01.10.2018
Netstjóri
Húsbílasýning hjá Víkurverk 6 og 7 október nýjir 2019 árgerð Carado húsbílar á sérstöku kynningarverði þessa helgina .Carado húsbílar á verði frá kr 8.995.000- Verðum einnig með Hobby húsbíla á sýningunni
Lesa meira
25.09.2018
Netstjóri
Ágætu félagar.
Komið þið öll sæl og blessuð.
Þetta er síðasta fréttabréfið sem ég skrifa til ykkar kæru félagar, þar sem ég læt af formennsku í okkar góða félagi á aðalfundinum13. okt. n.k.
Nú er komið að lokum sumarsins hjá okkur, aðeins eru eftir rúmir þrír mánuðir af árinu 2018. Já hvert ár líður hratt, alltaf komin jól áður en maður veit af, þetta helgast af því að það er gaman að lifa og margt að gerast hjá okkur. Ferðir sumarsins hafa verið ágætlega vel sóttar af félögum okkar.
Árshátíð/35 ára afmæli/Lokaferð.
Að þessu sinni var slegið saman árshátíð /35 ár afmæli og lokaferð, sem var haldin í íþróttahúsinu Garðinum, sem tókst alveg glimrandi vel og mættu þar 193 félagar sem skemmtu sér vel. Þar með lauk góðu ferðasumri og vona ég að sem flestir séu sáttir með sumarið og eigi bara góðar minningar um félagana og ferðirnar.
Lesa meira
04.09.2018
Netstjóri
Íþróttahúsinu Garðinum 14.–16. sept. 2018.
Dagskrá.
Föstudagur 14. september:
Hattadagur!
Á föstudeginum verðum við út á Garðskagavita, 500 kr. pr. mann sólahringurinn. Rafmagn 1.000 kr pr. sólahringurinn.
Skemmtinefndin gengur á milli bíla og selur happadrættismiða, á 250 kr. miðinn. Alls verða dregnir út 20 vinningar, hver öðrum flottari.
Á föstudagskvöld verða barmmerki og aðgöngumiðar afhentir hjá Sibbu í Dalakofanum nr.7, þar verða líka Erla og Jónatan nr.111, til aðstoðar. Á Laugardag frá kl: 13.00 í Dalakofanum nr 7, þar til allir eru komnir með sinn miða og barmmerki.
Lesa meira
12.08.2018
Netstjóri
Dagskrá.
Verð fyrir félagsmann 3.000 kr.
Verð fyrir gesti 4.000 kr.
Lesa meira
02.08.2018
Netstjóri
Sælir félagar.
Stór ferðin okkar gekk vel og fengum við bara gott veður, bæði rigningu og sól. Í Stóru-Ferðina mættu 62 bílar. í þessari ferð var ýmislegt brallað en samt hefðbundin eins Stóra-Ferðin hefur verið undanfarin ár. Fastir liðir eins og félagsvist, bingó, happadrætti, gönguferðir, bjórleikur, ólumpíuleikar, flöskuleikur, vinaleikur, ratleikur, happadrætti og félagsnúmeraútdráttur. Það var eitt nýtt sem við reyndum í þessari ferð og tókst það alveg glimrandi vel.Við vorum með sameiginlegt kaffihlaðborð, það lögðu allir til eitthvert góðgæti á kaffiborðið og úr var glæsilegt kaffihlaðborð, allir sælir, saddir og glaðir.
Næsta ferð okkar er 17.-19 ágúst þá förum við í Brautartungu Lundaríkjadal og er það Kjötsúpu og furðufataferðin okkar. Eru furðufötin ekki að verða klár?
Lesa meira
27.07.2018
Netstjóri
Kæru félagar nú er komið að því að skrá sig og greiða á Árshátíð, 35 ára afmælið og Lokaferð sem verður haldin í Íþróttahúsinu Garðinum laugardaginn 15. september n.k. Við þurfum að vera búin að gefa upp fjölda gesta fyrir 1. september n.k. Miðinn kostar 8.500 kr.
Lesa meira
25.07.2018
Netstjóri
Stjórnin.
Önnu Pálu leiðarljós
á lífsgöngunn‘ er Valur.
Nú er hennar fína fjós;
-fullur- veislusalur.
Í augum Helga birtist Blik
er bað hann Ingu Dóru.
Hún áköf sýndi ekkert hik
og augnablik þau fóru.
Lesa meira
08.07.2018
Netstjóri
Ferðin hefst á tjaldstæðinu á Akranesi og endar í Árbliki Dölum
Frjáls brottfarartími er alla ferðina og því kjörið að kynna sér handbókina og skoða sig vel um á leiðinni milli staða.
Við ætlum að bjóða félögum að greiða beint inn á reikning félagsins, fyrir þriðjudaginn 17. júlí, sem er lokadagur fyrir skráningu í lokahóf Stóru-Ferðar. Banki: 0552-26-6812 kt. 681290-1099. Sparið sporin hjá ferðanefnd, og komið til þeirra og greiðið í Stóru-Ferðina, hlustið þegar kallað verður í lúðurinn góða á Akranesi og Tröðum.
Pokin sem hýsir öll gögn, handbók, dagskrá, barmmerki og fleira sem þið fáið afhent, þegar greitt er í Stóru-Ferðina er fjölnota poki. Pokinn er gjöf til ykkar kæru félagar í tilefni 35 ára afmæli félagsins.
Lesa meira
18.06.2018
Netstjóri
Hér gerir hver upp fyrir sig hjá staðarhaldara.
Verð 2018
Fullorðnir 1.500 kr.
Eldri borgarar og öryrkjar 1.000kr.
30% afslátt gegn framvísun á félagsskírteinum 2018.
Gistináttaskattur er 300 kr.+vask 33 kr. = 333 kr.á bíl hverja nótt
Við fengum tilboð frá Lava safninu á Hvolsvelli.
Lesa meira
17.06.2018
Netstjóri
Sælir félagar.
Skoðunardagurinn tókst vel, það voru skoðaðir 53 bílar sem er 20 bílum fleira en var í fyrra á skoðunardegi. Boðið var upp á grillaðar pylsur, kaffi og konfekt. Eftir skoðun var farið á Voga á Vatnsleysuströnd, og voru þar á milli 50 og 60 bílar á föstudeginum sem fjölgaði vel eftir skoðun á laugardeginum enduðum með 80-90 bíla. Farið var í útileiki á laugardeginum í góðu veðri. Var ekki annað að sjá að allir hafi notið þess að hitta félagana til að spjalla. Þetta var góð helgi, gott tjaldstæði, þó svo það mætti huga betur að salernismálum, en það stendur til bóta.
Um Hvítasunnuhelgina vorum við með Íþróttahúsið í Þykkvabæjar og dvöldum þar í góðu yfirlæti þrátt fyrir leiðinlegt veður. Hér settu veðurguðirnir strik í reikninginn, það komu færri bílar en ella, mættu 49 bílar, sennilega fámennasta Hvítasunnuferð sem farin hefur verið. „Fámennt og góðmennt“ eins og máltakið segir. En það skemmtu sér allir mjög vel og höfðum við það gaman saman, fengum allar útgáfur af veðri.
Lesa meira