Ferðanefnd er búin að ákveða dagsetningar á ferðir sumarsins, ferðirnar eru 5 talsins með Stóruferðinni. Á hvaða staði
verður farið verður svo upplýst á ferðafundinum sem verður 20. mars n.k. kl. 14.00 og verður fundurinn haldinn í Lágafellsskóla
í Mosfellsbæ.
Dagsetningarnar eru:
Ótilgreind 7. maí – 9. maí
Ótilgreind 21. maí – 24. maí
Ótilgreind: 17. júní – 20. júní (athugið þarna er verið að gera langa helgi, 17. júní er á
fimmtudegi)
Stóra ferðin er svo frá 9. júlí – 18. júlí
Ótilgreind: 20. ágúst – 22. ágúst
Lokaferð: 24. – 26. sept.
Setjið þessar dagsetningar inn á dagatalið ykkar.
Óvissuferðin 27. feb. 2010(Verð kr. 2.500 pr. mann í þessa ferð.)
Rútan er frá Selfossi og byrjar þar af leiðandi þar.
Kl. 11.00 Selfoss—Fossnesti
Kl. 11.10 Hveragerði- N1 planið
Kl. 12.30 Reykjavík—Hús verslunarinnar (á planinu þar)
Kl. 12.45 Hafnarfjörður—Hafnarfjarðarkirkja
Kl. 13.15 stoppað við hringtorgið sem liggur til Grindavíkur (Grindvíkingar komi upp á hringtorgið á
Reykjanesbraut)
Kl. 13.30 Reykjanesbær—planið við 88-húsið.
Þetta eru staðirnir sem fólk er pikkað upp í rútuna.
Akurnesingar—Borgnesingar og fólk vestar, ásamt fólki af Kjalarnesinu og Mosfellsbæ sem hafa áhuga á að koma í óvissuferðina
komi á planið hjá Húsi Verslunarinnar.
Félagar úr Garðinum og Sandgerði komi á planið við 88-húsið í Reykjanesbæ.
Ef einhverjir úr Vogunum á Vatnsleysuströnd vilja koma í Óvissuferðina þá væri hægt að pikka þá upp við
hringtorgið sem liggur niður í Voga, það væri þá rétt áður en fólkið frá Grindavík er pikkað upp í
rútuna.
Boðið er uppá kaffi og gott meðlæti í ferðinni og er áætlað er að henni ljúki um kl. 18.00
Það er nú þegar farið að bóka í ferðina og nú er um að gera að drífa sig að skrá sig, það eina sem er
vitað er að það verður ekki farið með fólk í gönguferð.
Skráið ykkur inn á gestabókina, eða sendið á netfangið husbill@husbill.is eða hringið í
síma 896-5057