admin

Aðalfundarboð

Aðalfundur Félags húsbílaeigenda verður haldinn í Fjölbrautarskólanum á Akranesi laugardaginn 23. október kl. 14.00 Dagskrá aðalfundar skal vera: 1)  Formaður setur fundinn og gerir tillögu um fundarstjóra. 2) Fundarstjóri gerir tillögu um fundarritara og kynnir dagskrá fundarins. 3) Formaður flytur skýrslu stjórnar. 4) Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins. 5) Umræður um skýrslu formanns

Aðalfundarboð Read More »

Aðalfundurinn

FUNDARBOÐ – AÐALFUNDURAðalfundur Félags húsbílaeigenda verður haldinn 9. okt. n.k. kl. 14.00, í veislusal Knattspyrnufélagsins Vals, að Hlíðarenda. Dagskrá fundarins:

Formaður setur fundinn og tilnefnir  fundarstjóra.
Fundarstjóri tilnefnir fundarritara.
Fundarstjóri kynnir dagskrá fundarins.
Formaður flytur skýrslu stjórnar.
Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins.
Umræður um skýrslu formanns og reikninga félagsins.
Kaffihlé.
Ákvörðun félagsgjalda.
Kosningar í stjórn og nefndir.
Lagabreytingar.
Önnur mál.

Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna!
Ath! Þegar síðasta fréttabréfið fór út þá vantað fólk í ferðanefnd og skemmtinefnd og okkur hefur borist liðsauki Oddný Jónsdóttir nr. 484 gefur kost á sér í ferðanefnd og Úlfhildur Geirsdóttir og Sigvaldi Haraldsson nr. 400 gefa kost á sér í skemmtinefnd.Þá lítur þettasvona út.
Eftirtaldir aðilar gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins:

Soffía G. Ólafsdóttir nr. 24, gefur kost á sér til formanns í félaginu, næstu 2 ár. Aðrir sem gefa kost á sér í stjórn eru:
Reynir Gunnarsson nr. 786,
Guðbjörg Bjarnadóttir nr. 75,
Benedikta Benediktsdóttir nr. 60,
Hlíðar Sæmundsson nr. 2,
Ragna Helgadóttir, nr. 202,
Páll Þorsteinsson nr. 377. 

Í ferðanefnd bjóða sig fram:

 Anna M. Hálfdánardóttir nr. 165,
Sævar Gunnlaugsson nr. 421,
Ásgeir M. Hjálmarsson nr. 712
Oddný Jónsdóttir nr. 484

Í skemmtinefnd félagsins bjóða sig fram:

Elín Íris Jónasdóttir og Daði Þór Einarsson nr. 39
Halldóra M. Gunnarsdóttir og Einar V. Guðnason nr. 392.
Úlfhildur Geirsdóttir og Sigvali Haraldsson nr. 400

Sem skoðunarmenn reikninga bjóða sig fram:

Erla Skarphéðinsdóttir nr. 568,
Hjördís Þorsteinsdóttir nr. 337
Björn Þorbjörnsson nr. 10.

Hlökkum til að hitta ykkur á Aðalfundinum á laugardaginn, Soffía G. Ólafsdóttir, formaður.

Aðalfundurinn Read More »

Ferðafundurinn – dagskrá

Ágætu félagar, næstkomandi laugardag, 20. mars er ferðafundurinn í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ og hefst hann kl. 14.00. Við fáum nokkra góða gesti í heimsókn og svo verða ferðir sumarsins kynntar og er mjög spennandi að sjá hvert farið verður.
Ef komið er frá Reykjavík þá skal taka þriðju akbraut í hringtorginu, sem er við enda Úlfarsfells, inn á veg sem heitir Baugshlíð og í öðru hringtorgi fyrstu akbraut til hægri við sundlaugina og þar ertu kominn inn á planið við Lágafellsskóla.  Skólinn er við enda sundlaugarinnar.  Lágafellsskóli er í þeim enda bæjarins sem er næst Reykjavík. Við vonumst til að  sjá ykkur sem flest. –  Nánar: SKOÐA Á KORTI

Ferðafundurinn – dagskrá Read More »

Lokasendingin?

Sendi Stefnumönnum, vonandi, síðasta stóra listann með breytingum og fórum við Robbi samhliða yfir breytingarnar. Í raun og veru er fátt eftir
nema að lagfæra spjallborðið og notendaviðmótið, en við ætlum okkur að vera með einfalt spjallborð á þessum vef okkar og
þannig vonandi geta

Lokasendingin? Read More »