Komið þið öll blessuð og sæl.
Nú er komið að lokum sumarsins hjá okkur, aðeins eru eftir rúmir 3 mánuðir af árinu 2017. Já hvert ár líður hratt, alltaf komin jól áður en maður veit af, þetta helgast nú trúlega af því að það er gaman að lifa og margt að gerast hjá okkur. Á næsta ári því herrans ári 2018 verður okkar góða félag 35 ára þá gerum við okkur dagamun, en komið verður betur að því síðar. Ferðir sumarsins hafa verið ágætlega vel sóttar af félögum okkar.
Árshátíð/Lokaferð.
Árshátíð/Lokaferð er að þessu sinni í Laugalandi Holtum sami staður og við vorum í fyrra. Þar verður margt til skemmtunar og boðið verður upp á fordrykk og þriggja rétta hátíðarmatseðil sem kvenfélagið Framtíðin sér um að framreiða. Svo sér hljómsveitin Halógen um að allir skemmti sér vel og dansi af hjartans list. Þar með líkur góðu ferðasumri og vona ég að sem flestir séu sáttir með sumarið og eigi bara góðar minningar um félagana og ferðirnar.
Aðalfundur.
Aðalfundur félagsins verður haldinn laugardaginn 14. október kl: 14.00 á sal Fjölbrautarskóla Vesturlands Akranesi. Boðið verður upp á kaffi og gott meðlæti að fundi loknum. Með fréttabréfi þessu fylgir fundarboð aðalfundarins.
Það verður breyting á stjórn félagsins. Katrín Björk Baldvinsdóttir nr. 100, hjónin Snjólaug Kristinsdóttir og Gísli Sæmundsson nr. 166, þau gefa ekki kost á sér áfram. Við þökkum þeim kærlega fyrir samveruna og gott samstarf í stjórninni.
Í stjórn félagsins gefa kost á sér Sigríður Steinólfsdóttir nr. 170, hjónin Erla Vigdís Óskarsdóttir og Jónatan Ingimarsson nr. 111. Til næstu tveggja ára.
Ferðanefndin okkar verður óbreytt næsta árið, þar sem Ásgeir M. Hjálmarsson nr. 712 og Árni Óskarsson nr. 65 gefa kost á sér til næstu tveggja ára.
Okkur vantar tvo í skemmtinefnd, Geirþrúður Ásta Jónsdóttir nr. 93, gefur ekki kost á sér áfram, við þökkum henni fyrir samveruna og gott starf í skemmtinefnd .
Netstjórinn Guðmundur Helgi Guðjónsson nr. 131 gefur kost á sér áfram.
Endurskoðendurnir gefa allir kost á sér áfram.
Þetta er skemmtilegt og gott félag, félagið er bar við sjálf, skemmtilegt fólk sem er hér og verum minnug þess að ekkert gerist af sjálfu sér. Það þarf alltaf að vera til staðar fólk sem vill gefa kost á sér í stjórn og nefndarstörf. Þetta er mjög skemmtileg og gefandi vinna, þó hún geti verið krefjandi stundum sem hún sannarlega er. Og verum þakklát þeim félögum sem leggja mikla vinnu á sig til að allt gangi vel fyrir sig og hlutirnir gangi upp. Einmitt þessa dagana erum við að leita að fólki í skemmtinefnd. Koma svo félagar.
Nýir félagar: Nr.224 Ólafur Prebensson og Anna Baldursdóttir, 111 Reykjavík.
Bestu kveðjur frá stjórn og nefndum.
Anna Pálína Magnúsdóttir formaður.
Fundarboð – Aðalfundur
Aðalfundur Félags húsbílaeigenda fyrir árið 2017 verður haldin á sal Fjölbrautarskóla Vesturlands Akranesi, laugardaginn 14. október kl: 14.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffiveitingar að fundi loknum. Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna á fundinn.
Eftirtaldir félagar gefa kost á sér í stjórn og nefndir.
Í stjórn félagins gefa kost á sér Sigríður Steinólfsdóttir nr. 170 og hjónin Erla Vigdís Óskarsdóttir og Jónatan Ingimarsson nr. 111 í 2 ár. Formaðurinn Anna Pálína Magnúsdóttir nr. 82, Sigurbjörg Einarsdóttir nr. 377, hjónin Inga Dóra Þorsteinsdóttir og Guðmundur Helgi Guðjónsson nr. 131, eiga eftir 1 ár í stjórn.
Í ferðanefnd gefa kost á sér Ásgeir M. Hjálmarsson nr. 712 og Árni Óskarsson nr. 65 í 2 ár. Ásgerður Ásta Magnúsdóttir og Ingibjörg Jónatansdóttir nr. 799, eiga eftir1 ár í ferðanefnd.
Nú vantar okkur tvo félaga í skemmtinefnd. Geirþrúður Ásta Jónsdóttir nr. 93 gefur ekki kost á sér áfram. Hafdís Brandsdóttir nr. 394, Sesselja Eiríksdóttir nr. 533, hjónin Ágústa Överby og Árni Björnsson nr. 318, eiga eftir 1 ár í skemmtinefnd.
Netstjórinn Guðmundur Helgi Guðjónsson nr. 131 gefur kost á sér áfram til starfa fyrir okkar góða félag.
Skoðunarmenn reikninga Erla Skarphéðinsdóttir nr. 568, Guðbjörg Bjarnadóttir nr. 75, og Björn Þorbjörnsson nr. 10, gefa öll kost á sér áfram í 1 ár.
Dagskrá aðalfundar:
1) Formaður setur fundinn og gerir tillögu um fundarstjóra.
2) Fundarstjóri gerir tillögu um fundarritara og kynnir dagskrá fundarins.
3) Formaður flytur skýrslu stjórnar.
4) Gjaldkeri leggur fram reikninga og skýrir reikninga félagsins.
5) Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins.
6) Ákvörðun félagsgjalda.
7) Lagabreytingar.
8) Kosningar í stjórn og nefndir.
9) Önnur mál.