Fréttabréf á aðventu 2016.
Komið sælir félagar og takk fyrir skemmtilegt ferðasumar. Nú er aðventan gengin í garð, aðventuljósin komin út í glugga og allir farnir að huga að jólunum. Þá er komið að síðasta fréttabréfi sem þið fáið á þessu ári. Samþykkt var á stjórnarfundi 31. október að vera ekki með aðventukaffi þetta árið, veðrið hefur alltaf verið svo leiðinlegt undanfarin ár þegar félagið hefur boðið félögum sínum í aðventukaffi. Í eitt skiptið varð að aflýsa vegna veðurs svo síðara var mjög leiðinlegt veður, svo færri komu en reiknað var með.
Á aðalfundinum sem haldinn á sal Fjölbrautarskóla Vesturlanda Akranesi 15. október s.l. varð breyting á stjórn félagsins og skemmtinefndinni. En ferðanefndin er óbreytt. Í stjórn komu hjónin Inga Dóra Þorsteinsdóttir og Guðmundur Helgi Guðjónsson nr. 398. Í skemmtinefnd kom Hafdís Brandsdóttir nr. 394. Hér vantar einn félaga í skemmtinefnd.
Á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar, skipti stjórnin með sér verkum
Stjórn Félags húsbílaeigenda skipa.
Anna Pálína Magnúsdóttir nr. 595 formaður. Sigurbjörg Einarsdóttir nr. 377 gjaldkeri, Gísli Sæmundsson nr. 166 ritari, Katrín Björk Baldvinsdóttir nr. 100 varaformaður, Inga Dóra Þorsteinsdóttir nr. 398 vararitari, Snjólaug Kristinsdóttir nr. 166 meðstjórnandi, Guðmundur Helgi Guðjónsson nr. 398 meðstjórnandi og netstjóri félagsins.
Ferðanefndin er óbreitt.
Ásgeir M. Hjálmarsson nr. 712 formaður, Árni Óskarsson nr. 65, Ásgerður Ásta Magnúsdóttir nr. 501 og Ingibjörg Jónatansdóttir nr. 799
Skemmtinefnd skipa.
Geirþrúður Ásta nr. 93, tengiliður við stjórn. Hafdís Brandsdóttir nr. 394 og Sverrir Garðarsson nr. 85. Eins og áður kom fram vantar einn félaga í skemmtinefnd og nú biðlum við til ykkar kæru félagar að bjóða ykkur fram í skemmtinefnd okkar góða félags. Koma svo.
Netstjóri Félags húsbílaeigenda:
Guðmundur Helgi Guðjónsson nr. 398.
Skoðunarmenn reikninga:
Erla Skarphéðinsdóttir nr. 568, Guðbjörg Bjarnadóttir nr. 75 og Björn Þorbjörnsson nr. 10 varamaður. Við bjóðum nýja stjórnarmenn, nefndarmenn, netstjóra og skoðunarmann reikninga velkomna til starfa. Það er mikil tilhlökkun að fara að vinna með þessu góða fólki að hagsmunum fyrir félagsmenn og okkar góða félag.
Úr stjórn fóru:
Jóhanna Halldórsdóttir og Sigtryggur Hafsteinsson nr. 40.
Úr skemmtinefnd fóru:
Ingibjörg Þorláksdóttir nr. 695 og Árni Björnsson nr. 383.
Netstjórinn Anna M. Hálfdánardóttir nr. 165, gaf ekki kost á sér áfram.
Hjördís Þorsteinsdóttir skoðunarmaður reikninga hætti eftir að vera búin að gegna því starfi frá 2008
eða 8 ár. Var öllu þessu góða fólki sem lætur að störfum, færður fáni félagsins og blómvöndur að
gjöf sem þakklætisvottur fyrir fórnfúst starf í þágu okkar góða félags.
Á aðalfundinum var umræða um heimasíðuna okkar hvað hún væri erfið og ekki nógu mikið notuð. Á
fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar, samþykkti stjórn félagsins að ganga í að uppfæra heimasíðuna okkar
en það hefur ekki verið gert frá 2009. Nýr netstjóri Guðmundur Helgi Guðjónsson gekk í það mál og er
allt komið vel á veg.
Nú er allt komið á fullt hjá ferðanefnd að skipuleggja næsta ferða ár. Finna staði sem hægt er að
heimsækja í helgarferðum, í Stóru-ferðinni og ekki má gleyma Árshátíð/Lokaferð. Spennandi að vita
hvert verður haldið ferðasumarið 2017.
Skemmtinefndin lætur sér detta eitthvað skemmtilegt í hug til að láta okkur félagsmennina gera í
ferðum sumarsins 2017. Þetta verður örugglega skemmtilegt og spennandi.
Enn og aftur bið ég ykkur kæru félagar að láta formann vita ef breyting hefur orðið hjá ykkur t.d.
breytt heimilisfang, nýr bíll, nýtt netfang og fl.svo allt verði rétt skráð í Félagatalið 2017.
Mjög mikilvægt að láta vita um breytt heimilisfang svo Félagatalið fari á réttan stað þegar það kemur
út.
Senda allar breytingar á husbill@husbill.is eða síma 896-5057.
Sími félagsins er 896-5057.
Símatími formanns er mánudaga og miðvikudaga frá kl: 13.00-15.00
og fimmtudaga frá kl: 17.00-19.00
Eins og áður sagði er þetta seinasta fréttabréf á þessu ári, þá sendir stjórn og nefndir öllum félögum
okkar í Félagi húsbílaeigenda óskir um Gleðileg jól, gott og farsælt nýtt ár, með ósk um
að árið 2017 verði okkur öllum gæfuríkt og gott.
Bestu kveðjur frá stjórn og nefndum.
Anna Pálína Magnúsdóttir formaður Félags húsbílaeigenda.