,frábært einkasafn, og Töfragarðurinn hafði
aðdráttarafl. Fólk var líka svoldið á ferðinni og skrapp í næstu byggðarlög til að fylgjast með hvað þar var að
gerast t.d. eins og á Eyrabakka en þar var bæjarhátíð. Á laugardagskvöldinu var fyrirhugað að fara aftur í tjaldið í
Töfragarðinum en fólk var ekkert tilbúið í það enda veðrið alveg himneskt og fólk sat bara úti, fyrir utan bílana sína
að spjalla, harmonikkutónar bárust um svæðið og söngfuglarnir létu ekki á sér standa og á öðrum stað voru
gítarhljómar og söngur, þetta var bara frábært og fólk labbaði á milli og spjallaði og var í góðum gír. Eftir
miðnætti átti einn félagsmanna afmæli og gerði sér lítið fyrir og bauð í súpu, og hvort allir fengu veit ég nú ekki
en margir allavega komu og brögðuðu á gómsætri mexíkanskri súpu, þetta var mjög skemmtilegt, takk kærlega fyrir Benný nr. 633 og
til hamingju með afmælið á sunnudaginn.
Takk kærlega fyrir skemmtilega helgi, kæru félagar, sjáumst eftir rúma viku á Arnarstapa í berjaferð.
Kv.Soffía Ólafsdóttir, formaður
[ 12. ágúst 2009 ]- Stokkseyrarferðin - Ágætu húsbílafélagar. Þá eru bara 2 dagar í
næstu ferð hjá okkur að Stokkseyri n.k. föstudag 14. ágúst, við munum dvelja
þar þessa helgi og nú er bara að biðja veðurguðina um að halda þessu góða veðri sem verið hefur undanfarna daga, að minnsta kosti
á Suðurlandinu. Eitt vil ég byrja á að leiðrétta, en ég taldi að Gónhóll væri á Stokkseyri en það er bara rugl
í mér, já þið vissuð þetta, heyri ég, Gónhóll er á Eyrabakka, ég rugla þessum tveimur stöðum
ótrúlega saman (Stokkseyrabakki...) en við erum að fara á Stokkseyri, ekki gleyma því...
Á Stokkseyri er ýmislegt að skoða og er ferðanefndin búin að fá tilboð t.d.
á Draugasetrið og Álfa trölla og norðurljósasafnið, 2 söfn á verði eins
eða 1.500,-- kr. pr.mann. - Kajakferð Róbinson Krúsó sjá http://www.kajak.is/ sund innifalið á
opnunartíma sundlaugar 3.000,-- kr. pr.mann. - Veiðisafnið 20% hópafsláttur eða 800,--kr.
pr.mann. Til aða nýta ykkur tilboðin þá þurfið þið að framvísa félagsskírteini ykkur, með því sannið
þið að þið eruð meðlimir í Félagi Húsbílaeigenda.
Við verðum með Töfragarðstjaldið bæði kvöldin, eða frá kl. 20.00 og þar er Töfragarðurinn og þar er ýmislegt fyrir
yngstu kynslóðina, ýmis dýr og eftir kl. 20.00 þá borgum við ekki inn, þar sem við erum með tjaldið, svo þið skuluð
nýta ykkur þetta. Ég hvet alla sem kunna á hljóðfæri að koma upp í tjald bæði á föstudag-og laugardagkvöldinu og
við hin sem getum trallað með komum að sjálfsögðu líka og við komum upp saman kvöldvöku-stemmingu, með tímann vil ég ekki festa
hér, við spilum þetta af fingrum fram.
Helgargjald er 1.000 kr. pr. mann, rafmagn frítt.
Við vonumst eftir góðri mætingu, hittumst hress og kát.
Bestu kveðjur, f.h. stjórnar og ferðanefndar, Soffía G. Ólafsdóttir, formaður
[ 29. júlí 2009 ]- Komið öll blessuð og sæl ágætu félagar. - Þessa dagana er margir á
faraldsfæti og verslunarmannahelgin nálgast óðum, ég vil senda öllum þeim sem eru á ferðalagi bestu óskir og kæru vinir farið
varlega í umferðinni og flýtið ykkur hægt.
Þó daginn stytti og dragi fyrir sól
við dægurstrit er tímans vani ól
þá getum við þó komi fram á kveld
kveikt upp ljós við minninganna eld.
Já, nú er daginn tekinn að stytta og nú tekur við tími rökkurs og kertaljósa og það er gott að geta yljað sér líka
við góðar minningar sem við fengum í farteskið í Stóru ferðinni, en Stóra ferðin tókst mjög vel og ekki spilltu
veðurguðirnir fríinu fyrir okkur, sól og blíða nánast upp á hvern einasta dag. Ferðin byrjaði á tjaldstæðinu við Faxa [
LESA MEIRA... ]
[ 29. júlí 2009 ]- Rotor með afmælistilboð - Laugardaginn 1. Ágúst n.k. erum við formlega orðin 20 ára. Af
því tilefni bjóðum við allar okkar vörur með 20% afslætti föstudaginn 31. júlí og á sjálfan afmælisdaginn þann
1. ágúst.
Hægt verður því að gera góð kaup í ferðabúnaði og rafbúnaði fyrir verslunarmannhelgina. Má þar nefna hluti s.s.
sólarsellur, kæliskápa, markísur, vatnshitara, gasmiðstöðvar, rafstöðvar, reiðhjólagrindur, vagndrif, kælibox ofl ofl. Það
er um að gera að heimsækja okkur, en þeir sem ekki eiga heimangengt, eða eru á ferðalagi þessa daga, geta verslað í gegnum
síma.
[ 15. júlí 2009 ]- Nafnasamkeppni - Ágætu félagar. Félagið hefur nú fest kaup á lokaðri kerru fyrir
þær vörur sem við erum að selja, svo nú vantar okkur gott nafn á kerruna. Kerran verður nr. 1 í félaginu.
