Deila og Bókamerkja

Félag húsbílaeigenda - husbill.is

Nú hefur verið bætt í skoðunarreglur um húsbílana, að sett sé ábending (I) vanti slökkvitæki í húsbílinn, þ.e. ábending sem leiðir ekki til

Slökkvitæki

Nú hefur verið bætt í skoðunarreglur um húsbílana, að sett sé ábending (I) vanti slökkvitæki í húsbílinn, þ.e. ábending sem leiðir ekki til endurskoðunar(II). Samkvæmt símtali við Umferðarstofu(15. feb 2010) verður svo áfram um einhver ár og er sá tími hugsaður til aðlögunar fyrir húsbílaeigendur.  Ísland hefur enn heimild til setningu síkra "aukinna/harðari" reglna umfram venjubundnar evrópureglugerðir.

Athugið að bílar sem seinna hefur verið breytt í húsbíla, mega búast við að verða skoðaðir sem breyttir og geta því fengið athugasemd(2) sem leiðir til endurskoðunar.

Samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu eru reglurnar, sem skoðað er eftir, eftirfarandi:

Reglugerð um gerð og búnað nr. 822/2004

24.209 Húsbifreið.
(1) Í húsbifreið skal vera slökkvitæki í nálægð ökumannssætis sem svarar til a.m.k. 2 kg dufttækis.

24.03 Slökkvitæki.
(1) Slökkvitæki í ökutæki skal vera af viðurkenndri gerð fyrir A, B og C brunaflokka og skal vera komið fyrir í festingum sem því er ætlað.
(2) Á slökkvitæki skulu vera leiðbeiningar á íslensku um notkun þess.
(3) Ef áskilið slökkvitæki er dufttæki skal það vera með innan við ársgamla vottun frá viðurkenndri slökkvitækjaþjónustu um að slökkvitækið sé í lagi. Ef áskilið slökkvitæki er halontæki skal þrýstingsmælir sýna eðlilegan þrýsting.
(4) Áskilið slökkvitæki skal vera merkt skráningarnúmeri bifreiðar.

 

Dufttæki eru öflug alhliða slökkvitæki ætluð fyrir alla elda(ABC), og eru helst notuð í bílum. Talverð umræða hefur farið fram um dufttækin sérstaklega og þá vegna óþrifa sem notkun þeirra fylgir. Um gagnsemina er minna deilt. Þó má minna á það að dufttæki slökkvir t.d ekki í glóð. Þau þola hinsvegar frost og henta því vel í bílana.

Duftslökkvitæki eru einnig víða notuð sem heimilisslökkvitæki einkum ef notað er gas til eldunar eða hitunar. Þau eru fáanleg 2 kg.

Kolsýrutæki eru góð á eld í eldfimum vökvum og rafmagnselda.(AB) - Kolsýra og duft slökkva ekki í glóð. Léttvatnstæki(AB) gera það á hinn bóginn. En að sama skapi er minni slökkvigeta í þeim tækjum og því þyrfti að vera með mun stærra tæki af þeirri gerð til að samsvara 2 kg. dufttæki.. 

Brunaflokkar:

  • Brunaflokkur A:  Eldur í föstum efnum svo sem: timbri, pappír, vefnaði og sambærilegu. 
  • Brunaflokkur B:  Eldur í vökva svo sem: olíu, feiti, lakki, rafbúnaði hverskonar & fleiru    
  • Brunaflokkur C:  Eldur í gasi og rafmagni.

Ath! Slökkvitæki hafa takmarkaðan líftíma. Lesið vel leiðbeiningar um notkun og uppsetningu og leitið upplýsinga og ráðgjafar hjá seljendum, til dæmis um viðhald tækjanna, en samkvæmt reglugerð um viðhald handslökkvitækja ber eiganda og / eða umráðamanni  að láta viðurkenndan aðila yfirfara og skoða handslökkvitæki sín árlega.

Samanburður

Talsverður verðmismunur getur verið á milli slökkvitækja.  Þannig eru tækin með afrúnuðu "plasthasusunum" gjarnan mun dýrari en tæki sem eru með hefðbundnu handföngunum, sem fer heldur meira fyrir. Svo er einnig rétt að skoða afkastagetu tækjanna þegar velja skal tæki. Afkastagetan er merkt með fjölda A og fjölda B/C. Þannig eru flest 2 kg. dufttækin 13A(einnig til t.d  11A) en fjöldi B rokkar frá kannski 70-90. Þetta vísar til slökkviafkasta tækis. Eða eins og einhver sagði: Ef A er t.d arinkubbur þá er þetta sá fjöldi arinkubba sem tækið getur slökkt í.

Eldvarnateppi

Talsverð eldhætta fylgir notkun á olíu og feiti í eldhúsum og því er nauðsynlegt að hafa eldvarnateppi í eldhúsinu. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar um notkun þess og staðsetningu.

Ef eldur kviknar í olíu á pönnu eða í potti er nauðsynlegt að bregðast rétt við:

Rétt viðbrögð: Leggið eldvarnateppi yfir logandi pott/pönnu, og þéttið að, uns eldurinn hefur slokknað. Slökkvið undir hellunni ef þið getið.

 

      Röng viðbrögð:

  • Alls ekki má skvetta vatni á eldinn – það veldur sprengingu.
  • Reynið ekki að koma logandi potti eða pönnu út.

Svo ef allt þrýtur er gott að muna:  Neyðarnúmerið 112

Samantekt: Netstjóri  - Birt án ábyrgðar

Töfraljós - Ilmkertagerð
Stefna

Mynd augnabliksins

2009_stora_015.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf