admin

Tveir fyrir einn

Ágætu
félagar.Þau mistök urðu í bankanum að sendir voru út tveir gíróseðlar til þeirra sem
ekki voru búnir að greiða, og eru þeir eru nákvæmlega eins.Vinsamlega hendið öðrum seðlinum og greiðið hinn. Bið ykkur sem fenguð tvo seðla innilegrar afsökunar á þessum
mistökum. Þetta getur komið fyrir.Sumarkveðjur til ykkar allra.Soffía 

Tveir fyrir einn Read More »

Skoðunardagur hjá Frumherja, Félagi húsbílaeigenda og Flökkurum

N.k. laugardag
5. maí er skoðunardagur Félags húsbílaeigenda hjá Frumherja
Hesthálsi  6-8 í Reykjavík. Félagar sem eru í Flökkurunum, og búa hér á
Stór-Reykjavíkursvæðinu, er velkomið að koma með húsbílinn sinn í skoðun
og gleðjast með okkur, skoðun hefst kl. 09.00.  Okkur er  líka boðið
að gista á planinu hjá Frumherja á föstudagskvöldinu (laugardagsnóttina)
endilega fjölmennið.
Á Akureyri eru
Flakkararnir  með sinn skoðunardag  í samvinnu við Frumherja,
 einnig 5.maí og eru okkar félagar sem búa fyrir norðan velkomnir með
húsbílinn sinn í skoðun  þangað,  og  svo er Skoðunardagur á
Sauðárkróki og Fellabæ 12. maí í samvinnu við Frumherja, og eru félagar okkar
sem búa á þessum stöðum eða í nágrenni velkomnir með húsbílinn sinn í skoðun
þangað,  allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. Boðið er upp á
pylsur og gos og haft gaman saman. Skoðað er fyrir norðan frá kl. 10.00-14.00.
Skoðunarverð á
húsbílum er 5.500 kr. óháð stærð bíls , tilboðið gildir til 27. júní n.k.20% afsláttur
af skoðunarverði á heimilisbílnum og gildir það allt árið.ATH. Afsláttur
er einungis veittur gegn framvísun félagsskírteinis 2012. 

Skoðunardagur hjá Frumherja, Félagi húsbílaeigenda og Flökkurum Read More »

Fyrsta ferð: 11. – 13. maí 2012

11-13. maí Félagsgarður í Kjós 

Föstudagur 11. maí: 20:00 – 21:30  – Varðeldur og söngur, ef veður leyfir

22:00 – 24:00  – Hljóðfæraleikararnir okkar halda uppi fjörinu .einhverja stund. Síðan verður leikin músík af geisladiskum ef áhugi er fyrir því.

Laugardagur 12. maí:13.00 – Félagsvist, Göngutúr 

15:00 – Stofnfundur Bridspilara  og gripið í spil allir velkomnir sem áhuga hafa á Bridge.

16:00 – Skyndihjálparnámskeið allir, sem áhuga hafa á að fræðast

Fyrsta ferð: 11. – 13. maí 2012 Read More »

Hvítasunnuferðin 25. – 28. maí – Þykkvibær

Verðið í ferðina er sem hér segir:Félagsmenn 18 ára og
eldri greiða kr. 3.500 kr. pr mann. Gestir greiða kr. 4.500 pr. mann.  Það
væri mjög gott að allir væru með  gjaldið tilbúið það flýtir svo fyrir
afgreiðslu.
Föstudagur 25. maíVið komuna í Þykkvabæ fá félagsmenn afhenta miða  í Hvítasunnukaffið
og blað með gátum , einnig verða gátur í Stóru ferð og lokaferð. Sá sem er með allar
gáturnar réttar  fær verðlaun á Árshátíð. Nýja söngbókin verður til sölu.

Hvítasunnuferðin 25. – 28. maí – Þykkvibær Read More »

Hvolsvöllur / Eyjar 15. – 17. júní

Nú er komið að næstu ferð kæru félagar en þá ætlum við á
Hvolsvöll, sem er Útilegukortasvæði, og þurfa þeir sem það hafa, eingöngu að borga 100 kr
Steingrímsgjaldið, eins og allir kalla það. Aðrir þeir sem ekki hafa kortið
borga 700 kr pr mann pr. nótt og er 100 kr gjaldið inn í því verði.
Rafmagn er einungis í 14 tenglum og verið er að athuga með
að bæta við tenglum og kostar rafmagnið 600 kr. pr. sólahring.
Laugardaginn 16. júní verður skottast til Eyja og verður
rútan komin á svæðið kl. 15. en sigling frá Landeyjarhöfn verður kl 16:00 Sætið(þ.e Rúta+Sigling) kostar kr. 2.500.-(Staðfest verð)Athugið að verður að skrá sig í ferðina. Áætlað er að
sigla frá Eyjum kl 23. Við fáum leiðsögn um eyna og sjálfsagt margt hægt að
gera og skoða. Skráning verður fram á fimmtudag 14. júní og vonum við að sjá
ykkur sem flest. Allir velkomnir, líka þeir sjóveiku sem treysta sér ekki í
sjóferðina. Biðjum við ykkur sem koma í ferðina að hafa aurana tilbúna, því
rukkað verður í rútunni. Skráning verður sem hér segir: Hjá Soffíu formanni gsm félagsins 896 – 5057 eða á netfangi félagsins husbill@husbill.is og hjá Önnu ferðanefnd í símum: 567 2821 & 848 9241

Hvolsvöllur / Eyjar 15. – 17. júní Read More »

Nú styttist í Stóru ferðina!

