Deila og Bókamerkja

Félag húsbílaeigenda - husbill.is

[ 19. febrúar 2010 ] - Útkall - Óvissuferðin eftir viku- Laugardaginn 27. febrúar verður farin Óvissu-Rútuferð á vegum félagsins. Nú er um að gera að

Eldri fréttir 2010

[ 19. febrúar 2010 ] - Útkall - Óvissuferðin eftir viku- Laugardaginn 27. febrúar verður farin Óvissu-Rútuferð á vegum félagsins. Nú er um að gera að skrá sig í ferðina, það eru 50 manns þegar búnir að skrá sig. Hringið í síma 896-5057 eða sendið tölvupóst á husbill@husbill.is Það kostar 2.500 kr. pr. mann í þessa ferð.
Ath! Greiðist með reiðufé við rútuna, því við erum ekki með posa.

Rútan er frá Selfossi og byrjar þar af leiðandi þar.
Kl. 11.00 Selfoss-Fossnesti
Kl. 11.10 Hveragerði- N1 planið
Kl. 12.30 Reykjavík-Hús verslunarinnar (á planinu þar)
Kl. 12.45 Hafnarfjörður-Hafnarfjarðarkirkja
Kl. 13.15 stoppað við hringtorgið sem liggur til Grindavíkur
(Grindvíkingar komi upp á hringtorgið á Reykjanesbraut)
Kl. 13.30 Reykjanesbær-planið við 88-húsið.
Þetta eru staðirnir sem fólk er pikkað upp í rútuna.
Akurnesingar-Borgnesingar og fólk vestar, ásamt fólki af Kjalarnesinu og Mosfellsbæ sem hafa áhuga á að koma í óvissuferðina komi á planið hjá Húsi Verslunarinnar. Félagar úr Garðinum og Sandgerði komi á planið við 88-húsið í Reykjanesbæ. Ef einhverjir úr Vogunum á Vatnsleysuströnd vilja koma í Óvissuferðina þá væri hægt að pikka þá upp við hringtorgið sem liggur niður í Voga, það væri þá rétt áður en fólkið frá Grindavík er pikkað upp í rútuna. Boðið verður uppá kaffi og gott meðlæti í ferðinni. Áætlað er að henni ljúki um kl. 18.00
Og til þess að ferðanefndin panti nú passlega margar rútur, þá endilega látið vita af þátttöku sem allra, allra fyrst.

[ 7. febrúar 2010 ] - Fréttabréf
Félagar, nú hafa allir, þeir sem eru með netföng, fengið fréttabréfið inn á póstinn sinn, en eitthvað er um að netföng eru ekki rétt eða dottin út, sendið leiðréttingar á netfang félagsins. Fréttabréfið fer, eftir helgi, í póst til þeirra sem ekki eru með netföng. Ég var búin að fara lauslega yfir þetta og sýndist það vera um 180 manns en það er heldur meira eða 280 manns, ég er nokkuð viss um að margir af þeim eru komnir með netföng en hafa ekki tilkynnt það. Vinsamlegast drífið í því strax.

Skoðunardagurinn verður 24.apríl n.k. hjá Frumherja, eins og þið sjáið á blaðinu sem fylgir fréttabréfinu, þetta er mjög gott tilboð og við gerum þennan dag í sameiningu að skemmtilegum degi og fjölmennum að sjálfsögðu.

Hlakka til að sjá ykkur sem flest í Óvissuferðinni 27. feb. n.k. Eigið öll góða daga og munið BROSIÐ..., Soffía Ólafsdóttir, formaður

[ 18. janúar 2010 ] - Ferðir sumarsins
Ferðanefnd er búin að ákveða dagsetningar á ferðir sumarsins, Ferðirnar eru, fyrir utan óvissuferðina 5 talsins, með Stóruferðinni. Á hvaða staði verður farið verður svo upplýst á ferðafundinum sem verður 20. mars n.k. kl. 14.00 og verður fundurinn haldinn í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ.

Dagsetningarnar eru:
      Ótilgreind 7. maí - 9. maí
      Ótilgreind 21. maí - 24. maí
      Ótilgreind: 17. júní - 20. júní
       (athugið þarna er verið að gera langa helgi, 17. júní er á fimmtudegi)
      Stóra ferðin er svo frá 9. júlí - 18. júlí
      Ótilgreind: 20. ágúst - 22. ágúst
      Lokaferð: 24. - 26. sept.
Setjið þessar dagsetningar inn á dagatalið ykkar.

[ 18. janúar 2010 ] - Árgjaldið, félagatalið og félagsskírteinin
Ágætu félagar við viljum beina því til ykkar að þið greiðið árgjaldið, sem er
kr. 4000.- beint inn á reikning félagsins: 542-26-276 | kt.: 681290 - 1099.
Þetta er ódýrasta leiðin bæði fyrir félagið og ykkur, látið kennitölu ykkar koma fram þegar greitt er, þannig sjáum við hver er að greiða. Þeir sem ekki hafa greitt fyrir 10. mars n.k. fá senda greiðsluseðla og mun þá bætast á hann 250.-kr. kostnaður. Það er sá kostnaður sem félagið þarf að greiða fyrir hvern greiddan greiðsluseðil.

Nú er stjórnin að fara að vinna að félagatalinu og við erum að byrja að safna auglýsingum í ritið, og við vonum svo sannarlega að okkur takist þar vel til. Áætlað er að félagatalið komi út í mars og þá fá allir félagar, sem hafa greitt árgjaldið fyrir 2010, sent félagatalið og félagsskírteinið í pósti.

[ 18. janúar 2010 ] - Óvissuferðin - Laugardaginn 27. febrúar verður farin óvissu-rútuferð á vegum félagsins. Það kostar 2.500 kr. pr. mann í þessa ferð.
Rútan er frá Selfossi og byrjar þar af leiðandi þar.
Kl. 11.00 Selfoss-Fossnesti
Kl. 11.10 Hveragerði- N1 planið
Kl. 12.30 Reykjavík-Hús verslunarinnar (á planinu þar)
Kl. 12.45 Hafnarfjörður-Hafnarfjarðarkirkja
Kl. 13.15 stoppað við hringtorgið sem liggur til Grindavíkur
(Grindvíkingar komi upp á hringtorgið á Reykjanesbraut)
Kl. 13.30 Reykjanesbær-planið við 88-húsið.
Þetta eru staðirnir sem fólk er pikkað upp í rútuna.
Akurnesingar-Borgnesingar og fólk vestar, ásamt fólki af Kjalarnesinu og Mosfellsbæ sem hafa áhuga á að koma í óvissuferðina komi á planið hjá Húsi Verslunarinnar. Félagar úr Garðinum og Sandgerði komi á planið við 88-húsið í Reykjanesbæ. Ef einhverjir úr Vogunum á Vatnsleysuströnd vilja koma í Óvissuferðina þá væri hægt að pikka þá upp við hringtorgið sem liggur niður í Voga, það væri þá rétt áður en fólkið frá Grindavík er pikkað upp í rútuna. Boðið verður uppá kaffi og gott meðlæti í ferðinni. Áætlað er að henni ljúki um kl. 18.00
Og til þess að ferðanefndin panti nú passlega margar rútur, þá endilega látið vita af þátttöku sem allra, allra fyrst.
Það getið t.d gert það með því að [ SMELLA HÉRNA ] - og eða með því að láta vita í gestabókinni... eða með því að hringja í síma félagsins: 896 - 5057

Töfraljós - Ilmkertagerð
Stefna

Mynd augnabliksins

101.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf