Kæru félagar.
Nú er Stóra-ferðin okkar að skella á, með mikilli tilhlökkun.
Ferðin hefst á Hvammstanga 15. júlí og verður sett laugardaginn 16. Júlí kl: 20.00.
Í pokanum góða verður, leiðarvísir, gátublöð, dagskrá ferðarinnar, matseðillinn á lokahófinu og fl.
Nú verð ég að biðja ykkur félagar ef þið ætlið að koma inn í ferðina eftir að ferðin hefst og ætlið að vera með okkur á lokahófinu.
Og ef einhverjir félagar ætla bara að koma og vera með okkur á lokahófinu.
Þá verðið þið að láta mig vita fyrir miðvikudaginn 20. Júlí.
Konurnar sem sjá um matinn fyrir okkur eru ansi strangar með þessa tímasetningu, til að fá að vita fjölda í mat á lokahófinu.
Endilega látið mig vita í síma félagsins 896-5057
Vonast til að sjá ykkur sem flest í Stóru- ferðinni.
Húsbílakveðja
Anna Pálína Magnúsdóttir formaður