Félagar, nú er komið að ykkur, nú fara allir á hugarflug. Sendið tillögur um nöfn á netfang félagsins husbill@husbill.is eða sendið okkur í pósti
á:
Félag Húsbílaeigenda, Vatnsholt 7a, 230 Reykjanesbæ.
Umsóknarfrestur til 1.ágúst n.k. Kær kveðja með fyrirfram þökk og von um góðar undirtektir, Stjórnin.
[ 9. júlí 2009 ]- Nú er komið að því... - Stóra ferðin hefst eftir 3 daga, fyrsti dagur er við
tjaldstæðið Faxa á bökkum Tungufljóts þarna gerir fólks sjálft upp við staðarhaldara. Á sunnudeginum er haldið í
Þjórsárdal. Sjá ferðalýsingu fyrir þessa ferð í fréttabréfinu sem sent var til ykkar, einnig er fréttabréfið
hér á heimasíðunni.
Kostnaður í þessari ferð er: Frá sunnudegi til lokadags kr. 10.000, miðað við tvo í bíl (5.000,--kr. pr.mann) þeir sem koma á
föstudegi og eru þá í lokahófinu greiða 6.000 kr. miðað við tvo í bíl (3.000 kr. pr. mann) þetta er miðað við 18
ára og eldri, börn undir 18 ára aldri greiða ekkert. Gestir félagsmanna greiða 14.000 kr. miðaða við tvo í bíl (7.000,--kr. pr.mann) og
í lokahófið kr. 10.000 miðað við tvo í bíl (5.000 kr. pr.mann)
Ferðanefnd mun byrja að rukka í Þjórsárdal og þið fáið greinagóða ferðalýsingu og merki félagsins um leið og
þið borgið. Ég vil biðja ykkur um að vinna með ferðanefndinni því það getur myndast biðröð, að þið hafið
biðlund á meðan þeir afgreiða bílana, ekki fara fram hjá þeim án þess að borga, en ef þið gerið það að koma
þá til þeirra þegar biðröðin minnkar og greiða þeim, það léttir mjög mikið fyrir ef þeir þurfa ekki að vera
að ganga í hvern bíl, verum minnug þess að þetta er sjálfboðavinna sem fólk í stjórn og nefndum er að inna af hendi og
það verða allir að leggjast á eitt að láta þetta allt ganga upp, við félagarnir erum jú félagið. Í
fréttabréfinu kom skýrt fram það helsta sem gert verður í ferðinni og svo spilum við þetta af hendi fram eftir veðri og vindum og
gjallarhornið er ekki langt undan til að koma skilaboðum til ykkar þar sem við verðum hverju sinni.
Boðið er upp á ferð um Njáluslóðir (sjá inn á heimasíðunni) á miðvikudaginn 15. júlí. Sögusetrið
á Hvolsvelli býður félagsmönnum að heimsækja safnið, þá fer hver og einn á sínum forsendum þegar hverjum og einum hentar,
almennur aðgangur er 700kr. en Húsbílafélögum er boðið á 500 kr. pr. mann þið sýnið afsláttarkortið ykkar.
Ég vil biðja þau krakka og fullorðna sem vilja vera með skemmtun á laugardagskvöldinu að setja sig í samband við skemmtinefndina þau Laugu og
Sævar 314, Kristínu og Valtýr 169, endilega takið þátt, ég er viss um að það leynast góðir skemmtikraftar í okkar
félagi.
Á laugardagskvöldinu þá opnar húsið kl. 19.00 og mun borðhaldið hefjast um 19.30, komið með ykkur hnífapör og glös og
það sem þið viljið drekka með, semsagt guðaveigarnar eru í ykkar höndum. Eftir borðhald þurfum við að rýma salinn, og gera
klárt fyrir dansleikinn sem hefst kl.23.00 og stendur til kl. 03.00 eftir miðnætti. á meðan getur fólk farið út í bíl, spjallað við
félagana eða eitt og annað sem hverjum dettur í hug. Ég vil minna alla þá sem eru með börn undir 14.ára aldri að þau mega ekki vera
inni á dansleiknum eftir kl. 12.00 á miðnætti og bið ég alla foreldra eða forráðamenn barnanna að virða það.
Ath! Allir sem greiða, fá barmmerki sem merkt er „Stóra ferð 2009“ og þetta merki eru allir beðnir um að vera með í allri ferðinni og
á lokakvöldinu er dyravarsla, strax þegar maturinn byrjar og þá , verða allir að bera þetta merki, það þýðir ekkert að
segja að það hafi gleymst inn í bíl, þá verðið þið að sækja það. Eins og ég var áður búin
að minnast á þá þarf að skrá sig í ferðina á Njáluslóðir á sunnudaginn hjá ferðanefnd eða í
síma 896-5057, einnig þeir sem ætla að koma á föstudeginum og vera í lokahófinu þeir þurfa að skrá sig í
síðasta lagi á þriðjudag í síma 896-5057.
Ágætu félagar, við vonum að þið komið sem flest í ferðina og hafið gaman af, hlökkum til að sjá ykkur og svo vonum við
að veðurguðirnir verði í góðu skapi þessa viku og skíni sem skærast á okkur.
Bestu kveðjur, f.h. stjórnar og nefnda, Soffía G. Ólafsdóttir, formaður
[ 2. júlí 2009 ]- Stóra ferðin - Kæru félagar. Nú eru 9 dagar þar til Stóra ferðin hefst. Ég
hef hlerað að það sé mikill áhugi fyrir þessari ferð og verður gaman að sjá hvað margir mæta. Ég vil minna þá
á sem ætla á Njáluslóðir. Planið er: Hvolsvöllur – Keldur – Gunnarssteinn – Hlíðarendi – Dímon –
Bergþórshvoll – Hvolsvöllur.
Ferðin tekur um 4 klst. og þarf að skrá sig hjá ferðanefnd. Verð er kr. 2.300 fyrir manninn. Skráið ykkur á sunnudag, þið sem eruð
komin á staðinn hafið samband við ferðanefndina, en aðrir hringi í síma félagsins 896-5057.
Þeir sem ætla að vera eingöngu með í lokahófinu, laugardaginn 18. júlí, þurfa að vera búnir að skrá sig í
síðasta lagi þriðjudaginn 14. júlí(þurfum að vita hve margir verða í matnum.) Hafið samband í síma 896-5057 eða við
ferðanefndina.
Bestu kveðjur til allra. Soffía Ólafsdóttir, formaður
[ 15. júní 2009 ]- Ferðin að Hítarvatni - Nú líður að 3. ferð félagsins, að Hítarvatni
á Mýrum, dagana 19. júní — 21. júní. Gisting við Hítarvatn er félögum að kostnaðarlausu, Félagið greiðir
gistinguna fyrir sína félaga.
Leiðarlýsing: - Að Mýrum frá Reykjavík er um 120 km. akstur ef ekið er um Borgarnes. Farið vestur að Mýrum tekinn vegur 539 sem
er bundinn slitlagi að bænum Hítardal. Þeir sem ætla að veiða þessa helgi komi við á bænum, (það er mjög mikið
atriði að það sé gert) þeir sem eru með Veiðikort sýni það og skilríki og þá þurfa þeir ekkert að borga, en
þeir sem ekki hafa veiðikortið greiða kr. 2.500.- fyrir helgina (daggjald er annars kr. 2.500.-) Frá bænum eru um það bil 9. km á möl niður
að vatninu. Vegurinn er nýlega heflaður og í góðu standi.
Þarna er lágmarks hreinlætisaðstaða, Wc og rennandi vatn. Því er nauðsynlegt að koma með klósettin tóm, en engin seyrulosun er
á staðnum. Ekkert rafmagn er á staðnum. Lausaganga hunda er bönnuð á tjaldstæðinu og við vatnið. Þeir sem ekki fara að veiða geta
farið í göngu en þarna er fallegar gönguleiðir og um að gera að nýta sér það.
Upplýsingar um vatnið: - Vatnið er 7.6 ferkílómetrar að stærð og stendur í 147m. hæð yfir sjávarmáli.
Úr vatninu rennur Hítará, sem er með þekktari laxveiðiám landsins. Svæðið er tilvalið fyrir fjölskylduna til að eyða
góðri stund saman við veiðar og útivist. Mikil náttúrufegurð er við vatnið. Vekja ber athygli á að mikið er af mýflugum
við vatnið, gott er því að vera með net fyrir andlitinu.
Veiði: - Mjög góð silungsveiði er í vatninu, bæði urriði og bleikja og eru dæmi þess að veiðimenn komi heim með
yfir hundrað fiska eftir helgardvöl við Hítarvatn. Góð veiði er jafnan þar sem lækir renna í vatnið, undir hrauni sem og inn í botni
vatnsins. Leyfilegt er að veiða frá morgni til kvölds. Allt agn er löglegt, þ.e fluga, maðkur og spónn.
Stjórn og ferðanefnd eru ekki með neina dagskrá í þessari ferð, þeir sem mæta skemmta sér sjálfir og öðrum þeim sem
mæta. Við óskum ykkur góðrar helgar í fallegu umhverfi og góðrar veiði, og vonum að þið njótið útivistarinnar. F.h.
stjórnar og ferðanefndar, Soffía G. Ólafsdóttir, formaður Félags Húsbílaeigenda.
[ 15. júní 2009 ]- Ítrekun - Ágætu félagar. Enn eru nokkrir aðilar sem ekki hafa greitt árgjaldið,
þetta getur gleymst, en nú er um að gera að greiða gjaldið ef viðkomandi ætlar að vera áfram í félaginu eða láta vita ef
ekki er áhugi á að vera með lengur. Það eru margir að ganga í félagið þessa dagana svo ef einhver ætlar ekki að vera með
lengur þá er gott að fá að vita það svo hægt sé að setja þau númer til nýrra félaga. Hafið samband við
Soffíu í síma 896 5057, ef eitthvað er óljóst vegna árgjaldsins.
Bestu kveðjur, Soffía Ólafsdóttir, formaður Félags Húsbílaeigenda
[ 3. júní 2009 ]- Ágætu félagar Ég vil þakka öllum félagsmönnum og gestum sem komu að Hlöðum um
Hvítasunnuna innilega fyrir komuna, með von um að allir hafi átt góðar stundir saman. Það komu 165 bílar þegar mest var. Ýmislegt var
gert sér til afþreyingar. Hátíðin var sett með ávarpi formanns og sungu svo allir viðstaddir 3 lög með undirleik nokkurra
hljóðfæraleikara og var þetta mjög hátíðlegt. Félagsvistin byrjaði svo strax þar á eftir og var spilað á 12
borðum. Country- kennsla tók svo við og var ekki að sökum að spyrja að gólfið var alveg troðið og eftir mikinn flækjufót tókst
okkur að ná beinni braut og mynda línu, þetta var mjög gaman. Eftir það komu hljóðfæraleikarar upp í hús og þöndu
nikkurnar og struku strengi af mikilli snilld, og sungið og dansað vel fram yfir miðnætti. Veðrið var ansi vætumikið þennan föstudag svo vel
blotnaði í mannskapnum á hlaupum á milli bíla og hússins, en enginn er verri þó hann vökni.
Mikil dagskrá var á laugardeginum og byrjaði dagurinn á því að 75 manna hópur fór frá Hlöðum í tveimur rútum inn
í Botnsdal undir leiðsögn Arnheiðar Hjörleifsdóttur, leiðsögumanns frá Bjarteyjarsandi. Gengið var dágóðan spöl inn dalinn
og blasti fossinn Glymur við og fórum við að helli sem heitir Þvottahellir, allur hópurinn fór niður í hellinn og eftir að allir voru komnir
niður bárust undurfagrir tónar okkur til eyrna og héldum við að nú værum við komin í návist við huldufólk en þetta
reyndist mennsk manneskja María Jónsdóttir mezzosópran og söng hún 3 lög þarna niðri fyrir okkur og var svo endað á að allir
sungu saman Maístjörnuna. Og þarna niðri var okkur boðið „fíflavín“ þeim fullorðnu og börnunum eplasafa, vínið
bragðaðist bara nokkuð vel og heyrðist mér á mörgum að framvegis yrðu sko túnfíflunum ekki hent nú skildi þeim safnað saman
og gert úr þeim vín, einhverjir félagar bjóða okkur kannske upp á „fíflavín“ að ári??? Þessi ferð
endaði svo með smá viðkomu að Bjarteyjarsandi og var húsmóðirin þar búin að hella upp á góðan kaffisopa sem rennt var
niður með engiferköku á meðan börnin fóru í fjárhúsin að kíkja á lömbin, kanínur og fleiri dýr, sum voru
svo heppin að sjá nýfætt lamb, en þeim fannst það svoldið ógeðslegt eins og þau sögðu allt í blóði!! Er
börnin komu úr fjárhúsunum fengu þau mjólk og engiferköku sem þau gerðu góð skil.
Markaðurinn var á sínum stað og kaffiveitingar og kl. 10.00 um kvöldið byrjaði dansleikur og var það Kiddi og Sigvaldi Bjarnasynir sem sáu um
fjörið langt fram á nótt og var mikið dansað og sprellað, þeir halda vel uppi fjörinu bræðurnir. Veðrið á laugardeginum var bara
nokkuð gott gekk á með skúrum annað slagið, en sólin náði þó að brjótast fram og kæta okkur félagana.
Sunnudagurinn byrjaði með Bingóinu sem ávallt er vinsælt og voru margir góðir vinningar og síðasti vinningurinn var mjög veglegur eins og
aðalvinningar eiga að vera, það var fjöldinn allur sem tók þátt bæði börn og fullorðnir og höfðu gaman að. Country-kennslan
var endurtekin og var sem áður í höndum Elsu Skarphéðinsdóttur félaga okkar nr. 302 og það var sem áður að gólfið
fylltist af börnum og fullorðnum, vil ég þakka Elsu kærlega fyrir kennsluna. Kl. 21.00 byrjuðu þeir félagar Snorri nr. 450 og Sigtryggur (Tryggvi) nr. 40
að spila og voru þeir tveir á sviðinu í klukkutíma að formaður tók gjallarhornið og kallaði á fólk inn og bað alla sem
væru með hljóðfæri að koma inn í hús að spila, en margir sátu úti í góða veðrinu. Það var ekki að
sökum að spyrja að eftir smá tíma var komið upp á svið, fjöldinn allur af hljóðfæraleikurum með nikkur, gítara og trompet og
náðu þeir allir svo vel saman að unun var á að hlýða og við hin tókum undir í söng og dansi. Ég vil þakka öllum
hljóðfæraleikurunum kærlega fyrir þeirra framlag og ég veit þetta á eftir að endurtaka sig svo vel heppnaðist þetta framtak
þeirra. Eftir að hljóðfæraleikararnir stigu af sviði þá var leikin tónlist af plötum sem hún Vigdís okkar félagi nr. 677
hafði tekið saman og var dansað framyfir miðnætti. Þar með lauk vel heppnaðri Hvítasunnuferð og vil ég þakka öllum þeim sem eru
í stjórn félagsins, ferðanefnd og skemmtinefnd fyrir þeirra störf sem unnin eru öll í sjálfboðavinnu og þar er þetta fólk
að taka af sínum frítíma til að geta látið svona helgi ganga vel fyrir sig, og á meðan er fjölskyldan aðeins útundan, það
er ómetanlegt þegar fólk er tilbúið að leggja svona mikið á sig og eigið þið miklar þakkir skildar fyrir.
Bestu þakkir fyrir allt - Kveðja Soffía G. Ólafsdóttir, formaður Félags Húsbílaeigenda
[ 27. maí 2009 ]- Hvítasunnuferðarin að Hlöðum - Nú eru aðeins 2 dagar til Hvítasunnuferðarinnar að
Hlöðum í Hvalfjarðarsveit. Ferðanefnd tekur á móti ykkur við afleggjarann að Hlöðum, um leið og þið greiðið
fáið þið afhenda dagskrá helgarinnar, ásamt merki, sem þið berið alla helgina.
Þeir sem verða mættir fyrir kl. 20.00 endilega komið upp í hús þegar skemmtunin verður sett og við syngjum helgina inn með þeim lögum
sem fylgja dagskránni. Strax á eftir verður Félagsvist og spilað eitt og hálft spjald. Um kl. 22.00 verður Country- dans undir leiðsögn Elsu
Skarphéðinsdóttur félaga nr. 302 Kl. 23.00 komum við öll saman styrkjum vináttuböndin með leik og söng og eru þeir sem kunna á
hljóðfæri hvattir til að koma með hljóðfærin sín. Við syngjum saman og dönsum fram eftir kvöldi, gaman saman.
Laugardagur: Minni ykkur á ferðina sem farið verður í kl. 10.30 á laugardagsmorgunn, mjög skemmtileg ferð með Arnheiði
Hjörleifsdóttur frá Bjarteyjarsandi, hún segir þetta ekki erfiða göngu, frekar slétt en mjög forvitnilegt, Við munum selja í
þessa ferð á föstudagskvöldinu í anddyri Félagsheimilisins og væri mjög gott að þið væruð með akkúrat fyrir
þessari ferð en það er kr. 500 fyrir fullorðna jafnt sem börn.