Kæru félagar, nú tel ég að flestir séu á faraldsfæti, vítt og breitt um okkar fallega land, sjálf er ég á Akureyri þessa stundina á N1 knattspyrnumótinu í bongóblíðu á tjaldstæðinu við Þórunnarstræti, bara gleði og gaman.

Nú er bara vika í Stóru ferðina okkar á Vestfirðina og vonumst við í stjórn og nefndum að sjá ykkur sem flest í þessari ferð en Vestfirðirnir hafa upp á svo margt að bjóða og fegurðin er þar mikil og svei mér þá að það hvíslaði að mér lítill fugl að veðrið yrði bara gott. 

Ég vil byrja á því að minna ykkur á að Orkan er að bjóða félögum í Félagi húsbílaeigenda- 10 kr. afslátt af bensínverði einmitt þessa viku  sem við erum í Stóru-ferðinni á öllum Orkustöðvum sínum,  endilega náið ykkur í lykil ef þið eruð ekki þegar komin með hann, sjá: orkan.is  (ef þið hafið áhuga)

Nú styttist í Stóru ferðina! Read More »

Nýr netstjóri

Jæja þá er komið að mannaskiptum í netumsjóninni. Eins og þið hafið eflaust tekið eftir hefur síðunni verið minna sinnt að undanförnu en oft áður og stafar það einfaldlega af algerum tímaskorti. Ég hafði lofað Soffíu að vera með henni fram að næsta aðalfundi, en nú hefur nýr netstjóri fundist og var hann viljugur til að taka við strax. Undirritaður því afar þakklátur, því honum hefur frekar leiðst að geta ekki sinnt þessu sómasamlega:-) 

Því býð ég nýjan netstjóra, Berg Haukdal,  velkominn í nýju stöðuna og óska honum velfarnaðar í leik og starfi.

Netfang nýs netstjóra verður hið sama og fyrr: netstjori@husbill.is

Þau ykkar sem þurfið hinsvegar að ná í mig getið t.d sent e-mail á: steinigunn@gmail.com Beztu ferðakveðjur og óskir um að við sjáumst sem fyrst!Steini og Helga á(alltof lítið hreyfðu) Viðhaldinu:-)

Nýr netstjóri Read More »

Laugaland í Holtum 17.-19.ágúst.

Ágætu félagar, næsta ferð Félags
húsbílaeigenda er um næstu helgi að Laugaland í Holtum 17.-19.ágúst.
 Skjólsælt og gott FJÖLSKYLDUTJALDSVÆÐI.
Á tjaldstæðinu er mjög góð aðstaða fyrir
börn og unglinga. Tveir sparkvellir eru á staðnum, einn gervigrasvöllur og einn
malarvöllur. Leikvöllur er á svæðinu, sundlaug með heitum pottum, rennibraut og
gufa. Dagskráin fyrir helgina fylgir hér með (sjá neðar) Við höfum afnot af
húsinu frá föstudegi til sunnudags.               
Verð fyrir félagsmann er k.r 2.500 kr.
pr. mann helgin 18.ára og eldri, gestir greiði 3.000 kr. pr. mann 18.ára og
eldri.
Tjaldsvæðið að Laugalandi í
Rangárvallasýslu er í um 6 kílómetra frá þjóðvegi 1 og er beygt hjá
Landvegamótum upp Landveg nr. 26, sama afleggjara og að Galtalækjarskógi.
Vegalengd frá Selfossi er 35 km og frá Reykjavík eru 90 km.
Þið getið farið inn á tjalda.is og valið
Suðurland og skoðað tjaldstæðið að Laugarland.
Endilega prentið út dagskrána ef þið
viljið hafa hana í bílnum hjá ykkur.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest,
stjórn, ferða-og skemmtinefnd, Félags húsbílaeigenda.
Smellið hérna til að sjá dagskrána

Laugaland í Holtum 17.-19.ágúst. Read More »

Góugleði

Minnum á Góugleðina 23.feb.n.k. i félagsheimili fáks í Elliðadalnum, Húsið opnar kl. 21,00. Dansleikur byrjar kl. 22.00–02.00
Aðgangseyrir 1.500 kr. Hittumst sem flest og hristum okkur saman, ef einhverjir vilja vera á húsbíl fyrir utan húsið er það alveg hægt.

Góugleði Read More »