Munið að greiða félagsgjöldin

Kæru félagar.Við framlengjum frestinn  til að greiða félagsgjaldið beint inn á reikning félagsins til 1.apríl n.k. því er um að gera að greiða félagsgjaldið sem er 4.000,–kr. inn á reikning félagsins 0542-26-276  kt. 681290-1099, látið koma fram kennitölu þess sem greiðir og ef þið getið, félagsnúmer bíls.
Eftir 1. apírl n.k. munum við senda út gíróseðla og þá bætist við 350,–kr. innheimtukostnaður sem er bankakostnaður. Félagsgjaldið 2012 þarf að vera  búið að greiða fyrir 1. maí skv. nýju lögunum sem samþykkt voru á síðasta Aðalfundi, ef félagi hefur ekki greitt fyrir þann tíma getur hann misst númerið sitt.
Við minnum á ferðafundinn sem verður laugardaginn 24. mars n.k. í Félagsheimili Karlakórs Selfoss, að Eyravegi 67,  2h.(Karlakórshúsinu) Þeir sem hafa hug á því að koma á húsbílunum mega gista á gamla flugvellinum, en  gamli flugvöllurinn handan götunnar rétt neðan við fundarstaðinn.
Félagatalið 2012  ásamt félags-og afsláttarskírteinunum, verður afhent á ferðafundinum eftir fund, (meðan kaffið er)  þeim sem hafa greitt félagsgjaldið fyrir ferðafundinn 24.mars n.k.
Vonandi fjölmennið þið á ferðafundinn, það verður spennandi að sjá hvert á að fara í sumar.Þar sem ekki verður sent út fréttabréf til þeirra sem hafa ekki netföng,  viljum við biðja ykkur að láta félaga ykkar og vini sem þið vitið að eru ekki tölvuvæddir, segja þeim frá ferðafundinum. 
Með bestu kveðju f.h. stjórnar, ferða-og skemmtinefndar, Soffía G. Ólafsdóttir, formaður Félags húsbílaeigenda

Munið að greiða félagsgjöldin Read More »

SKRÁNING Í ÓVISSUFERÐINA 3. MARS N.K.

Ágætu félagar
nú þegar hafa 30 manns skráð sig í óvissuferðina og betur má ef duga
skal.  Verið óhrædd að fara á vit ævintýranna, alltaf gaman að láta koma
sér á óvart og fara aðeins út úr þægindahringnum. Komið við á 5 stöðum
athyglisvert, hafið eitthvað með ykkur til að nærast á fyrstu klukkutímana í
föstu og fljótandi en svo er endað með kaffihlaðborði og þar verður happdrætti,
 númer bíla þeirra sem mæta verða sett í pott  og dregnir út fjórir
góðir vinningar, bensínúttektir  2 x 15.000 og 2 x 10.000 þetta eru kort frá Orkunni/Skeljungi.

SKRÁNING Í ÓVISSUFERÐINA 3. MARS N.K. Read More »

Félagsgjöldin 2012

Ágætu félagar, nú er um að
gera að greiða hið árlega félagsgjald sem er 4.000,–kr. inn á reikning
félagsins 0542-26-276  kt. 681290-1099, látið koma fram kennitölu þess sem
greiðir og ef þið getið, nr. bíls.Eftir 10. mars n.k. munum við
senda út gíróseðla og þá bætist við 350,–kr. innheimtukostnaður sem er
bankakostnaður.
Félagsgjaldið 2012 þarf að

Félagsgjöldin 2012 Read More »

Stóraferðin 14. – 22. júlí – Vestfirðir/Strandir

14. – 22. júlí Stóra-ferð: Vestfirðir/Strandir

Dagur 1
Lau – Hólmavík

Dagur 2
Sun – Dalbær Snæfjallaströnd

Dagur 3
Mán – Heydalur

Dagur 4
Þri – Súðavík

Dagur 5
Mið – Ísafjörður

Dagur 6
Fim – Ísafjörður

Dagur 7
Föst – Bolungarvík

Dagur 8
Lau – Bolungarvík / Lokahóf með mat í Félagsheimili Bolungarvíkur

Dagur 9
Sun – Heimferð!

Athugið að hver og einn ræður sínum brottfarartíma, og á það við um alla dagana,

Stóraferðin 14. – 22. júlí – Vestfirðir/Strandir Read More »