Markaðsstemming kl. 14.00. Félagið verður með vörur s.s. afmæliskönnur,glös og platta. Grillsvuntur og handklæði, nýtt. Peysur,
fána og húsbílaveifur, númer á bílana og merki. Einnig seljum við sápu og bón fyrir bílana vörur frá Sonax. Sverrir
sölustjóri hjá Ásbirni Ólafssyni mun vera með sýnikennslu hvernig þessi efni virka fyrir framan Félagsheimilið. Nokkrir félagar
verða einnig með sölu á sínum varningi margt skemmtilegt og nytsamlegt á boðstólum sjón er sögu ríkari. Munið eftir hestunum sem
verða á svæðinu fyrir börnin frá kl. 14.30-17.00, endilega nýtið ykkur að fara á hestbak. Kaffiveitingar í boði Félagsins.
Eftir kaffið byrjum við að selja bingóspjöld fyrir sunnudaginn. Dansleikurinn byrjar kl. 22.00 er þeir eldhressu bræður, Kiddi Bjarna og Sigvaldi, sjá
um stuðið fram eftir nóttu.
Sunnudagur: Kl. 14.00 byrjar hið sívinsæala Bingó margt góðra vinninga. Country-kennsla kl. 17.15 undir leiðsögn Elsu félaga nr.
302. Endum svo helgina með því að koma saman upp úr kl. 21.oo á sunnudagskvöldinu og eigum góðar stundir saman með
söng,hljóðfæraleik og dansi. Gestabókin verður alla helgina inn í félagsheimilinu munið að skrifa í hana, og þið ykkar sem
voruð að Félagsgarði ritið nöfn ykkar í bókina á blaðsíðurnar sem tilheyra þeirri ferð.
Sundlaugin er opin frá kl. 12.30 – 19.00 frá laugardegi til mánudags.
Sjúkrakassinn er í bíl 202 Gaflaranum, hjá Rögnu Helgadóttur stjórnarmanni og Ástráði Kr. Sigurðssyni.
Kæru félagar við óskum ykkur góðrar skemmtunar, njótið dvalarinnar og við óskum ykkur góðrar heimkomu. Góðvild er
sá gullni þráður sem heldur samfélaginu saman. F.h. stjórnar, ferða-og skemmtinefndar, Soffía G. Ólafsdóttir, formaður.
[ 23. maí 2009 ]- Tilboð frá Skeljungi - Gert hefur verið samkomulag við Skeljung um afsláttarkjör til félagsmanna. Munar þar
mestu um verð á eldsneyti.
Á afsláttarlykli/korti tengdum debetkorti er:
6 króna afsláttur hjá Shell, og 4,5 kr. afsláttur hjá Orkunni.
Á afsláttarlykli/korti tengdum kreditkorti er:
5 kr. afsláttur hjá Shell og 3,5 kr. afsláttur hjá Orkunni.
Þessi verð miðast við auglýst verð á hverjum stað.
Við munum birta hér á heimasíðunnitengingu á vef Skeljungs, ásamt birtingu á öðru
fræðslu- og/eða fróðleiksefni í samstarfi við Skeljung. Skeljungur mun koma á framfæri tilboðum og öðrum upplýsingum frá
Skeljungi til félagsmanna þeim til hagsbóta. Skeljungur tekur á mótiumsóknumfrá félagsmönnum ávefsíðu Skeljungsog útbýr
afsláttarkort eða afsláttalykil sem veitir félagsmönnum mismunandi afslátt eftir því hvort valið er tenging við debet- eða kreditkort.
Staðgreiðslukortið veitir einnig afslátt hjá völdum samstarfsaðilum Skeljungs. Allar nánari upplýsingar eru á heimasíðu
Skeljungs.
Athugið að setja "HÚSBÍLAEIGENDUR" í reitinn hópur!
Með samkomulagi þessu mun Skeljungur, hér eftir, veita Félagi Húsbílaeigenda styrki í samræmi við veltu félaganna hjá
félaginu.
Við þökkum Skeljungi þetta ágæta tilboð og vonum að þið félagarnir sjáið ykkur hag af því að nýta
þetta.
[ 22. maí 2009 ]- Fréttabréfið farið í póst - Jæja þá er fréttabréfið farið í
póst og eins er það komið á sinn stað hér á síðunni.
Í þessu bréfi er meðal annars farið yfir dagskrá næstu ferðar þ.e ferðarinnar að Hlöðum, farið yfir tilboð Skeljungs, og
eins er þar fróðlegan pistil að finna um akstur í roki og fleira og fleira. Athugið að hægt er að prenta og/eða vista fréttabréfið
í word formati fyrir þá sem þess óska.
Auglýsingar - Nýr bíll á sölusíðu og fleiri auglýsingar konar inn.
Tilboð - Alltaf er eitthvað að bætast við tilboðin svo um að gera að fylgjast með.
Kv. Netstjórinn
[ 8. maí 2009 ]- Nokkrir punktar - Kæru félagar, hér erun nokkrir punktar fyrir ferðina sem hest í dag, föstudaginn 8. maí.
Sjúkrakassi félagsins er þessa helgi í bíl varaformannsins, Tryggva (Sigtryggs) Hafsteinssonar, nr. 40(Félaginn)
Ef ykkur vantar númer og merki á bílana ykkar þá er hann Valdi(Ástvaldur) gjaldkerinn okkar nr. 404(Þotan), með merki til sölu fyrir ykkur.
