30. október 2026
Höfundur: Sigríður Einarsdóttir
SAMÚT fundur
Kæru félagar,
Stjórn SAMÚT – samtaka útivistarfélaga – bauð tveimur fulltrúum frá hverju aðildarfélagi að taka þátt í stefnumótunarfundi sem haldinn var fimmtudaginn 29. október.
Fyrir hönd Félags húsbílaeigenda mættu undirrituð og Kristbjörn Svansson og tókum við virkan þátt í stefnumótunarvinnunni ásamt fulltrúum annarra aðildarfélaga SAMÚT.
Markmið fundarins var að móta sameiginlegar áherslur, skilgreina helstu hagsmunamál og forgangsraða verkefnum SAMÚT á komandi starfsári.
Jafnframt er ætlunin að efla samráð og samstarf aðildarfélaganna og styrkja stöðu samtakanna sem sameiginlegs málsvara útivistarfólks, gagnvart stjórnvöldum og öðrum hagsmunaaðilum.
Aðildarfélög SAMÚT eru margbreytileg, með ólíka starfsemi og fjölbreytta hagsmuni.
Þrátt fyrir ólíkar leiðir til útivistar eiga þau það sameiginlegt að vilja tryggja almenningi aðgang að náttúru Íslands og stuðla að ábyrgri umgengni og sjálfbærri nýtingu hennar.
Á undanförnum árum hafa orðið umtalsverðar breytingar á umgjörð útivistar og ferðamennsku hér á landi. Aukin ferðaþjónusta, ásókn í náttúrusvæði, takmarkanir á umferð, lokanir ferðaleiða, gjaldtaka og breyttar áherslur í skipulags- og náttúruverndarmálum hafa vakið mikilvægar spurningar um stöðu almannaréttarins og möguleika almennings til að njóta náttúru landsins.
Þessi þróun kallar á að samtök útivistarfélaga móti sér skýra og málefnalega afstöðu, byggða á þekkingu, reynslu og sameiginlegum hagsmunum aðildarfélaganna.
Það er afar mikilvægt að sjónarmið útivistarfólks hafi raunverulegt vægi þegar teknar eru ákvarðanir um aðgengi að náttúrunni, skipulag lands og ráðstöfun sameiginlegra náttúruauðlinda.
Náttúruvernd og réttur almennings til fjölbreyttrar útivistar þurfa ekki að vera andstæðir hagsmunir, heldur ber að leitast við að samræma hvoru tveggja á grundvelli skynsamlegrar stefnumótunar og gagnkvæmrar ábyrgðar.
Til þess að SAMÚT geti sinnt hlutverki af festu og ábyrgð, er nauðsynlegt að aðildarfélögin komi að mótun stefnu samtakanna á yfirstandandi starfsári og hafi bein áhrif á forgangsröðun verkefna.
Stjórn SAMÚT leggur því ríka áherslu á að sem flest aðildarfélög eigi fulltrúa á stefnumótunarfundinum og leggi sitt af mörkum til málefnalegrar og framsýnnar umræðu.
Styrkur SAMÚT ræðst ekki einungis af fjölda aðildarfélaga, heldur fyrst og fremst af þeirri samstöðu, virkni og ábyrgð sem þau sýna í sameiginlegri hagsmunagæslu. Án virkrar þátttöku félaganna verður rödd samtakanna hvorki nægilega sterk né áhrifamikil.
Það er því mikilvægt að hvert aðildarfélag láti sig stefnumótunina varða og taki þátt í að móta þá framtíðarsýn sem samtökin eiga að vinna eftir.
Sameiginleg hagsmunagæsla verður aldrei sterkari en sú samstaða sem aðildarfélögin sjálf sýna í verki.
Sigríður Einarsdóttir
formaður