Stóra ferð 2021 framundan.

Kæru félagar.
Mikið gladdi það mig hversu vel ferðin á Borg gekk fyrir sig.
Allir sem ég talaði við, óskaplega ánægðir og glaðir yfir að hittast og gleðjast saman. Félag húsbílaeigenda er einstakur félagskapur, við erum öll sammála um það.
Nú líður að næstu ferð og það er sjálf Stóraferðin okkar sem hefst á Hvammstanga þann 9 júlí og líkur þann 18 júlí. (Sjá nánar undir ferðaáætlun á husbill.is) Stjórn og nefndir funduðu í gær og fóru yfir stöðuna og það gleður mig að geta opinberað hér hvað hún kostar félaga og mögulega gesti þeirra. Þessi tala mun koma ykkur skemmtilega á óvart kæru vinir.
Ferðin kostar einungis kr. 5000 á félaga og innifalið í því er tjaldstæði frá fimmtudegi til sunnudags á Hrafnagili. Veislumáltíð og eftirréttur, skemmtiatriði og ball á laugardagskvöldinu.
Gestir greiða kr. 9500. Sem er í raun líka spottprís!
Hver og einn greiðir fyrir sig á tjaldstæðum fram að fimmtudegi.
Útilegukortið gildir einungis á Hvammstanga!
Vinaleikurinn góði er í fullu gildi en nú er sú breyting að hann hefst á mánudeginum og endar á föstudegi. Bjórleikur hefst á miðvikudeginum.
Dagskrá nánar auglýst síðar.
Við hvetjum ykkur sem viljið greiða tímalega að hafa kvittun haldbæra í síma eða á pappír þegar þið mætið í ferðina. Einnig verður posi á staðnum!
Netstjóri mun henda hér inn könnun sem er ekki bindandi á nokkurn hátt, einungins ætluð til að sjá gróflega áætlaðan fjölda þar sem tilfinning okkar er sú að áhugi sé mikill fyrir ferðinni. Ég bið því fólk um að taka þátt í könnuninni.
Við fögnum áhuganum og hlakkar til að sjá sem flesta.
Mikið sem það er dásamlegt að geta ferðast saman á ný.
Sjálf kem ég inn í ferðina á mánudegi eða þriðjudegi og get varla beðið. 
</p>

		
		
			</div><!-- .entry-content .clear -->
</div>

	
</article><!-- #post-## -->


	        <nav class= Leiðarkerfi færslu

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *