Ágætu félagar, hér koma fréttir frá stjórn og nefndum. Eins og undanfarin ár þá viljum við bjóða ykkur að leggja félagsgjaldið fyrir árið 2011, kr. 4.000.- beint inn á reikning félagsins, fyrir 11. mars n.k. Eftir það verða sendir út greiðsluseðlar og bætast þá við seðilgjöld kr. 300,- (gjald sem bankinn tekur fyrir að innheimta fyrir okkur).
Áætlað er að félagatalið og félags-og afsláttarskírteinin verði tilbúin í kringum 26. mars n.k.
Athugið! Nýr reikningur félagsins er: 1193 – 26 – 6812Kennitala félagsins: 681290-1099. Látið koma fram á greiðslunni kennitölu ykkar sem tilvísun.
Ferðasumar 2011
Hér upplýsum við ykkur um dagsetningarnar á ferðum félagsins, en ekki hvert verður farið, það kemur í ljós á ferðafundinum.
5. mars – Óvissuferð
Og þar sem við þurfum að vita hversu margir ætla að koma með, þá þarf fólk að tilkynna þátttöku eigi síðar en 25. feb. n.k. Þeir sem ekki skrá sig, komast ekki í ferðina. Við byrjum á því að pikka fólk upp í
Keflavík, mæting kl. 10.00 við 88 húsið, Hafnargötu 88.
Næst er það Grindavíkurafleggjari 10.15,
Vogaafleggjari 10.20.
Næsti áfangi við Þjóðkirkjuna við Strandgötu í Hafnarfirði kl.10.50.
Reykjavík; þar mætir fólk við Grand-hótel kl. 11.20 á bílastæðinu þar sem Blómaval var og þangað koma Sunnlendingarnir líka nema það verði svo margt að þá er hugmynd að taka aðra rútu sem kemur frá Selfossi og tæki þá Sunnlendingana en þetta vitum við ekki fyrr en skránig hefst.
Mosfellingar og þeir sem eru þar í grennd mæti á planið hjá KFC kl. 11.50
Akurnesingar mæta á planið við Hvalfjarðargöngin (sín megin) kl. 12.30 og
Borgfirðingar og aðrir að vestan mæti við Borgarfjarðarbrúna, við gatnamótin þar kl. 12.50
Þetta verður mjög skemmtileg og fræðandi ferð og við hvetjum ykkur að taka þátt og sendið skráningu á husbill@husbill.is eða hringið í Soffíu 896-5057 eða Sævar 898-5920 og tilkynnið þáttöku og á hvaða stöðum þið ætlið að vera. Fylgist svo vel með á heimasíðunni ef áfangastöðum verður eitthvað breytt og við munum líka lofa ykkur að fylgjast með hversu margir koma í þessa ferð.
Verð í þessa ferð verða tilkynnt síðar, það er verið að hnýta alla lausa enda.
26. mars -Ferðafundur
Feðafundurinn verður haldinn í Miðgarði, í Gerðaskóla, í Garði, kl. 14.00
7. maí – Skoðunardagur
Skoðunardagurinn er 7. maí hjá Frumherja að Hesthálsi í Reykjavík, þetta verður með svipuðu sniði og á s.l. ári, og í kjölfarið er verið aðhuga með útilegu á laugardeginum. Upplýsingar um þessa helgi og skoðunardaginn verður nánar farið í á ferðafundinum.
27. – 29. maí – Ferð?
10. – 13. júní – Hvítasunnan að Hlöðum, Hvalfjarðarströnd.
24. – 26. júní – Ferð?
9. -17. júlí – Stóra-ferðin, vikuferð?
19. – 21. ágúst – Ferð?
9. – 11. sept. – Ferð?
23. – 25.sept. – Lokaferð ?
15. okt. – Aðalfundurinn – Haldinn í Hásölum í Hafnarfjarðarkirkju kl. 14.00
Nú geta allir sett inn á dagatalið ferðirnar og skipulagt sín frí út frá þessum dagsetningum.
Við viljum einnig minna ykkur á, að það er verið að afla auglýsinga í félagatalið og endilega þeir sem vilja auglýsa hafi samband við formann með tölvupósti eða hringi í húsbílasímann og fái verð og upplýsingar. Einnig getum við aðstoðað ykkur við að útbúa auglýsingu ef þess þarf.
Auglýsingar þurfa að berast fyrir 25. feb. n.k.
Með bestu húsbílakveðju,
f.h. stjórnar, ferða-og skemmtinefndar, Soffía G. Ólafsdóttir, formaður.