Breytingar á reglugerð um skoðun húsbíla
7. janúar 2009 tók ný reglugerð um skoðun ökutækja gildi. Meðal nýmæla eru að nú skal skoða húsbíla í maí mánuði, óháð síðasta staf í bílnúmeri. Heimilt er þó að koma með húsbíla allt frá áramótum og eins og með önnur ökutæki mega fara 2 mánuðir framyfir.
Þannig leggst sérstakt vanrækslugjald(sekt) á frá og með 1. ágúst, á þá sem ekki hafa mætt með húsbíl sinn til skoðunar. Sektin er kr. 15.000 en lækkar í kr. 7,500 sé hún greidd innan mánaðar.