Hoppa beint í efni

1. nóvember 2026

Höfundur: Valgeir Ingi Ólafsson

Aðalfundur Félags húsbílaeigenda haldinn í Stóru-Vogaskóla þann 31. október 2026

Félag húsbílaeigenda hét sinn árlega aðalfund nú um helgina. Fjölmenni var á fundinum eða um 110 manns en 105 skrifuðu í gestabók félagsins. Á fundinum flutti formaður félagsins Sigríður Einarsdóttir skýrslu stjórnar þar sem fram kom meðal annars að starfsárið 2025–2026 einkenndist af öflugu félagsstarfi og góðri þátttöku í fjölbreyttum húsbílaferðum víða um land. Meðal áfangastaða voru Þykkvibær, Lýsuhóll, Borg í Grímsnesi og Norðurland, auk þess sem árshátíð var haldin á Varmalandi. Að meðaltali tóku um 160 félagsmenn þátt í hverri ferð sumarsins. Í þeim fimm ferðum þar sem þátttaka var sérstaklega skráð tóku alls 349 félagsmenn á 191 húsbíl þátt, eða um 48% félagsmanna.

Í lok september voru félagsmenn 726 og höfðu 75 nýir félagar bæst í hópinn á árinu. Félagsmenn eru á aldrinum 35–94 ára og meðalaldur þeirra er 70,8 ár. Fjárhagur félagsins er traustur og reksturinn í góðu jafnvægi, þrátt fyrir að félagið hafi niðurgreitt stóran hluta kostnaðar við flestar ferðir sumarsins. Undirbúningur næsta ferðasumars er þegar langt kominn; ferðir ársins 2027 hafa verið skipulagðar og tjaldsvæði og hús bókuð víðs vegar um landið.

Einnig lagði gjaldkeri fram reikninga starfsársins og skilaði félagað góðum hagnaði þetta árið. Fundarmenn samþykktu síðan skýrslu formanns og ársreikningana með handauppréttingu.

Einnig voru gerðar breytingar á 12. og 13. grein laga félagsins sem fjalla um starfssvið skemmti- og ferðanefndar, ásamt því að kosið var í stjórn og nefndir félagsins. Í stjórn og nefndum næsta starfsárs sitja því eftirtaldir aðilar: Sigríður Einarsdóttir, formaður til eins árs og meðstjórnendur þau Jóhann Bjarni Júlíusson til tveggja ára, Þorbjörg Unnur Magnúsdóttir til tveggja ára, Sigurgeir Sigurðsson til eins árs, Valgeir Ingi Ólafsson til eins árs, Bergljót Kristjánsdóttir til eins árs og Guðmundur Birkisson til tveggja ára. Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta. Tveir fundarmenn voru á móti tillögunni. Því næst var tillaga stjórnar um ferðanefnd lögð fyrir og samþykkt einróma. En í ferðanefnd eru: Hugrún Jóhannsdóttir til eins árs, Sigurður Guðjónsson til eins árs, Kristín Anný Jónsdóttir til eins árs og Halldór R. Vilbergsson til tveggja ára. Þar á eftir var tillaga stjórnar um skemmtinefnd kynnt en í henni verða: Herdís Jónsdóttir til eins árs, Ólafur Ægisson til eins árs og Stefanía Gylfadóttir til tveggja ára en einn vantar enn í nefndina svo hún verði fullskipuð. Tillagan var einróma samþykkt. Enn vantar þó einhvern í embætti netstjóra og var auglýst eftir honum á fundinum en enginn gaf sig fram. Skoðunarmenn reikninga verða: Sigurbjörg Einarsdóttir til eins árs og Hrafnhildur Ósk Beck einnig til eins árs og varamaður Finnur Eiríksson einnig til eins árs. Tillaga um skoðunarmenn var samþykkt samhljóða.

Í lok fundarins þakkaði formaður fundargestum fyrir þátttökuna og afhenti fráfarandi stjórnar og nefndarmönnum smá þakklætisvott fyrir vel unnin störf. Í lok fundarins sungu svo fundargestir húsbílalagið við undirleik okkar ástsælu tónlistamanna. Að því loknu var öllum viðstöddum boðið í kaffihlaðborð sem kvenfélagið Fjólan í Vogum sá um.