ORKU Tilboðin

ORKAN býður félagsmönnum í Félagi húsbílaeigenda Orkulykil með sérkjörum. Sérkjörin tryggja þér allar gerðir af eldsneyti og úrvalsþjónustu á góðum afslætti í hvert sinn sem þú greiðir með Orkulyklinum (eða Orkukorti) hjá Shell eða Orkunni um land allt.
Sérkjörin miðast við afslátt af dæluverði (verðskilti á stöð) og eru nú: 7 kr afsláttur hjá Shell (jafngildir 13kr afslætti af listaverði Shell)

5 kr afsláttur hjá Orkunni
10 kr af lítra í upphafsafslátt
10 kr af lítra á afmælisdaginn
15 % afsláttur af ýmsum bílatengdum vörum og þjónustu

Þú getur sótt um á www.orkan.is og gættu þess að skrifa „Húsbíll\“ í reitinn þar sem stendur „Hópur\“. Við sendum þér svo heim í pósti, ótengdan lykil eða kort, allt eftir því hvort þú valdir. Um leið og þú hefur gengið frá tengingu við debet- eða kreditkort á heimasíðunni okkar nýtur þú sérkjara Orkulykilsins. Þeir sem eru þegar handhafar á Orkulyklinum geta haft samband við þjónustuver og við uppfærum afsláttinn. Ekki er hægt að uppfæra þessi kjör á Viðskiptakort Skeljungs.

Einnig er til boða Afsláttarkort Orkunnar, kortið er óháð greiðslumiðli. Þú einfaldlega straujar því í verslun eða rennir því í kortarauf sjálfsala, í framhaldi velur þú þann greiðslumiðil sem þér hentar (debet, kredit eða peningar). Til að sækja um Afsláttarkortið á sérkjörum þarf að merkja „Húsbíll\“ í reitin „ópur\“. Til að sækja um Afsláttarkortið þarf að sækja um á http://www.orkan.is/Afslattarkort

Ofangreind kjör gilda einnig fyrir maka.

Orkulykillinn veitir þér einnig þennan afslátt:

 15% af allri smurþjónustu hjá smurstöðvum Skeljungs við Skógarhlíð og Laugaveg

 15% af dekkjum og smurþjónustu hjá Pitstop – pitstop.is

 15% af öllum vörum hjá Stillingu – stilling.is

 15% af vinnu og viðgerðum hjá smurstöð, Dalvegi 16A

 10-15% af smur- og dekkjaþjónustu hjá Nesdekkjum

 20% af vinnu hjá Smur 54

Mánaðarleg tilboð á www.orkan.is á völdum vörum á bensínstöðvum Shell.

Þjónustusími Skeljungs/Orkunnar er 444-3000 einnig er hægt að senda fyrirspurn á: thjonustuver@skeljungur.is  

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *