Í kvöld 1 júlí kl 19,35 á RUV.

Kæru félagar:

Allir að horfa á Ríkissjónvarpið í kvöld. 

Það verður umfjöllun um okkar góða félag og viðtal við félaga okkar Siggu og Steingrím nr 22.

Bein útsending þar sem Fannar Sveinsson, Benedikt Valsson, Salka Sól og liðsmenn Virkra morgna
bera landsmönnum fréttir úr höfuðborginni og af landsbyggðinni.
Sumarilmur, bæjarrómantík, borgarfréttir og skemmtilegir viðmælendur.
http://www.ruv.is/thaettir/sumardagar

Í kvöld 1 júlí kl 19,35 á RUV. Read More »

Til ykkar sem koma um helgina!

Skjól  26-28 júní

Vegna góðrar veðurspá á næstu helgi,

þá ætlum við að bjóða þeim,sem koma á Skjól uppá.

BINGÓ og BJÓRPOTTALEIKINN.

LAUGARDAGUR 27.JÚNÍ 2015

Kl.20:30 Útibingó spilaðar verða 6 Umferðir,  600 kr spjaldið sem hægt er að nota fyrir þær allar, 
 Góðir vinningar.   Spjöld seld við (bíl nr 460  Nína Dóra og Haraldur.)
ATH. muna eftir pening gott að hafa akkúrat :-).
 
 
Þá er það Bjórpotturinn !
Hver kannast ekki við svoleiðis pottaleik nema með léttvíni?
Við ætlum að setja svona pottaleik á laggirnar á Laugardaginn 27.júní 2015, á Skjóli  við bíl nr. 460 hjá Nínu Dóru og Haraldi.
Þeir sem vilja vera með, koma með EINN bjór. Sem sagt einn bjór-einn bíll. Númer bílsins verður sett í pott og seinna um kvöldið.
(ekki hægt að tímasetja strax)sennilega strax á eftir bingóinu verður dregið um vonandi fjöldann allan af bjórdósum og auðvitað fullum.
 Þar sem ekki er vitað um fjölda þátttakenda þá er ekki vitað nú hve margir verði dregnir út en vonandi nokkrir!
Stefnum á að hafa gaman saman í góðu veðri kæru félagar og hittumst sem flest.
 Bestu kveðjur,  fyrir hönd Skemmtinefndar.
Anna Pála

Til ykkar sem koma um helgina! Read More »

Skjól 26-28 júní 2015.

Kæru félagar  þá er komið að næstu ferð:

26. – 28. júní: Skjól.
Skjól er á milli Gullfoss og Geysis við Kjóastaði sem er við þjóðveg no 35 
  Þarna gildir Útilegukortið,  og afsláttur er fyrir eldri borgara, öryrkja og börn.

 
Rafmagn 800 kr sólahringurinn. http://utilegukortid.srlausnir.is/skjol/

Vona að við sjáum ykkur sem flest í þessari ferð, og höfum það gaman saman.

Fyrir hönd stjórn og nefnda.
Anna Pála
                                        
P.S. (Hægt að losa ferðasalerni við áningastaðinn hjá Geysi)

Skjól 26-28 júní 2015. Read More »

12 – 14 júní 2015. Þórisstaðir, Svínadal.

12.-14. júní, Þórisstaðir:

Vegalengd frá Reykjavík 70 km.  

 

Útilegukort,

Annars 1.600 kr sólarhring. pr bíl,

Rafmagn 1.000 kr pr sólarhring.

Staðarhaldari sér um innheimtu.

Boðið verður upp á vöfflur,sultu og rjóma í kaffinu á laugardeginum.

Vonandi mætum við sem flest og komum með góða skapið. 

Fyrir hönd stjórn og nefnda.

Anna Pála.

P.s. Losun fyrir WC er á staðnum.

12 – 14 júní 2015. Þórisstaðir, Svínadal. Read More »

Stóraferð

Ferð No 5 Stóraferð 10 – 19 júlí
Strandir og sunnanverðir Vestfirðir byrjað á Drangsnesi endað á Tálknafirði.

Föstudagur – sunnudags 10 – 12 júlí Drangsnes
Vegalengd frá Reykjavík 264 km = 3 klt 10 mín Rafmagn 800 kr

Sunnudagur – þriðjudags 12 – 14 júlí Drangsnes – Norðurfjörður
Vegalengd 96,3 Km = 1 klt 18 mín Malarvegur

Þriðjudagur – miðvikudags 14 – 15 júlí Norðurfjörður Bjarkalundur
Vegalengd 145 Km = 1 klt 49 mín að hluta malarvegur ca 100 km
Rafmagn 800 kr

Miðvikudagur – föstudags 15 – 17 júlí
Bjarkalundur – Bjarkarholt
123 Km 1 klt 37 mín Lítið um rafmagn.

Föstudagur – sunnudags 17 – 19 júlí
Bjarkarholt – Tálknafjörður
Vegalengd 70,7 Km 52 mín Rafmagn 1200 kr

Hér endum við stóruferðina, og hver og einn fer sína leið væntanlega með góðar minningar úr þessari ferð.

Stóraferð Read More »

Skjól

Ferð No 4. Helgarferð 26. – 28. júní.Skjól á milli Gullfoss og Geysis við Kjóastaði sem er við þjóðveg no 35 120 km frá Reykjavík.Útilegukortið gildir afsláttur fyrir eldri borgara og börn. Rafmagn 900 kr.

Skjól Read More »