Settið á bílinn kostar kr. 1.500. Einnig íslenskar fánaveifur á kr. 1.000 og húsbílaveifur á kr. 1.200. Að ógleymdri
Söngbókinni okkar, sem kostar kr. 1.000. Þeir félagar sem hafa verið að greiða árgjaldið í þessari viku athugið, ferðanefndin er
með Félagatalið ykkar og félagsskírteinið hjá sér.
Munið að skrifa í Gestabókina í félagsheimilinu. Góða skemmtun, Soffía
[ 5. maí 2009 ]- Ágætu félagar - Eru ekki allir búnir að greiða árgjaldið fyrir 2009? - Ef ekki þá endilega
drífið í því, því gjaldið sem sett er á hverja ferð miðast við að þú sért skuldlaus við
félagið.
Félagsgarður í Kjós helgina 8. - 10. maí 2009 Nú er komið að fyrstu ferðinni á vegum Félags
Húsbílaeigenda, já eru ekki allir komnir í ferðagírinn? Félagsgarður í Kjós er nokkuð skemmtilegur staður til gistingar
í notalegu umhverfi. Þarna er nokkuð stór túnflöt sem við höfum til afnota, en það er ekki rafmagn og ekki losun fyrir klósett. Við
höfum afnot af húsinu frá því kl. 19.00 á föstudeginum og er þar góð snyrtiaðstaða. Stæði verða skipulögð
á túninu að mestu, og sjá herrarnir í ferðanefndinni um að beina ykkur félagar góðir, inn á túnið. Á
bílaplaninu (möl) er nokkur halli en ekkert mál er þó að hafa bíla þar á kubbum (gæti þurft þó nokkra..)
Við skemmtum okkur saman á föstudags-og laugardagskvöldunum upp í húsi og viljum við biðja alla þá hljóðfæraleikara sem
mæta að koma með hljóðfærin sín og spila fyrir félagana svo við getum tekið nokkur spor. Á laugardeginum verður Félagsvist kl.
16.00 . verðlaun í boði. Ef einhver vill fara í leiki með börnunum, gera eitthvað skemmtilegt á laugardeginum þá endilega hafið samband
við skemmtinefndina þau Laugu, Sævar, Kristínu og Valtýr, endilega verið virk, gaman saman.
Verðið er kr. 1.000,- pr. bíl, helgin, en fyrir gesti er verðið kr. 2.000, helgin. Göngum vel og snyrtilega um svæðið, ruslagámur verður á
svæðinu, hendið öllu rusli í hann. Munið að hundar mega ekki vera lausir og þrífið upp eftir þá.
Góðir félagar, vonandi eigum við öll góða helgi saman og munið að koma með góða skapið með ykkur og jákvæðnina,
og munið að „Maður er manns gaman“
Bestu kveðjur Stjórn, ferðanefnd og skemmtinefnd Félags Húsbílaeigenda
[ 30. apríl 2009 ]- Ágætu félagar! - Núna um helgina eru sjálfsagt margir sem fara eitthvað í útilegu. Eins og
þið sjáið á Gestabókinni þá er verið að opna núna 1. maí, tjaldstæðið í Hveragerði, margt er um að
vera þar og þeir eru að bjóða okkur tilboð á gistingu fyrir tvo í 3 nætur 3.900 kr.með rafmagni, og börn að 14. ára
frítt.
Og svo aftur í júni.
Gónhóll á Eyrabakka er að opna kaffihús og þar er heikmikið um að vera, (sjá
inn á linknum: Tjaldstæði) en á Eyrabakka opnar núna 1. maí og er þar frítt.
Að Gónhól verður margt um að vera í allt sumar.[Skoða
Dagskrá]
Hamragarðar eru að bjóða tilboð núna um helgina (sjá: Gestabókina)
Tjaldstæðið í Þorlákshöfn( sjá: Tjaldstæði)
Hvert sem þið farið ágætu félagar skemmtið ykkur vel og farið gætilega.
Skoðunardagurinn 25. apríl rann upp bjartur og fagur. Fyrstu bílarnir voru víst mættir um sex leytið um morguninn og þeir hjá
Aðalskoðun byrjuðu kl. 8.00 þar sem svo margir voru komnir en auglýstur tími var kl. 8.30. Þegar ég mætti á staðinn kl. 9.30 var
löng röð og er ég náði mér í númer þá var ég nr. 82. En þetta gekk vel fyrir sig og það voru 103 bílar
skoðaðir þenna dag og hafa aldrei verið fleiri. En eitt sem skyggði á að okkur tókst að loka fyrir hjá sjoppunni og eflaust hjá fleirum og
lögreglan kom, en það er einmitt þetta sem við þurfum að passa okkur á, þ.e að taka tillit til aðstæðna, við pössum
þetta næst ágætu félagar. En það var virkilega gaman að hitta félagana, rabba saman, það voru allir svo glaðir og
ánægðir að hittast. Kaffið og kleinurnar, hjá starfsmönnum Aðalskoðunar var mjög gott og vil ég þakka starfsmönnum
Aðalskoðunar fyrir frábærann dag.
Sumar heilsar, himinn skín,
á heitum dögum einskis sakna.
Nú birtast aftur brosin mín,
og bjartar vonir mínar vakna.
Bestu kveðjur, Soffía Ólafsdóttir, formaður.
[ 23. apríl 2009 ]- Rótor með opið á skoðunardaginn - Rótor, Helluhrauni 4 í Hafnarfirði, í gula húsinu gegnt Aðalskoðun, verður með opið á skoðunardaginn og er um að gera að kíkja þangað en þar fæst úrval allskyns íhluta í húsbíla og ferðavagna. Þetta er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í í vörum og þjónustu tengdri ferðabílum, -vögnum og sumarhúsum, ásamt þjónustu á rafkerfum bifreiða og smurlausnum. - Kíkið einnig á heimasíðu þeirra http://www.rotor.is/ en þar er mjög gott úrval íhluta að finna.
[ 23. apríl 2009 ]- Rafgeymasalan með opið á skoðunardaginn - Rafgeymasalan, Dalshrauni 17, Hafnarfirði - 10% afsláttur af rafgeymum. Erum einnig með sólarsellur. Afsláttur á þeim er samkomulagsatriði. - Ath!. Verða með opið á skoðunardaginn 25.apríl á milli kl. 10 og 12. http://www.rafgeymar.is/
[ 20. apríl 2009 ] - Húsbílaskoðun Aðalskoðunar - Nokkrir punktar: Húsbíladagur Aðalskoðunar hf. verður haldinn
laugardaginn 25. apríl 2009 (kosningadaginn) og stendur frá kl. 08:30 til ca. 12:00, eftir því hvernig gengur að skoða.
Ath! Þetta er eingöngu fyrir Húsbílana (ekki einkabílinn)
1. Húsbíladagur Aðalskoðunar hf verður haldinn nk. laugardag, 25. apríl og stendur frá kl: 08:30 til c.a. 12:00, eftir því hvernig gengur að
skoða.
2. Menn byrja á að koma inn í afgreiðsluna og ganga frá greiðslu og fá númer með sér. Allir bílar eru teknir inn eftir röð
þannig að menn geta fylgst með hvenær kemur að þeim. Við reynum reyndar ef um minni bíla er að ræða að taka þá á lyftuna
hjá okkur og þá fara viðkomandi fram fyrir röðina en það flýtir bara fyrir afgreiðslu á hinum svo það er öllum til
góða.
3. Gott er að menn raði sér upp eftir röð og eins þarf að hafa í huga að þeir trufli sem minnst umferð hér á götunni fyrir
framan og sérstaklega þarf að hafa í huga að blokkera ekki af sjoppuna hér við hlið okkar.
4. Húsbílamönnum á landsbyggðinni verður boðið upp á sama verð á skoðun og á húsbíladaginn í maí og
júní. Við erum á eftirtöldum stöðum: Grundarfirði, Sólvöllum 17a, skoðunardagar: 14. og 28. maí og 11. og 25. júní.
Á bílaverkstæðinu Múlatindi, Múlavegi 13, á Ólafsfirði, skoðunardagar: 11. og 12. maí og 8. og 9. júní. Á
bílaverkstæðinu Bíley Leiruvogi 6 á Reyðarfirði, skoðunardagar: 18. og 19. maí og 22. og 23. júní. Athugið að við getum
bara skoðað bíla sem eru 3500 kg og minna. Panta þarf skoðunartíma á þessum stöðum.
5. Verðið á skoðun í ár verður kr. 4,500.- (var 4,200.- í fyrra).
6. Aðalskoðun hf býður upp á kaffi og kleinur og vonandi gott veður.
[ 8. apríl 2009 ]- Félagatal og skírteini - Ágætu félagar. Strax eftir páska munum við fara í það að pakka
félagatalinu og félagsskírteinunum og senda til allra sem hafa greitt árgjaldið fyrir þetta ár.
Við óskum ykkur öllum Gleðilegra páska.
Bestu kveðjur,
f.h. stjórnar, Soffía G. Ólafsdóttir, formaður
[ 16. mars 2009 ]- Ferðaáætlunin komin - Þá er ferðaáætlunin fyrir sumarið 2009 komin á sinn stað og um að gera
að kíkja.
Púslið og Getraunin uppfærð! - Einnig var verið að bæta inn nýjum auglýsingum.
Vorum að bæta inná síðuna TILBOÐ í linkunum hér vinstra megin.
Ég mun síðan bæta inn fleiri tilboðum og afsláttum eftir því sem upplýsingar berast. - Kv. Netstjórinn
[ 13. mars 2009 ]- Ferðafundurinn á morgun - Viljum minna alla að taka frá morgundaginn, þ.e 14. mars, en þá verður ferðafundurinn
haldinn, í sal Fjölbrautarskóla Suðurnesja, Sunnubraut 36 í Reykjanesbæ, og hefst hann kl. 14.00. [ Smellið hér til að sjá kort ]
Dagskráin: 1) Formaður setur fundinn og tilnefnir fundarstjóra - 2) Sigurjón Þ. Hannesson formaður ferðanefndar kynnir tillögur að
ferðum sumarsins. - 3) Umræður um tillögur - 4) Kaffihlé - 5) Kynning á útilegukortinu - 6) Kynning á veiðikortinu - 7) Jón Gunnar talar um
talstöðvar - 8) Kynnt tilboð frá N1 - 9) Kynning á heimasíðu félagsins, Þorsteinn Gunnarsson - 10) Önnur mál
[ 20. febrúar 2009 ]- Félagsmenn athugið! - Ágætu félagar. Minnum ykkur á opið hús á morgun 21. feb. að
Húnabúð, Skeifunni 11, frá kl. 14.00. Félagið verður með sölu á vörum sínum og nokkrir félagar verða með sölu
á ýmsum varningi sem þeir hafa verið að útbúa. Kaffiveitingar, myndasýning, og gömul albúm sem fólk getur skoðað, og
spiluð verður félagsvist. Dansleikur byrjar kl. 22.00 "Bara tveir" sjá um fjörið.
Það hefur verið spurt um hvort Félagið geti samið um góða afslætti við Smyril Line , hef verið í sambandi við Sigurjón
hjá Norrænu ferðaskrifstofunni sem sér um bókanir, hann segir að það sé ekki hægt að gefa upp verð fyrir hóp fyrirfram,
aðeins þegar liggur fyrir stærð hópsins og dagsetning brottfarar. En þeir vilja gefa félagsmönnum 5% afslátt.
