1. Ef farartæki lendir í gosösku eða er ekið í gosösku eða ryki af henni er hætta á að lofthreinsarar og annar loftflæðibúnaður farartækja stíflist eða hindri eðlilegt loftflæði og geti skapað hættu á gangtruflunum eða öðrum bilunum. ( Verum meðvituð um hættuna ).
2. Ef gosaska fellur á yfirborð farartækja er mikilvægt að hreinsa hana EKKI af með því að strjúka yfir yfirborðið (EKKI TEIKNA Í ÖSKUNA). Ef askan er þurr hreinsast hún af í vindi og síðan er hægt að hreinsa hana endanlega af samkvæmt lýsingu hér að neðan, ef askan nær að blotna er heppilegast að hreinsa hana af með hreinu vatni, og síðar mildu sápuvatni en nauðsynlegt getur verið að þerra yfirborðið varlega eftir á til að fyrirbyggja að dropar með gosefnum festist við yfirborðið og geti „brennt“ það í sólarljósi.
3. Gosaska getur virkað eins slípimassi og þannig rispað yfirborð farartækja verulega auk þess sem í henni eru hugsanlega skaðleg efni.
Gosaska er samsett úr fíngerðum ögnum (innan við 2 mm í þvermál). Um þessar mundir berst mikil aska frá eldgosi í Eyjafjallajökli. Askan er samsett úr ögnum af ýmsum stærðum. Um fjórðungur af ögnunum eru það smáar (< 10 míkron sem veldur því að askan getur smogið um allt, núið og rispað og á það sérstaklega við hreyfanlega hluti bifreiða / tækja
Öskuagnir stífla mjög fljótt lofthreinsikerfi, sem getur leitt til yfirhitunar og vélarbilunar. Mjög lítið magn af gosösku sem smogið hefur inn á vélar getur valdið auka vélarsliti og þar með tjóni á þeim. Jafnvel geta skipti- og drifbúnaður bifreiða orðið fyrir skemmdum af völdum öskunnar, ef hún nær að smjúga þar inn.
Þéttingar í vökvakerfum (hydraulic components) slitna upp mikið fyrr en venjulega, bremsur og bremsukerfið er sérstaklega viðkvæmt fyrir rispum og stíflum vegna öskunnar. Flutningabifreiðar, og reyndar allar bifreiðar, sem aka þurfa um öskufallin svæði verða fyrir miklum ágangi, níðslu og álagi á bremsukerfið og þurfa því sérstakrar aðgæslu við og umhirðu.
Aska, sem smogið hefur milli þurrkublaða og framrúðu, rispar og skemmir varanlega glerið, og að auki rispast hliðarrúður hvert sinn, sem þær eru hreyfðar upp eða niður, eða af þeim þurrkað. Tæring lakks og ytri búnaðar bifreiða getur einnig átt sér stað, ef aska liggur á þeim.
Mikil óþægindi hljótast af gosösku og hún smýgur alls staðar inn, bæði á heimilinu og vinnustaðnum, þ.á m. inn í sjónvörp, tölvur, myndavélar og annan verðmætan búnað þar sem hún getur valdið óbætanlegu tjóni.
Aska er frábrugðin venjulegu ryki. Hún er kristölluð og hvöss sem leiðir til þess að hún rispar og sverfur yfirborðsfleti ef henni er sópað burt eða hún þurrkuð af. Ef blautt er í veðri sest askan til og loftið hreinsast, en í þurrviðri þarf ekki mikið til að hún þyrlist upp af völdum vinda og umferðar. Fyrir vikið eykst svifryk í andrúmsloftinu til muna og getur orðið svo mikið að af því stafi óþægindi í öndunarfærum og augum.
Heimild: Bílgreinasambandið og Almannavarnir