Myndagetraunin!
Hvar er þessi mynd tekin? - SENDA SVAR

 |
|
Rétt svar við getraun no. 6 er: Myndin er tekin yfir Patreksfjörð, Hafnarmúli í baksýn og sér inn í Örlygshöfn hægramegin, en vinstra megin er Vatnsdalur. Myndin er tekin af tjaldstæðinu (fótboltavellinum, sem heimamenn kalla Wembley) á Patreksfirði.
Sendandi: Brynhildur Bjarnadóttir nr. 91 -|- Benedikt nr. 687 kom fyrstur með rétt svar. |
 |
|
Rétt svar við getraun no. 5: Myndin er tekin úr Arnarfirði(Suðurfjörðum) Tindarnir hægra megin heita Hornatær. Sér inn í Geirþjófsfjörð og Trostansfjörð.
Sendandi: Brynhildur Bjarnadóttir nr. 91 -|- Benedikt nr. 687 kom fyrstur með rétt svar. |
 |
|
Rétt svar við getraun no. 4: Myndin er tekin á Valahnjúkum tekinn á Valahnjúkum við Kaldárbotna ofan Hafnafjarðar og er Helgafell á vinstri hönd en Keilir í baksýn fyrir miðri mynd.
Sendandi: Reynir Gunnarsson nr. 786 -|- Svavar Þorsteinsson kom fyrstur með rétt svar sem reyndar var eina svarið sem kom:-). |
 |
|
Rétt svar við getraun no. 3: Eyðibýli að Húki í Vesturárdal Býlið heitir Húkur og er framarlega í Vesturárdal upp af Miðfirði í Húnavatnssýslu. Horft er inn dalinn. Að þessu sérkennilega býli er ágætur vegur allt að túnhliðinu, en þaðan er stuttur gangur að húsinu sjálfu.
Sendandi: Gunnar Th. no. 222 -|- Eggert Bergmann kom fyrstur með rétt svar. |
 |
|
Rétt svar við getraun no. 2: Myndin er tekin við rústir Evanger-verksmiðjunnar í Siglufirði, andspænis þorpinu og sér út á Siglunes.
Stutt gönguleið er frá sumarbústöðum við flugvallarendann og út að rústunum. Verksmiðjan fór í snjóflóði árið 1919. Í því flóði týndu níu manns lífi. Minningarplata er á rústunum um þessa atburði.
Sendandi: Gunnar Th. no. 222 -|- Salla no. 447 kom fyrst með rétt svar. |
 |
|
Rétt svar við getraun no. 1: Myndin er tekin í Leyningshólum í Eyjafirði og er horft niður til Tjarnargerðis,(glittir í sumarhúsið þar) sem er sumardvalarpardís Bílstjórafélags Akureyrar, minnir mig að félagið heiti, er. Fallegt vatn, Tjarnargerðisvatn með grónum hólma í miðju vatninu.
Kristján no. 868 kom fyrstur með rétt svar. |