Hoppa beint í efni

12. október 2026

Höfundur: Stjórn Félags húsbílaeigenda

Aðalfundur Félags húsbílaeigenda 31. október 2026

Sumarminningar, ferðasögur og góð samvera!

Aðalfundur Félags húsbílaeigenda verður haldinn laugardaginn 31. október 2026 kl. 14:00 í Tjarnarsal í Stóru-Vogaskóla í Vogunum.

Dagskrá aðalfundar

  1. Formaður setur fundinn og gerir tillögu um fundarstjóra.
  2. Fundarstjóri gerir tillögu um fundarritara og kynnir dagskrá fundarins.
  3. Formaður flytur skýrslu stjórnar.
  4. Gjaldkeri leggur fram reikninga félagsins og gerir grein fyrir þeim.
  5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins.
  6. Ákvörðun um félagsgjöld.
  7. Tillögur að lagabreytingum.
  8. Kosningar í stjórn og nefndir.
  9. Önnur mál.
  10. Húsbílafélagslagið sungið við undirleik félagsmanna.
  11. Kaffiveitingar og notaleg samvera.

Við hvetjum ykkur eindregið til að mæta!

Aðalfundurinn er ekki aðeins vettvangur fyrir formleg störf heldur líka kærkomið tækifæri til að hittast, spjalla og eiga góða stund saman.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Með bestu kveðjum,
Stjórn Félags húsbílaeigenda

Tillögur að lagabreytingum

Á aðalfundinum verða lagðar fram eftirfarandi tillögur að breytingum á lögum Félags húsbílaeigenda, kt. 681290-1099. Tillögurnar verða teknar til umræðu og bornar undir atkvæði félagsmanna.

12. grein. Starfssvið skemmtinefndar

Formaður félagsins skal boða til fyrsta fundar skemmtinefndar og stýra honum. Skemmtinefnd skipuleggur skemmtanahald á vegum félagsins í samráði við stjórn. Nefndin skiptir með sér verkum þ.e. formaður, ritari, gjaldkeri og að auki einn úr stjórn.

13. grein. Starfssvið ferðanefndar

Formaður félagsins skal boða til fyrsta fundar ferðanefndar og stýra honum. Nefndin skiptir með sér verkum þ.e. formaður, ritari, gjaldkeri (fellur út) og tveir meðstjórnendur og að auki einn úr stjórn. Ferðanefnd skipuleggur ferðir sem efnt er til á vegum félagsins, kannar aðstöðu til gistingar og útvegar ferðastjórn. Ferðanefnd annast einnig uppröðun bíla á tjaldsvæðum þar sem því verður við komið til að hámarka öryggi félagsmanna.

Feitletraður texti er viðbót. Orðið sem merkt er „(fellur út)“ fellur brott.

Auglýsing aðalfundarins.