Skynjarar sem henta í húsbíla.
Reykskynjarar: Til eru tvær megingerðir reykskynjara, þ.e Jónískir og Optískir.
Jónískir reykskynjarar bregðast skjótt við reyk og eru góðir alhliða reykskynjarar í flest rými. Þeir eru hinsvegar næmir fyrir raka, hita og brælu frá matargerð og henta því ekki í eldhús.
Optískir reykskynjarar bregðast einnig skjótt við reyk en eru ekki eins næmir fyrir öðrum breytingum og henta því vel til dæmis í eldhús. Í alrými er gott að hafa bæði jónískan og optískan skynjara.
Staðsetning: Reykskynjara á að staðsetja sem næst miðju lofts, og aldrei nær vegg eða ljósi en sem nemur 20 sentímetrum. Hann má aldrei setja í kverkina á milli lofts og veggjar. Ef óhjákvæmilegt er að setja reykskynjarann á vegg, verður að vera 10-25 sentímetra bil frá lofti og niður á skynjarann.
Viðhald og endurnýjun: Reykskynjari nýtir rafhlöðu og hann þarf að prófa reglulega, helst einu sinni í mánuði. Það er gert með því að styðja fingri á prófunarhnappinn þar til viðvörunarmerki heyrist. Líftími reykskynjara er áætlaður ca. tíu ár en mælt er með tíðari endurnýjun.
Gasskynjarar: Þeir skynja gas og eru nauðsynlegir þar sem hætta er á gasleka, til dæmis þar sem gas er notað til eldunar og/eða kyndingar. Leitið leiðbeininga um staðsetningu hjá seljendum. Gasskynjara þarf að endurnýja á fimm ára fresti og þeir koma ekki í stað reykskynjara.
Kolsýringsskynjarar: Þessi skynjarar greina þegar óvenjulega mikill kolsýringur myndast. Best er að setja skynjarann í loft, tvo til þrjá metra lárétt frá gastækinu og 30 sentímetrum frá vegg. Kolsýringsskynjarar eiga við þar sem eru tæki sem brenna gasi til eldunar eða upphitunar, eins og í ferðabílum og sumarhúsum.