Efnin í vatnskerfin
Drykkjarvatn þarf að vera bakteríufrítt, en nokkuð algengt að gerlar finnist í drykkjarvatni og þá sérstaklega þegar vatn er geymt við misjafnar aðstæður til lengri tíma. Gerlar finnast einnig í lögnum bílanna svo og slöngum og krönum þar sem vatn er tekið. Til þess að halda drykkjarvatni hreinu og ekki síður til þess að geta geymt drykkjarvatn til lengri lengri tíma er mælt með notkun AQUA CLEAN.
Efnið er selt í töfluformi(100 töflur í dós eins og á myndinni hér til hliðar) og er notðuð 1 tafla, í hverja 20 lítra vatns.
AQUA CLEAN AC20 er efni sem er unnið úr silfri og er þar af leiðandi bakteríudrepandi. Það vinnur á kóleru, Salmonellu og fleiri bakteríum. Það tekur 2-4 klst. að gerilsneyða vatn, með tilliti til gerilfjölda. Silfur, sem er virkt efni í AQUA CLEAN eyðist mjög hægt í vatninu og getur það því haldist gerlasnautt í allt að 6 mánuði. AQUA CLEAN er bæði bragð- og lyktarlaust. Silfurmagn AQUA CLEAN fer ekki yfir það magn sem uppgefið er sem hámark hjá íslenskum yfirvöldum og er samþykkt af Hollustuvernd ríkisins.
PURA TANK: Hreinsar og bakteríuhreinsar vatnstanka, dælur, slöngur, rör, krana og yfirhöfuð allar lagnir og er efnið skaðlaust mönnum. Að geyma vatn við ljós og hita eru kjöraðstæður fyrir gerlafjölgun.
Því er mælt með því að hreinsa drykkjarvatnskerfin einu sinni til tvisvar á ári með PURA TANK.
PURA TANK er sýklahreinsandi efni byggt á súrefni og er klórfrítt. Atóm súrefnis drepur sýkla, gerla og aðra mengunarvalda við snertingu. Aðal kostir PURA TANK eru þeir að það vinnur án klórs og hefur það því engin eftiráhrif á bragð né lykt vatnsins.
PURA TANK er umhverfisvænt þar sem það brotnar einungis niður við súrefni og vatn og má því losa það út í umhverfið án nokkurra vandkvæða.
Kostir
- Hentar fyrir þrif og sótthreinsun á vatnstönkum, leiðslum, dælum krönum og lögnum
- Hentar fyrir allar gerðir vatnstanka
- Drepur bakteríur
- Lyktar,- og bragðlaust
- Hreinn vatnstankur er forsenda fyrir hreinu og öryggu drykkjarvatni
- Mælt er með að hreinsa vatnstanka einu sinni eða tvisvar á ári og nota reglulega AQUA CLEAN til að halda drykkjarvatni hreinu
- Einfalt í notkun
Notkun
- Þegar það er mögulegt, hreinsaðu vatnstankinn þinn.
- PURA TANK á að hella í tóman tankinn. 50 ml. svara til 16 lítra vatnstanks.(315 ml. í 100 lítra tank)
- Þar á eftir skaltu fylla hægt tankinn með fersku vatni. Varist loftbólur. Öll rör, slöngur, dælur og kranar skal skola vel. Látið lausnina liggja í að minnsta kosti í 24. klst.
- Skolið loks tankinn með miklu af hreinu vatni.
- Þegar þú að lokum fyllir tankinn af vatni settu þá réttan skammt af AQUA CLEAN í vatnið til að halda því áfram bakteríuhreinu.
Aðvörun!
- Verjið PURA TANK fyrir hitaáhrifum
- Verjið innihald flöskunnar fyrir óhreinindum
- Upplausn flöskunnar má ekki hella til aftur í flöskuna
- Lokið flöskunni ávallt vel og geymið hana þar sem börn ná ekki til.
- Varist snertinu við húð og látið ekki komast í snertingu við augu. Ef til snertingatr kemur, hvort sem er við húð eða augu, skal skola með miklu vatni. Hafið strax samband við lækni ef efnið berst í augu.
Almennt
Notaðu aldrei vatn af óþekktum uppruna. Soðið vatn þarfnast t.d 10-20 mín. suðu áður en það verður gerilsnautt. Gerlar geta fjölgað sér með ótrúlegum hraða með tilliti til ljóss og hita. Á mörgum stöðum er vatn klórmengað. Aukameðferð á vatni með efnum sem unnin eru úr klór geta valdið eiturefnaáhrifum.
Heimildir: http://www.flakkarar.is/ - http://www.vikurverk.is/ -