Hvítasunnuferðin

Ágætu félagar.Nú eru aðeins 4 dagar í Hvítasunnuferðina okkar, sem verður að Goðalandi í Fljótshlíð. Dagskráin fylgir hér með og við vonum að sem flestir geti mætt og að veðrið verði okkur hliðhollt.Það er margt um að vera og vonandi mæta allir með góða skapið í farteskinu.Við ætlum að fylgjst með Eurovision keppninni á laugardagskvöldinu og vonandi komast okkar menn í úrslitin á fimmtudaginn. Verðlaun í boði.Félagið er með nýjar vörur til sölu á markaðnum sem tengist 30.ára afmælinu, takmarkað magn. Þeir félagar sem vilja vera með sölu hafi samband við einhvern úr stjórninni.Verð um hvítasunnuna er eftirfarandi Félagsmaður (pr. mann) 4.000,–kr. 18.ára og eldri. Gestir greiði pr.mann 5.000,–kr. 18.ára og eldri.Vinsamlegast hafið gjaldið tilbúið helst ákkúrat, það flýtir svo fyrir ferðanefndinni.Hlökkum til að hitta ykkur.Smellið hérna til að opna dagskránna.Fyrir hönd stjórnar, feðanefndar og skemmtinefndarSoffía G. Ólafsdóttir, formaður.

Hvítasunnuferðin Read More »

Skoðunardagurinn liðinn

Nú er skoðunardagurinn liðinn, 80 bílar fóru í gegnum skoðunina s.l. laugardag 4.maí hjá Frumherja á Hesthálsi. Starfsfólk Frumherja tók vel á móti okkur með góðum veitingum og í boði þeirra spiluðu Öðlingarnir fjöruga og skemmtilega tónlist. Frumherji býður félögum í Félagi húsbílaeigenda 30% afslátt á skoðun húsbíla félagsmanna gegn framvísun félagsskírteinis 2013, fram til 26. júní n.k. á öllum stöðvum Frumherja vítt og breitt um landið.Einnig veitir Frumherji 20% afslátt af skoðun heimilisbílsins.Takk fyrir góða helgi kæru félagar.Soffía G. Ólafsdóttir, formaður.

Skoðunardagurinn liðinn Read More »

Skoðun hjá Frumherja

Ágætu
félagar.
Ef einhver þarf að fara með bílinn sinn í skoðun fyrir Skoðunardag Félags
húsbílaeigenda þá býður Frumherji félagsmönnum 30% afslátt af skoðunarverði
húsbíls fram að Skoðunardegi en verðið á Skoðunardeginum 4.maí er 5.700 kr.
óháð stærð bílsins.Fjölmennum því á Skoðunardaginn til Frumherja að Hesthálsi, starfsfólk
Frumherja tekur vel á móti okkur kl. 08.00 með mogrunverði, kl. 10.00 kaffi og
vínarbrauð og svo grilla þau pulsur handa okkur um hádegisbilið. Sköpum góða
stemmingu með því að koma saman þennan dag, spjalla við félagana og svo rennum
við okkur á Víðistaðatúnið í Hafnarfirði eftir skoðun og eigum góða stunda
saman.
Sjáumst hress.Soffía

Skoðun hjá Frumherja Read More »

Félagatal, félagsskirteini og afmælishefti!

Hér má sjá afmælisblað, félagatal og félagsskírteini Félags húsbílaeigenda, nú eiga allir sem eru búnir að greiða árgjaldið að vera komnir með þessa miðla og félagsskírteinið í hendurnar.   Minni ykkur á skoðunardaginn 4.maí hjá Frumherja á Hesthálsi, félagar fjölmennum og myndum góða stemmingu í byrjun ferðaárs, endilega skráið ykkur þið sem ætlið að mæta í morgunmatinn hjá Frumherja á laugardagsmorguninn kl. 08.00 skráið ykkur á husbill@husbill.is.Sjáumst hress.Kv.Soffía

Félagatal, félagsskirteini og afmælishefti! Read More »

Nýtt efni!

Ágætu félagar: Nú er komið inn á síðuna okkar Ávarp formanns á ferðafundinum og einnig ávarp frá skemmtinefnd og fréttabréf fyrir mars, og ferðaáætlun sumarsins 2013, farið inn á linkinn “Félagið” og þar eru þessir pistlar. Allir þeir sem eru með netföng hafa fengið fréttabréfið sent á netföngin sín.Með bestu kveðju,Netstjóri Bergur Haukdal

Nýtt efni! Read More »

Árshátíð

1.-3. nóv  Hótel Örk árshátíð.  Skráning  þegar hafin,
 verð fyrir hjón 1 nótt með þriggja rétta máltíð er kr.
23.700.—ef   fólk vill koma  á föstudeginum kostar  sú
nótt fyrir tvo  (hjón) 6.900,–kr.  og er þetta með
morgunverði  báða dagana. 
Fyrir einstakling kostar  gisting og þriggja  rétta máltíð
kr. 16.800.–,  aukanóttin á föstudeginum  4.900,–kr.
Félagið sér um hljómsveit og skemmtiatriði.  Hótelið mun verða með
tilboð fyrir hótelgesti á drykkjum. Við höfum látið bóka 50
herbergi.   Endilega skráið ykkur sem fyrst nú þegar er komið í 20
 herbergi op skráning rétt byrjuð sendið skráningu á husbill@husbill.isog eins munum við taka
niður pantanir í fyrstu ferðum okkar.

Árshátíð Read More »

Seinni haustferð / Lokaferð

Föstudagur 27 sept. Hattadagur: 
21:30-22:30 Koma upp í hús og skemmta okkur saman, 
 Fyrst dansatriði  Black and White
 Svoooo  Magadans
 Svoooo  Leikþáttur
22:30 – 23:30 Óvænt uppákoma, fer eftir veðri. Fellur niður ef Kári verður vondur
Síðast en ekki síst skulum við taka lagið saman ,allir að mæta með söngbækur
23:30 – 01:00 Eða taka létta æfingu fyrir ballið á Laugardagskvöldið
Laugardagur 28 sept.
12:00 – 13:30 Kjötsúpa í boði félagsins
14:00 – 15:30  Markaður í Félagsheimilinu. (Hver græi fyrir sig.) Söngbækurnar á góðu verða til sölu  
16:00 – 17:00 Bingó spilaðar   5 umferðir 
21:15 – 21:30 Verðlauna afhending og Bílahappdrætti
21:30 – 22:30 Útsvar lokakeppni á milli SHS og Sjóarans Sífulla
22:45 – 03:00 Dansiball  Kapparnir sem slógu svo ærlega í gegn í Kjósinni í fyrra  
 Þeir Stúlli og Dúi frá Siglufirði leika fyrir dansi
Sunnudagur 29 sept.
 *Hjálpa til við frágang í Félagsheimili* Takk fyrir helgina og góða ferð heim !

Seinni haustferð / Lokaferð Read More »