LOKAFERÐ OG ÁRSHÁTÍÐ 2021

LOKAFERÐ OG ÁRSHÁTÍÐ FÉLAGS HÚSBÍLAEIGENDA HALDIN Í VERSÖLUM FÉLAGSHEIMILI ÞORLÁKSHAFNAR LAUGARDAGINN 11. SEPTEMBER.
Kaupa miða:
Verð á miða er kr. 7.500 á mann og skal greiða inn á reikning félagsins. 0143-26-200073 kt: 681290-1099 sem allra fyrst.
Munið að setja skal félagsnúmer sem skýring á greiðslu.
Tjaldstæði + bílastæði:
Félagar skulu nýta sér tjaldstæðið (útilegukort) Þar er rafmagn. Frítt í sund fyrir eldri borgara. 2 sturtur á tjaldstæði. Bílastæði við Versali er eingöngu ætlað þeim sem eiga erfitt með gang. Lauslega talið er þar pláss fyrir c.a. 20 húsbíla af venjulegri stærð. Þar er ekki rafmagn og ekki er heimilt að mæta þangað fyrr en kl 17:00 á föstudeginum. ef fólk vill er sjálfsagt að færa sig af tjaldstæði þangað á laugardag.
Dagskrá:
Föstudagur 10. september: Engin skipulögð dagskrá frá skemmtinefnd en hún mun selja happadrættismiða á röltinu.
Laugardagur 11. september:
Kl. 11.30 – 12.30 Kynning á rafskutlum á tjaldstæðinu
Kl. 13.00 Stórtónleikar Stórsveitar Íslands í Versölum.
Leikin og sungin verða lög eftir Oddgeir Kristjánsson og Sigfús Halldórsson. Söngvarar eru Vigga Ásgeirsdóttir, Ari Jónsson og Davíð Ólafsson. Kynnir: Birna Daðadóttir Birnir. Tilvalið að taka með sér einn kaldann.
Kl. 16.00 Versalir opna til að skreyta borð. Hafið með ykkur glös fyrir drykki og hátíðarskapið.
Kl. 18.30 Versalir opna fyrir árshátíð með fordrykk.
Kl. 19.00 Formaður setur hátíðina.
Glæsilegt hlaðborð að hætti meistara kokksins Antons Viggós Viggóssonar, félaga nr. 58..
Veislustjóri Garðar Geir Sigurgeirsson félagi nr. 22.
Happadrætti
Gedduverðlaun.
Hlynur Snær trúbador leiðir fjöldasöng.
Eyþór Ingi mætir og kitlar hláturtaugar.
Dansleikur með hljómsveitinni Festival úr Borgarfirðinum.
Við gætum allra sóttvarna að sjálfsögðu. Netstjóri hefur útbúið exelskjal með nöfnum og nauðsynlegum upplýsingum um alla sem mæta. svo þið þurfið ekki að skrá ykkur á staðnum. Nægt spritt verður á staðnum og einnota hanskar til að nota þegar fólk fer á hlaðborðið.
Kveðja.
Stjórn og nefndir.

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *