Áramótakveðja

Kæru félagar, gleðilegt ár og megi nýja árið verða okkur öllum gott ferðaár.

Nú er  nýtt ár 2012 runnið upp með nýjum væntingum og þrám. Daginn er tekið að lengja smátt og smátt og fyrr en varir verður komið vor. Ég vona að þið hafið  öll notið jólanna sem best og áramótanna. Nú fer í hönd vinna hjá Stjórn og nefndum fyrir komandi sumar og ferðanend hefur nú þegar sett dagsetningar á ferðir sumarsins, sem við birtum hér með þessum pistli.

Áramótakveðja Read More »

Fréttabréf farið í póst – Aðalfundurinn og fl.

Ágætu félagar.Búið er að senda út fréttabréf október mánaðar í pósti til
allra félaga í Félagi húsbílaeigenda. Í  því er  einnig fundarboð
fyrir aðalfundinn 15. okt. n.k. í Hásölum í Hafnarfjarðarkirkju sem hefst kl. 14.00.
Fundarboðinu fylgja breytingar á lögum félagsins sem stjórnin leggur til og
farið verður yfir á aðalfundinum og bornar upp til samþykktar. Endileg hafið með
ykkur á fundinn lögin og breytingarnar á þeim, því við munum ekki ljósrita þau og
úthluta á fundinum, þar sem við sendum þetta á alla félaga.
Hlökkum til að sjá ykkur á aðalfundinum.
F.h. Stjórnar, ferða-og skemmtinefndar Félags húsbílaeigenda,Soffía G. Ólafsdóttir, formaður.

Fréttabréf farið í póst – Aðalfundurinn og fl. Read More »

CO2 losun – Lækkun bifreiðagjalda

Ágætu félagar.
Talsvert hefur verið um það að
haft hafi verið samband við  mig vegna þeirra hækkunar sem hafa orðið á
bifreiðagjöldum á þessu ári sem stafa af skatti  sem settur var á húsbíla
og flutningabíla svo kölluð CO2 losun (vegna mengunar útblásturs).
Fyrirtækið  Tækniþjónusta Íslands  býður öllum þjónustu sína með því að senda út upplýsingar um hvern og einn bíl
og kostar það okkur 1.250,– kr. til að athuga hvort lækkun verði á þessu
gjaldi sem bíllinn hefur fengið á þessu ári. Þetta þarf að gera við hvern bíl
fyrir sig, því verður hver og einn að hafa samband við Tækniþjónustu Íslands og
þeir athuga hjá samstarfsaðila sínum í Evrópu hvort til séu gögn yfir
viðkomandi bíl. Það er um að gera að nýta sér þessa þjónustu hjá Tækniþjónustu
Íslands og freista þess að ná niður kostnaði á bifreiðagjöldunum. Lesið vel
leiðbeiningarna hér fyrir neðan og farið inn á heimasíðu þeirra og þar getið
þið skráð ykkur eftir að þið hafið aflað þeirra gagna sem til þarf.
Með von um að sem flestir geti
lækkað hjá sér bifreiðagjöldin. 
Með kveðju, Soffía
Hérna eru leiðbeiningarnar og eins getið þið farið á leiðbeingasíðuna undir linknum:FÉLAGIÐ – GAGNLEGAR UPPLÝSINGAR – nú eða farið beint á vef  Tækniþjónustu Íslands

CO2 losun – Lækkun bifreiðagjalda Read More »

Félagar óskast í stjórn og nefndir

Ágætu félagar, nú vantar fólk í stjórn og nefndir  félagsins, í stjórn vantar fjóra aðila. Í ferðanefnd vantar tvo aðila og í skemmtinefndina vantar tvenn hjón. Ég hvet ykkur ágætu félagar að gefa kost á ykkur til starfa í félaginu. Það er gaman að spreyta sig á nýjum verkefnum og um leið að hafa áhrif á að gera gott félag enn betra. Endilega hafið samband við Soffíu formann í síma 896-5057 eða með tölvupósti husbill@husbill.is  
Allar ábendingar eru vel þegnar. Koma svo gott fólk.
Með bestu kveðju, Soffía G. Ólafsdóttir, formaður

Félagar óskast í stjórn og nefndir Read More »