Spurt hefur verið hvort við getum gefið upplýsingar um tjaldstæði erlendis, því er til að svara að á síðunni okkar undir
"ýmislegt" er tengill sem heitir Húsbílasíða, þar eru ýmsar upplýsingar s.s. um tjaldstæði í ýmsum löndum, um
húsbílafélög á Norðurlöndunum og þar má finna ferðaáætlun nokkurra félaga og hverjir eru í forsvari fyrir
félögin, en ég bara veit ekki hvort allar þessar síður séu uppfærðar reglulega, en þarna er hægt að fá ýmsan
fróðleik. Ég hef talað við Max Watson sem er formaður Dansk AutoCamper Forening (DACF)www.dacf.dkog hann sagði mér að Félagar í Félagi Húsbílaeigenda væru velkomnir inn í ferðir hjá
þeim, ef þeir greiddu fyrir sig.
Svo ágætu félagar ef þið eruð erlendis og hafið áhuga á að hitta húsbílafólk þar þá endilega gerið
það og segið svo okkur hinum ferðasöguna. Það stendur til hjá þessu félagi að koma til Íslands 25. júní og þau fara
aftur heim 9. júlí.
Árgjaldið. - Félagar, þið hafið tækifæri á því að greiða félagsgjaldið beint inn á
reikninginn 0542-26-276 kt. 681290-1099 til og með 3. mars, eftir það verða sendir út seðlar á þá sem eiga eftir að greiða. En þetta
gengur mjög vel.
Bestu kveðjur, Soffía
****************************
[ 31. janúar 2009 ] - Kæru félagar! - Veðrið þessa dagana er alveg yndislegt, hvítt yfir öllu og þvílík stilla,
þetta er algjört göngu-og myndaveður.
Fréttabréfið var að fara í póst til allra félagsmanna sem voru skuldlausir við félagið nú um áramót. Það
helsta sem fram kemur í því er:
Góugleðin haldin 21.feb.n.k. í Húnabúð (Skeifunni 11 salur fyrir ofan Þvottahúsið Fönn) Opið hús verður frá kl.
14.00-18.00. Félagsmönnum er boðið að koma með vörur sínar og selja, hafið samband við Soffíu formann eða sendið okkur
tölvupóst. Kl. 15.00 verða kaffiveitingar og um kl. 16.00 spilum við félagsvist, verðlaun í boði. Einnig verður Myndasýning frá s.l. sumri,
einnig geta félagar flett gömlum albúmum. Hlé verður frá kl. 18.30-21.00 en þá opnar húsið aftur og verður dansleikur frá kl.
22.00 og frameftir nóttu. Hljómsveitin Bara Tveir leikur fyrir dansi. Aðgangseyrir er 750.-- kr. pr. mann. Hver og einn kemur með sinn drykk.
Ferðafundur verður 14. mars n.k. í sal Fjölbrautarskóla Suðurnesja byrjar kl 14.00 Sigurjón Hannesson, formaður ferðanefndar kynnir ferðir sumarsins.
Kynning á Veiðikortinu og Útilegukortinu. Jón Gunnar talar um talstöðvar. Kaffiveitingar
Aðalskoðun í Hafnarfirði verður 25.apríl í ár. Þeir ætla að þjónusta okkur eins og þeir hafa gert undanfarin ár,
boðið upp á kaffi og kleinur. Félagar þið verðið að sýna gilt félagsskírteini, en ný félagsskírteini kemur
með Félagatalinu (en það er verið að vinna í því) og þeir sem hafa greitt félagsgjaldið 2009 fá bókina og
skírteinið strax og það er tilbúið. Þeir félagar okkar sem búa út á landi eiga að fá sama afslátt á
þeim stöðum sem taka að sér að skoða bíla en hann Sigurjón félagi nr.51 er að skoða þetta og hann getur veitt betri
upplýsingar þegar nær dregur.
Það liggur fyrir núna að fyrsta ferð verður 8.maí, Það verður Hvítasunnuferð og Stóra ferðin byrjar 11.júlí og
lýkur 18.júlí, svo þið getið tekið þessa daga frá. Aðalfundur félagsins verður síðan 3.okt. n.k. -
Árshátíðin verður síðan haldin þann 17. okt. n.k. að Hótel Örk. - Jólafundur 21. nóv. n.k.
Þið sjáið á þessu að við erum búin að festa helstu viðburði hjá okkur niður og þið getið sett þetta
í dagatalið ykkar, nánari upplýsingar munu svo berast þegar nær dregur, hverjum viðburði.
Ágætu félagar, nú erum við í stjórninni á fullu að safna auglýsingum í Félagatalið okkar, og vil ég beina til
ykkar þeirri spurningu, þurfið þið að auglýsa eitthvað??, endilega hafið samband við einhvern í stjórninni, einnig megið
þið alveg hafa samband við ykkar vinafólk og athuga hvort einhver vill kaupa auglýsingu hjá okkur.
Bestu kveðjur til ykkar allra og munið að "Mörg bros kvikna út frá einu BROSI"
F.h. stjórnar og nefnda, Soffía G. Ólafsdóttir.
****************************
[ 21. janúar 2009 ] - Varðandi greiðslutilhögun félagsgjalda - Stjórn Félags Húsbílaeigenda ákvað á fundi
sínum þann 17.jan. s.l. að gefa félagsmönnum kost á því að greiða félagsgjaldið, kr. 4,000.-, beint inn á reikning
félagsins 0542-26-276 kt. 681290-1099. Þessi ábending kom frá félagsmanni og viljum við prufa þetta, því það kostar töluvert
að setja í innheimtu og því sparar þetta bæði félaginu peninga svo og félögunum sjálfum. Þetta er hægt að gera til
20.febrúar n.k. en eftir það munum við senda út gíróseðla til þeirra sem ekki hafa greitt.
Vinsamlegast setjið kennitölur ykkar við greiðsluna og gott væri að fá kvittun inn á netfangið okkarhusbill@husbill.is- Bestu kveðjur, Soffía