Hoppa beint í efni

17. nóvember 2026

Höfundur: Stjórn Félags húsbílaeigenda

Ný stjórn tekin til starfa

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar

Sunnudaginn 15. nóvember 2026 hélt nýkjörin stjórn Félags húsbílaeigenda sinn fyrsta fund. Formaður félagsins, Sigríður Einarsdóttir bauð nýja stjórn velkomna til starfa. Á fundinum skipti stjórnin með sér verkum og var Þorbjörg Unnur Magnúsdóttir valin gjaldkeri félagsins og Jóhann Bjarni Júlíusson varaformaður. Valgeir Ingi Ólafsson gegnir áfram starfi ritara og Sigurgeir Sigurðsson vararitari. Varamenn í stjórn eru þau Bergljót Kristjánsdóttir og Guðmundur Birkisson.

Einnig fór stjórnin yfir skipulag og verkaskiptingu vegna útgáfu félagatalsins 2027. Skipti hún með sér verkum varðandi öflun auglýsinga í félagatalið. Ákveðið var að hækka ekki verð auglýsinga þetta árið, en það hefur verið óbreytt síðustu tvö ár, og jafnframt bjóða auglýsendum meiri sýnileika á nýrri heimasíðu félagsins með því að auglýsingin birtist einnig á heimasíðunni og væri með beina tengingu yfir á heimasíðu viðkomandi fyrirtækis.

Nýja heimasíðan gefur félaginu aukna möguleika til ýmissa hluta sem ekki voru til staðar í gömlu síðunni.

Skipulag ferða sumarsins 2027 er í fullum gangi hjá ferða- og skemmtinefnd félagsins sem hafa nú þegar gefið út þær dagsetningar sem ferðir félagsins verða og eins hvaða landshlutar hafa orðið fyrir valinu þetta árið. Skipulag þeirra ferða er nánast lokið hjá ferðanefnd þangað til að ferðir sumarsins hefjast. Bíður stjórnin spennt eftir hækkandi sól og farsælu ferðasumri 2027.