Deila og Bókamerkja

Félag húsbílaeigenda - husbill.is

  Tjaldstæði sem veita félagsmönnum afslætti, tilboð og/eða eru á góðu verði[ Smellið á logo viðeigandi Tjaldstæða/Staða til

Tjaldstæði

 

Tjaldstæði sem veita félagsmönnum afslætti, tilboð og/eða eru á góðu verði
[ Smellið á logo viðeigandi Tjaldstæða/Staða til að skoða nánar ]

2011
Þeir þjónustuaðilar sem veita, félagsmönnum í Félagi húsbílaegenda sérskjör,
er bent á að senda upplýsingar um tjaldstæði sín á:
netstjori@husbill.is







 

Þórisstaðir 
Tilboð til Félags húsbílaeigenda sumarið 2011*:  
Tjaldsvæði - verð pr. fullorðinn(16 ára og eldri) pr. nótt.... 500  (Frítt fyrir15 ára og yngri)              0 
Rafmagn pr. sólarhring   kr. 500 
Golf - 9 holur  kr. 1,200.-  | Golf - daggjald kr. 2,000.- 
Veiði í þremur stöðuvötnum: Heill dagur kr. 1,800.- / Hálfur dagur  kr. 1,300.- 
*Félagsmenn þurfa að sýna fram á aðild áður en greiðsla fer fram til að njóta afsláttar
Verið velkomin, Elli og Jenny Símar 895-8114 / 848-3733 / 433-8975 
 Við erum á FacebookÞórisstaðir  - thorisstadir@thorisstadir.is  - SKOÐA TILBOÐIÐ






 

Tjaldstæðið á Hvammstanga - Kirkjuhvammi
Tjaldstæðið á Hvammstanga er aðeins 6 km. frá þjóðvegi 1. Einstakt tjaldsvæði í skjólgóðum hvammi(Kirkjuhvammi) með góðu þjónustuhúsi og fullkomri þjónustu fyrir tjald- og húsvagna, rafmagn, seyrulosun. Gjald til félagsmanna gegn framvísun félagsskírteinis:
Tjaldstæði  kr.500 pr./sólahring, Rafmagn kr. 500 pr/sólarhring - Frítt fyrir börn 15 ára og yngri. Opið: 15. maí til 15. september. - Verið velkomin - Erla og Sveinn, símar: 899 0008 & 615 3779
  Erum á Facebook - Kirkjuhvammur, 530 Hvammstangi  - hvammur.camping@gmail.com 





 

Tjaldstæðið á Flúðum
Tjaldmiðstöðin á Flúðum tók í fyrra í notkun nýtt og glæsilegt tjaldsvæði, einkar vel staðsett á fallegum stað við Litlu Laxá. Margfalt stærra og fullkomnara en forverinn og eitt frumlegasta tjaldstæði landsins. Tveir fótboltavellir, flugdrekavöllur og tveir blakvellir, svo eitthvað sé nefnt. Fyrri húsbíla er búið að gera sérstök stæði í brekkunum, með góðu útsýni yfir næsta nágrenni. Stæðin eru á þéttum uppgæddum mel. Vatn og rafmagn er á stæðunum. Verð: 1000 kr. á mann nóttin fyrir fullorðna, 500 kr. fyrir 13-16 ára og frítt fyrir 12 ára og yngri. Rafmagn: 500 kr á dag - Verið velkomin! http://www.fludir.is/ - [ Skoða kynningarskjal um tjaldstæðið ]

 




 

Tjaldstæði í Garðinum
er út við Garðskagavita. Tjaldstæðið er frítt og á það einnig við um rafmagnið. Garðurinn er frábær staður til að njóta útivistar hvort sem um er að ræða gönguferðir, berjatýnslu í móunum, golf, sund eða nestisferð í skrúðgarðinn. Skrúðgarðurinn Bræðraborg við Garðbraut er fallegur og litríkur og sannkallaður ævintýrastaður fyrir börn þar sem felustaðir og fjársjóðir leynast í hverju horni. Garðskagi er sannkölluð náttúruperla en þar er góð aðstaða fyrir tjaldbúa, tjaldvagna og húsbíla. Útsýnið frá Garðskaga er einstakt og fuglalífið sérstaklega fjölbreytt. http://www.svgardur.is/

 

Tjaldstæðið að Kverná
Í tilefni þess að í júní í sumar verða 30 ár liðin frá því að við hófum starfsemi við ferðaþjónustu að Kverná í Grundarfirði, bjóðum við öllum 60 ára og eldri sem eru félagsmenn í Húsbílafélaginu, frían aðgang á Tjaldsvæðinu Kverná. Gjaldtaka verður af allri rafmagnsnotkun. Tilboðið gildir frá 10. júni til 1. sept 2010.

Vinsamlega hafið samband við undirritaðan:
Fh. Tjaldsvæðisins Kverná, Kristinn Jóhannsson, símar: 865 4514 og 438 6813 - kverna@simnet.is



 

Tjaldstæðin í Systragili
Skjólgott og skemmtilegt tjaldsvæði fyrir tjöld, vagna og húsbíla. Rafmagn fyrir vagna og húsbíla. Leiktæki, salerni, þvottavél, heitt vatn og sturta. Klóaklosun fyrir húsbíla. Merktar gönguleiðir um Vaglaskóg og vörðuð leið beint uppaf Systragili yfir Vaðlaheiði niður í Eyjafjörð, kölluð Þingmannaleið. Mikill gróður og lækurinn Systrá. Stangveiði í Fnjóská í göngufæri. Lítil búð í Vaglaskógi í göngufæri. Golfvöllur 9 holu nýopnaður í Lundi, 4 km frá. Sundlaug á Illugastöðum 9 km frá. Stutt í Flateyjardal, Fjörður og Akureyri, 60 km inn á Mývatn og 90 km til Húsavíkur.
Opnunartími: 20. maí til 30. september
Verð til félagsmanna: 14 ára og eldri: kr. 600(í stað kr.800) - Frítt fyrir 13 ára og yngri - Rafmagn: kr. 500 - 4. hver nótt er frí fyrir alla!- [ Skoða stærri mynd af tjaldstæðinu ]
Nánari upplýsingar: Sími: 860-2213 -  systragil@simnet.is - Nánar um perlur Norðausturlands

 

  Tjalda.is
http://www.tjalda.is/ - Vandaður upplýsingavefur um hin ýmsu tjaldstæði og fréttir þeim tengdar
Töfraljós - Ilmkertagerð
Stefna

Mynd augnabliksins

gardskagi_19.-21.__g_st_010.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf