Gaslagnirnar
Heimilt er að vera með 2 gashylki, mest 11 kg hvort, í húsbílum, annað í notkun en hitt til vara. Taki gashylki meira en 2 kg af gasi skal það vera staðsett utan á bílnum eða í þéttu einangruðu rými inni í honum. Í slíku rými verður að vera op(að minnsta kosti 100cm2) á botninum til loftræstingar og má rýmið aðeins vera aðgengilegt að utan.
Gashylkin eiga að standa uppá endann og svo tryggilega frá þeim gengið að þau færist ekki úr stað. Rými fyrir gashylki á að vera með læsingu. Þegar gas er notað á rýmið að vera ólæst til að hægt sé að skrúfa fyrir gashylkið í skyndingu. Gashylki sem komið er fyrir að utanverðu, skal vera í trygglilegri hæð frá akbraut og hafa læsanlega hlíf sem nær að minnsta kosti yfir loka og þrýstijafnara.
Gaslögn skal vera gerð úr kopar, koparblöndu eða stáli og vera fest með fóðruðum festingum á minna en 300mm millibili. Gasleiðslu í gegnum vegg verður að leggja í hlífðarhulsu.
Brennsluloft gastækja, sem eru í stöðugri notkun án eftirlits, skal taka inn í bílinn í gegnum aðalloftrás(ofnar, miðstöðvar og önnur sambærileg gastæki). Rásarop á að vera á botni bílsins þar sem því verður komið við, annars á hlið. Fráloft(pústið) frá gastækjum verður að leiða beint út úr bílnum um fráloftsrás. Rásarop á að vera í lofti þar sem því er við komið, annars ofarlega á hliðinni. Ennig er gott að vera með gasskynjara í húsbílum til að skynja gasleka.
Gastæki og tilheyrandi fráloftsbúnaður skal valinn og þannig settur upp að ekki stafi af eldhætta. Almenn lágmörk eru þessi: Fjarlægð frá hitunartæki að brennanlegu efni er minnst 100mm, fráloftsrás verður að vera a.m.k. 75mm frá brennanlegu efni, fjarlægð frá brennara í eldavélum að óvörðum vegg úr brennanlegu efni er minnst 250mm. Hitunartæki, sem snúa inn í bílinn, verða að hafa grind eða net til að brennanlegir hlutir komist ekki nær hitafletinum en 100mm.
Gasveldavélar í bílum verða að vera með logavara.
Þð er æskilegt að láta þrýstiprófa gaslagnir húsbíla og alveg sérstaklega þegar um nýlagnir og /eða breytingar er um að ræða. Víkurverk og eflaust fleiri framkvæma slíka prófanir. Hafi menn ekki möguleika á slíku er ráðlegt að spreyja sápulegi(einnig fánlegt sérstakt lekaprófunar spray) á allar lagnir og nippla og hleypa síðan þrýstingi á. Sápvatnið bubblar þá þar sem leki á sér stað.
Ef ekkert að ofanrituðu er mögulegt, má grófkanna kerfið með einföldum hætti, en þá er þrýstingi hleypt á kerfið að kveldi og síðan lokað fyrir gaskútinn aftur. Daginn eftir er prófað að kveikja á hellu gaseldavélar án þess að skrúfa frá gaskútnum og ef smá logi kemur, er allt útlit fyrir að kerfið leki ekki. Þess ber þó að geta að þessi aðferð er ekki með löggildingu:-)
Meðhöndlið gas/própan af öryggi
Ef leki verður:
- Skrúfið strax fyrir hylkið
- Varið nálægt fólk við hættunni.
- Loftræstið. Ekki nota nokkurn rafbúnað sem getur gefið frá sér neista.
- Bíðið þangað til þið eruð viss um að gasið sem lak út hafi verið ræst út. Ráðfærið ykkur við slökkvilið ef þið eruð í vafa.
- Finnið uppruna lekans.
- Lokið fyrir lekann.
- Gangið úr skugga um að allt sé þétt.
Kv. Netstjórinn