Kostnaður hvítasunnuferðar.

Kæru félagar:

Hér koma smá upplýsingar.

Hvítasunnuhelgin, 22.-25. júní Árnesi

Hver félagsmaður greiðir 5.000 kr

Hver gestur greiðir 6.000 kr 

Frítt fyrir 17 ára og yngri.

Ef einhver kemur bara í Hvítasunnukaffi kostar það 1.000 kr

Það er sundlaug á staðnum.

Og verður opin eins og  hér segir:

Föstudaga: 14 — 18

Laugardag, sunnudag og mánudag: 10 — 18 

Er því miður ekki viss með gjaldið.

 

F.h. stjórnar Anna Pála

Kostnaður hvítasunnuferðar. Read More »

Hvítasunnuhelgin – Árnes 22 – 25 maí 2015.

Hvítasunnuhelgi í Árnesi  22. – 25. mai 2015Föstudagur 22. maí:
Munið að föstudagar eru sérstakir hattadagar í Húsbílafélaginu.
í 4.gr. laga Hattavinafélagsins stendur:
Föstudagar eru sérstakir hattadagar og er félagsmönnum uppálagt að ganga með hatta þá daga að viðurlagðri skömm og hneisu, sem skammari sér um að framfylgja á næsta fundi/atburði á vegum félagsins.
Blöð með vísnagátum afhent við skráningu inn á svæðið. (eitt blað á bíl)
 
Kl.21 Félagsmenn eru hvattir að koma með hljóðfærin sín og söngbækur og njóta þess að hittast og hafa gaman saman.
 
Laugardagur 23. maí:
Kl. 11.00  Ólumpíuleikar Húsbílafélagsins. Allir hvattir að taka þátt !!!!
Kl. 13.00 – 15.00 Markaður í félagsheimilinu (Undirbúningur hefst kl. 12.00)
Kl. 15:30 Bingó í félagsheimilinu, Bingóspjöld seld á markaðinum
Kl. 17.00 Yngri kynslóðin getur spilað sína tónlist í félagsheimilinu og/eða rætt málin .
Kl. 19:00 Evróvísonpartý  ef Ísland kemst áfram. Endilega komið með snakk eða það sem hver og einn þykir tilheyra góðu partýi með sér.
 Ef Ísland kemst ekki áfram þá kl. 20:30 skemmtidagskrá
–        verðlaunaafhending fyrir Ólumpíuleikana.
Ca. Kl. 22.00  eða eftir að útsendingu á söngvakeppni líkur- Tónlistamennirnir Tómas Malmberg og Ingvar Valgeirsson leika fyrir dansi og félagsmönnum stendur til boða að leika með ef þeir eru í stuði til þess.
 
Sunnudagur 24.maí: (Hvítasunnudagur)
Blöð með svörum á Vísnagátum skilað í kassa í anddyri félagsheimilisins
13:00 Félagsvist / Bridge
15:00 Hvítasunnukaffi
20:30 Bílahappadrætti, Dregið úr réttum svörum á Vísnagátum.
Verðlauna  afhending fyrir félagsvist og vísnagátusvör.  – Eitthvað húllum hæ.
– kíkt í söngbókina og þeir sem eru í stuði þenja hljóðfærin sín.  
Mánudagur 25. Maí
*Kl. 12.00 Hjálpumst við frágang í Félagsheimilinu og muna að skrifa í gestabókina.
Skemmtinefnd áskilur sér rétt til að breyta dagskránni sjái hún ástæðu til.

Hvítasunnuhelgin – Árnes 22 – 25 maí 2015. Read More »

Happaleikur Frumherja.

Um leið og Frumherji þakkar fyrir góðan skoðunardag húsbíla vilja Frumherjamenn minna okkur félagana á happaleikinn góða. Hann gengur út á það að á kvittuninni er númer sem þið þurfið að pikka inn á Frumherja hér:
http://interex.frumherji.is/happafengur/skraning.php. Í apríl mánuði vann ungur skagamaður flott 50\“ sjónvarp.

Um leikinn:

Leikurinn heitir Lukkuleikur Frumherja. Á meðan leikurinn er í gangi gefst þátttakendum kostur á að vinna glæsilega vinninga.

Þátttaka:

Allir sem koma með bíl til skoðunar hjá Frumherja hf. um land allt fá sjálfkrafa happanúmer. Númerið kemur fram á reikningi. Til að staðfesta þátttöku í leiknum þarf viðkomandi að skrá sig á vefnum. Það er gert með því að smella á \“Happanúmer\“ á heimasíðu Frumherja, frumherji.is. Skrá þarf inn happanúmerið og nafn ásamt upplýsingum um síma og/eða tölvupóst. Aðeins er hægt að skrá sérhvert happanúmer einu sinni.

Samþykki:

Með skráningu samþykkir þátttakandi að nafn hans verði sett í pott og það birt í tölvupóstum til annarra þáttakenda ef hann vinnur, að nafn hans verði birt í fréttum á heimasíðu Frumherja, og að hann fái rafrænt fréttabréf í tölvupósti á meðan á leik stendur sem m.a. inniheldur upplýsingar um nýjasta vinningshafann.

Útdrættir:

Dregið verður fyrsta virkan dag hvers mánaðar.

Vinningar:

Í vinning er glæsilegt 50\“ Samsung sjónvarpstæki frá Ormsson.

Happaleikur Frumherja. Read More »

Útsvar, vantar í lið.

Skemmtinefnd vill hvetja félagsmenn til að koma með hljóðfæri fyrir ferðir og vera dugleg að taka þátt í því sem er í boði. Þeir sem vilja taka þátt í Úrsvari þurfa að setja saman 3 í lið og láta vita ekki seinna en 15 maí. n.k. að öðrum kosti leggst niður Útsvar í sumar, ef ekki næst í lið. Vil nefndin einnig hvetja unga fólkið á að vera duglegt að taka þátt og vera skapandi.
 Kveðja Skemmtinefndin.

Útsvar, vantar í lið. Read More »

Fyrsta ferð félagsins!

Kæru félagar.
 

Nú er komið að fyrstu ferð hjá Félagi Húsbílaeigenda.
 

Við byrjum sumarið með skoðunardeginum  hjá Frumherja að Hesthálsi 6-8 Reykjavík, en hann er  laugardaginn 9. maí.

Hittumst á föstudagskvöldinu á planinu hjá þeim. Byrjum daginn á morgunverði upp úr kl: 08.00,  egg, beikon,kokteilpylsur og ávaxtasafa.

Kl. 09:00 Hefst skoðun bílana og um leið verður borið fram kaffi og nýbakað vínabrauð eða muffins í boði Frumherja.

Færum Frumherjamönnum  kærar þakkir  fyrir.

Ef þið ætlið að koma og gista á planinu hjá Frumherjamönnum og þiggja morgunmat,

 
látið  þá vita á netfangið   husbill@husbill.is  eða síma félagsins 896-5057.
 

Verðið fyrir skoðun  er 6.500 kr
 
 
 
 Eftir skoðunina verður farið á Víðisstaðatún í Hafnarfirði og höfum við skála skátanna á svæðinu til afnota til kl: 01.00. 
 

Gjaldið er kr. 800 fyrir manninn
 

Hlökkum til að hitta ykkur og sjá.
 

F.h. stjórn og nefnda
Anna Pála

Fyrsta ferð félagsins! Read More »

Ferðir félagsins sumarið 2015.

Ferð  No 1.     Helgarferð    8 – 10 mai

Skoðunardagur hjá Frumherja Hesthálsi 6 -8 í Reykjavík.

Þeir sem vilja koma á föstudeginum geta gist á planinu.

Skoðunargjald 6,500 kr óháð stærð bíla.

Þegar skoðun líkur verður farið á Víðistaðatúnið í Hafnarfirði og verið þar til sunnudags. Gjaldið er kr. 800 fyrir manninn

Við verðum með afnot af skátahúsinu á lagardagskvöld

Verð fyrir rafmagn ?

Ferð  No 2. Hvítasunna 22. – 25. mai   Árnes

Vegalengd frá Reykjavík 100 km 

 Rafmagnið var 600 kr

Ferð  No 3. Helgarferð 12. – 14. júní

Þórisstaðir við Þórisstaðavatn.

Vegalengd frá Reykjavík 70 km 

Gjald fyrir bíl 1,600 kr. Rafmagn 900 kr sólarhringurinn

Aðstaða til að tæma ferðaklósett er á staðnum. Útlegukort

Ferð  No 4. Helgarferð  26. – 28. júní

Skjól á milli Gullfoss og Geysis við Kjóastaði sem er við þjóðveg no 35   120 km frá Reykjavík

Útilegukortið gildir afsláttur fyrir eldri borgara og börn. Rafmagn 900 kr

Ferð No 5  Stóraferð 10 – 19 júlí  

Strandir og sunnanverðir Vestfirðir byrjað á Drangsnesi endað á Tálknafirði.

Föstudagur – sunnudags 10 – 12 júlí Drangsnes

Vegalengd frá Reykjavík 264 km = 3 klt 10 mín Rafmagn 800 kr

Sunnudagur – þriðjudags 12 – 14 júlí Drangsnes – Norðurfjörður

Vegalengd 96,3 Km = 1 klt 18 mín Malarvegur

Þriðjudagur – miðvikudags 14 – 15 júlí  Norðurfjörður Bjarkalundur 

Vegalengd 145 Km = 1 klt 49 mín að hluta malarvegur ca 100 km

Rafmagn 800 kr

Miðvikudagur – föstudags 15 – 17 júlí

Bjarkalundur – Bjarkarholt

123 Km 1 klt 37 mín Lítið um rafmagn.

Föstudagur – sunnudags 17 – 19 júlí

Bjarkarholt – Tálknafjörður 

Vegalengd   70,7  Km 52 mín  Rafmagn 1200 kr

Hér endum við stóruferðina, og hver og einn fer sína leið væntanlega með góðar minningar úr þessari ferð.

Ferð  No 6. Helgarferð furðufataferð 14.-16. ágúst

Brautartungu Lundarreykjadal. 104 km frá Reykjavík.

Hús og tjaldsvæði rukkað saman. Rafmagn er rukkað sér 700 kr

Ferð No 7  11.- 13. september

Árshátíð/Lokaferð Njálsbúð vestur landeyjum

Vegalengd frá Reykjavík 121 km  14 km frá Hvolsvelli

Hús og gisting rukkuð saman. Lítið er um rafmagn.

Ferðir félagsins sumarið 2015. Read More »

Ferðafundur 2015.

Ferðafundurinn“

Ferðafundurinn verður haldinn á Fólkvangi Kjalarnesi 21. Mars kl: 14.00.

Dagskrá:

1.    Ávarp formans.
2.     Formaður ferðanefndar  Ásgeir M. Hjálmarsson kynnir ferðir sumarsins sem farnar verða á vegum félagsins.
3.    Skemmtinefnd segir frá hvaða hugmyndir þau eru með fyrir sumarið.
4.    Jóhannes B. Guðmundsson og Kjartan Jónsson sem eru að gefa út ferðablaði𠠄Ferðavagn“ ætla að kynna útgáfu blaðsins fyrir okkur
5.    Önnur mál
6.    Boðið verður upp á kaffi og kleinur í lok fundar.
7.    Fundi slitið.

     Eftir fundinn fá þeir félagsmenn  sem hafa greitt félagsgjald  2015,
    afhent  félagsskýrteini og félagatal 2015.
  
    Vonum að veðurguðirnir verði til friðs.
   og við hlökkum til að sjá sem flesta á ferðafundinum.
  
   Með húsbílakveðju.
  Fyrir hönd stjórn og nefnda.
  Anna Pála

Ferðafundur 2015. Read More »

Bara svona að gamni….

Eru ekki allir komnir með hugann að vori? Eins og tíðin er búin að vera hundleiðinleg í vetur þá setti félagi okkar hún Gyða Elíasdóttir nr 591 þetta myndband saman til að ylja okkur félagar góðir. Setjið nú upp sólgleraugun, hallið ykkur aftur og njótið…

https://www.youtube.com/watch?v=xEvNo-MQqPc&feature=youtu.be

Bara svona að gamni…. Read More »