Kæru félagar Það er okkur sönn ánægja að kynna dagsetningar og landshluta fyrir ferðir sumarsins 2027. Ferðanefndin okkar hefur af sinni alkunnu elju og vandvirkni unnið að skipulagningunni og við getum svo sannarlega farið að hlakka til næsta ferðasumars. FERÐADAGATAL SUMARSINS 1. ferð 14.–17. maí Suðurland 2. ferð 4.–6. júní Vesturland 3. ferð 25.–27. júní Suðurland 4. ferð – STÓRA FERÐIN 16.–25. júlí Suðausturland / Austurland 5. ferð 13.–15. ágúst Suðurland 6. ferð 27.–29. ágúst Suðurland 7. ferð 10.–12. september Suðurland Við ætlum að halda í þá skemmtilegu hefð að láta áfangastaðina sjálfa vera leyndarmál þar til á ferðafundinum okkar í apríl. Þangað til vonum við að þessar upplýsingar hjálpi ykkur að skipuleggja sumarfríið. Merkið dagana í dagatalið og byrjið að hlakka til. Við hlökkum til að ferðast með ykkur sumarið 2027 Með bestu kveðju Stjórn og ferðanefnd Félags húsbílaeigenda
Á dagskrá eru meðal annars skýrsla stjórnar, reikningar félagsins, ákvörðun félagsgjalda, tillögur að lagabreytingum og kosningar í stjórn og nefndir. Fundinum lýkur með kaffiveitingum og notalegri samveru. Dagskrá og tillögur að lagabreytingum eru í fréttinni um fundinn.
Ferð félagsins á Lýsuhól verður helgina 12.–14. júní. Verðið er 5.000 kr. á mann og innifalið er tjaldstæði í tvær nætur, aðgangur að félagsheimili og ball á laugardagskvöldi með hljómsveitinni Festival. Rafmagn er greitt sérstaklega á staðnum. Greiða þarf í síðasta lagi miðvikudaginn 10. júní. Lýsing: Kúrekahelgi með gleði, leikjum og balli. Tjaldsvæðið opnar á föstudegi kl. 12:00 og um kvöldið verður pub quiz og samvera. Á laugardegi verða ólympíuleikar, línudanskennsla, sameiginlegt grill og kúrekaball með hljómsveitinni Festival frá kl. 21:00 til 02:00. Verð er 5.000 kr. á mann fyrir helgina og innifalið er tjaldstæði í tvær nætur, aðgangur að félagsheimilinu, skemmtanir og ball. Dagskrá helgarinnar Kúrekahelgi - gleði, leikir og ball Föstudagur 12:00 - Tjaldsvæðið opnar. Ferðanefndin verður á staðnum til aðstoðar við uppsetningu. Vinsamlegast virðið þennan tíma. 21:00-24:00 - Pub quiz og samvera. Laugardagur 12:30 - Ferðanefndin verður í félagsheimilinu til að merkja félaga fyrir inngöngu á ballið. 13:00 - Ólympíuleikar. 14:00 - Línudanskennsla. 19:00 - Grill og sameiginlegt borðhald utandyra ef veður leyfir. 21:00-02:00 - Kúrekaball með hljómsveitinni Festival. Greiðsluupplýsingar Verð: 5.000 kr. fyrir manninn fyrir helgina. Reikningur: 0143-26-200073 Kt. 681290-1099 Síðasti greiðsludagur: miðvikudagurinn 10. júní. Setjum hattinn á höfuðið og mætum í kúrekagír!