Ferð félagsins á Lýsuhól
Ferð félagsins á Lýsuhól verður helgina 12.–14. júní. Verðið er 5.000 kr. á mann og innifalið er tjaldstæði í tvær nætur, aðgangur að félagsheimili og ball á laugardagskvöldi með hljómsveitinni Festival. Rafmagn er greitt sérstaklega á staðnum. Greiða þarf í síðasta lagi miðvikudaginn 10. júní.
Lýsing:
Kúrekahelgi með gleði, leikjum og balli. Tjaldsvæðið opnar á föstudegi kl. 12:00 og um kvöldið verður pub quiz og samvera. Á laugardegi verða ólympíuleikar, línudanskennsla, sameiginlegt grill og kúrekaball með hljómsveitinni Festival frá kl. 21:00 til 02:00. Verð er 5.000 kr. á mann fyrir helgina og innifalið er tjaldstæði í tvær nætur, aðgangur að félagsheimilinu, skemmtanir og ball.
Dagskrá helgarinnar
Kúrekahelgi - gleði, leikir og ball
Föstudagur
12:00 - Tjaldsvæðið opnar. Ferðanefndin verður á staðnum til aðstoðar við uppsetningu. Vinsamlegast virðið þennan tíma.
21:00-24:00 - Pub quiz og samvera.
Laugardagur
12:30 - Ferðanefndin verður í félagsheimilinu til að merkja félaga fyrir inngöngu á ballið.
13:00 - Ólympíuleikar.
14:00 - Línudanskennsla.
19:00 - Grill og sameiginlegt borðhald utandyra ef veður leyfir.
21:00-02:00 - Kúrekaball með hljómsveitinni Festival.
Greiðsluupplýsingar
Verð: 5.000 kr. fyrir manninn fyrir helgina.
Reikningur: 0143-26-200073
Kt. 681290-1099
Síðasti greiðsludagur: miðvikudagurinn 10. júní.
Setjum hattinn á höfuðið og mætum í kúrekagír!