Hoppa beint í efni

Lög Félags húsbílaeigenda

Samþykkt á aðalfundi

1. grein. Nafn félagsins

Félagið heitir Félag húsbílaeigenda. Heimili þess og varnarþing er það sama og formanns á hverjum tíma, félagssvæði þess er allt Ísland.

2. grein. Markmið félagsins

Markmið félagsins eru:

  • Að ferðast um landið í skipulögðum ferðum.
  • Að standa vörð um hagsmuni húsbílaeigenda.
  • Að efla kynni þeirra á milli.
  • Að stuðla að landkynningu innan félagsins og góðri umgengni um landið.
  • Að efla samstarf og kynni milli annarra sambærilegra félaga.

3. grein. Starfsár og félagsgjöld

  • Starfs,- og reikningsár félagsins er á milli aðalfunda.
  • Aðalfund skal halda fyrir 1. nóvember ár hvert. Aðalfund skal boða með minnst viku fyrirvara á samfélagsmiðlum og heimasíðu félagsins. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað.
  • Árlegt félagsgjald, með gjalddaga 1.febrúar og eindaga 20.febrúar, skal ákveða á aðalfundi ár hvert.

4. grein. Félagsmenn, réttindi og skyldur

Félagar geta þeir orðið sem eiga þar til gerða húsbíla með föstum innréttingum eða bíla með þar til gerðu húsi. Hafa þeir málfrelsi, tillögurétt, atkvæðisrétt og kjörgengi á fundum félagsins.

Félagsmenn og samferðamenn í boði þeirra sem taka þátt í starfsemi félagsins, í ferðum og afþreyingu eru á eigin ábyrgð og áhættu.

Nýir félagar fá við inngöngu afhent númer og merki félagsins til álímingar á bíla sína.

Hjón og sambýlisfólk eru bæði fullgildir félagar. Þeir félagar sem eiga ekki húsbíla tímabundið, í allt að 3 ár, halda öllum réttindum í félaginu.

Almennan félagsfund skal boða eftir því sem stjórninni þykir ástæða til.

Einnig geta 5% félagsmanna óskað þess skriflega að haldinn sé almennur félagsfundur og skulu þeir þá tilgreina fundarefni. Innan 14 daga, frá því að sú ósk félagsmanna kemur fram, skal stjórn boða til almenns félagsfundar.

5. grein. Félagsmenn í Félagi húsbílaeigenda eru skuldbundnir til að

  • Fylgja lögum félagsins og fundarsamþykktum þess.
  • Greiða félagsgjöld á tilsettum tíma.
  • Fjarlægja merki félagsins úr bílum við sölu þeirra.
  • Tilkynna stjórn um breytingar á högum svo sem nýtt heimilisfang, símanúmer og ef skipt er um bíl.
  • Tilkynna stjórn ef viðkomandi ætlar að hætta í félaginu.

6. grein. Stjórn félagsins getur vikið félagsmanni úr félaginu ef hann

  • Vinnur gegn hagsmunum félagsins.
  • Gerist brotlegur við lög félagsins.
  • Hefur ekki greitt félagsgjald fyrir 1. maí ár hvert.
  • Hefur sýnt af sér vítaverða háttsemi í orðum og/eða gjörðum.

7. grein. Stjórn

  • Stjórn félagsins skal skipuð 5 félögum og 2 til vara sem kosnir eru á aðalfundi.
  • Formaður skal kosinn sérstaklega og skal hann kosinn til tveggja ára í senn.
  • Fjórir félagar skulu kosnir sem meðstjórnendur, þ.e. : tveir ár hvert til 2ja ára í senn. Tveir félagar skulu kosnir sem varamenn í stjórn, einn ár hvert, til 2ja ára í senn. Stjórnin skiptir með sér verkum.
  • Ár hvert skal kjósa tvo félagslega skoðunarmenn reikninga og einn til vara til 1 árs í senn.
  • Varamenn skulu boðaðir á stjórnarfundi. Hafa þeir málfrelsi og tillögurétt á stjórnarfundum en ekki atkvæðisrétt þegar stjórnin er fullskipuð.
  • Komi fram fleiri en ein tillaga, skal kjósa leynilega.

8. grein. Nefndir félagsins

  • Fjórir félagar skulu vera kosnir í skemmtinefnd til 2ja ára í senn: tveir ár hvert til 2ja ára í senn.
  • Fjórir félagar skulu vera kosnir í ferðanefnd til 2ja ára í senn: tveir ár hvert til 2ja ára í senn. Að auki situr í nefndinni einn stjórnarmaður kosinn af aðalstjórn.
  • Aðalfundur eða stjórn félagsins geta skipað aðrar nefndir til ákveðinna verkefna tímabundið. Stjórn félagsins skal afhenda þeim skipunarbréf þar sem skilgreint er verkefni þeirra.

9. grein. Kosningar

Kosning skal vera sem hér segir:

  • Formaður skal kosinn sérstaklega og skal hann kosinn til tveggja ára í senn.
  • Fjórir félagar skulu kosnir sem meðstjórnendur þ.e. tveir ár hvert, til 2ja ára í senn. Tveir félagar skulu kosnir sem varamenn í stjórn, einn ár hvert, til 2ja ára í senn.
  • Tveir félagar skulu kosnir sem varamenn í stjórn.
  • Fjórir félagar að minnsta kosti skulu kosnir í skemmtinefnd til 2 ára í senn.
  • Fjórir félagar skulu kosnir í ferðanefnd til 2 ára í senn. Að auki situr í henni einn stjórnarmaður.
  • Ár hvert skal kjósa tvo félagslega skoðunarmenn reikninga og einn til vara, til 1 árs í senn.

10. grein. Dagskrá aðalfundar

Dagskrá aðalfundar skal vera:

  1. Formaður setur fundinn og gerir tillögu um fundarstjóra.
  2. Fundarstjóri gerir tillögu um fundarritara og kynnir dagskrá fundarins.
  3. Formaður flytur skýrslu stjórnar.
  4. Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins.
  5. Umræður um skýrslu formanns og reikninga félagsins.
  6. Ákvörðun félagsgjalda.
  7. Lagabreytingar.
  8. Kosningar í stjórn og nefndir.
  9. Önnur mál.

11. grein. Starfssvið stjórnar og nefnda

a) Formaður er fulltrúi og ábyrgðarmaður félagsins út á við. Formaður undirritar bréf í nafni félagsins, hafi ekki öðrum verið gefið umboð til þess. Formaður boðar til funda félagsins, stýrir stjórnarfundunum og semur fyrir dagskrá. Formanni er heimilt að skipa fundarstjóra á fundum félagsins enda ber hann ábyrgð á fundarstjórn. Formaður hefur eftirlit með starfsemi félagsins og hann hefur eftirlit með því að fylgt sé lögum þess og samþykktum í öllum greinum. Stjórn ber sameiginlega ábyrgð á félagsskrá. Stjórn sér um innheimtu félagsgjalda.

b) Varaformaður gegnir störfum formanns í forföllum hans.

c) Ritari annast bókanir fundargerða í fundargerðarbók. Skal þar getið þeirra mála er fram koma á hverjum fundi og niðurstöður þeirra. Skylt er að bóka nöfn ræðumanna og afstöðu þeirra til viðkomandi mála. Ekki er heimilt að neita mönnum um bókanir á fundum félagsins. Heimilt er að hljóðrita það sem fram kemur á fundunum enda liggi fyrir samþykki fundarins. Ritari ber ábyrgð á að fært sé í fundarbók að fundi loknum. Stjórnarmaður skulu skrifa nöfn sín undir fundargerð.

d) Vara ritari gegnir sömu störfum og ritari í forföllum hans og aðstoðar ritara sé þess óskað.

e) Gjaldkeri hefur yfirumsjón með öllum fjáreiðum félagsins og skili stjórn yfirliti um fjárreiður þess sé þess óskað. Bókanir skulu ávalt vera til í fundargerðarbók félagsins.

f) Meirihluti stjórnar skuldbindur félagið. Einungis formaður og gjaldkeri skulu hafa prókúru á reikningum félagsins.

12. grein. Starfssvið skemmtinefndar

Formaður félagsins skal boða til fyrsta fundar skemmtinefndar og stýra honum.

Skemmtinefnd skipuleggur skemmtanahald á vegum félagsins í samráði við stjórn.

13. grein. Starfssvið ferðanefndar

Formaður félagsins skal boða til fyrsta fundar ferðanefndar og stýra honum. Nefndin skiptir með sér verkum þ.e. formaður, ritari, gjaldkeri og einn meðstjórnandi og að auki einn úr stjórn.

Ferðanefnd skipuleggur ferðir sem efnt er til á vegum félagsins, kannar aðstöðu til gistingar og útvegar ferðastjórn. Ferðanefnd annast einnig uppröðun bíla á tjaldsvæðum þar sem því verður við komið til að hámarka öryggi félagsmanna.

14. grein. Kosningar og atkvæðagreiðsla

Heimilt er að greiða atkvæði með handauppréttingu komi ekki fram gagntillaga. Einfaldur meirihluti félagsmanna á fundum gildir í kosningum. Stjórn félagsins metur vafaatriði.

15. grein. Skrifstofa félagsins, fréttabréf

Stjórn félagsins rekur skrifstofu og annast daglegan rekstur félagsins. Opnunartími skal vera eftir þörfum að mati stjórnar. Fréttabréf félagsins skulu gefin út eftir þörfum að mati stjórnar.

16. grein. Lagabreytingar

Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða til. Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn minnst 15 dögum fyrir aðalfund, skriflega og undirritaðar. Tillögum um lagabreytingar skal geta í aðalfundarboði.

17. grein. Félagið lagt niður

Með tillögu um að leggja félagið niður skal fara með eins og tillögu til lagabreytinga og skal tillögunnar getið sérstaklega í aðalfundarboði. Samþykki aðalfundur með 2/3 hluta greiddra atkvæða að félagið skuli lagt niður, skal þegar í stað efnt til skriflegrar allsherjaratkvæðagreiðslu meðal allra félagsmanna. Staðfesti 3/4 þeirra félagsmanna sem þátt taka í atkvæðagreiðslunni niður lagningu félagsins telst tillaga endanlega samþykkt. Stjórn félagsins skal þá þegar í stað loka reikningum félagsins, undirbúa slit þess og boða slitafund innan 30 daga frá því að talningu atkvæða lauk. Fundinn skal boða með sama hætti og aðalfund. Stjórn skal leggja fyrir fundinn tillögu sína um ráðstöfun á eignum félagsins en þeim skal varið til styrktar viðurkenndu mannúðar eða velferðarstarfi hér á landi.

Athugið: Þessi útgáfa laga er birt til upplýsingar. Í deilumálum gildir sú útgáfa sem samþykkt var á aðalfundi.